Þjóðviljinn - 14.07.1990, Page 6
Átak Slysavarnafélagsins
KOMUM
HEIL
Slysvarnafélag íslands er
með sérstakt átak í gangi í sum-
ar. Þetta er gert til að vara fólk
við haettum sem geta fylgt
ferðalögum innanlands. Átakið
hefurfengið nafnið „Komum
heil heim".
Fjölskyldan er farin að undirbúa kvöldmatinn. Foreldrarnir eru úti en strákurinn að rannsaka gastækið nánar.
Eldurinn gýs upp og breiðist út ð svipstundu um tjaldið. Pabbi kemur i loftköstum og bjargar stráknum á
síðustu stundu.
Tjaldið brennur til kaldra kola og allt sem í því er. Feröln verður öðruvisi en ætfað yar. Þetla hefði getað
farið enn verr. Förum gætilega með eld. Gastækl eru hættuleg og tjöld og viðlegubúnaður eru búin tll úr
eldflmum efnum. örtitil gætnl getur skipt sköpum og skllið milli Iffs og dauða.
Vísindaráð
Rúmar 120 miljónir
til 202 rannsókna-
verkefna
Nýverið tilkynnti Vísindaráð
um styrkúthlutanir úr Vís-
indasjóði fyrir árið 1990. í ár út-
hlutar sjóðurinn 202 styrkjum til
visindarannsókna að upphæð
rúmar 121 miljónir króna, en 290
umsóknir um styrki bárust sjóðn-
um að upphæð 277 mkr.
Vísindasjóður er í vörslu Vís-
indaráðs, en hlutverk ráðsins er
að efla íslenskar vísindarann-
sóknir. Vísindaráð skiptist í þrjár
deildir: náttúruvísindadeild, líf-
og læknisfræðideild og hug- og
félagsvísindadeild. Stjórn Vís-
indaráðs ákveður hvernig ráð-
stöfunarfé Vísindasjóðs skiptist
milli deilda, en stjórnir deildanna
úthluta styrkjum.
Af styrkveitingunum nú fer
lang mest til rannsókna á sviði
raunvísinda, náttúrufræða og
læknisfræða eða samtals ríflega
91 miljón króna. Til vísinda-
iðkana á sviði hugvísinda eru að
þessu sinni veittir styrkir fyrir
tæpar 30 miljónir króna.
Eins og gefur að skilja eru
verkefnin sem styrkt eru með
fjárframlögum úr Vísindasjóði
ærið mismunandi að eðli og um-
fangi. Hæstan styrk, samtals 4
miljónir króna, hlaut að þessu
sinni verkefni þeirra Hafliða P.
Gíslasonar, Jóns Péturssonar og
Viðars Guðmundssonar er nefn-
ist „Ljómunarmælingar og segul-
hermingar. Mælingar á ljómun-
artíma. Víxlverkun rafeindagass
og veilna í málmi“.
Á sviði vísindarannsókna í
hug- og félagsvísindum voru að
þessu sinni veittir samtals 68
styrkir. Þar af flestir til
sagnfæðirannsókna eða 12 talsins
og bókmenntafræði 11. Því næst
voru veittir flestir styrkir til forn-
leifafræði eða alls sex.
Þær Bergljót Kristjánsdóttir og
Guðrún Ingólfsdóttir hlutu hæsta
styrkinn sem veittur er í ár á sviði
hug- og félagsvísinda eða
1500.000 krónur til verkefnis er
nefnist „Lykilbók íslendinga
sagna og þátta“.
Þótt vel flestir styrkjanna séu
veittir til rannsókna einstaklinga,
veitir Vísindaráð einnig nokkra
styrki til stofnana og til útgáfu á
rannsóknaniðurstöðum. Þannig
fær Héraðsskjalasafn Skagfirð-
inga 200.000 króna styrk til gerð-
ar nafna- og efnislykla yfir skjala-
kost safnsins og Sögufélag styrk
til að ljúka útgáfu á skjölum
Landsnefndarinnar fyrir 1770-
1771 og er þá aðeins fátt upp tal-
ið.
Veittir styrkir til rannsókna á
sviði líf- og læknisfræða eru 56 að
tölu og nemur heildarstyrkfjár-
hæð rúmlega 40 miljónum króna.
Flestir styrkir eru veittir til verk-
efna í lyflækningum eða átta og
næst flestir styrkjanna eða sex
eru til rannsókna í líffræði.
Hæstan styrk á sviði líf- og
læknisfræði hlutu Jórunn Erla
Eyfjörð og Helga M. Ögmunds-
dóttir til rannsókna á eðli og erfð-
afræðilegum þáttum brjóst-
krabbameins, eða 1.800.000
krónur.
Meðal annarra verkefna sem
styrk hlutu má nefna athugun á
orsökum dægursveiflna líkams-
hita og svefns, ratvísi taugafruma
í miðtaugakerfi fóstra, lengd
fengitíma sauðfjár og hreyfistarf-
semi endaþarms og vélinda í
börnum með eða án líkamlegra
fötlunar.
Þetta árið eru flestir styrkir
veittir til náttúruvísinda eða 78.
Heildar upphæð styrkja er tæp 51
mkr.
Flesta styrki hljóta jarðvísind-
arannsóknir eða 25, þar af 15 til
verkefna á sviði jarðfræði og 10 á
sviði jarðeðlisfræði. Níu styrkir
eru veittir til vistfræðirannsókna.
Styrkir til verkefna á vettvangi
annarra greina náttúruvísinda
eru færri.
Eins og áður var frá greint
hlutu þeir Hafliði P. Gíslason,
Jón Pétursson og Viðar Guð-
mundsson hæstu styrkupphæðina
sem úthlutað er í ár. Áf öðrum
verkefnum sem styrkir eru veittir
til má nefna athugun á veðurfari í
ísaldarlok, gerð jarðfræðikorts af
Heklu, rannsókn á áhrifum
veðurfars á hafstrauma og sjó-
gerðir norðan íslands, gerð
reiknilíkans fyrir grunnsjávar-
strauma og til sjávarstöðumæl-
inga.
-rk
Síðasti pöntunardagur næsta hluta ríkissamningsins til
kaupa á Macintosh tölvubúnaði með veruiegum afslætti er:
Innkaupastofnun ríkisins
Ú Apple-umboðið Radíóbúðiu hf.