Þjóðviljinn - 15.08.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR
Aldraðir
Framhaldsskólar
Skólahald í vetur í óvissu
Eggert Lárusson: Félagsmenn kalla á harðar aðgerðir og hætt við
truflunum á skólahaldi. Svavar Gestsson: Ekki hœgt að ákveða við-
brögð við því sem ekki er vitað hvað verður
Ovissa ríkir um framkvæmd
skólahalds í framhaldsskólum
landsins í vetur vegna aðgerða fé-
laga í Hinu íslenska kennarafé-
lagi. Eggert Lárusson formaður
HIK segir félagsmenn kalla á
harðar aðgerðir vegna bráða-
birgðalaganna á Bandalag há-
skólamanna, en félagið muni hins
vegar aðeins standa að löglegum
aðgerðum. Svavar Gestsson
menntamálaráðherra segir það
Eg er er vinstrimaður og fannst
því ómögulegt annað en að
hafa Þjóðviljann með mér hingað
um verslunarmannahelgina,
sagði Lowana Veal frá Cam-
bridge-skíri í Englandi, þegar tíð-
indamaður Þjóðviljans rakst sér
til ánægju á hana á tjaidstæðinu í
Hornvík lesandi blaðið með hjálp
hræðilega tilhugsun ef truflanir
verða á skólahaldi i vetur.
Eggert sagði Þjóðviljanum að
það væri hætt við því að einhver
truflun verði á skólahaldi í haust
vegna aðgerða kennara, þó engar
endanlegar ákvarðanir hefðu
verið teknar um hvernig ætti að
bregðast við bráðabirgðalögum
ríkisstjómarinnar. Það væri líka
spurning hvort nokkrar form-
legar ákvarðanir yrðu teknar af
íslensk-enskrar orðabókar.
Lowana er líffræðingur og
lærði hrafl í íslensku á sínum tíma
þegar hún starfaði hér um skeið
að sumarlagi, en var þarna á ferð
með Útivist um Hornstrandir í
stuttri heimsókn núna. Alls var
fólk af fimm þjóðernum saman-
komið í ferðinni, auk íslands áttu
félagsins hálfu. Innan félagsins
væri engu að síður kallað á harðar
aðgerðir.
„Félagið beitir sér aðeins fyrir
löglegum aðgerðum“, sagði Egg-
ert. Það væru til dæmis ýmis
aukastörf sem kennarar gætu
neitað að taka að sér. Kennarar
gætu sagt upp vinnuaðstöðu sem
þeir væm með heima hjá sér og
þeim bæri ekki skylda til að
leggja til og skólamir þyrftu þá að
fulltrúa Sviss, Þýskaland, Sví-
þjóð og England. Fararstjóri var
Gísli Hjartarson, nú ritstjóri
Skutuls en fyrrverandi ritstjóri
Vestfirðings, en ljósmyndari og
tíðindamaður Þjóðviljans hins
vegar Kristinn H. Gunnarsson,
núverandi ritstjóri Vestfirðings.
sjá fyrir þeirri aðstöðu. Málin
væru á því stigi nú að menn væm
að skoða mögulegar leiðir.
Allt frá árinu 1984 hefur verið
órói í skólakerfinu, óttast kenn-
arar ekki að aðgerðir nú kunni að
minnka vinsældir þeirra og sam-
úð úti í þjóðfélaginu? „Við höf-
um ekki orðið vör við að almenn-
ingur eða þetta, sem kallað er úti
í þjóðfélaginu, meti störf okkar
mikils. Að minnsta kosti hafa
menn verið að reyna að slá sér
upp hjá almenningi með því að
setja á okkur lög hvað eftir ann-
að“, sagði Eggert.
Svavar Gestsson sagðist í fyrsta
lagi ekkert vita um þetta mál ann-
að en það sem verið hefði í fjöl-
miðlum. Kennarar eða skóla-
meistarar hefðu ekki gert honum
grein fyrir hugsanlegum
breytingum á skólastarfi. „Það er
því erfitt fyrir mig að svara því
hvernig tekið verður á hlutum
sem maður veit ekki hvernig
verða. En ég mun að sjálfsögðu
tala við kennara og skólameistara
ef þeir óska þess“, sagði Svavar.
Menntamálaráðherra sagði
það hræðilega tilhugsun ef trufl-
un verður á skólahaldi í vetur.
Það væri búið að vera ófriður af
ýmsu tagi í skólunum allt frá
1984, að vetrinum 1989-1990
undanskildum, og allt yrði gert til
að verja skólastarfið skakkaföll-
um og sviftingum sem fyrst og
fremst ættu sér efnahagslegan
bakgrunn.
Svavar sagðist ekki geta svarað
því hvað hægt væri að gera ef
skólastarf verður fyrir truflunum,
t.d. vegna fundahalda kennara.
Hann tryði ekki öðru fyrr en
hann tæki á því, að menn reyndu
að haga hlutunum þannig að þeir
bitnuðu ekki á nemendum.
Eggert sagði ekki standa til að
ræða við menntamálaráðuneytið
í tengslum við hugsanlegar að-
gerðir. Menntamálaráðherra
væri ráðherra í þeirri sömu ríkis-
stjórn og samdi við BHMR og
hefði síðan tekið þann samning af
með lögum.
-hmp
Hjúkmnar-
heimili
í bígerð
Borgarráð ákvað í gær að
ganga til samstarfs við ýmsa aðila
um sjálfseignarstofnun sem ætlað
er að byggja hjúkrunarheimili
fyrir aldraða, en mikill skortur er
á hjúkrunarrými í borginni.
Rætt er um að Seltjarnarnes-
kaupstaður, sjálfseignarstofnun-
in Skjól, Samtök blindra og sjón-
skertra og Sjómannadagurinn í
Reykjavík og Hafnarfirði eigi að-
ild að stofnuninni auk borgarinn-
ar. Fleiri aðilum verður þó gefinn
kostur á að eiga hlut að máli.
Sveitarfélög
Viðræðunefnd
borgar og
Kópavogs
Kópavogur og Reykjavíkur-
borg hafa ákveðið að setja á stofn
viðræðunefnd þessara sveitarfé-
laga og er gert ráð fyrir að í henni
muni sitja fjórir fulltrúar frá
hvoru sveitarfélagi. Nefndinni er
ætlað að ræða ýmis sameiginleg
mál sveitarfélaganna, svo sem
skipulag í Fossvogsdal, frárenns-
lismál, landamerki, hitaveitu og
fleira. Borgarráð ákvað í gær að
skipað skyldi í nefndina af hálfu
borgarinnar á borgarráðsfundi að
viku liðinni.
-gg
Borgin
Gámar fyrir
garðasoip
Borgarráð samþykkti í gær til-
lögu Sigrúnar Magnúsdóttur,
borgarfulltrúa Framsóknar-
flokksins, um að koma fyrir sér-
stökum gámum fyrir garðasorp.
Gámarnir verða settir þar sem
gatnamálastjóri hefur bækistöðv-
ar.
-gg
Lowana Veal les hinn ómissandi Þjóðvilja með aðstoð orðabókarinnar á tjaldstæðinu í Homvík um
Verslunarmannahelgina. í baksýn Miðfell, Hornbæirnir gömlu og Kálfatindar. Mynd: KHG.
Fjölmiðlar
Með Þjóðviljann og orðabókina
Helgarferð
um Snæfellsnes
Gistihúsið Gimli á Hellissandi
stendur fyrir helgarferð um utan-
vert Snæfellsnes um næstu helgi.
Skoðunarferðin hefst kl. 10 á
laugardagsmorgun og verður far-
ið í hópferðabíl að undirhlíðum
Snæfellsjökuls í Eysteinsdal,
skoðaðar fornar minjar um ver-
stöð á Gufuskálum, fiskbirgin,
frskabrunn og Gufuskálavör. Þá
verður farið að söguslóðum, að
Björnssteini og Keflavíkurvör á
Rifi og Hellissandi. Ströndin frá
Rifi að Skarðsvík verður skoðuð
og ef tími vinnst til verður gengið
á Rauðhól og Vatnsborg. Eftir
heimsókn í Sjóminjasafnið á
Hellissandi verður snæddur
kvöldverður í Sjólist á Helliss-
andi. Á sunnudag verður lagt af
stað kl. 10 og ekið fyrir Jökul að
Arnarstapa. Djúpalónssandur,
Hólahólar, Purkhólasvæðið,
Lóndrangar og Hellnar eru
áhugaverðir staðir á leiðinni.
Hádegisverður í Arnarbæ á Arn-
arstapa. Komið verður aftur til
Hellissands kl. 16.30. Gestir
Gistihússins Gimli njóta forgangs
að ferðinni og skal tilkynna þátt-
töku þangað í síma 93-66825. í
Fiskbirgi á Gufuskálum.
ferðunum verður staðkunnugur
leiðsögumaður.
Danskir
hrossaeigendur
á námskeiði
Um þessar mundir eru tæplega 40
danskir ræktendur íslenska
hestsins á námskeiði á Hvann-
eyri, en námskeiðið er skipulagt
af Bændaskólanum á Hvanneyri í
samvinnu við búnaðarskólann á
Dalum á Fjóni. Á námskeiðinu
er fjallað um ýmsa mikilvæga
þætti í íslenskri hrossarækt auk
þess sem boðið er upp á
reiðkennslu og farið í heimsóknir
á hrossaræktarbú. Samstarf á
milli skólanna um námskeiða-
hald hófst á síðasta ári og komu
hingað um 30 danskir sauðfjárá-
hugamenn hingað til lands í sept-
ember í fyrra til að kynna sér ís-
lenska sauðfjárrækt. Námskeið-
inu lýkur um næstu helgi.
Brunatækni á sjó
Norræn nefnd um Brunaprófanir
„Nordtest brand“ heldur fund
sinn á íslandi á fimmtudag og
föstudag. í tengslum við fundinn
verður haldinn opinn kynningar-
fundur þar sem sérstaklega verð-
ur fjallað um brunaprófanir og
öryggiskörfur vegna bruna í
skipum og mannvirkjum á haf-
inu. Fyrirlesarar verða Guðni A.
Jóhannesson, prófessor við
Tækniháskólann í Stokkhólmi,
Ejnar Danö yfirmaður Bruna-
tæknideildar Dantest, Ulf Wick-
ström prófessor og yfirmaður
Brunatæknideildar Statens
Provningsanstalt í Borás og
Pentti Loikkanen prófessor og
yfirmaður Brunatæknideildar
VTT í Finnlandi. Á eftir verða
fyrirspurnir og umræður. Fund-
urinn verður haldinn í ráðstefnu-
sal Rannsóknastofnunar bygg-
ingariðnaðarins að Keldnaholti
og hefst fimmtudaginn 16. ágúst
kl. 15. Reiknað er með að fund-
urinn standi til kl. 18.
Umhverfismerkingar
á íslandi
Norrænn samstarfshópur um já-
kvæðar umhverfismerkingar á
framleiðsluvörum sem var stofn-
settur af Norrænu ráðherra-
nefndinni sl. haust, til að koma á
samræmdum umhverfismerking-
um á framleiðsluvörur, mun
funda í Reykjavík á fimmtudag
og föstudag. Tilgangur fundarins
er að auka samstarf við fsland um
samnorrænar umhverfismerking-
ar.
Norræna stjórnmála-
fræöisambandiö þingar
í dag hefst í Háskóla íslands 9.
þing Norræna stjórnmálafræði-
sambandsins, en Félagsvísinda-
deild Háskólans hefur veg og
vanda af skipulagningu þingsins.
Um 200 stjórnmálafræðingar
hvaðanæva af Norðurlöndunum
sitjaráðstefnuna. Ráðstefnugest-
ir munu vinna í litlum vinnuhóp-
um, þar sem afmörkuð málefni
verða rædd frá sjónarhóli
stjórnmálafræðinnar. Má þar
nefna umræðuhópa um þróunina
í A-Evrópu, umhverfisstjórnmál,
skipulag stjómmálaflokka,
jafnrétti kynjanna á næsta ára-
tug, opinbera stjórnsýslu og
stefnumótun, og Norðurlöndin
og samrunaþróunina í Evrópu.
Þá verður einnig haldin sameigin-
leg námsstefna um íslensk
stjórnmál fimmtudaginn 16. ág-
úst, sem prófessor Svanur Krist-
jánsson stjórnar.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 15. ágúst 1990