Þjóðviljinn - 15.08.1990, Síða 9
Tímarit
Líklega er ekki næsta mörgum
það kunnugt að nálægt síðustu
aldamótum var merkilegur
hugvitsmaður vestur á Snæfells-
nesi að glíma við að finna upp vél,
sem gæti létt íslenskum sjó-
mönnum hinn 1100 ára langa ára-
burð. Átti þetta að vera einskon-
ar róðrarvél.
Hinn snjalli hugvitsmaður hét
Guðbrandur, sonur séra Þorkels
Eyjólfssonar prests í Ásum í
Skaftártungu og á Borg á Mýrum
og konu hans, frú Ragnheiðar
Pálsdóttur. Meðal barna þeirra
prestshjóna má, auk Guðbrands,
nefna dr. Jón „forna“, þjóð-
skjalavörð og Eyjólf Þorkelsson
úrsmið, annan hugvitsmanninn
til, sem fyrstur íslendinga tók
próf í úrsmíði erlendis. Smíðaði
m.a. klukku, sem sýndi flóð og
fjöru, tunglkomur, mánaðardaga
o.fl. Eyjólfur er einnig talinn
hafa fengist fyrstur manna við
rafmagn hér á landi. Pað mun
hafa verið 1901 að kveikt var á
þremur 16 kerta rafmagnsperum
í Reykjavík. Þar var Eyjólfur úr-
smiður að verki. Eyjólfur bauðst
einnig til þess um aldamótin að
útvega tilboð frá Þjóðverjum um
að raflýsa Reykjavík og yrði raf-
magnið leitt frá Varmá. Átti
framkvæmdin að kosta 100 þús.
kr. en var talin bæjarfélaginu of-
viða.
En annars er það róðrarvélin,
sem er á dagskrá. Það eru engin
ný sannindi að það kostar fjár-
muni og þá oftast mikla, að gera
snjallar hugmyndir að áþreifan-
legum veruleika. Þá fjármuni
hafði hugvitsmaðurinn Guð-
brandur ekki handbæra. Og hann
fékk ekki þá fyrirgreiðslu, sem
honum var nauðsynleg. Öefað
hefur það valdið Guðbrandi sár-
um vonbrigðum að fá ekki óyggj-
andi sönnur á notagildi hug-
myndar sinnar. Not hennar hefðu
þó ekki orðið langæ. Árastritið
var brátt að baki. Árið 1902 var
fyrst sett olíuvél í bát á íslandi.
Vélbátaöldin var gengin í garð.
Frá því sem hér hefur verið tæpt
á, segir Lúðvík Kristjánsson rit-
höfundur í nýútkomnum Breið-
firðingi, hinum 48. í röðinni.
Þessu næst kemur yfirgrips-
mikil og fróðleg grein,
„Fróðleiksmolar um Skarðs-
verja“, eftir Einar G. Pétursson.
Fjallar fyrsti hlutinn um Skarðs-
verja allt frá Lofti ríka til Eggerts
Björnssonar. Kvæðið mun ort
um 1677 en höfundur þess er
óþekktur. í þriðja kafla ritgerð-
arinnar eru deili sögð á þeim
Skarðsverjum, sem um er getið í
Bændahætti. Loks er svo rakin
ætt Skarðsverja allt frá Ingólfi
Arnarsyni og til þessa dags.
Enginn vafi er á því, að bú-
skapurinn í Breiðafjarðareyjum
hefur á margan hátt verið heil-
landi en um leið oft erfiður þegar
um var að ræða aðdrætti, flutning
á búfé milli eyjanna og meginl-
andsins, heyflutninga, læknis-
vitjanir o.fl. Það var ekki fyrr en
með komu vélbátanna, á árunum
fyrir 1930, sem þessu striti var létt
af mannshöndinni. Bergsveinn
Breiðfjörð bregður hér upp lýs-
andi mynd af þessari hörðu lífs-
baráttu. - Jón Sigurðsson rifjar
upp minningar frá bernsku-
árunum, þegar hann flutti með
foreldrum sínum frá Litla-
Langadal á Skógarströnd og út í
Gvendareyjar. - Hinn 21. okt.
1979 var minnst aldarafmælis
Stykkishólmskirkju. Við það
tækifæri flutti séra Ingiberg
Hannesson erindi þar sem hann
minnist þeirra presta er þjónað
hafa Stykkishólmi allt frá séra
Eiríki Kúld, en hann fékk
veitingu fyrir Helgafelli árið 1860
og hélt því til æviloka. Er út-
dráttur úr þessu erindi nú birtur í
Breiðfirðingi. - Á öndverðu ári
1918 efndi SÍS til þriggja mánaða
námskeiðs í Reykjavík og mun
þar einkum hafa verið fjallað um
samvinnumál. Einn þeirra, sem
það sóttu, var Flosi Jónsson frá
Hörðubóli í Dölum. Hér segir
hann frá ferð sinni á námskeiðið
og heim, þátttakendum og fyrir-
lesurum og komu þar margir
merkir menn við sögu. Eru og
birtar myndir af þeim öllum.
Þá á Jón Samsonarson þarna
mjög skemmtilega grein, sem
hann nefnir: „Frá breiðfirskum
skemmtunarmönnum á liðinni
öld - fátt eitt“. í þessum hópi er
hvað fyrirferðarmestur Hannes
Hannesson, að auknefni hinn
stutti, en ýmsir fleiri eru þarna á
kreiki. f þættinum er að finna
mikið af ýmiss konar kveðskap
eftir Hannes en einnig ýmsa
fleiri, svo sem þann snjalla hag-
yrðing, Harastaða-Einar. Þá er
þarna grein eftir Jón Guðmunds-
son, Skáldsstöðum, er hann nefn-
ir „Farðu varlega með dauðs
manns bein“. - Enn ber að nefna
grein Benedikts Jónssonar um
merkiskonuna Theódóru Guð-
laugsdóttur frá Hóli í Hvamms-
sveit, grein Ásgeirs í Ásgarði um
Jónas Jóhannsson, fyrrum bónda
á Valþúfu á Fellsströnd níræðan,
grein eftir Jónas um leiki barna
og leikföng í hans ungdæmi og
minningargrein um Þorstein B.
Pétursson frá Ytrafelli, eftir Ólaf
Proppé. Loks segir Birgir Krist-
jánsson frá starfi Breiðfirðinga-
félagsins. Allmargar myndir
prýða ritið, sem er um 200 bls.,
bæði efnismikið og -gott.
Ritstjórar eru þeir Árni
Björnsson og Einar G. Péturs-
son. Afgreiðslu Breiðfirðings
annast Jón Magnússon, Baróns-
stíg 24, símar: 622579 og 21194.
Breiðfirðingur er nú allur fáan-
legur frá byrjun. Þarf enginn að
efast um að það sé eigulegt safn.
mhg
LESENDABRÉF
KÍ
KENNARASAMBAND ÍSLANDS
Verðbólgupúkamir
Ríkisstjórnin núverandi á að
fara hið snarasta frá? Þetta segja
íhaldsmálgögnin Mogginn og DV
og eru hin hróðugustu, og telja að
nú verði Sjálfstæðisflokkurinn að
taka við stjórninni, rétta þjóðar-
haginn, eins og þeir séu vanir
eftir óstjórn rauðliða, og áfram
halda þessi málgögn: Það er ljóst
að stærsti flokkur þjóðarinnar
verður að gera þessum deli-
kventum það ljóst, að lystisemdir
ráðherra og þeirra gæðinga verð-
ur að stöðva svo betri menn fjalli
um þau mál eftir alla óstjórnina,
svo mörg eru þau orð.
Nú væri ekki úr vegi að minnast
dálítið á íhaldsgaurana er stjórn-
uðu í tíð Þorsteins Pálssonar og
Alberts Guðmundssonar, stjórn-
inni er talin hefur með réttu ein
hin alversta stjórn er starfað hef-
ur í landinu síðan lýðveldið var
stofnað á Þingvöllum 1944.
Þessi stjórn þeirra kumpána
setti allt efnahagskerfið úr
skorðum, og verðbólguhraðinn
jókst jafnt og þétt, og vextir ruku
upp úr öllu valdi eins og fólk
man, sérstaklega unga fólkið er
var að baksa að koma þaki yfir
höfuðið, en lenti svo í klóm okr-
ara er svifust einskis ef því var að
skipta.
Þá komst í gang neðanjarðar-
kerfið fræga þar sem okrarar og
peningamenn möluðu gull á
þessu óhamingjusama fólki er
átti í engin hús að venda þegar
ættingjar og venslafólk gátu ekki
leyst dæmið, svo þá varð að snúa
sér annað og banka upp hjá kerfi
púkanna. Þetta er ljót saga er
íhaldið getur ekki þvegið af sér,
ennfremur óð þá uppi í þjóðfé-
laginu allskonar braskaralýður er
virtist hafa greiðan aðgang að
stjórnvöldum til að stoftía fyrir-
tæki á fyrirtæki ofan jafnvel á 10
mínútum einsog frægt er orðið.
Svona voru stjórnarhættir þeirra
er nú vilja ólmir komast í stjórn.
Og nú þegar haustar að situr
þessi rumpulýður um líf ríkis-
stjórnarinnar, þegar brimið eykst
við varnargarða rauðu strikanna,
og á sér enga ósk betri en að
stjórnin spryngi í loft upp, svo
hægt sé að byrja sama leikinn upp
á nýtt einsog 1986.
En það er engin ástæða að svo
fari, stjórnin hefur eftir atvikum
staðið sig vel, minnkað verðbólg-
una, þó að lendi að vísu mest á
láglaunafólki, þá er það ólíkt
skárra en á svalltímum íhaldsins.
Það er vissulega ánægjulegt að
frétta um þann mikla áhuga sem
mörg verkalýðsfélög sýna í sam-
bandi við verðgæslu í landinu.
Það er eins og verkalýðsforingj-
unum sé orðið það ljóst að það
þýðir ekkert að steyta hnefanum
framan í fólk í sjónvarpinu, það
verður að gera eitthvað raun-
hæft. Þessi doði og kyrrstaða sem
hefur ríkt í þessum málum verður
að hverfa, fólk verður að rísa upp
gagnvart þeim gegndarlausu
verslunarháttum þar sem
kaupmangararnir mala gull á
varnarlausu fólki, eins og að
drekka vatn.
Verðbólgupúkarnir halda því
hiklaust áfram sinni iðju, það er
þeirra eðli. En fólk má ekki gef-
ast upp. Það getur varist þessum
ófögnuði með því að efla verð-
skyn sitt og halda verkalýðsfor-
ingjunum hræddum, því það eru
sviíc þeirra hvernig fépúkarnir
hafa fengið að vaða um þjóðfé-
lagið til bölvunar fyrir það fólk,
sem ber lítið úr býtum.
Með kveðju
Páll Hildiþórs
Verkefna-og námsstyrkjasjóður Kennara-
sambands Islands auglýsir eftir umsóknum
um námslaun
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að úthluta náms-
launum til kennara sem hyggjast stunda nám
skólaárið 1991-1992. Um er að ræða styrkveit-
ingar skv. a-lið 6. greinar um Verkefna- og
námsstyrkjasjóð KÍ frá 15. febrúar 1990.
Væntanlegir styrkþegar munu fá greidd laun á
námsleyfistíma í allt að 12 mánuði eftir lengd
náms. Hlutfall launagreiðslna verður í samræmi
við umfang námsins.
Umsóknum ber að skila á eyðublaði sem fæst á
skrifstofu Kennarasambands íslands, Grettis-
götu 89, 105 Reykjavík. Umsóknarfrestur ertil
10. september n.k.
Umboðsmaður
óskast
Þjóðviljann vantar um-
boðsmann í Hveragerði
Vinsamlegast hafið samband við afgreiðslu
blaðsins í síma 91-68 13 33.
Miðvikudagur 15. ágúst 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9