Þjóðviljinn - 21.09.1990, Blaðsíða 18
Sigur blasir við
Gata Kamsky
Ekki er það bara á íslandi að ung-
lingar bjóða þeim eldri og reyndari
byrginn. Undrabarnið Gata Kamsky
er aftur í fréttunum sakir frábærrar
frammistöðu á hinu virta móti í Til-
burg í Hollandi. Þegar ólokið er fjór-
um umferðum af 14 hefur Kamsky,
sem er aðeins 16 ára gamall, hlotið 7
vinninga af 10 mögulegum og er einn í
efsta sæti. Hann sigraði Vasily Ivant-
sjúk í 10. umferð og gerði þar með
vonir Ukraínumannsins um sigur í
mótinu að engu. Kamsky hefur vinn-
ingsforskot á Nigel Short sem hefur
sótt sig mjög eftir slaka byrjun.
Kamsky hefur verið í fararbroddi
allt mótið, hefur unnið fimm skákir,
gert fjögur jafntefli og aðeins tapað
einni skák. Staðan að loknum 10 um-
ferðum:
1. Kamsky 7 v. 2. Short 6 v. 3. Ivant-
sjúk SVi v. 4.-5. Andersson og Nikolic
4>/2 v. 6. Gelfand 4 v. + biðskák. 7.
Seirawan 4 v. 8. Timman 3‘A v +
biðskák.
Kamsky hóf mótið með því að
leggja Boris Gelfand. Þá kom jafn-
tefli við Short og gat Englendingurinn
þakkað fyrir þau úrslit því Kamsky
átti auðunna stöðu. Jafntefli í 3. um-
ferð við Ivantsjúk og þá sigur yfir
Nikolic, Timman og Andersson.
Kamsky gerði síðan tvö jafntefli við
Seirawan og Gelfand og svo í 9. um-
ferð tapaði hann sinni fyrstu skák
fyrir Nigel Short. Er drengurinn að
brotna? spurðu menn, og svarið kom
í 10. umferð sem tefld var á þriðju-
daginn. Vasily Ivantsjúk var hrein-
lega rúllað upp, og þó aðeins skilji
vinning Kamsky og Short er fátt sem
bendir til þess að fyrsta sætið skipti
um eigendur:
6. umferð:
Ulf Andererson -
Gata Kamsky
Kóngsindversk vörn
byggt upp
>g e7-e5 en
1. Rf3 Rf6
2. d4g6
5. h3 0-0
6. c4 c6
3. Bf4 Bg7 7- Rc3 Rbd7
4. e3 d6 8- Be2 a6
(Svartur getur einnig
stöou sína með - De8 og
reynslan hefur sýnt að oft lifnar yfir
svartreita biskupi hvíts eftir framrás-
ina c4-c5.)
9. 0-0 b5 13. d5 Rb6
10. Hcl Bb7 14. e4 Rxc4
11. Rd2 bxc4 15. Bxc4 a5
12. Rxc4 c5 16. Hel
(Einnig kom til greina að leika 16.
De2. Staðan fær nú á sig yfirbragð
Benony-varnar.)
16. .. Ba6
17. Bxa6 Hxa6
18. e5 Rd7
19. exd6 exd6
20. b3 Re5
21. Hc2 Hb6
22. Ra4 Hb4
23. Bxe5 dxe5
24. Hc4
(Hirði hvítur c5-peðið kemur 24. ..
Hd4 og 25. .. Hxd5.)
24. .. Dd6
25. a3 Hxc4
25. bxc4e4!
(Hvítur hótaði að leika 27. Rc3
með yfirburða stöðu. Peðsfóm Kam-
sky er langbesti kostur hans í stöð-
unni. Sennilega á Andersson að hirða
þetta peð ,en hefur án efa óttast að
eftir 27. Hxe4 Bd4! 28. Dc2 Df6!
kæmi hann riddaranum aldrei í spil-
ið.)
27. Dd2?! f5
28. Rc3 Bd4
(Peðamassinn á kóngsvæng og hin
ógnandi staða biskupsins gefur Kam-
sky betri möguleika, ekki síst vegna
þess að Andersson var kominn í al-
varlegt tímahrak.)
29. Rb5 De5!
30. Dxa5 f4
31. Dc7?
(Mistök. Eina leiðin til að halda
taflinu gangandi var að leika 31. Rxd4
cxd4 með tvísýnni stöðu þar sem
möguleikar svarts verða að teljast
betri.)
Helgi
Ólafsson
„Þegar ég er dapur í bragði geng ég stundum út á götu og kaupi Rude pravo. Blaðið er svo sorglegt að maður fer ósjálfrátt
að hlæja," segir hinn landflótta tékkneski stórmeistari Vlastimil Hort í viðtali eigi alls fyrir löngu. Hort sem aldrei hefur þótt
bjartsýnn gat ekki órað fyrir falli kommúnista í Tékkóslóvakíu. En skjótt skipast veður í lofti og fyrir nokkrum vikum lauk í
Prag 6-manna alþjóðlegu móti með þátttöku tveggja fyrrverandi Tékka, Horts og Lubomir Kavaleks, heimamannanna
Ftacniks og Smejkals, Hollendingsins Timmans og Englendingsins Nigel Short. Timman sigraði, hlaut 4 vinninga af
fimm mögulegum en Short kom næstur með 31/2 vinning. Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, heilsaði upp á keppendur
og tók eina skák við Bessel Kok stjórnarformann GMA, samtaka stórmeistara. Forsetinn reyndist liðtækur skákmaður og
vann Í20 leikjum. Þessi mynd vartekin við þaðtækifæri: F.v.: Havel, Krizac ráðgjafi Havels, Lubomir Kavalek og Bessel
Kok.
31. .. Bxf2+!!
(Þrumuleikur sem Kamsky varð að
hafa séð fyrir.)
32. Kxf2 Db2+
33. He2
(Eftir 33. Kfl e3 34. He2 fær hvítur
upp sömu stöðu og hefði hann leikið
34. Kfl - sjá næstu aths.)
33. .. e3+
34. Kf3
(Andersson var í geypilegu tíma-
hraki og virðist vera að tefla til sigurs.
Svartur á vitaskuld jafntefli í hendi
sér eftir 34. Kfl - og vinning líka!
Með 34. .. Dcl+ 35. Hel e2+!! knýr
hann fram sigur, 36. Kxe2 er svarað
með 36. .. He8+ og 36. Kf2 strandar
vitaskuld á 36. .. De3 mát)
34. .. Dcl!
- Þessi Ieikur reyndist Andersson
svo erfiður viðfangs að hann gat ekki
komið sér að því að leika og féll á
tíma. Þó Svíinn lendi iðulega í tíma-
hraki fellur hann sjárasjaldan. At-
hugun á stöðunni leiðir í ljós að erfið-
leikarnir eru næstum óyfirstíganlegir
35 Kg4 er svarað með 35... Dxc4 sem
hótar36. .. f3+ og36... Dxe2. Kann-
ski er best að leika 35. Rc3 en eftir 35.
.. Dxc3 er staða hvíts afar erfið viður-
eignar þó hann geti barist áfram.
Lítum svo á sigur Kamsky yfir
Ivantsjúk úr 10. umferð. Ivantsjúk
beitir fremur meinlausu afbrigði af
spænska leiknum, en lendir þegar í
stað í ómögulegri stöðu. Með 8. .. f5,
vill hann koma í veg fyrir 9. f5 en fyrir
vikið opnast allar gáttir á kónginn.
Eins og sannur meistari skiptir dreng-
urinn yfir í hagstætt endatafl þar sem
lítill ávinningur, eitt peð, dugir til sig-
urs. í lokastöðunni strandar 46. ..
Kxh2 á 47. Kf2! o.s.frv. Skákina
tefldi Ivantsjúk hálf kæruleysislega
því hann notaði aðeins 25 mínútur á
alla skákina en Kamsky 58 mínútur.
Kamsky - Ivantsjúk
Spænskur leikur
1. e4 e5 24. Bxd4 Hc2
2. Rf3 Rc6 25. Bxb6 Hxf2
3. Bb5 Rd4 26. Bxf2 Kg7
4. Rxd4 exd4 27. a4 Be6
5. 0-0 Bc5 28. a5 a6
6. d3 c6 29. Bd4+ Kf7
7. lia4 Re7 30. Kf2 Hc8
8. f4f5 31. Ila2 g5
9. Bb3 d5 32. Be5 Kg6
10. exd5 Rxd5 33. Ke3 Kh5
11. Hel+ Kf8 34. Kd2 Hg8
12. Dh5 g6 35. g3Kg4
13. Dh6+ Kg8 36. Kc3 Kh3
14. Rd2 Bf8 37. c3 d4+
15. Dh3 Bg7 38. Kxd4 Hd8+
16. Rf3h6 39. Ke3 Bxb3
17. Re5 Df6 40. Hb2 Bd5
18. Bxd5+ cxd5 41. c4 Bg2
19. b3 Kh7 42. Hb6 Bfl
20. Bb2 Db6 43. Hxh6+ Kg2
21. Df3 He8 44. d4 g4
22. Df2 Bxe5 45. c5 Bc4
23. Hxe5 Hxe5 46. Hf6
- og Ivantsjúk gafst upp.
Hópurinn þrengist
8 sveitir standa eftir í Bikarkeppm
Bridgesambandsins, að loknum
tveimur umferðum. Eftirtaldir leikir
eru framundan:
Sveit Estherar Jakobsdóttur
Reykjavík gegn sveit Forskots
(Fjólu).
Sveit S. Ármanns Magnússonar
Reykjavík, gegn Ásgrími Sigur-
björnssyni Siglufirði.
Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar
gegn sveit Sigurðar Sigurjónssonar
Kópavogi.
Sveit Delta Hafnarfirði gegn sveit
Samvinnuferða/Landsýnar Reykja-
vík.
Þessum leikjum skal vera lokið
fyrir helgina 29.-30. sept. en þá helgi
eru undanúrslit (4 sveita úrslit) fyrir-
huguð.
Liðsskipan þessara 8 sveita er eftir-
farandi: Esther Jakobsdóttir, Anna
Þóra Jónsdóttir, Hjördís Eyþórsdótt-
ir, Ragnar Hermannsson og Svavar
Björnsson. Forskot: Magnús Ólafs-
son, Jón Þorvarðarson, Jón Baldurs-
son, Aðalsteinn Jörgensen, Sigurður
Vilhjálmsson og Valur Sigurðsson, S.
Ármann: Ólafur Lárusson, Jakob
Kristinsson, Hermann Lárusson, Óli
Már Guðmundsson, Friðjón Þór-
haljsson og Sigmar Jónsson.
Ásgrímur, Bogi, Jón og Anton Sig-
urbjörnssynir, auk þeirra Ólafs og
Steinars Jónssona (synir Jóns Sig-
urbj.) Tryggingamiðstöðin: Sigtrygg-
ur Sigurðsson, Bragi Hauksson,
Hrólfur Hjaltason og Ásgeir P. Ás-
björnsson. Sigurður Sigurjónsson,
Júlíus Snorrason, Ómar Jónsson og
Guðni Sigurbjarnason. Delta:
Haukur Ingason, Jón S. Gunnlaugs-
son, Gylfi Baldursson, Sigurður B.
Þorsteinsson, Helgi Jónsson og Helgi
Sigurðsson. Og Samvinnuferðir:
Helgi Jóhannsson, Björn Eysteins-
son, Guðmundur Sv. Hermannsson,
Sverrir Ármannsson og Þorgeir
Eyjólfsson.
Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar er
nv. bikarmeistari BSÍ.
Sævar Þorbjörnsson var kjörinn
formaður Bridgefélags Reykjavíkur á
aðalfundi félagsins í síðustu viku. Jón
Baldursson er varaformaður. Spila-
mennska hjá félaginu hófst sl. mið-
vikudag.
Og spilamennska hjá Breiðfirðing-
um í Reykjavík hófst í gærkvöldi og
hjá Húnvetningum í Reykjavík sl.
miðvikudag. Sumarbridge í Reykja-
vík lauk sl. þriðjudag. Stigefsti spilari
sumarsins varð Þröstur Ingimarsson
frá Bridgefélagi Kópavogs, en hann
hlaut yfir 500 meistarastig í sumar,
sem er afbragðs góður árangur. Þátt-
taka í Sumarbridge var frekar dræm
og öllu lélegri en undanfarin sumur.
Arnar Geir Hinriksson og Einar
Valur Kristjánsson frá fsafírði urðu
enn einn ganginn Vestfjarðameistar-
ar í tvímenning. Þeir sigruðu með
yfirburðum á móti sem spilað var á
Tálknafirði um síðustu helgi. Guð-
mundur Friðgeir Magnússon og
Gunnar Jóhannesson frá Þingeyri
urðu í öðru sæti. Keppnisstjóri var
Kristján Hauksson.
Eina íslenska parið sem komst í úr-
slit á heimsmeistaramótinu í Sviss,
þær Hjördís Eyþórsdóttir og Jacqui
McGreal, höfnuðu í 31. sæti í
heimsmeistaramóti kvenna.
M. Branco og G. Chagas urðu
heimsmeistarar í tvímenning í Opn-
um flokki og er þetta í annað sinn sem
Branco sigrar þetta mót, áður 1978 í
New Orleans. Þeir félagar eru hluti af
brasilíska landsliðinu sem er nv. ól-
ympíumeistari í sveitakeppni.
Heyrst hefur að ísland komi til
greina sem mótshaldari í heimsmeist-
aramótinu í sveitakeppni 1995
(Bermuda Bowl). Helgi Jóhannsson
og Björn Eysteinsson, sem tóku þátt í
heimsmeistaramótinu í Sviss, notuðu
tækifærið og áttu viðræður við for-
ráðamenn alþjóðasambandsins og
lýstu áhuga okkar á alþjóðlegu móta-
haldi. Fulltrúar hinna Norðurland-
anna studdu okkar menn í þessari við-
leitni. Búast má við að stjórn alþjóða
bridgesambandsins taki fljótlega
ákvörðun um þetta mál.
Rólegt var hjá Skagfirðingum sl.
þriðjudag. Spilað var í einum riðli.
Sigurvegarar urðu Magnús Sverris-
son bronsstigakóngur og Rúnar Lár-
usson. Næsta þriðjudag verður fram-
haldið eins kvölds tvímennings-
keppni. Sksorað er á bridgeáhugafólk
að mæta. Spilað er í Drangey v/
Síðumúla 35 og hefst spilamennska
tímanlega kl. 19.30.
Bridgeskólinn er að hefja starfsemi
sína að nýju, eftir sumarleyfi. Guð-
mundur Páll Arnarson annast um-
sjón. Allar nánari upplýsingar eru
gefnar í síma 91-27316.
Til stóð að spila bikarieik sveita
Tryggingamiðstöðvarinnar og Sig-
urðar Sigurjónssonar í gærkvöldi. Sá
leikur ræður hvor sveitin kemst í und-
anúrslit. Nánar síðar.
Fljótfærni í vörn hefur létt mörgum
sagnhafanum lífið. Ótrúlegustu
samningar hafa unnist, þegar vörnin
er ,,sofandi“.
I 1. spili leiks sveita S. Ármanns
gegn Verðbréfanna kom þetta spil
fyrir:
S:1082
H-
T:KG1065
L:G9863
'S^KG^á Skiptir
H:KDG4 ekki
T.ÁD83 máli
L:Á
S-ÁD93
H:Á63
T:5
L:KD1073
Eftir opnun Suðurs á 2 laufum,
dobl og 5 lauf hjá Norðri, pass, pass
og dobl og allir pass, spilaði Vestur úr
hjartakóng. Trompað í borðið og lítið
lauf upp á ás. Hjartadrottning kom
næst, hleypt heim á ás og tígli spilað
(Spaða hent úr borði). Vestur sá enga
ástæðu til að fara upp með ásinn (sá
ekki einspilið hjá sagnhafa í tígli). Þá
var kóng í tígli stungið upp, laufagosi
tekinn og spaðatíu síðan hleypt yfir á
gosa Vesturs. Þá kom tígulás, tromp-
að heima, spaðaás og síðan spaða-
drottning, sem Vestur lagði á og
spaðanía sagnhafa var 11. slagurinn.
Slétt staðið, 550 til S. Ármanns. Á
hinu borðinu var spilaður sami samn-
ingur, einn niður og 12 stig unnin.
Annað dæmi:
S:K93
H:D2
T:D109754
L:84
S:ÁG8
H:965
T:ÁK3
L:D1062
Eftir grandopnun hjá þér í Vestur,
pass, pass og 3 hjörtu hjá Suður og 4
hjörtu hjá Norður, þá spilarðu út
tígulás. Horfandi á blindan, læturðu
næst smátt hjarta, lítið úr borði og tía
og gosi hjá sagnhafa. Næst kom spað-
asjöan frá sagnhafa. Áttan frá okkur
og ... Eða hvað? Stöldrum aðeins við
(með Stuðmönnum og Valgeiri). Af-
hverju spaði frá sagnhafa í þessari
stöðu? Hvað græðir hann á því? Við
vitum jú, að sjöan er ekki einspil, því
þá á félagi dömuna sjöttu í spaða og
hefði seint passað grandið hjá okkur.
Eina ógnunin í blindum er tígullinn.
Hvað ef sagnhafi á drottningu, tíu og
sjöu? Lítið frá okkur, nían úr borði,
sem heldur, tígli spilað, trompað, inn
á hjartadrottningu og enn tígull (sem
brotnar fyrirsjáanlega 3-3) og spað-
akóngur í blindum glottir á okkur,
sem innkoma á frflitinn í tígli. Rétt,
við látum gosann í spaða og stíflum
þarmeð litinn. Ef hann gefur spilið,
höfum við þó alltaf varnarræðuna til-
búna í uppgjörinu á eftir. Og á góðum
forsendum.
18 SÍÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 21. september 1990