Þjóðviljinn - 25.10.1990, Qupperneq 11
MINNING
I DAG
Magnús Arnar Sigtryggsson
Fæddur 17. maí 1948 Dáinn 15. október 1990
Kær vinur okkar og félagi
hann Maggi er dáinn. Hvemig
eigum við breyskar og venjuleg-
ar manneskjur sem höfum tak-
markaðan skilning á forsendum
og þeim tilgangi sem okkur er
ætlaður í þessari jarðvist að geta
skilið og sætt okkur við þessa
hörmulegu staðreynd.
Maggi var sonur hjónanna
Sigtryggs Runólfssonar og Guð-
bjargar Sigurðardóttur, hann var
fjórði elstur 11 bama þeirra.
Hann fæddist á Kleif í Breið-
dal, en fluttist 6 ára til Reykja-
víkur, enda var Reykjavík og
umhverfi hennar honum mjög
hugleikin, og fáa menn þekki ég
sem þekktu betur deili á Reykja-
vík, götum, fyrirtækjum og
mönnum.
Tæplega 16 ára varð hann
fyrir því slysi að missa tær á
fæti. Vegna þess slyss þurfti
hann síðan að fara í á fimmta tug
aðgerða og þá síðustu fyrir örfá-
um ámm. Að lokum var búið að
taka af honum fótinn fyrir ofan
ökkla. Sú lífsreynsla átti eftir að
hafa áhrif á allt hans líf, því þrátt
fyrir allar þessar aðgerðir tókst
aldrei að gera það að fætinum,
að hann yrði sáralaus, og alla
ævi var hann kvalinn í fætinum.
Þrátt fyrir það heyrði maður
hann aldrei kvarta eða nokkum
tímann féllu æðm orð, og aldrei
fékkst hann til að hlífa sér, held-
ur tókst á við hvert verkefni sem
að höndum bar af fullri einurð
og dugnaði, burtséð frá því hvort
það mæddi á fætinum og hann
væri að kvöldi eða að verkefni
loknu sárþjáður og viðþolslaus
af kvölum.
Skemmst er fyrir mig að
minnast, að helgina áður en
Maggi dó vomm við á þingi
íþróttasambands fatlaðra á Höfn
í Homafirði. Til Hafnar var farið
með rútu og nokkmm sinnum
stoppað á leiðinni og þá þurfti að
bera mig út og inn úr rútunni.
Alltaf var Maggi þá mættur
fyrstur manna og ég sagði
nokkmm sinnum við hann:
„Maggi minn, látum aðra bera
mig, því það er ástæðulaust að
leggja þetta á fótinn á þér,“ og
alltaf var svarið það sama: „Þar
sem ég er til staðar er ég ekki of
góður til að hjálpa þér og löppin
er ekki ofgóð til að reyna svolít-
ið á sig, enda ýmsu vön.“
Þegar Maggi útskrifaðist af
spítalanum kynntist hann Louise
Biering, Lúllu. Þau giftu sig
stuttu seinna og þau áttu saman
4 böm, þau Sigríði, Sigtrygg,
Thelmu og Styrmi. Maggi var
einstakur faðir. Hann var ekki
bara pabbi, heldur einstakur vin-
ur og félagi bama sinna, vina
þeirra og kunningja, og hvort
sem var um smá mál eða stærri
vandamál að ræða leituðu þau til
hans eftir aðstoð og lausnum, og
alltaf var hægt að treysta á að
hann gæfi sér tíma til að leið-
beina þeim og aðstoða á sem far-
sælastan máta.
Maggi var völundur í hönd-
unum, og það var nánast sama
hvað hann tók sér fyrir hendur,
hann sneið fot og áklæði, eld-
húsinnréttinguna heima hjá sér
hannaði hann og vann að öllu
leyti, og fyrir u.þ.b. tveim ámm
þegar Sigríður dóttir hans opn-
aði rakarastofú vann hann allar
innréttingar og gerði þær tilbún-
ar.
Þegar ég sá rakarastofúna
ætlaði ég ekki að trúa mínum
eigin augum, því ég er sann-
færður um að fagmenn hefðu
varla getað gert skemmtilegri og
hlýlegri rakarastofú úr því hús-
næði.
Maggi hóf ungur störf við
útkeyrslu hjá Silla og Valda og
síðan starfaði hann um nokkum
tíma hjá Guðbergi í Gos og víð-
ar. Um 1980 fékk hann leyfí til
leiguaksturs og starfaði að
mestu eftir það við leiguakstur
hjá Bæjarleiðum. Maggi var um
árabil í stjóm íþróttafélagsins
Leiknis í Breiðholti, bæði gjald-
keri og síðar formaður. Þar lagði
hann gjörva hönd á plóg við
uppbyggingu félagsins. Maggi
hafði mikið yndi af að spila
bridge og var mjög virkur spilari
í bridgeklúbbi Sjálfsbjargar og
varð þar mörgum sinnum klúbb-
meistari bæði í tvímennings- og
sveitakeppni.
Maggi gekk snemma í
íþróttafélag fatlaðra í Reykja-
vík. Vorið 1987 þurfti stjóm fé-
lagsins með aðeins viku fyrir-
vara að fá mann til að sjá um
mikla fjáröflun fyrir félagið.
Flest vorum við uggandi um
hvort nokkuð kæmi út úr þeirri
fjáröflun, því svo skammur fyr-
irvari var. Leituðum við því til
Magga, og er skemmst frá því að
segja að fjáröflunin tókst með
eindæmum vel. og var það mest
að þakka dugnaði hans og skipu-
lagshæfileikum. Hann var kos-
inn í stjóm 1985, varð varafor-
maður 1988 og kosinn formaður
félagsins nú s.l. vor.
Hann tók sæti í byggingar-
nefnd félagsins 1988 og þar kom
strax í ljós dugnaður hans og
áhugi fyrir því að ljúka bygg-
ingu íþróttahúss íþróttafélags
fatlaðra í Reykjavík. Sem fyrr
lagði hann þar mikla vinnu og
góð ráð og bygging íþróttahúss-
ins var hans hjartans mál.
Maggi undirbjó og hélt utan
um söfnun Rásar 2 í október s.l.
undir kjörorðinu „Ljúkum verk-
inu“, þar sem safnað var fé til að
ljúka byggingu íþróttahúss fé-
lagsins. Sem fyrr var svo vel á
málum haldið af hans hendi, að
þrátt fyrir skyndilegt ffáfall er
allt frágengið og við horfúm
björtum augum til þess að geta
tekið íþróttahúsið í notkun innan
fárra mánaða. Þrátt fyrir stuttan
tíma sem formaður Iþróttafélags
fatlaðra í Reykjavík var hann
búinn að koma á góðu skipulagi
og búa starfið undir veturinn svo
allt var tilbúið undir öflugt og
árangursríkt starfsár.
Maggi hélt eina síðustu ræð-
una á þingi íþróttasambands
fatlaðra daginn áður en hann
andaðist. Þar lagði hann áherslu
á virkt starf, hann lagði áherslu á
sameiningu og samstarf. Hann
lagði áherslu á bjartsýni, ár-
verkni og dugnað til heilla
íþróttum fatlaðra, til heilsurækt-
ar og félagslegs þroska fyrir alla
landsmenn. Hann lagði áherslu á
að brýnasta verkefni nú væri að
ljúka byggingu íþróttahússins og
það væri innan seilingar. Síðan
þyrftu menn að snúa sér að öðr-
um og ekki síðri verkefnum.
Ræða þessi lýsir Magga
best. Hann var fylginn sér,
ákveðinn og drifandi við þau
verkefni sem hann vann að
hveiju sinni, en samt málefna-
legur og sveigjanlegur til samn-
inga og hverskonar samstarfs
væri það vænlegt til árangurs.
Eitt mat ég þó einna mest í
fari Magga, það var hans létta
lund og hvemig hann átti oftast
gott með að sjá út húmor og
gamansamar hliðar á flestum
málum.
Minning Magga mun lifa í
hjörtum okkar og við þökkum
honum mikið og óeigingjamt
starf fyrir félagið. íþróttahúsið
mun verða tekið í notkun m.a.
sem vitni um dugnað og óeigin-
gjamt starf hans.
Lúlla, Sigga, Sigtryggur,
Thelma, Styrmir, ættingjar og
vinir, við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð.
F.h. íþróttafélags fatlaðra í
Reykjavík
Arnór Pétursson
FRÁ LESENDUM
Umálmálið
Ég er algjörlega á móti því
að nýtt álver verði reist á íslandi,
hvort sem væri fyrir norðan,
austan eða suðvestan. Ég er al-
gjörlega á móti álvemm, hvar
sem er í heiminum. Af þeirri
einfoldu ástæðu að uppleyst ál
er ónáttúrulegt, jarðfjandsam-
legt og lífshættulegt efni.
íslenskir kapítalistar, hag-
ffæðingar og stjómmálamenn
með Eyjólf Konráð Jónsson og
nú Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra í broddi fylkingar em svo
skammsýnir og þröngsýnir, þrátt
fyrir sitt svokallaða „fjármála-
vit“, að þeir átta sig ekki á því að
eftir 10 ár verða allar álverk-
smiðjur heimsins reknar með
miklu tapi og að eftir 20 ár eða
fyrr verður búið að loka þeim
öllum. Af þeirri einfoldu ástæðu
að þá verður búið að banna
notkun áls á jörðinni. Alveg eins
og búið er að banna notkun as-
bests og PCBs nú þegar. Vegna
þess að þessi efni em öll eitruð.
Og hvað mun íslensk þjóð
þá hafa grætt? Ekki neitt, heldur
tapað miklu, kannski öllu.
Þetta vita vísindamenn nú
þegar, menn eins og Einar Valur
Ingimundarson. En stjómmála-
menn og hagfræðingar með
„fjármálavit" átta sig ekki á
þessari framtíðarsýn. Til þess
em þeir of þröngsýnir og of
skammsýnir. Það þarf vísinda-
menn og skáld, spámenn og
heimspekinga, og svo venjulegt
hugsandi fólk, til að benda á hið
stærra samhengi hlutanna og
koma vitinu fyrir misvitra
stjómmálamenn. Og, í þessu
máli, Kvennalistakonur. En
hvað segja óbreyttir Alþýðu-
bandalagsmenn? Ég segi fyrir
mig: Álver? Nei, takk.
Trausti Sveinsson
Enn um álmálið
Hví skyldum við, hér á ís-
landi, vilja lifa að einhveiju leyti
á skattpeningum sem útlending-
ar borgA fyrir að fá að reka hér á
landi verksmiðju sem framleiddi
eitrað efni og mengaði jafnframt
umhverfi sitt og veikti fólk sem
ynni við framleiðslu þess?
Ólafur Ragnar Grímsson tók
sér orðið „stolt“ í munn í þessu
samhengi á miðstjómarfúndi
Alþýðubandalagsins um helg-
ina. Hvers konar „stolt“ bæri
skattheimta af þessu tagi vott
um? Mig klígjar við þegar ég
heyri allt tugmiljarðakróna-
gróðakjaftæðið; sem jafnvel
Svavar Gestsson virðist hafa
ánetjast.
Hvað ber svona skattheimtu-
og stórgróðamálflutningur vott
um annað en landsöluhugarfar?
Em menn orðnir siðblindir? Em
allir búnir að gleyma ráðherran-
um í Atómstöðinni sem þrísór
að landið yrði ekki selt en seldi
svo landið? Er það metnaðarmál
íslenskra sósíalista nú þegar hill-
ir undir það að ísland verði
kannski ekki miklu lengur At-
ómstöð útí Atlantshafi að gera
það að Álstöð?
Ef Alþýðubandalagið er á
leiðinni að verða kapítalískur
landsöluflokkur eins og Sjálf-
stæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn auðvitað em og hafa
lengi verið, ja, þá sýnist mér
orðið fokið í flest skjól í is-
lenskri pólitík. T.S.
ÞJÓÐVILJINN
FYRIR 50 ARUM
Alþýðuflokksbroddarnir ætla
að taka eignir verkalýðsfélag-
anna með sér. Iðnó hefur þeg-
ar verið tekið. Tjón verkalýðs-
félaganna 100-150 þús. kr.
Kemur röðin næst að Alþýðu-
brauðgerðinni og Rauðhólum?
Freysteinn Gunnarsson viður-
kennir að ekki sé hægt að
banna skólanemendum að
skrifa í blöð. Hvers vegna var
þá grein Teits Þorleifssonar
gerð að brottrekstrarsök?
25.október
Fimmtudagur. 298. dagur árs-
ins. Sólarupprás í Reykjavík
kl. 8:48 - sólariag kl. 17:35.
Viðburðir
Veturnætur. Verkakvennafé-
lagið Framsókn stofnað 1914.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyQabúða vlkuna 19. til 25. október er I
Borgar Apóteki og Reykjavlkur Apóteki.
Fyrmefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á fridögum). Síðarnefnda
apótekið er opið á kvöldin kl. 18 til 22
virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22
samhliða hinu fyrmefnda.
LÖGGAN
Reykjavík.................. « 1 11 66
Kópavogur....................« 4 12 00
Seitjamames..................e 1 84 55
Hafnartjörður................« 5 11 66
Garöabær.....................« 5 11 66
Akureyri.....................« 2 32 22
aökkviið og sjúkrabílar
Reykjavík.....................« 1 11 00
Kópavogur..................« 1 11 00
Seltjamames...................« 1 11 00
Hafnarflörður.................« 5 11 00
Garðabær......................« 5 11 00
Akureyri......................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavlk, Seltjarn-
arnes og Kópavog er I Heilsuvemdar-
stöð Reykjavikur alla virka daga frá kl.
17 til 8, á (augardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
slmaráöleggingar og tlmapantanir f
« 21230. Upplýsingar um lækna-og
lyfjaþjónustu eru gefnar i slmsvara
18888. Borgarspitalinn: Vakt virka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eöa ná ekki til hans.
Landspítalinn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspit-
alans er opin allan sólarhringinn,
w 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, « 53722. Næturvakt lækna,
w 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt,
■b 656066, upplýsingar um vaktlækni
«51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiöstööinni, « 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farslmi).
Keflavík: Dagvakt, upplýsingar I
« 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
«11966.
SJÚKRAHUS
Heimsóknartlmar: Landspítalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til 18 oa eftir
samkomulagi. Fæðingardeild Land-
spitalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra-
timi kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar-
heimill Reykjavíkur v/Eiríksgötu: Al-
mennurtlmi kl. 15-16 alla daga, feðra-
og systkinatimi kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlækningadeild Landspital-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdelld
Borgarspitala: Virka daga kl. 16 til 19,
um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstöðin við Barónsstíg: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspitall: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim-
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. St. Jósefs-spitali Hafnar-
firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspftalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
SJúkrahúsið Húsavfk: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf
fyrir unglinga, Tjarnargötu 35,
» 91-622266, opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I upplýsinga-
og ráðgjafarsfma félags lesbia og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öðrum
tímum.« 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf f sálfræði-
legum efnum,» 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, erveitt i síma 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagiö, Álandi 13: Opiö virka daga
frá kl. 8 til 17, « 91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúk-
linga og aðstandendur þeirra I Skóg-
arhlið 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styöja smitaða og
sjúka og aðstandendur þeirra I » 91-
22400 og þar er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni: « 91-622280,
beint samband við íækni/hjúkrunar-
fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19,
annars símsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-
21205, húsaskjól og aðstoö við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða oröið
fýrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hiaðvarpanum,
Vestur-götu 3: Opiö þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, « 91-21500, slmsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500,
símsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm
sem orðið hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91-
626878 allan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I
« 686230.
Rafvelta Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGIÐ
24. október 1990 Sala
Bandaríkjadollar.............5519000
Steriingspund..............107,27300
Kanadadollar................47,10500
Dönsk króna..................9,52780
Norsk króna..................9,34390
Sænsk króna..................9,80370
Finnskt mark................15,25220
Franskur franki.............10,84920
Belglskurfranki............. 1,76440
Svissneskur franki..........43,16780
Hollenskt gyllini...........32,22020
Vesturþýskt mark............36,31760
Itölsk lira..................0,04850
Austurriskur sch.............5,16010
Portúgalskur escudo......... 0,41170
Spánskur peseti..............0,57980
Japanskt jen.................0,42775
Irskt pund..................97,34100
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 lögleg 4 hár 6
neðan 7 kerra 9 tind 12
ráfa 14 veöurfar 15 erf-
iði 16 gálgar 19 vit-
leysa 20 tarfur 21
hæpnir
LóÖrótt: 2 hreyfast 3
hljómi 4 far 5 tímabil 7
gáfaös 8 viðfelldiö 10
hryggar 11 viömót 13
hljóöaði 17 gegnsæ 18
eiri
Lausn á sföustu
krossgátu
Lárótt: 1 fjós 4 gæfa 6
tól 7 örva 9 óhóf 12 efl-
ir 14 uss 15 ess 16
tætti 19 rauð 20 angi
21 ritun
Lóðrétt: 2 jór 3 staf 4
glói 5 fró 7 öfugri 8
vestur 10 hreinn 11
fiskir 13 lát 17 æöi 18
tau
Fimmtudagur 25. október 1990 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 11