Þjóðviljinn - 07.11.1990, Síða 4
ÞJOÐVKUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
KLIPPT OG SKORIÐ
Frjáls verslun er
aldeilis hlessa
Fyrir nokkru gerði tímaritið Frjáls verslun úttekt á tekj-
um sautján hópa í þjóðfélaginu með þeim formála, að
þar væru til skoðunar þeir sem ætla mætti að kæmust
sæmilega af hérá landi. Niðurstöðurverða ekki tíundað-
ar hér. En þess í stað skal vitnað í það, hve undrandi hið
lífsreynda fjármálablað er á niðurstöðunum. En það
kveður svo að orði:
„Ekki verður annað séð en að einhver mjög falskur
tónn sé í tekjukerfinu. Það vekurfurðu hversu gífurlega
háum tekjum vissum hópum tekst að ná til sín og ekki er
það síður undrunarefni hversu illa launaðir aðrir eru“.
Það er í sjálfu sér ágætt að menn skuli enn kunna að
undrast með þessum hætti. Sá eiginleiki tengist því von-
andi, að enn sé tórandi í þeim sem úttektina gerðu fyrir
Frjálsa verslun einhver slatti af þjóðlegri jafnaðarhyggju,
sem fer að ýfa sig um leið og komið er upp í „margföld
verkamannalaun" eins og oft er til orða tekið um hinn
„falska tón í tekjukerfinu". Undrunin getur líka verið
tengd því, aö menn geri sér í einrúmi einhverskonar
„réttlætismynd" af því hverjir eigi skilið að fá allgóðar
tekjur í sinn hlut og hverjir ekki. Og eigi erfitt með að
sætta sig við það, hve langt raunveruleikinn er frá öllu
slíku réttlætismati.
En hvernig sem því er farið: það er rétt og sjálfsagt að
reiðast miklum og fáránlegum tekjumun á íslandi. En
það þarf enginn að vera yfir sig hissa á því að þessi
munur skuli vera mikill og vaxandi. Sú þróun er óhjá-
kvæmilegt framhald af því, að hin nýja sögulega nauð-
hyggja markaðslögmálanna þykist hafa kálað ekki að-
eins ríkiskommúnismanum austræna heldur og „þriðju
leiðinni" sem kennd hefur verið við sósíaldemókrata.
Það hefur verið hamast mjög á því með öllum tiltækum
ráðum, að öll viðleitni til jafnlaunastefnu og virkrar tekju-
jöfnunar sem beitir m.a. fyrir sig skattheimtu ríkisins, sé
skaðlegur dragbítur á sannar framfarir. í þeim löndum
sem helst eru höfð til pólitískrar fýrirmyndar er búið að
þvo af persónulegu ríkidæmi og gífurlegum tekjumun
alla synd, það er líka
búið að losa auðinn við hina kristilegu prédíkun um
bölvun Mammons sem stundum var nokkur svipa á sér-
góða gróðafíkn.
Þessi sigur auðhyggju hefur það í för með sér, að
mikill og kannski vaxandi tekjumunur er túlkaður ekki
sem böl og ranglæti, heldur sem óumflýjanlegt náttúru-
lögmái. Síðan er reynt að breiða yfir afleiðingar um-
ræddrar þróunar með einhverri huggunarspeki um að
upphleðsla auðs hjá þeim sem best mega sín komi,
þegar allt kemur til alls, öllu samfélaginu til góða. Lúxus-
neysla og þjónusta við hana skapi líka vinnu!
Og hinir ríku verða sannarlega ríkari og hinir fátæku
fátækari, ekki síst í gósenlöndum hægrimanna, Bret-
landi og Bandaríkjunum. Hér heima er dregið úr slíkri
þróun með félagshyggjuandófi, sem er þó í daufara lagi,
talsmenn félagshyggju feimnir við hans hátignir Mark-
aðsöflin, og setja meiri metnað í að standa sig í almennri
stjórnsýslu en að magna með sér félagslegt hugvit og
áræði til frumkvæðis. Og svona er þetta í fleiri löndum
nálægum.
Það er því síst að undra þótt ýmsir hópar skófli miklu
til sín, en aðrir beri þeim mun minna úr býtum. Og við
getum raunar búist við því að sú þróun haldi áfram enn
um sinn. Að minnsta kosti meðan það flármálakerfi sem
nú ræður pólitískri hugsun og sumir kenna við spilavíta-
kapítalisma kemst hjá verulegum skakkaföllum. En ef
að því kemur, sem nú er víða um skrifað, að risaveldi
eins og Bandaríkin geti ekki lengur haldið uppi sýndar-
vexti og háu neyslustigi með verðbréfabrellum og feikn-
arlegri skuldasöfnun, þá mun koma til keðjuverkana um
allan heim. Sem munu hér sem annarsstaðar vekja upp
aftur sígildar spurningar: er engin önnur leið til. Það
kann að verða fátt um svör í fyrstu, en að svörum verða
menn neyddir til að leita. ÁB.
Landsfundur
Kvennalistans
Kvennalistinn hélt
landsfund um síðustu
helgi og tók nokkrar
ákvarðanir sem óneit-
anlega vekja athygli.
Samkvæmt starfsregl-
um sem listinn hefur
sett sér eiga þingkonur
hans ekki að sitja leng-
ur á Alþingi en átta ár,
og hafa skipti farið
fram á miðju kjörtíma-
bili. Þetta hefur í reynd
þýtt að aðrar reglur
hafa gilt um þingsetu
þingmanna Kvenna-
listans en annarra
flokka. Reglan um átta
ár verður áfram í gildi,
en framvegis verður
ekki skipt út á miðju
kjörtímabili, heldur
við kosningar.
Þetta vinnulag hef-
ur meðal annars leitt
til þess að Guðrún
Agnarsdóttir og Krist-
ín Halldórsdóttir hafa
lálið af þingmennsku á
yfirstandandi kjör-
tímabili, og ef rétt er
munað átti þessi regla
sinn þátt í að Sigríður
Dúna Kristmundsdótt-
ir var ekki i framboði við síðustu
kosningar. Allar höfðu þær öðlast
verðmæta reynslu eftir nokkurra
ára þingsetu.
Sú hugmynd Kvennalistans að
mikilvægara sé að skipta þing-
mönnum út snemma en eiga á
hættu að þeir sitji of lengi var að
sögn alltaf umdeild þar á bæ, og
breylingin nú fellur kjósendum
áreiðanlega vel í geð. Oftrú á hinu
nýja rekur sig undrafljótt á þann
vegg veruleikans sem kjósendur
nefnast. Fátt bendir til að þeir láti
aldur eða starfstíma þingmanna
hafa áhrif á val sitt, þeir spyrji
ekki um hvað þingmennimir hafi
setið lengi, heldur um hitt hvemig
þeir standi sig (að ógleymdri af-
stöðunni til þeirra markmiða sem
fiokkamir beijast fyrir). Kjósend-
ur hugsa í reynd svipað og aðrir
atvinnurekendur, þeir vilja helst
fá fólk með reynslu, fólk sem þeir
þekkja til, fólk sem kann til verka.
Þessi afstaða kemur berlega fram i
prófkjörunum þar sem nýliðamir,
að ekki sé nú talað um ef þeir em
líka kvenkyns, verða sjaldnast
hálfdrættingar á við gamla refi;
bjargast í besta falli fyrir hom ef
þeir búa við heppileg ættartengsl
eða af þeim stafar frægð af öðrum
vettvangi.
Þá ákvörðun Kvennalistans að
draga úr vægi útskiptareglunnar,
með því að láta skiptin fara fram
við kosningar en ekki á miðju
kjörtimabili, ber líka að skoða í
Ijósi annarra ákvarðana sem tekn-
ar vom á landsfúndinum. Fundur-
inn ákvað að fallast á hækkun
vaxta af húsnæðislánum og hann
gerði meira: Fjallað var sérstak-
lega um það hvemig listinn gæti
haft sem mest áhrif. Ekki verður
betur séð en landsfundurinn nafi
komist að sömu niðurstöðu og
þeir sem lengi hafa starfað í pólit-
ík, sem sé þeirri að seta i rikis-
stjóm sé líklegri til að auka áhrif-
in en bamingur í stjómarand-
stöðu. Þetta em auðvitað talsverð
tíðindi, vegna þess að Kvennalist-
inn hefúr einatt legið undir því
ámæli að víkja sér undan ábyrgð,
hann hafi til að mynda ekki lagt í
að fara í ríkisstjóm þegar það stóð
þó virkilega til boða. Það sem nú
hefúr gerst skiptir því verulegu
máli og ætti að auðvelda samtök-
unum leiðina til aukinna áhrifa í
heimi samninga og málamiðlana,
sem enginn er tekur þátt í pólitík
hér á landi getur vikið sér undan
til langframa.
Áleitnar spurningar
Það var sitthvað fleira merki-
legt að gerast á dögunum og vek-
ur upp áleitnar spumingar. Is-
landsbanki hækkaði vexti á
óverðtryggðum lánum, öllum að
óvömm. Hingað til hefur því ver-
ið trúað að verðbólgan væri á nið-
urleið, en bankinn er á annarri
skoðun: Verðbólgan er á uppleið
aftur, segir hann, og því er nauð-
synlegt að hækka nafnvexti svo
sparifjáreigendur haldi sínu.
Nokkum veginn svona em rökin,
býsna kunnugleg, en ekki endi-
lega að sama skapi skiljanleg eins
og á stendur. Enda stóð ekki á við-
brögðunum. Dagsbrún og Al-
þýðusamband Norðurlands fara
fyrir þeim í verkalýðshreyfing-
unni sem atyrða bankann fyrir að
taka ekki þátt í vöminni fyrir
þjóðarsátt, heldur þvert á móti.
Dagsbrún hefúr þegar tekið sína
peninga út úr bankanum í mót-
mælaskyni.
Allt leiðir þetta hugann að
kyndugum fyrirbrigðum sem geta
komið upp, og stundum flóknum
mótsögnum sem verkalýðshreyf-
ingin getur staðið frammi fyrir
þegar hún ræður ekki einasta
kaupum og kjömm, heldur einnig
gildum sjóðum, sem hafa mikið
að segja um lífskjörin í landinu í
mörgum skilningi. Tökum dæmi:
Hvaða skyldum hafa forráða-
menn lífeyrissjóðanna að gegna?
Jú, þeir eiga að sjá til þess að sjóð-
imir séu nægilega vel ávaxtaðir til
þess að verða um siðir færir um að
greiða viðunandi lífeyri. Forráða-
mönnunum ber beinlínis skylda til
að ná svo hagstæðri ávöxtun og
kostur er, ella em þeir að bregðast
umbjóðendum sínum. Þeir leita
því þangað sem best gefast vaxta-
kjörin og áhættan er minnst. Því
hafa lífeyrissjóðimir áhuga á
verðtryggðum kjömm og sæmi-
legum vöxtum hjá aðila sem þeir
geta treyst og skipta því mikið við
ríkissjóð. Það má líka gera ráð
fyrir að lausafé lífeyrissjóðanna
sé á nokkm flandri á ávöxtunar-
markaði, það væri að minnsta
kosti ekki mikið vit í því að liggja
með hundmð milljóna á vaxtalitl-
um hlaupareikningum í lengri
tíma.
Verkalýðshreyfingin er með
öðmin orðum komin í talsverða
klemmu, sem margir hafa til-
hneigingu til að leysa á þann ein-
falda hátt að segja: Verkalýðs-
hreyfingin á ekki að taka þátt í
neinni umsýslu með peninga og
hún á alls ekki að vera i neinum
rekstri. Þetta þýðir auðvitað að
verkalýðshreyfingin eigi að afsala
sér öllu fjármálavaldi, væntanlega
myndi hún þá leika lausum hala á
peningamarkaði með sína sjóði og
hefði þeim einum skyldum að
gegna að fá sem mesta og besta
ávöxtun þeirra. Hvaða áhrif hefði
það? Þannig hrannast álitamálin
upp, en í þessu sérstaka tilfelli
hefúr Dagsbrún mikið til síns
máls. Vaxtahækkunin felur aug-
ljóslega í sér vemlega verðbólgu-
hættu, afþeirri einfoldu ástæðu að
hér er verið að taka vexti af því fé
sem að mestu er notað til vöm-
kaupa. Hækkunin fer því að lík-
indum beinustu leið inn í verðlag-
ið og almenningur spyr sig þessar-
ar spumingar: Geta bankamir
ekki að minnsta kosti beðið ein-
hveijar vikur og þannig lagt lóð á
þá vogarskál sem heitir stöðugt
verðlag?
hágé.
ÞJOÐVIUINN
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guömundsson
Ólafur H. Torfason.
Fréttastjóri: Siguröur Á. Friöþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Bergdis Ellertsdóttir, Dagur
Þorieifsson, Elias Mar (pr.), G. Pétur Matthiasson,
Garöar Guöjónsson, Guömundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim
Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Ölafur
Gíslason, Sævar Guöbjörnsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson.
Auglýsingar: Sigríður Siguröardóttir, Svanheiöur
Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir.
Afgreiöslustjóri: Hrefna Magnúsdóttir.
Afgreiösla: Bára Siguröardóttir, Halla Pálsdóttir,
Þorgeröur Siguröardóttir, Þórunn Aradótir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrífstofa, afgreiósla, rítstjóm, auglýslngar:
Slöumúla 37, Rvik.
Slmi: 681333.
Símfax: 681935.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiöja Þjóöviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verð I lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr.
Áskriftarverð á mánuðl: 1100 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 7. nóvember 1990