Þjóðviljinn - 07.11.1990, Blaðsíða 15
LESANDI VIKUNNAR
I DAG
Guórún Kristín
Magnúsdóttir
hugverktaki.
Mynd: Jim Smart.
Hvað ertu að gera núna?
Leika mér eins og venjulega.
Listaverk kemur nefnilega úr
iðrum hugans. Ef maður ofkeyr-
ir sig á vinnu, kemur bara ekki
neitt.
Og hvað kemur núna?
Það eru leirfigúrur. Fjörul-
allar. Þeir hafa verið lengi á leið-
inni. Löng meðganga. Það
skemmtilega við listaverk er að
það verður aldrei eins og maður
hefur hugsað sér það, heldur
eitthvað allt annað. Betra eða
verra. Ég varaði mig á þessu
þegar ég var að skrifa handritið
Hættur, farinn. Ég vissi að sýn-
ingin yrði aldrei einsog ég ætl-
aði henni að verða. í fyrra var
þetta farsi í huga mér. Svo
breytti ég handritinu eftir þörf-
um.
Það er reginmunur á að
skrifa bókmenntaverk eða hand-
rit sem á eftir að verða að lifandi
sýningu.
Þetta hefði orðið átta tíma
sýning ef allar hugmyndimar
hefðu verið notaðar.
Arangurinn er sem sagt á
fjölum Borgarleikhússins núna.
En fyrir tíu árum, hvað
Fólk ruglar saman
kirkjunni og guði
varstu að gera þá?
Ég var að teikna og skrifa
bamasögur. Það var aðalstarfið
þá. En það er vandi að gera gott
efni fyrir böm. Þegar myndefhi
ætlað bömum gerir þjáninguna
hlægilega og ofbeldið skemmti-
legt, er erfitt að vera viðkvæmt
bam; skynja sársauka meðan
hinir hlæja. Böm eiga erfitt með
að tjá tilfinningar í veröld þar
sem enginn má vera að því að
hlusta. Þegar þau verða fúllorð-
in, kunna þau það ekki lengur.
Þomm við að vera væmin og
finna til, þótt aðrir fari að hlæja?
Hvernig verða verkin þín
til?
Listamaðurinn þarf að vera
fijáls og listaverkið líka. Lista-
verk er eins og óþekkur krakki;
ef maður kúgar það þá verður
sprenging en ef maður veitir því
visst aðhald og öryggi, rætist úr
því. _
Ég held að listamenn séu
óskaplega samviskusamir og
vandi sig mikið. Þeir em að gera
sitt allra, allra besta. Og það em
yndislegir tímar sem við lifum á
þegar þjóðfélagið metur það
sem listamenn gera. Ekki upp-
lifðu Shakespeare og Bólu-
Hjálmar neina virðingu.
Eru frístundir þínar þær
sömu og vinnustundirnar?
Já, ég er alltaf að leika mér.
Þegar maður er heima er von-
laust að segja: Ég er að vinna.
Annars em allir alheilagir
þegar þeir em að fara að vinna,
vinnan gengur fyrir öllum þörf-
um fjölskyldunnar. Það má ekki
tmfla fólk þegar það er að fara
að vinna.
Að vinnan sé þá jafnvel af-
sökun til að þurfa ekki að sjá
um, þurfa ekki að taka ábyrgð
heima fyrir?
Veistu að til em foreldrar
sem hafa ekki tima til að sinna
bömum sínum í veikindum
þeirra? Veikindi em grófasta
hróp á athygli. Það skynjar eng-
inn þörf okkar fyrir aðhlynningu
fyrr en við emm orðin veik. Það
sem læknar kalla maga- krampa
ungbama, er þrá bamanna eftir
kyrrð og ást foreldranna. Ekki
endilega ást á baminu heldur
líka á milli foreldranna. Hlýja á
milli foreldranna er baminu
miklu meira virði en dekur við
það sjálft.
Það er mikið talað um boð-
skap. Hvað vakti fyrir þér
með leikritinu Hættur, farinn?
Að þora að vera einlæg,
virða sakleysið og sannleikann
en ekki að vera að skrapa ofaní
einhveijar meinsemdir í þjóðfé-
laginu.
Það virkar eins og minni-
máttarkennd að vera alltaf að
deila á eitthvað. Sannleikurinn
er svo viðkvæmur og sakleysið
vamarlaust. Við eigum alltaf að
vera svo töff, enginn þorir að
vera dúdd, og svo emm við svo
hrædd við að vera talin væmin
ef við emm ekki grimm.
Við höfum oft heyrt þessa
gáfulegu setningu: Góð sýning
skilur eitthvað eftir sig. Mér
finnst gott leikhúsverk losa um
eitthvað líka, losa mann við eitt-
hvað. Það að hlæja og gráta og
hafa tilfinningar veitir vissa út-
rás.
En þora allir?
Kannski í leikhúsi. Einhveij-
ir tala um að leikritið sé fullt af
klisjum, er kannski lífið fullt af
klisjum?
Nei. Lífið er hafsjór af til-
fmningum, en við þomm ekki
að hlusta á þær.
Klisja, hvað er það þá?
Kannski orð fýrir tilfmningar
sem við neitum að horfast í augu
við. Við emm stundum ráðvillt í
tilfinningasúpunni. Áslákur í
leikritinu, til dæmis, ber trega-
blandna Ödipusarvirðingu íyrir
móður sinni, en fattar ekkert
hvað konan hans hefur að gera.
Ásláki finnst töff að sonurinn á
kæmstu, en óskaplega erfitt að
dóttirin er með strák. Og hvem-
ig verður Áslákur að hegða sér
innan um sætar konur?
Hvaða eiginleika þinn viltu
helst vera laus við?
Ég finn engan sem ég myndi
ekki sjá eftir.
Hvaða eiginleika þinn
finnst þér skrítnast að aðrir
kunni ekki að meta?
Fötin mín.
Hver er uppáhalds matur-
inn þinn?
Ég borða aldrei vini mína.
Minnistu einhvers úr
Bibiíunni?
Æ, það er svo erfitt að tala
um trúarbrögð, því það mgla
svo margir saman kirkjunni og
Guði.
Telurðu ísland vera varið
land eða hernumið?
Pólitík er skemmtileg. Það
em allir að gera það sem þeim
finnst réttast.
Hvert langar þig helst tii
að ferðast?
Mér finnst mest gaman að
skreppa á samsviðið, handan
allrar hugsunar.
Hvað þykir þér skemmti-
legast?
Hinn óbærilegi léttleiki til-
vemnnar.
Segðu mér frá kelling-
unni...
Aumingja kellingin fór með
blómið sitt til blómalæknisins.
Hann leit á blöðin, sem vom
að gulna. Hann klippti allt þetta
gula af. Aumingja kellingin sá
að allt þetta gula var horfið.
Og hún borgaði blómalækn-
inum.
Og kötturinn hennar dingl-
aði skottinu og hún hélt að hann
væri í vondu skapi og hún fór
með hann til skottalæknisins,
því skottalæknirinn er með fínt
próf úr háskólanum.
Hann skoðaði skottið og sá
að það dinglaði.
Hann klippti það af og kött-
urinn dinglaði ekki skottinu.
Og kellingarauminginn
borgaði lækninum.
Guðrún
ÞJÓÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
Roosevelt kosinn Bandarikja-
forseti í þriðja sinn [ röð.
Demókrataflokkurinn fær
meirihluta í báðum þingdeild-
um. Japanski herinn á undan-
haldi [ Kína. Gríska herstjómin
tilkynnir nýja sigra á norður-
hluta vígstöövanna. Deila milli
Breta og ftala um þjóðemi
flugvélanna er vörpuðu
sprengjum á borgina Monastir
í Júgóslavíu. Bretareyða 12,5
miljónum punda á dag í her-
kostnað.
7. nóvember
miðvikudagur. 311. dagurárs-
ins. Sólarupprás (Reykjavík
kl. 9.29 - sólarlag kl. 16.53.
Viðburðir
Þjóðhátíðardagur Sovétríkj-
anna. Jón Arason og synir
hans hálshöggnir 1550. Bylt-
ingin [ Rússlandi hefst 1917.
DAGBÓK
APOTEK
Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúða vikuna 2. til 8. nóvember er I
Garðs Apóteki og Lyfjabuðinni Iðunni.
Fyrmefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á frldögum). Síðamefnda
apótekið er opið á kvóldin kl. 18 til 22
virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22
samhliða hinu fyrmefnda.
LÖGGAN
Reykjavík Kópavogur « 1 11 66 t»4 12 00 v 1 84 55
Hafnarfjörður. » 5 11 66 « 5 11 66
Akureyri n 2 32 22
Siökkvffið og sjúkrabðar Reykjavík « 1 11 00 Kópavogur » 1 11 00 Seltjamames rt 1 11 00
Garöabær. »5 11 00
Akureyri ® 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjarn-
arnes og Kópavog er ( Heilsuvemdar-
stöð Reykjavikur alla virka daga frá kl.
17 til 8, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingar og tímapantanir 1
« 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu eru gefnar I símsvara
18888. Borgarspitalinn: Vakt virka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eða ná ekki til hans.
Landspítalinn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspít-
alans er opin allan sólarhringinn,
» 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, « 53722. Næturvakt lækna,
® 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt,
« 656066, upplýsingar um vaktlækni
w 51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstöðinni, « 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, n 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsími).
Keflavík: Dagvakt, upplýsingar I
« 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
» 11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar: Landspitalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir
samkomulagi. Fæðingardeild Land-
spítalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra-
timi kl. 19:30 til 20:30. Fæöingar-
heimili Reykjavíkur v/Eiriksgötu: Al-
mennurtími kl. 15-16 alla daga, feðra-
o.g systkinatimi kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlækningadeild Landspital-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19,
um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstööin við Barónsstig: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspítali: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Barnadeild: Heim-
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. St. Jósefs-spitali Hafnar-
firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitallnn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf
fyrir unglinga, Tjarnargötu 35,
« 91-622266, opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er i upplýsinga-
og ráðgjafarsíma félags lesbía og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðrum
tímum. ■b 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf (sálfræði-
legum efnum, tr 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, er veitt I sima 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga
frákl. 8 til 17, tr 91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúk-
linga og aðstandendur þeirra í Skóg-
arhlíð 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styðja smitaða og
sjúka og aðstandendur þeima I « 91-
22400 og þar er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni: « 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunar-
fræðing á miövikudögum kl. 18 til 19,
annars símsvari.
Samtök um kvennaathvarf: t» 91-
21205, húsaskjól og aðstoð við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið
fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum,
Vestur-götu 3: Opiö þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 tii 22, « 91-21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500,
simsvari.
Vinnuhópur um slfjaspellsmál:
n 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stígamót, miðstöð fyrir konur og böm
sem orðiö hafa fyrir kynferöislegu
ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91-
626878 allan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
n 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt í
tr 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGIÐ
6. nóvember 1990 Sala
Bandaríkjadollar.............54,29000
Steriingspund.............107,00600
Kanadadollar..............46,84400
Dönsk króna..................9,52870
Norsk króna..................9,34580
Sænsk króna..................9,76700
Finnskt mark................15,26070
Franskur franki..............10,86670
Belgískurfranki.............. 1,77040
Svissneskur franki..........43,31070
Hollenskt gyllini............32,32030
Vesturþýskt mark.............36,45340
[tölsk lira..................0,04854
Austurriskur sch..............5,17810
Portúgalskur escudo.......... 0,41430
Spánskur peseti...............0,58080
Japanskt jen.................0,42639
Irskt pund...................97,67000
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 röng 4 há-
kartsöngull 6 tré 7
aumt 9 hæst 12 kiria
14ævi 15seinkun 16
kvæði 19 jórturdýr20
kjáni 21 rödd
Lóðrétt: 2 skera 3 opi
4 skum 5 hrúga 7 látna
8 hegnir 10 mistakast
11 rústir 13 tæki 17
fæða 18skraf
Lausn á slðustu
krossgátu
Lárétt: 1 gröf 4 smán 6
ill 7 krap 9 Ævar 12
langa 14 tog 15 roð 16
efnuö 19 lína 20 nagg
21 grein
Lóðrétt: 2 rór 3 fipa 4
slæg 5 ála 7 ketill 8 al-
geng 10 varðan 11 ráð-
ugi 13 nón 17 far 18
uni
Miðvikudagur 7. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15