Þjóðviljinn - 07.11.1990, Side 9
verður ofaná heldur að ráða í
dýpri strauma. Og prinsippin eru
klár, gluggakerfin eru framtíðin,“
sagði Freyr, en gluggaumhverfi
þýðir að það er miklu auðveldara
fýrir notendann að nota tölvuna
en hinsvegar gerir umhverfið það
að verkum að forritunin verður
miklu ílóknari. Og Freyr sagði að
það væri erfítt að læra á OS/2 og
PM og það tæki marga mánuði
fyrir snjöllustu menn að komast
inní í að forrita í þessu umhverfi.
„Þunginn er fluttur á forritarann,“
sagði Freyr.
Skólinn tekur þijár annir og
Freyr sagði að hugmyndin væri
að nemendur fengju trausta þekk-
ingu í grundvallaratriðum kerfis-
fræðinnar frá sjónarmiði hugbún-
aðarkerfa. Mikið er lagt uppúr
verklegri vinnu og ætlast til að
nemendur fái þjálfun í því tölvu-
umhverfi sem er úti á viðskipta-
markaðnum og er að iyðja sér til
rúms. „Við viljum útskrifa fólk
sem er raunverulega tilbúið, án
frekari undirbúnings, nánast til að
taka við og reka þessi tölvukerfi
sem eru í gangi út í atvinnulíf-
inu,“ sagði Freyr. En flest loka-
verkefni nemenda eru unnin í
tengslum við fyrirtæki utan við
skólann. T.d. skrifuðu nemendur
frumgerð að framleiðslustýrikerfi
fyrir Jámblendiverksmiðjuna s.l.
vor. Og það er ekki óalgengt að
nemendur séu ráðnir meðan þeir
eru að vinna að lokaverkeftiinu.
Söluhæfur
hugbúnaöur
„John C. Dvorak er mjög vin-
sæll skríbent og hann var fenginn
hingað til að halda erindi. Við
höfum í lok hverrar annar staðið
fyrir uppákomum og fólk kemur
til að skoða lokaverkefhin. Við
emm mjög hreykin af lokaverk-
enfunum. Dvorak hefur verið
mjög hikandi með OS/2. Hann
kom og skoðaði lokaverkefnin
sem vom frumgerð af söluhæfum
hugbúnaði. Hann var greinilega
mjög hissa á því að detta inn í
skóla á hjara veraldar þar sem
menn skrifuðu söluhæfan hug-
búnað undir OS/2,“ sagði Freyr
og bætti við að eftir að Dvorak
kom heim til sín til Bandaríkj-
anna skrifaði hann um skólann í
PC Magazine. „Síðan þá hafa
borist allskonar fyrirspumir að
vestan,“ sagði Freyr og kom þetta
þeim við Tölvuháskóla Verslun-
arskóla Islands þægilega á óvart
allt saman.
-gpm
Hér sést hvemig forslða Þjóðviljans f gær leit
út á Macintosh-tölvunni, eftir að hafa verið
brotin um með Quark-Xpress forritinu. Mynd:
Jim Smart.
Nú er komið að síðustu afgreiðslu Apple Macintosh-tölvanna, skv. ríkissamningi Innkaupastofnunar
ríkisins og Apple-umboðsins, sem veitir kennurum, nemendum á háskólastigi, nemendum V.Í.,
ríkisfyrirtækjum, ríkisstofnunum, sveitarfélögum landsins og starfsmönnum þeirra allt að 51% afslátt.
Tilboðsverð Listaverð Afel-. Tilboðsverð: Listaverð: Afsl.
Tölvuf: Prentarar:
Macintosh Plus lMb/ldrif 59.601 72.0Q0 17% ImageWriter II 41.340 59.000 30%
Macintosh Plus 1/HD20 89.000 110.602 20% Personal LaserWriter SC 116.391 162.000 28%
Macintosh Classic 2/40 132.392 160.000 17% Personal LaserWriter NT 177.515 254..000 30%
Macintosh SE/30 2/40 196.671 296.000 34% LaserWriter IINT 238.639 374.000 36%
Macintosh SE/30 4/40 219.344 328.000 33% LaserWriter IINTX 273.567 430.000 36%
Macintosh IIsi 2/40 246.532 298.000 17%
Macintosh IIsi 5/40 281.892 342.000 18% Skjáir, kort o. £L:
Macintosh IIsi 5/80 316.826 384.000 17% Mac II sv/hv skjár 12" 19.123 29.400 35%
Macintosh IIci 4/40 337.714 512.000 34% Mac II litaskjár 12" 39.796 48.000 17%
Macintosh IIci 4/80 363.910 552.000 34% Mac II litaskjár 13" 54.051 83.100 35%
Macintosh Ilfx 4/80 487.467 742.000 34% Mac skjákort 4»8 ■ 43.113 52.000 17%
Macintosh Ilfx 4/160 548.591 834.000 34% Mac skjákort 8*24 58.865 71.000 17%
Macintosh Portable 1/40 256.070 386.000 34% Skjástandur 4.279 6.600 35%
Reikniörgjörvi í MacIIsi 16.416 19.800 17%
Lyklaborð: ImageWriter arkamatari 9.605 22.000 35%
Almennt lyklaborð 6.200 9.600 35% Apple-skanni 95.004 146.000 35%
Stórt lyklaborð 11.002 17.000 35% Aukadrif800K sértilboð 14.800 29.500 50%
Við vekjum sérstaka athygli á tilboðsverði Macintosh Plus-tölvanna,
sem gildir aðeins á meðan birgðir endast. Pær er hægt að fá bæði með 20 Mb harðdiski og án,
en sala á Macintosh Plus hefur verið ótrúleg undanfarna mánuði.
Pantanir berist Birgi Guðjónssyni
í Innkaupastofnun ríkisins fyrir
13. nóvember '90
Ath. Verð gætu breyst ef verulegar breytingar verða ágengi dollais.
Innkaupastofnun ríkisins
Borgartúni 7, sími 26844
Radíóbúðin hf.
Sími: (91) 624800
Apple-umboðið
Skipholti 21,105 Reykjavík
1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9