Þjóðviljinn - 09.11.1990, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 09.11.1990, Blaðsíða 13
Minn draumur er sá að í hverju sveitarfélagi verði félagsmálastofnun með víðtækt hlutverk þar sem fiöl- skylduvemd er í fyrirrúmi, segir Bragi í samtali við Þjóðviljann. niðurlægjandi að þurfa að koma hingað. Félagsmálaráð eru í öllum stærri bæjum, en verkeíni þeirra eru oft takmörkuð og verksviðið óljóst. Sums staðar eru þessar nethdir ekki til. Félagsþjónustan sem skilgreind er í fhunvarpinu fellur nú undir verksvið fjölmargra nefnda. Þar má nefha bamavemdamefhd og áfeng- isvamamefhd meðal annarra. Yfir- leitt virðist forvígismönnum í sveit- arstjómarmálum ekki eftirsóknar- vert að vera í félagsmálaráði. Bragi telur að þetta muni gjör- breytast þegar hinir ýmsu mála- flokkar verða komnir inn á verksvið félagsmálanefnda. Dijúgur tími fé- lagsmálaráða fer nú i að ræða mál einstakra fjölskyldna sem eiga und- ir högg að sækja, en félagsmála- nefhdir að hætti ffumvarpsins munu ffekar einbeita sér að upp- byggingu og rekstri þjónustunnar. Það getur orðið ansi viðamikið starf í stóm sveitarfélagi og viðbúið að það verði ofvaxið þessum nefhdum að fjalla um hin einstöku mál. Frumvarpið sér þannig við því að það heimilar sveitarstjómum að skipa undimefhdir félagsmála- nefeda til þess að fara með sérstök verkefhi. Braga líst vel á þá hug- mynd að í stóra sveitarfélögunum verði skipaðar nefndir til þess að fara með mál einstakra hverfa. Gert er ráð fyrir að hin smærri sveitarfélög vinni saman að upp- byggingu og rekstri þjónustunnar, gjama á vettvangi héraðsnefnda eða í byggðasamlögum. - Félagsmálanefnd á að raða fjánnagni í skynsamlegan forgang. Til þess þarf yfirsýn, þekkingu og upplýsingar. Nú er hver nefnd að pota fyrir sig og duglegur formaður neíhdar getur náð til sín fjármagni umffam það sem í raun er skynsam- legt. Fjárveitingar til félagsþjónust- unnar eru of tilviljanakenndar og stefhumótun er ekki fyrir hendi. Gerð áætlana þekkist ekki nema í allra stærstu sveitarfélögunum. - Sveitarstjómarmenn vilja gera vel f þessum málum, en mögu- leikamir eru rýrir. Þá skortir leið- beiningu um hvemig á að standa að þessum málum og eftirlitsskylda rikisins er ekki virt, enda hafa ráðu- neytin ekki á að skipa starfsmönn- um til þessa. Sem stendur er félags- þjónusta sveitarfélaga jaðarmál i hinum ýmsu ráðuneytum, en mark- miðið með þessu ffumvarpi er að samræma og koma ábyrgðinni á eitt ráðuneyti, segir Bragi. Velferðarsveitar- félagið Velferðarsveitarfélagið í hans huga er talsvert ffábragðið því sem við þekkjum nú. - Ég reyni nú að vera vakandi, en allir eiga sér drauma. Minn draumur er sá að í hveiju sveitarfé- lagi verði félagsmálastofhun með víðtækt hlutverk þar sem fjöl- skylduvemd er í fyrirrúmi. Allir landsmenn ættu að eiga aðgang að svona stofhun. Ég er viss um að við þær aðstæður yrði þjóðin enn ham- ingjusamari en hún er og við eigum þá jafhvel effir að slá enn fleiri heimsmet í hamingju. Hann svarar því nokkuð djarf- lega þegar hann er spurður hvort í þessu ffumvarpi felist bylting til batnaðar. - Ég held að þegar sagnffæð- ingar ffamtíðarinnar líta til baka muni þeir álíta þetta ffumvarp álíka merkt og fyrstu lögin um almanna- tryggingar. Það hlæja kannski ein- hveijir að þessu nú, en svo verður ekki í ffamtíðinni. Meginatriði velferðarkerfisins á Islandi má greina í fjögur höfúð- svið, þar sem hið opinbera hefur af- dráttarlausum skyldum að gegna við þegna sína. Þessi fjögur svið era fólgin í menntakerfinu, heilbrigðis- kerfrnu, almannatryggingum og húsnæðiskerfinu. Með almennum lögum um félagsþjónustu sveitarfé- laga bætist fimmta víddin við. Sjálfshjálp Hann bendir á þá þróun sem hefur verið að eiga sér stað í Skand- inavíu og felst í því að velferðar- málefni færist i síauknum mæli til sveitarfélaga, nær fólkinu. Þetta er vilji stjómmálamanna hvort sem þeir eru á hægri kanti stjómmála eða þeim vinstri, enda er álitið að því nær sem þjónustan færist fólk- inu, því betri verði hún. - Þróunin verður á þessa leið á Islandi og auðvitað verða þá jafh- ffamt að koma auknar tekjur til sveitarfélaganna. En það er eitt mikilvægt grund- vallaratriði sem ekki má gleymast i uppbyggingu félagsþjónustu. Vel- ferðin verður að hvetja fólk til sjálfshjálpar. Við megum fyrir enga muni gera fólk háð hjálpinni, held- ur vinna með því og bjóða því upp á valkosti. Þetta er dýrmætt grund- vallaratriði. Óopinbera kerfið - Við verðum jafhffamt að hafa i huga að velferð einstaklinganna er ekki bara á ábyrgð ríkis og sveitar- félaga. Hið óopinbera velferðar- kerfi er dýrmætast, en það felst í fólkinu sjálfú og náungakærleikan- um. Við megum ekki deyfa hann með stuðningi hins opinbera. Við verðum hvert og eitt að taka ábyrgð á öðrum sem manneskjum, segir Bragi. Hann telur óopinbera kerfið á Islandi merkilegra en víðast annars staðar í Vestur-Evrópu, enda hafi svo orðið að vera vegna þess hve opinbera kerfið hefúr verið ófúll- komið hér. - Við eigum að hlú að þessu óopinbera velferðarkerfi og varð- veita það. Við þekkjum öll hve mikilvægt það er að njóta stuðnings vina og vandamanna þegar við verðum fyrir áfollum. Það þarf að stýra þessu þannig að hið opinbera kerfí og hið óopinbera geti lifað saman og stutt hvort annað, segir Bragi. -gg ■SCRVIS- • 600—1300 snúninga • Barnaöryggi á vinduhraði stjórnhnöppum • Örtölvustýrð • Innbyggður • Ryðfrír belgur bilanagreinir • 30 mín. hraðþvottur • Fróbær tslenskur • Heitt og kalt vatn leiðarvísir Veró 69.200,- afb. Einnig fáanleg með þurrkara - veró 89.200,- Heimasmiðjan Kringlunni, sími 685440 ■ Hnm Húsasmiðjan Skútuvogi s. 687700 Föstudagur 9. nóvember 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.