Þjóðviljinn - 09.11.1990, Blaðsíða 17
Ef einhver skyldi hafa gleymt
Það hafði verið heldur hljótt
um Ringo Starr í nokkur ár,
þegar hann fór í tónleikatúr
um Bandaríkin seint á síð-
asta ári eða í byrjun þessa.
Gamli Bítlatrymbillinn var að
losa sig úr pillu- og brenni-
vínsneyslu, en hann mun
samkvæmt slúðursögum
hafa drukkið fjórtán léttvíns-
flöskur á dag undir það síð-
asta á áralöngu fylliríi, eftir að
hafa hætt að drekka sterka
drykki sem fóru svo illa í
hann, að eigin sögn.
Þegar Ringo fór siðan af stað í
tónleikaferðalag snemma á þessu
ári, fékk hann enga aula til liðs
við sig, enda kallaði hann hljóm-
sveitina „His AU Starr Band“.
Innanborðs voru Levon Helm og
Jim Keltner á trommur, Joe Walsh
á gítar ásamt Nils Lofgren. Eng-
inn annar er dr. John spilar á pí-
anó, Billi Preston á hljómborð,
Rick Danko á bassa og Clarence
Clemons á saxa. Þetta verður að
teljast heilmikil súpergrúppa, og
ffammistaðan er eftir því góð á
plötu sem tekin var upp í Los
Angeles á einum tónleikanna í
túmum.
Hringurinn hefúr aldrei verið
neinn stórsöngvari, en engu að
síður hefur hann sungið mörg lög
inn á plötur, nákvæmlega eins og
manni fmnst að eigi að syngja
þau. Persónulega hefði ég alveg
viljað vera á tónleikunum í Los
Angeles. Þetta band getur ekki
klikkað á gömlu rokkslögurunum.
Andi áranna 1950 til um það bil
1965 svífúr yfir vötnum, hvort
sem er í gömlum standördum eins
og „Honey Don’t“ eftir Carl Perk-
ins, „Raining In My Heart“ eftir
Buddy Holly, eða í nýjum lögum
eins og „Shine Silently“ eftir Nils
Lofgren.
Ringo er sami hógværi háð-
fúglinn og áður. Hann byrjar tón-
leikana með því að kalla til mann-
grúans: „Hvað heiti ég?“ og þegar
tónleikagestir hrópa „Ringo“,
svarar hann „bara ef einhver
skyldi hafa gleymt því“. Bítillinn
gamli er ekkert að troða sér um of
ffam og leyfir öðrum i hljóm-
sveitinni að njóta sín. Sjálfúr
syngur hann ekki nema fimm lög
af tólf. Fyrst syngur hann ágætt
lag eftir sjálfan sig, „It Don’t
Come Easy“ og „The No-No
Song“, sem hann gerði nokkuð
vinsælt fyrr á árum. Þá syngur
hann „Honey Don’t“ og „YouTe
Sixteen - You’re Beautifúl And
You’re Mine“, alveg eins og á að
syngja þau. Mig minnir að það
hafi verið þegar Ringo kom síðar
nefnda laginu inn á topp tíu, fyrst-
ur Bítla að komast þangað eflir
skilnaðinn, sem Lennon sendi
honum svohljóðandi skeyti:
„Hvemig vogaðir þú þér!“ Að
lokum syngur Ringo svo „Photo-
graph“ eftir sig og George Harri-
son, sem er lymskulega skemmti-
legt lag.
Lögin sem félagamir syngja á
„His All Starr Band“, em mörg
hver hin bestu lög, til að mynda
„The Weight“ sem Levon Helm
syngur. Þá er áður nefnt lag,
„Shine Silently“, sungið ágætlega
af Nils Lofgren.
í heildina séð er þetta
skemmtileg rokkplata. Það er
greinilegt að léttleikinn hefur ráð-
ið ferðinni hjá Ringo og félögum
og þeir hafa haft gaman af því að
spila ffumrokkið saman. En þrátt
fyrir léttleikann tekur Stjömu-
bandið tónlistina alvarlega. Ringo
hefúr ekki gefið út betri plötu í
langan tíma.
Ringo Starr
mættur til leiks aö nýju.
Af-
mæli
og
Paul
á lífi
Fyrrum félagi Ringos, Paul
McCartney, var einnig á far-
aldsfæti í ár. Eftir töluverðar
ófarir í vali á samstarfsmönn-
um í hljómsveit, virðist
McCartney loksins vera kom-
inn með gott rokkband. Á
tónleikaferðalagi sínu fyrr á
árinu tók hann fjöldamörg
Bítlalög og miklu fleiri en
hann hefur gert á sólóferlin-
um áður. Þar má nefna „Hey
Jude“, „Let It Be“, „Fool On
The HiH“, „Back In USSR“ og
„Birthday".
Allt heila galleríið var tekið
upp „læf ‘ og er væntanlegt á þre-
faldri plötu innan tíðar, sem heitir
„Tripping The Live Fantastic“.
Sem undanfara hefur McCartney
sent frá sér smádisk og smáskífú
með „Birthday". Þetta er hressi-
leg útgáfa af þessum gamla og allt
of litið spilaða rokkara af „Hvíta
albúminu" svo kallaða. Annað
gamalt og gott lag, „Good Day
Sunshine", er einnig á plötunni,
ásamt blöndu af „ps I Love You“
og „Love Me Do“. Disklingurinn
endar svo á lagi frá sólóferlinum,
„Let ‘em In“.
Eins og áður sagði
Pau McCartney meö tónleikaútgáfu af mörgum gömlum Bítlalögum.
McCartney kominn með betra
band en áður og kröftugra. Hann
hefur verið mjög mistækur á ferl-
inum en getur verið hreint ágætur
þegar honum tekst vel upp. Það er
því fengur fyrir Bítlabijálæðinga í
þessari væntanlegu tónleikaplötu.
Mest er varið í að fá sum gömlu
Bítlalaganna í hljómleikaútgáfú,
því flest þeirra voni aldrei flutt á
tónleikum á meðan The Beatles
var og hét.
er
73 Lennonlög í kassa
Þeir sem eiga slitnar Lennon-
plötur og þurfa að endurnýja
settiö, ættu að fagna fjögurra
diska kassa sem er kominn út
með 73 lögum eftir Lennon.
Diskarnir spanna allan sóló-
feril Lennons, og nokkur lög
sem hann flutti með The
Beatles fá að fljóta með.
Sólóplötur Lennons eru ekki
allar i heilu lagi á diskunum fjór-
um. Einhverjum lögum hefur ver-
ið sleppt, og engin af lögum Yoko
eru þama heldur. Sögulega séð er
fengur í „Lucy In The Sky With
Diamonds" og „I Saw Her Stand-
ing There“, sem Lennon syngur
þama á tónleikum með Elton John.
En það var McCartney sem söng
síðar nefnda lagið með The Beat-
les. Meðferð þeirra félaganna á
þessum lögum telst þó varla góð,
en þessi lög með þeim hafa ekki
verið fáanleg á diski áður.
Reyndar hafa Lennon plötum-
ar flestar verið ill- eða ófáanlegar
hér á landi á diski. Að þvi leytinu
kemur þetta safn sér ágætlega. Það
hefúr nefúilega farið dálítið fram-
hjá mönnum hvað upptökumar og
útsetningamar em margar góðar á
sólóplötum Lennons. Hljómlega
séð em til dæmis „Plastic Ono
Band“, „Imagen“ og „Walls And
Bridges“ langt á undan sinni sam-
tíð og nákvæmlega þessi hljómur
hefur varla komið fram hjá öðrum
tónlistarmönnum. Hins vegar vom
þessar upptökur margar hveijar
mjög viðkvæmar, þannig að þær
þoldu illa eðlilegt slit á plötunum,
hvað þá rispur.
Tóninn á þessum plötum er
kristaltær og söngur Lennons er
settur í mikið bergmál, sem krefst
mikils af þeim sem syngur ef ekki
á að hljóma illa. Upptökumar
komast að sjálfsögðu miklu betur
Myndatexti: John Lennon á tjórum
geisladiskum.
til skila á geisladiski en plötu,
þannig að það er eins og að hlusta
á sum lögin í fyrsta skipti ef mað-
ur hefur aðgang að góðum tækj-
um. -has
NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 17