Þjóðviljinn - 09.11.1990, Blaðsíða 24
neihvaíiseeg.::
KBlSKl.MHÉR!
JA JA GAMII..HELV1TI ER EKKhKI
HEITUP. STMHIR HESSA btóAHA..
EG NENNI EKKI AÐ HANGA EINHN
RARWA NIPRI EINS OG FÍBl'
Frímerki frá
Litháen
Sjálfstæöisþróun Eystrasalts-
landanna tekur stöðugt á sig nýj-
ar myndir. Þannig hafa póstyfír-
völd í Litháen nú gefið út sín eig-
in frimerki í fyrsta skipti ffá því
að landið var innlimað í Sovétrík-
in. Frímerkin, sem eru 5, 10, 20
og 50 kópeka virði, sýna stílfærð-
an engil sem heldur á Litháen í
hendi sér. Myndin á að sögn póst-
málastjómarinnar í landinu að
höfða til kaþólskrar trúar lands-
manna. Frímerkin hafa verið op-
inberlega viðurkennd í Eistlandi
og Lettlandi, en póstmálayfirvöld
í Moskvu hafa tekið þessum nýju
ffímerkjum með þögn.
Aformum Eistlendinga um
útgáfú eigin gjaldmiðils í krónum
um næstu áramót hefur verið
ffestað, þar sem ógerlegt hefúr
reynst að ákveða verðgildi gjald-
miðilsins. _^jg
Hreindýra-
kynning
í Húsdýra-
garðinum
1 vetur verða ákveðnar dýra-
tegundir kynntar sérstaklega í
Ffúsdýragarðinum. Kynningamar
verða mánaðarlega og sú fýrsta
nú á sunnudag kl. 15. Skarphéð-
inn Þórisson líffræðingur flytur
erindi um hreindýr. Skarphéðinn
er kennari I líffræði við Mennta-
skólann á Egilsstöðum og hefúr
hann rannsakað lifhaðarhætti
hreindýra. Þessi árstími er sér-
staklega heillandi til að fræðast
um hreindýr því nú er fengitími
þeirra, auk þess sem dýrin taka
miklum atferlis- og lífeðlisfræði-
legum breytingum á þessum árs-
tíma. Fyrirlesturinn verður í
kennslusal Húsdýragarðsins og
er hann opinn gestum garðsins
meðan húsrúm leyfir.
Það reynir á að byrja í skóla, undirbúum bömin vel
MUNDU EFT1R OSHNUM
Hann eflir einbeitinguna
... alla daga
"^f^ARNARFLUG
INNANLANDS hf.
Reykjavíkurflugvelli - sími 29577
Guðdómleg innri spenna
Myndasögublaðið Gisp! hefur göngu sína
Sjö ungir myndlistarmenn
hafa lagt saman í púkk og
gefið út nýtt myndasögublað
með ævintýralegum mynda-
sögum þar sem hugmynda-
fluginu er gefinn laus taumur
og allt getur gerst. Sögurnar
eru ekki beinlínis við barna
hæfi, en fullar af ungæðisleg-
um gálgahúmor.
Höfúndamir heita Bjami Hin-
riksson, Halldór Baldursson,
Þorri Hringsson, Jóhann I. Torfa-
son, Halldór Baldursson, Þórar-
inn Leifsson og Olafur Engil-
bertsson. Þeir eru flestir nýút-
skrifaðir úr myndlistamámi.
Sögusviðið liggur allt frá Perlu
Davíðs í Fríkirkjuna, líkhúsið,
sendiráð olíufurstanna, vændis-
hús lágstéttahverfisins og undir-
heima Reykjavíkur, að ógleymd-
um sálrænum þriller um manninn
sem át hjartað úr sér. Semsagt,
„guðdómleg innri spenna og
pína“ eins og segir á forsíðu
blaðsins. Blaðið er 68 síður og
áætlað að það komi út ársfjórð-
ungslega. Ritnefnd er opin fyrir
aðsendu efúi og hugmyndum í
blaðið. -ólg.
og
pína
Kölski boy eftir
Þórarin Leifsson.
Föstudagur 9. nóvember 1990 212. tölublað 55. árgangur.
AUK/SIa k9d21-504