Þjóðviljinn - 15.11.1990, Qupperneq 1
Fimmtudagur 15. nóvember 1990 — 216. tölublað 55. árgangur
jy Álversskattur
Agreiningur um skiptingu
Ráðherrana Jón Sigurðsson og Júlíus Sólnes greinir á um hvernig skipta eigi álversskatti milli sveitar-
félaga. Tekjur Vatnsleysustrandarhrepps munu rúmlega tvöfaldast vegna álvers á Keilisnesi
Gert er ráð fyrir að tekjur
Vatnsleysustrandarhrepps
muni meira en tvöfaldast verði
álver byggt á Keilisnesi. Tekjur
hreppsins vegna álvers felast
fyrst og fremst í fasteignaskött-
um, en jafnframt fá hreppurinn
og önnur sveitarfélög á Suður-
nesjum hlut í veltuskatti. Júlíus
Sólnes, umhverfisráðherra og
þingmaður Reyknesinga, telur
hins vegar að allir skattar af ál-
verinu eigi að renna í Jöfnunar-
sjóð sveitarfélaga.
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra segist munu leggja til í
heimildarlagafrumvarpi vegna ál-
vers að fyrirtækið greiði veltu-
skatt og hefur í því sambandi ver-
ið rætt um 0,77 prósent af veltu.
Miðað við þetta er reiknað
Silfur hafsins. Þeir á Sigurði Ólafssyni SF 44 lönduðu f gær um 70 tonnum af ágætis síld á Höfn í Horna-
firði. Aðeins hálftíma sigling er fyrir Hornafjarðarbáta á miðin við Hvanney en þar hefur aflast vel undanfarna
daga. Ólafur Björn Þorbjörnsson skipstjóri segir að menn séu aðeins farnir að pæla í boðuðu verkfalli yfir-
manna á fiskiskipum og sumir reyni hvað þeir geta til að veiða sem mest ef til verkfalls skyldi koma. Sáttafund-
ur hefur verið boðaður í deilunni í dag og hefst hann klukkan 13.30 hjá ríkissáttasemjara. Mynd: Salómon.
með að álverið muni greiða um
100 miljónir króna í veltuskatt á
ári. Iðnaðarráðherra mun leggja
til að þrír fjórðu hlutar þess, eða
75 miljónir króna, fari til eflingar
atvinnu i öðrum landshlutum en
þeim sem álverið verður staðsett
í. Hann segist búast við að nánar
verði kveðið á um ráðstöfun
þeirra ljármuna í sérstökum lög-
um.
Fjórðungur veltuskattsins á
hins vegar að renna til sveitarfé-
laga á Suðumesjum.
Að sögn Jóns Gunnarssonar,
oddvita Vatnsleysustrandar-
hrepps, standa nú yfir viðræður
sveitarfélaga á Suðumesjum um
skiptingu þeirra 25 miljóna króna
sem ráðgert er að komi í þeirra
hlut af veltuskattinum.
Jón segir þessar viðræður
ganga vel og telur að þeim muni
ljúka fyrir áramót. Hann vill hins
vegar ekkert láta uppi um þær
hugmyndir sem verið er að ræða.
Hann segist búast við að ál-
verið muni greiða 65-70 miljónir
króna í fasteignaskatt til hrepps-
ins á ári hveiju, en það jafhgildir
heildarárstekjum hreppsins nú.
Skattgreiðslur ÍSAL til sveit-
arfélaga era með talsvert öðram
hætti en áformað er um nýja ál-
verið. ISAL greiðir svokallað
framleiðslugjald, en af því koma
um 33 miljónir króna í hlut Hafn-
arfjarðarkaupstaðar í ár.
Húsbréf
Til höfuðs
gjaldþrotum
Halldór Blöndal: Jóhanna hefur ekki tryggt
fjárhagslegan grunn sjóðanna
Afleiðingar greiðsluerfið-
leika íbúðareigenda eru oft
á tíðum hjónaskilnaðir, upp-
lausn fjölskyldna, veikindi og
vinnutap, sagði Jóhanna Sig-
urðardóttir í gær þegar hún
mæiti fyrir frumvarpi tii laga
um breytingu á lögunum um
Húsnæðisstofnun í efri deild AI-
þingis.
I framvarpinu er ákvæði til
bráðabirgða sem gerir ráð fyrir að
fólk geti á næstu tólf mánuðum
fengið húsbréf til greiðslu á
skuldum eigi fólk í greiðsluerfið-
leikum vegna íbúðakaupa síðustu
ára. Jóhanna sagði þetta nauðsyn-
Iegt þar sem gjaldþrot blasti við
fjölda fólks og það gæti ekki
fengið hærra greiðsluerfiðleika-
lán úr 86- kerfinu en sem nemur
600 þúsundum kr. Hún benti á að
fólk hefði í því kerfi iðulega þurft
að taka skammtímalán allt að 1,5
miljón kr. og því dygði 600.000
kr. lán ekki. Húsbréf bera nú 6
prósent vexti og era til 25 ára.
Haraldur Blöndal benti á í
umræðunni að lán Byggingar-
sjóðs ríkisins sem og greiðsluerf-
iðleikalánin væra mun hagstæðari
en húsbréf þar sem þau bæra 3,5
prósent vexti til 40 ára. Jóhanna
sagði að niðurstöður starfshóps
sem kannaði greiðslubyrði kerf-
anna væra að greiðslubyrði fyrstu
áranna af húsbréfakerflnu væri
minni en 86- kerfinu, að fengnum
vissum forsendum, nema þegar
hátekjufólk keypti ódýrar íbúðir.
Þessu mótmælti Halldór sem
vildi meina að ekki væri hægt að
ganga framhjá því að 7 prósent
raunvextir húsbréfakerfísins væra
helmingi hærri en 3,5 prósent
vextir 86-kerfisins. Hann sagði að
Jóhanna hefði ekki tryggt Hús-
næðisstofhun það fé sem þyrfti til
að veita greiðsluerfiðleikalán til
allra sem þyrftu. -gpm
Samtök
herstöðvaandstœðinga
lögð niður?
Landsráðstefna á
laugardag
„Meðal þess sem rætt verður á
landsráðstefnunni er hvort
tímabært sé að leggja Samtök
herstöðvaandstæðinga niður í
núverandi mynd og breyta bar-
áttuaðferðunum í ljósi breyttra
aðstæðna í austri og vestri," seg-
ir Guðrún Bóasdóttir, starfs-
maður Samtaka herstöðvaand-
stæðinga.
Samtökin gangast fyrir lands-
ráðstefhu næstkomandi laugardag
í sal Dagsbránar og hefst hún
klukkan 10. Á ráðstefnunni verða
lagðar línur fyrir starfið á næsta
ári og kosin ný miðnefnd. Þá era
uppi áætlanir um að efha til Kefla-
vikurgöngu næsta sumar og á ráð-
stefnunni verður eimiig rætt
hvemig herstöðvaandstæðingar
geti best beitt sér í komandi kosn-
ingabaráttu. -grh