Þjóðviljinn - 15.11.1990, Síða 2
FRETTIR
Siómenn
Fylgjandi frjálsu fiskverði
Óskar Vigfússon: Andstaða útvegsmanna gegn frjálsu fiskverði sýnir að fiskvinnslan á útgerðina
Isetningarræðu sinni við
upphaf Sjómannasam-
bandsþings lýsti Oskar Vigfús-
son formaður Sjómannasam-
bands íslands yfir undrun sinni
á þeirri afstððu útvegsmanna
að hafna frjálsu flskverði á ný-
afstöðnum aðalfundi sínum.
Óskar sagði að nauðsynlegt væri
fyrir sjómenn að fá skýr svör ffá
útvegsmönnum hvort þeir séu
Sölumiðstöðin
Stofnar fyrir-
tæki íTókíó
Mun vera fyrsta ís-
lenska fyrirtækið sem
sett er á fót í Japan
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hefur stofnað dótturfyrirtæki í
Japan, með aðsetur í Tókíó, til
að auka enn sölu- og markaðs-
starfsemi í Asíu. Það mun vera
fyrsta íslenska fyrirtækið sem
þar er stofnað og tekur það
formlega til starfa í dag, fimmtu-
dag.
Þetfa nýja fyrirtæki mun taka
yfir gerð sölusamninga við jap-
anska fiskkaupendur sem áður
hafa verið gerðir í Reykjavík. Að
mati SH þykir orðið nauðsynlegt
að færa sölu- og markaðsmálin nær
kaupendum, bæði til að tryggja
betri viðskipti og um leið veita
kaupendum enn betri þjónustu.
Viðskipti Sölumiðstöðvarinnar
við Asíu og þá sérstaklega Japan
hafa aukist umtalsvert á undan-
fomum árum, enda borða þeir
meira af sjávarafurðum en nokkur
önnur þjóð í heiminum. Af þeim
sökum em miklar vonir bundnar
við framtíðarþróun sölumála ís-
lenskra afurða í þessum heims-
hluta, en á síðasta ári fóm um 17%
af útflutningi SH í verðmætum tal-
ið til Asíulanda, að andvirði 2,3
miljarðar íslenskra króna.
Framkvæmdastjóri hins nýja
fyrirtækis er Helgi Þórhallsson
viðskiptafræðingur sem hefur veitt
markaðsskrifstofu SH í Tókíó for-
stöðu. -grh
fiskseljendur eða fiskkaupendur.
Hingað til hefðu sjómenn staðið í
þeirri trú að útvegsmenn hefðu
sömu hagsmuni og þeir þegar
fiskverð em annars vegar. Svo
virtist ekki vera sem sæist best á
því hver ætti útgerðina og hann
harmaði að fiskvinnslan skuli
ráða þessu helsta hagsmunamáli
útgerðarinnar.
Þá gagnrýndi Óskar formann
Vinnuveitendasambands Islands
fyrir það að hafa skorað opinber-
lega á stjóm LÍÚ að semja ekki
við yfirmenn á fiskiskipum á
sömu nótum og gert var fyrir
vestan, vegna þess að það væri
brot á þjóðarsátt.
„Hann lætur sig hafa það að upp-
lýsa þjóðina um að hann hafi ekki
skilið hvað hann var að gera fyrir
vestan og því séu atriði í samn-
ingnum á misskilningi byggð.
Maður gæti haldið að þjóðarsáttin
nái ekki til Vestfjarða, eftir að
hafa heyrt slíkar yfirlýsingar frá
mönnum sem jafnframt em for-
svarsmenn þjóðarsáttarinnar,"
sagði Óskar Vigfússon.
-grh
Sautjánda Sjómannasambandsþing var sett ( gær og er að þessu sinni haldið við nokkuð sérstakar aðstæð-
ur. Yfirvofandi er verkfall hjá yfirmönnum á fiskiskipum, og þrátt fýrir (trekaðar tilraunir hafa samningar ekki tek-
ist við undirmenn, sem hafa haft lausa samninga frá áramótum. Mynd: Jim Smart.
Lífevrissióður siómanna
Grfpa verður til ráðstafana
Vantar um 44% á að sjóðurinn eigi fyrir skuldbindingum sínum
Miðað við þriggja prósenta
raunávöxtun vantar um
fjörutiu og fjögur prósent
á að Lífeyrissjóður sjómanna
eigi fyrir skuldbindingum sín-
um. Jafnframt er engin von til
þess að tíu prósenta iðgjald
nægi til að standa undir þeim
réttindum sem gert er ráð fyrir
að sjóðurinn veiti.
Þetta kemur fram í skýrslu
stjómar Sjómannasambandsins
sem lögð var fram við upphaf Sjó-
mannasambandsþings. I skýrsl-
unni kemur fram að það eru eink-
um tvær ástæður fyrir þessari
slæmu stöðu sjóðsins. Annars
vegar rýmun eigna á undanföm-
um áratugum og hins vegar mis-
vægi á milli bótaákvæða og bóta-
grundvallar. Því er ljóst að grípa
verður hið fyrsta til raunhæfra
ráðstafana til að finna lausn á
þessum vanda sjóðsins.
í árslok 1989 var hrein eign
Lífeyrissjóðs sjómanna til
greiðslu lífeyris 8.035 miljónir
króna. Iðgjöld ársins námu 1.014
miljónum og sjóðurinn greiddi
lífeyri að fjárhæð 214 miljónir
króna.
-grh
Fræðslustarf Krabbameinsfélagsins ( skólum landsins er að mestu leyti
kostað af happdrættisfé. Hér eru fræðslufulltrúar félagsins, Erna Har-
aldsdóttir hjúkrunarsérfræðingur og Oddur Albertsson kennari að ræða
við nemendur I Foldasl.óla.
Framsókn þingar
Flokksþing Framsóknar-
flokksins verður haldið á Hótel
Sögu dagana 16. til 18. nóvember
og er ætlað að 500 til 700 manns
sæki þingið. Þingið ber yfirskrift-
ina Oflug þjóð í eigin landi. A
þinginu verða lagðar fram álykt-
anir um EB og EFTA, byggða-
mál, umhverfismál, velferðarmál
o.fl. Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra flytur yfirlits-
ræðu kl. 13.15 á föstudag, en sér-
stakur gestur flokksþingsins
verður Sigmundur Guðbjamason
háskólarektor og flytur hann
ávarp kl. 14.15 á laugardag þar
sem hann ræðir stöðu íslands
gagnvart sameinaðri Evrópu með
tilliti til menntunar.
Ríkistollstjóra skrifað
Suður-Affíkusamtökin gegn
apartheid hafa skrifað ríkistoll-
stjóra bréf þar sem bent er á að
um þessar mundir dvelji hópur Is-
lendinga í Suður-Afríku á vegum
ferðaskrifstofúnnar Veraldar. I
bréfinu er minnt á að samkvæmt
lögum ríki bann á viðskipti við
Suður-Afríku og Namibíu og að
innflutningur á vömm frá þessum
löndum sé óheimill. Þá segir að
hópurinn geti valið um nokkra
heimkomudaga, 17., 21. og 23.
nóvember og em yfirv Jld tolla-
mála hvött til þess að fylgjast
með því, að lög um bant við við-
skiptum við Suður- Afríku verði
ekki brotin, en líklegt hljóti að
mega telja að ferðalangamir hafi
keypt einhvem vaming í Suður-
Afríku.
Síðasta spilakvöldið
Þriðja og síðasta spilakvöld í
yfirstandandi þriggja kvölda
keppni Félags eldri borgara í
Kópavogi verður haldið föstu-
daginn 16. nóvember kl. 20.30 að
Hákoti, efri sal í Félagsheimilinu.
Dans á eftir að venju við dillandi
harmónikumúsik Jóns Inga og fé-
laga. Allir velkomnir.
Helgamámskeið íyoga
og hugleiðslu
Sri Chinmoy setrið heldur
námskeið í yoga og hugleiðslu
um helgina. A námskeiðinu verða
kenndar margskonar slökunar- og
einbeitingaræfingar jafnframt því
sem hugleiðsla er kynnt sem
áhrifamikil aðferð til meiri og
betri árangurs í starfi og aukinnar
fullnægju í daglegu lífi. Nám-
skeiðið verður haldið í Ámagarði,
það er ókeypis og öllum opið.
Það er í sex hlutum og byijar
fyrsti hlutinn föstudagskvöld kl.
20. Frekari upplýsingar í síma
25676.
Hausthappdrætti
Krabbameinsfélagsins
Hefðbundið happdrætti
Krabbameinsfélagsins féll niður
sl. vor vegna þjóðarátaks gegn
krabbameini sem þá fór fram. Nú
Gunnlaugur Pálmason
Lögreglan
Lýst eftir
manni
Lögreglan í Reykjavík lýsir
eftir Gunnlaugi Pálmasyni, sem
er 38 ára, meðalmaður á hæð,
þéttvaxinn, skeggjaður og með há
kollvik.
3. nóvember var lögreglunni í
Reykjavfk tilkynnt að Gunnlaugur
heföi farið að heiman frá sér á
þriðjudeginum 30. október og ætlað
að koma heim síðar sama dag,en
ekkert heföi til hans spurst. Hafin
var leit að Gunnlaugi, m.a. lýst eftir
honum í fjölmiðlum. Mánudaginn
5. nóvember haföi Gunnlaugur
símasamband heim til sín og sagðist
þá vera úti á landi og koma heim
daginn eftir.
Ekkert hefúr heyrst eða spurst
til Gunnlaugs eftir það og biður lög-
reglan alla þá sem gefið geta upp-
lýsingar um málið að hafa samband.
-Sáf
Almannatrvssinzar
Sóknarstarfsmenn
mótmæla
„Fundur Sóknarstarfsmanna
á sjúkra- og umönnunarstofnun-
um mótmælir þeirri ætlan ráða-
manna að lífeyrissparnaður
launafólks verði tekjutengdur
öðrum bótum úr almannatrygg-
ingakerfinu," segir i áskorun
Sóknarstarfsmanna til þing-
manna og ráðherra þar sem þeir
eru hvattir til að íhuga vel afstöðu
sína varðandi frumvarp um al-
manntryggingar sem til stendur
að leggja fram á þingi í vetur.
„Fundurinn áréttar að tekjuteng-
ing grunnlífeyris stangist á við
grundvallarsjónarmið um samspil
almannatrygginga og starfsemi lif-
eyrissjóða," segir í áskoruninni og
er tekið undir með miðstjóm ASI
þar sem því er lýst að með frum-
varpinu gerbreytist allar forsendur
fyrir starfsemi lífeyrissjóðanna.
gpm.
hefúr þráðurinn verið tekinn upp
með hausthappdrættinu 1990 og
ættu miðar að vera komnir til
allra þeirra einstaklinga sem fá þá
senda. Verðmætustu vinningamir
eru 6 bifreiðar. Samtals em vinn-
ingamir 106 að tölu að verðmæti
15,6 miljónir króna. Dregið verð-
ur í happdrættinu 24. desember.
Að eldast um 10 ár
Öldmnarfræðafélag íslands
verður með námstefnu um þjálf-
un 70 ára og eldri á Hótel Holiday
Inn á morgun föstudag kl. 13 til
16. Pálmi Jónsson læknir mun
ræða um vöðvastyrk og vaxandi
aldur. Erla Erlingsdóttir hjúkmn-
arfræðingur ræðir um þjálfun
aldraðra á sjúkradeild og hlutverk
hjúkmnar. Svanhildur Elentínus-
dóttir sjúkraþjálfari mun ræða um
sjúkraþjálfún 70 ára og eldri. El-
ísabet Hannesdóttir íþróttakenn-
ari og Guðrún Nielsen formaður
Félags áhugamanna um íþróttir
aldraðra munu fræða um þjálfun
70 ára og eldri, fþróttir og félaga-
samtök. Fyrirlestramir em öllum
opnir. Aðgangseyrir kr. 600, kaffi
og meðlæti innifalið.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 15. nóvember 1990