Þjóðviljinn - 15.11.1990, Side 12
■ SPURNINGIN ■
Er jólaundirbúningurinn
hafinn?
Olga Magnúsdóttir
húsmóðir
Hann fer nú alveg að hefjast hjá
mér.
Margrét Bjarnadóttir
starfsstúlka
Nei, hann er ekki hafinn.
Sigríður Kristjánsdóttir
húsmóðir
Nei, en ég er búin að kaupa
nokkrar jólagjafir.
Gréta Birgisdóttir
húsmóðir
Nei, ekki get ég sagt það. En
hann fer brátt að hefjast.
RAFRÚN H.F.
Smiðjuvegi 11 E
Alhliða
rafverkta kaþjónu sta
Sími641012
Kerti og spil eru ekki lengur
sett í jólapakka, en þau eru
samt enn ómissandi á jólum.
Eins og í prentsmiðjum er nú
mikið að gera hjá kertafram-
leiðendum. Þjóðviijinn brá sér
upp á Hyrjarhöfða þar sem
verksmiðjan Hreinn hf er til
húsa. Hjá Hreini hf hafa verið
framleidd kerti síðan árið 1922.
Atli Hafsteinsson verk-
smiðjustjóri segir að það séu til
þijár aðferðir til að búa til kerti.
Hægt er að steypa þau i mót eins
og gert er hjá Hreini. Einnig er
hægt að pressa duftvax í kerti og
þriðja aðferðin felst í því að þræði
er dýft í vax, sem smám saman
safnast á þráðinn. Við síðast-
nefndu aðferðina verða kertin
alltaf breiðari neðst og mjókka
upp og ffemur óslétt.
Kertavaxið er
borið í mótin (
stórum könnum
og fötum.
Kertaframleiðsla
Draumur kertasníkis
í heimsókn hjá Hreini hf sem steypt hefur gæðakerti síðan árið 1922
Leifur Bjömsson ræður rlkjum ( vélasalnum. Myndir Jim Smart
Atli segir verksmiðjuna ffam-
leiða um 25 tonn af kertum á ári,
en langmesta salan fari ffam
skömmu fyrir jól, en einnig selt
dijúgt af kertum fyrir páskana.
I salnum þar sem vélamar eru
ræður Leifúr Bjömsson ríkjum.
Hann segir það mikla þolinmæð-
is- og nákvæmnisvinnu að steypa
kerti. Sérstaklega er vandasamt
að þræða kertaþráðinn í vélamar.
Vélamar em komnar til ára sinna,
og vom upphaflega í
verksmiðju Hreins hf
við Barónsstíg. Fyrst
í stað eftir að verk-
smiðjan opnaði vom
kertin dýfð, en nú em
þau einungis steypt.
Leifur steypir rauð,
blá, hvít og gul kerti,
jólakertin em líka
snúin. Vaxið er hitað
í stómm pottum, og
síðan borið í mótin í
stómm könnum og
fötum. Með sérstök-
um spaða sker hann á
þræðina þegar vaxið
er storknað, um hálfri
klukkustund effir að
því var hellt í mótin.
Þegar kertin mis-
heppnast era þau
brædd á ný, svo hér
fer ekkert til spillis.
Eftir að Leifúr hefúr
tekið kertin úr mót-
unum raðar hann
þeim í trékassa, sem
sendir em inn til
kvennanna sem
pakka þeim í papp-
írsöskjur.
Atli segir vaxið
vera flutt inn frá
Þýskalandi, og kveður það gæða-
vax, en til em margar tegundir af
kertavaxi.
Kertaverksmiðjan er hvorki
mann- né rúmfrek. Hinum megin
við þilið em konumar sem pakka
kertunum. Þær pakka líka sápu
sem verksmiðjan ffamleiðir. En
mestu er um vert að pakka nógu
af rauðum kertum, því að nú er
skammt í aðventu.
BE
Þræðirnir settir (mótin.