Þjóðviljinn - 16.11.1990, Blaðsíða 15
HE L GARMENNIN Grl^N
Oddný Sv. Björgvins
Ljósin og
nornirnar
Oddný Sv. Björgvins
sendir írá sér tvær íyrstu bækumar
samtímis: Þegár prentljósin dansa og
Níu nomaljós
Þótt ég styðjist við tákn og
táknmál bæði í ljóðunum og sög-
unum, þá má að einhveiju leyti
segja að grunnur sumra ljóðanna
séu svipmyndir úr ferðalögum,
segir Oddný Sv. Björgvins, sem
nú sendir ffá sér tvær fyrstu bæk-
ur sínar samtimis. Eg hef farið
víða og kyxmst mörgu, innan
lands og erlendis. Smásögumar
eru meira byggðar á reynsluheimi
mínum, bemskunni á Fáskrúðs-
firði og síðan dvöl og ferðum í
Reykjavík og víða erlendis. Sam-
úð með hinni heftu konu er mér
ofarlega í huga, og það sem hefur
komið mér á óvart með aukinni
þekkingu og reynslu, er það hve
konan í öllum löndum er svipuð
og aðeins misjafnlega langt kom-
in í því að ná rétti sínum sem
manneskja.
Oddný hefur áður birt í blöð-
um smásögur og ljóð, auk þess að
rita fjölda blaðagreina og flytja
Grétar Reynisson. Ljósmynd: Jim
Smart
útvarpserindi. Hún stundaði há-
skólanám í íslensku og ensku og
starfaði síðan við kennslu.
- Geturðu skýrt nánar merk-
ingu nafnsins á ljóðabókinni,
Þegar prentljósin dansa?
- Að nokkm leyti byggist það
á persónulegri, innri reynslu, en
bókin skiptist í 6 hluta, og í þeim
síðasta, I ljósflæði keilunnar, er
kannski lykil að finna.
Ég hef reynt að átta mig á
mörgu í skoðanakerfum og trúar-
brögðum á mismunandi stöðum
og alltaf reynt að komast sem
næst daglegu og raunverulegu lífi
og aðstæðum fólks. í núverandi
starfi sem umsjónarmaður Ferða-
blaðs Lesbókar Morgunblaðsins
hef ég átt þess kost að auka enn
við ferðir mínar um önnur lönd,
en á sínum tíma var ég m.a. um
skeið framkvæmdastjóri Ferða-
þjónustu bænda og kynntist þá
ekki síst allvel hlutskipti sveita-
kvenna um allt land. Og stefið
frernst í smásagnasafninu, 9
nomaljós er „Ó, þú hefta kona“.
Það vísar meðal annars til fortíð-
arinnar og þeirrar kúgunar og of-
sókna sem konur máttu sæta, ekki
síst á galdraofsóknatímanum, en
einnig til þess hve margar konur
eru i raun og vem einar og heftar
enn þann dag í dag.
- Em þetta sannsöguleg verk?
- Þau eiga sér ekki beinar fyr-
irmyndir, en em raunsæ að því
leyti, að allt þetta hefur oft gerst
og gerist alltaf, getur komið fyrir
hvem og einn. Ef til vill sjá því
margir lesendur sjálfan sig í
þessu, því ég reyni að komast sem
næst kjamanum. En naíhið 9
nomaljós vísar að nokkm leyti til
goðafræðinnar, þeirra Urðar,
Verðandi og Skuldar, en einnig til
þess tíma þegar Nomahamarinn,
Malleus Malleficarum, var sam-
inn, leiðarvísir rannsóknarréttar-
ins í galdraofsóknunum. Trúarof-
stæki hjá ýmsum fulltrúum krist-
innar kirkju á þeim tíma, þegar
yfir miljón konur vom brenndar á
báli í Evrópu, hefur fyllt mig
miklum hryllingi og vakið til um-
hugsunar. Þótt ég sé trúuð og líti á
mig sem kristna manneskju, þá
get ég ekki sætt mig við allt í
kirkjustefnu fyrr og síðar, við er-
um oft svo skammsýn og hjátrú-
arfull. Það er enn langt eftir í há-
leitri, mannlegri þróun. Ég hef
sannfærst um að i flestum trúar-
brögðum heims em sterkir og já-
kvæðir þættir, sumir ekki síðri en
birtast í kristninni, meira að segja
í Islam, muslimar em að mörgu
leyti fijálslyndari en við, þótt
kreddur ráði þar miklu eins og
annars staðar og konur njóti ekki
mikils frelsis.
- Uppáhaldshöfundar?
- Eg held t.d. mikið upp á
Laxness, Hesse og Yates, en dett-
ur líka í hug að nefha vin minn,
bandaríska skáldið Mark Hudson,
sem fékk Juniper-verðlaunin fyrir
ljóðabókina Afterlight, sem hefur
vakið furðu litla athygli hér á
landi. Hudson bjó hér um tíma og
margt i bókinni höfðar sérstak-
lega til íslendinga, meðal annars
vísar hann á einum stað til stóla
Þórdísar á Grund, sem varðveittir
em á Þjóðminjasafninu. ÓHT
Sinfóníuhlj ómsveitin
Ljóðskap
dr. Guð-
mundar
Tónverkið Ljóðskap eftir dr.
Guðmund Hafsteinsson, og verk
eftir Schönberg og Lútóslavskí
verða á „bláum tónleikum“ Sin-
fóníunnar á laugardaginn. Pól-
verjinn Jan Krenz stjórnar.
Sinfóniuhljómsveitin flytur á
laugardaginn tónverkið Ljóðskap
eða Lyric Shape, eftir dr. Guðmund
Hafsteinsson tónskáld, en hann er
doktor í tónsmíðum ffá Juillard
tónlistaxháskólanum í New York,
einum virtasta skóla tónlistar-
heimsins. Þetta gerist á fyrstu tón-
leikum „bláu tónleikaraðarinnar“,
en hana einkennir nútimatónlist
eftir íslensk og erlend tónskáld.
Hún er ætluð þeim sem leita eftir
nýjum straumum í tónlist.
Tónskáldið Guðmundur Haf-
steinsson hóf nám í píanóleik
1970, ffá 1972 hjá Halldóri Har-
aldssyni í Tónlistarskólanum í
Reykjavík, hljómfræði stundaði
hann hjá Jóni Ásgeirssyni og
kontrapunkt hjá Þorkatli Sigur-
bjömssyni til ársins 1975. Frá
hausti 1977 lærði hann tónsmíðar í
einkatímum hjá Charles Wuorinen,
en innritaðist í Juillard-skólann
1979 og lauk þaðan doktorsprófi
1986. Jafnffamt stundaði hann
nám i hljómsveitarstjóm hjá David
Gilbert. Sinfóníuhljómsveit ís-
lands hefur einu sinni áður flutt
verk eftir Guðmund Hafsteinsson,
konsertkantötu, ritað 1978. Ljóð-
skap er í 8 köflum, 20 mín. að
lengd, ritað í Bandaríkjunum.
Eftir Amold Schönberg flytur
hljómsveitin Fimm þætti op. 16 og
síðan Bók fyrir hljómsveit, Livre
pour orchestre, eftir Witold Lútósl-
avskí. Hljómsveitarstjórinn Jan
Krenz er einn litríkasti hljómsveit-
arstjóri Pólveija og talinn einn tón-
listarleiðtoga þarlendis. Hanna
hefur verið aðalstjómandi nokk-
urra hljómsveita í Póllandi, en
einnig stjómað dönsku útvarps-
hljómsveitinni og Borgarhljóm-
sveitinni i Bonn, Þýskalandi og
víðar um lönd. Krenz hefur hlotið
margháttaðar viðurkenningar fyrir
list sína, en semur einnig tónlist,
sinfóníur, kammertónlist, sönglög
og tónlist fyrir leikrit og mynd-
ræmur. Sinfóníutónleikamir hefj-
ast á laugardaginn kl. 15 í Háskóla-
bíói. Miðasala á skrifstofiinni þar
og við innganginn. ÓHT
Listasafn íslands
Aldarlok
Kaldhæðnislegir leikir að sovéskri hugmynda-
fræði og suður-rússneskt barokk: Fyrsta sýn-
ingin hérlendis á sovéskri samtímalist
Verk Sergej Mlrónénko: Fyrir framsækin öfl með manneskjulegt andlit!,
- úr myndröðinni „Forsetakosningabaráttan" frá 1988.
Grétar
Reynisson
íNýló
Grétar Reynisson myndlistar-
maður og íeikmyndahönnuður
opnar myndlistarsýningu í
gamla SÚM- salnum í Nýlista-
safninu við Vatnsstíg í kvöld kl.
2°.
Á sýningunni em 13 verk,
sem öll em unnin í kringum sömu
hugmyndina.
Um er að ræða teikningar og
myndverk unnin með olíu, blý-
anti, akrýllit, flaueli og málmi á
pappír, léreft, tré og málm. Þetta
er 8. einkasýning Grétars, en síð-
ast sýndi hann í Gallerí Nýhöfn í
fyrra.
Sýningin í Nýlistasafninu
verður opin kl. 14-18 alla daga til
2. desember.
Á laugardaginn verður opnuð
í Listasafni íslands sýningin Ald-
arlok - sovésk samtímalist, þar
sem myndverk fimm þekktra
Sovétmanna ber fyrir augu.
Nokkrir þeirra em heimsþekktir
og eftirsóttir á alþjóðlegum mark-
aði.
Þetta er fyrsta sýningin hér-
lendis á sovéskri samtímalist, og
ber talsvert á andstöðu við „kerf-
ið“. Sýnd era verk eftir Rússann
Andrej Fílippov, sem fjallar m.a.
um austur-vestur klofiiinginn í
Evrópu í verkum sínum, og hug-
takið „Moskva er Róm hin
þriðja“, þar sem vísað er til hruns
Rómaveldis og örlaga Konstan-
tínópels. Þama sjást líka sýnis-
hom af sovéskri konseptlist í
Moskvu, í verkum bræðranna
Sergej og Valdimírs Mírónénko. í
umsögn segir að þar birtist kald-
hæðnislegur leikur að sovéskri
hugmyndafræði. Ukraínumenn-
imir Oleg Tístol og Konstantín
Reúnov era sagðir hafa skapað
persónulegt tjáningarform sem á
upptök sín í suður- rússneskum
barokkstíl svo og framúrstefhustíl
sem var vinsæll þarlendis í upp-
hafi aldarinnar.
Sýningin Aldarlok kemur
hingað fyrir tilstilli sovéska list-
gagnrýnandans og kvikmynda-
gerðarmannsins Olgu Sviblovu,
en er hluti af samvinnuverkefni
íslands og Sovétríkjanna og fylgir
í kjölfar sýningar 5 íslenskra
myndlistarmanna í Moskvu í júní
síðastliðnum. Olga Sviblova flyt-
ur fyrirlestur í Listasafhinu kl. 17
á laugardaginn um sovéska sam-
tímalist.
Sýningin Aldarlok er opin alla
daga nema mánudaga kl. 12-18
og stendur til 16. desember. Að-
gangur er ókeypis. ÓHT
Föstudagur 16. nóvember 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 15