Þjóðviljinn - 16.11.1990, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 16.11.1990, Blaðsíða 18
Hannes Hlífar Stefánsson hef- ur tryggt sér titilinn „Skákmeist- ari Taflfélags Reykjavíkur 1990“. Þegar þetta er ritað er ein umferð eftir af mótinu og hefur Hannes hlotið 9 vinninga úr 10 skákum. Hann er 1 1/2 vinningi fyrir ofan næsta mann, Þröst Þórhallsson sem hefur hlotið 7 1/2 vinning. Þeir áttu að tefla í síðustu umferð mótsins sl. miðvikudagskvöld, en úrslitin hafa enga þýðingu hvað fyrsta sætið varðar. Það er frátek- ið. Þetta er í annað sinn sem Hannes vinnur haustmótið með slíkum glæsibrag, en árið 1988 hlaut hann 10 vinninga úr 11 skákum. Á haustmótinu hafa ungu skákmennimir verið í miklum meirihluta, en nokkrir fulltrúar eldri kynslóðarinnar hafa hellt sér út í baráttuna. Þar má nefna Hauk Angantýsson og Dan Hansson. Haukur hefur ekki tekið þátt í op- inberri keppni i langan tíma. Hann byijaði illa, greinilega í lít- illi æfingu, en hefur sótt sig mjög í síðustu umferðum. Staðan fýrir síðustu umferð: 1. Hannes Hlífar Stefánsson 9 v. 2. Þröstur Þór- hallsson 7 1/2 v. 3. Sigurður Daði Sigfusson 5 1/2 v. 4. - 7. Róbert Harðarson, Dan Hansson, Snorri Bergsson og Helgi Áss Grétars- son 5 v. 8. Amaldur Loflsson 4 1/2 v. 9.-10. Haukur Angantýs- son og Lárus Jóhannesson 4 v. 11. Þröstur Ámason 3 v. 12. Ámi Á. Ámason 2 1/2 v. í B-flokki stendur baráttan um efsta sætið milli Magnúsar Amar Ulfarssonar og Halldórs Páls- sonar, en þeir hafa Hannes HKfar Stefánsson hampar verðlaununum eftir HM-sveina 1987. 90% árangur á haustmóti TR verður að teljast afbragðs árangur hjá honum. SKAK báðir hlotið 7 1/2 vinning. Þessir tveir eiga heima í flokki ofar og mætti alveg fjölga keppendum í A-riðli upp í fjórtán á næsta haustmóti. I 3. sæti er annar efni- legur skákmaður, Ragnar Fjalar Sævarsson með 6 1/2 vinning. í C-riðli er Sigurbjöm Áma- son efstur með 7 1/2 vinning efiir 10 skákir, en staðan er dá- lítið óljós því keppendur hafa ekki allir teflt jafiimargar skák- ir. Oðinn Gunnarsson er með 6 1/2 vinning U _i_- úr 9 skákum HGICjl og næstir Olafsson koma Einar K. Einarsson og Sigurður Ingason með 5 1/2 vinning úr 9 skákum. í D-riðli eru þeir Stefán F. Guðmundsson og Jón Viktor Gunnarsson efstir með 7 vinninga og Hlíðar Þór Hreinsson er í 3. sæti með 6 1/2 vinning. I E-riðli er Bragi Þorfinnsson efstur með 7 1/2 vinning úr 10 skákum og næstir í 2.-4. sæti koma John Ontiveros, Guðlaugur Gauti Þorgilsson og Oskar Maggason, allir með 6 1/2 vinn- ing. Keppni í unglingaflokki er lokið. Þar urðu efstir og jafnir Helgi Áss Grétarsson og Magnús Hannes Hlífar „Skákmeistari TR 1990“ Ö. Úlfarsson með 8 vinninga af 9 mögulegum. Þeir munu heyja einvígi um titilinn Unglinga- meistari TR 1990. Hannes Hlífar hefur verið í mikilli ffamför undanfarið. Þó ár- angur hans á Skákþingi Islands hafi verið lakari en margir bjugg- ust við þá varhann sómasamlegur engu að síður. Það er mikils vert að skákhreyfmgin styðji vel við bakið á þessum unga og hæfi- leikarika pilti. Lítum á eina af skákum Hannesar frá mótinu sem er góður vitnisburður um taktíska hæflleika hans. Hannes Hlífar Stefánsson - Dan Hansson Kóngsindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. Rf3 0-0 6. Be2 eS 7. 0-0 Rc6 8. dS Re7 9. Rd2 aS 10. a3 Rd7 11. Hbl f5 12. b4 Kh8 13. Dc2 Rg8 (Þetta afbrigði kóngsind- versku vamarinnar hefur átt mikl- um vinsældum að fagna uppá síð- kastið og kom m.a. fyrir í skák Karpovs og Kasparovs á heims- bikarmótinu í Skellefta 1989. Hannes mætir því á dálítið óvenjulegan hátt. Hann ræðst strax til atlögu við miðborðið.) 14. exf5 gxf5 15. f4 c6 16. Khl Rgf6 17. fxe5 Rxe5 18. dxc6 bxc6 19. Rf3 axb4 20. axb4 Rfg4 21. Bf4 Db6 (Staðan má heita í jafnvægi, en hér teygir Dan sig of Iangt. Hann á þokkalegustu færi með flestum öðrum leikjum, en reynir að notfæra sér veikleika f2-reits- ins. Vitanlega var Hannes undir þá tilraun búinn.) 22. c5! dxc5 23. Rxe5 Rxe5 24. Ra4 (Hörfi drottningin kemur 24. Rxc5 og hvítur hefur yfirburða- stöðu. Dan reynir að hræra upp í stöðunni með hæpinni skipta- munsfóm.) 24.. . Hxa4?! 25. Dxa4 c4 26. Dc2 Rd3 (Svo virðist sem svartur hafi nokkurt spil fyrir skiptamuninn, en þefskyn Hannesar fyrir tak- tiska möguleika lætur eldci að sér hæða í þessari stöðu.) 27. Bd6 Hd8 28. Dxc4! Rf2+ 29. Hxf2 Dxf2 30. Bc5! (Þó drottningin virðist vel staðsett á f2 kemur það allt í einu á daginn að hún á engan reit. Svarið er því þvingað, en dugar skammt.) 30.. . Bd4 31. Hdl! - Dan gafst upp. Lokastaðan verðskuldar stöðumynd. Vestfirskur Símon Viggósson og Þórður Reimarsson frá Bridgefélagi Tálknafjarðar urðu efstir í Lands- bikartvímenningskeppni Bridge- sambands íslands, sem spiluð var í síðasta mánuði. 247 pör tóku þátt í keppninni, sem er góð þátt- taka miðað við síðasta ár, en þá tóku 212 pör þátt í keppninni og enn færri árið þar á undan. Og Vestfirðir gerðu það ekki endasleppt, því Amar Geir Hin- riksson og Einar Valur Kristjáns- son frá ísafirði höfnuðu í 2. sæti, aðeins 12 stigum á efíir sigurveg- uranum. Og í 3. sæti höfnuðu Gauti Halldórsson og Þórður Pálsson frá Vopnafirði, 77 stigum á eftir efsta parinu. Að sögn Elínar Bjamadóttur hjá BSÍ, varð umtalsverð seinkun á útreikningi vegna ónýts tölvu- forrits. Af þeim sökum varð að handreikna megnið af innsendum skormiðum. Vonir standa til að forrit verði tilbúið að ári, er næstu landskeppni verður hleypt af stokkunum. er um þátttökufjölda, en svæðið á rétt á 3 sveitum til Islandsmótsins. Aðeins 9 sveitir taka þátt í Stofnanakeppni Bridgesambandsins að þessu sinni. Lakasta þátttaka frá upp- hafi. Lokið er 6 umferðum af 9 (m/yfirsetu) og er staða efstu sveita þessi: 1. sveit ístaks 99 stig 2. sveit Islandsbanka 91 stig 3. sveit Ríkisspítala 90 stig Keppninni lýkur á sunnudag. Spilað er i húsi BSI. 48 pör taka þátt í 6 kvölda Butler-tvímenningskeppni hjá Bridgefélagi Reykjavíkur. Eftir 2 kvöld leiða þeir keppnina, Þórir Sigurðsson (sú gamla kempa) og Eiríkur Hjaltason. Aðalsteinn Jörgensen og Jón Baldursson urðu efstir á Opna minningarmótinu um Alfteð G. Alfreðsson, sem spilað var í Sandgerði sl. laugardag. Guð- mundur Páll Amarson og Þorlák- ur Jónsson höfhuðu í 2. sæti. 34 pör tóku þátt í mótinu, sem Krist- ján Hauksson stjómaði. Og Gunnar Guðmundsson er látinn. Gunnar var einn fremsti spilamaður landsins um árabil, margfaldur íslandsmeistari og landsliðsmaður um tíma. Árangur hans og Einars Þorfinnssonar mun lifa um ókomna framtíð, en árangur þeirra í heimsmeistara- keppni 1950 er sá besti sem ís- lendingar geta státað af. Með Gunnari er genginn maður sem tekið var eftir. Háttvís með af- brigðum. Til fyrirmyndar í hví- vetna. Eftirlifandi eiginkonu og syni em færðar innilegustu sam- úðarkveðjur. Reykjanesmótið í keppni verður spilað um þessa helgi. Ovíst Og hjá Bridgefélagi Kópa- sveita- vogs hófst 34 para barometer í síðustu viku. Varð að vísa nokkmm pömm firá vegna skorts á húsnæði. Lárusson Ólafur Vinur minn, Sölvi Sigurðsson á Eskifirði, er látinn. Þar með hef- ur annar af tveimur eftirminnileg- ustu spilumm austanlands kvatt okkur. Hinn er félagi hans um ára- bil, Aðalsteinn Jónsson. Árið 1990 hefur verið erfitt hjá spilurum þessa lands. Hver sigur heiðursmaðurinn af öðmm hefur lagt upp í ferðina löngu. Minning- ar um góða félaga lifa þó áfram. Megi minning Sölva Sigurðsson- ar lifa um ókomna framtíð. Fjöl- skyldu hans em færðar innileg- ustu samúðarkveðjur. Minnt er á skráninguna í Reykjavíkurmótið í tvímenning. Undanrásir verða spilaðar um næstu mánaðamót. Skráð er m.a hjáBSÍ. Eftir 2 kvöld af 3 í hraðsveit hjá Skagfirðingum er sveit Láms- ar Hermannssonar efst með 933 stig. Á hæla hennar er sveit Ingi- bjargar Grímsdóttur með 927 stig. Þriðjudaginn 27. nóvember hefst svo aðalsveitakeppni deildarinn- ar. Skráning er hjá Ólafi í s. 16538. Efsta parið hjá Bridgefélag- inu, Þórir Sigurðsson og Eiríkur Hjaltason, spila léttan og áreynslulítinn bridge. Spila eðli- legt kerfi, með mismunandi áherslur í framhaldinu. Eins og gengur með pör sem em að hefja spilamennsku saman, koma upp stöður sem em óræddar hjá þeim, eins og öðmm. Lítum á dæmi frá síðasta spilakvöldi hjá BR: S: 852 H: G83 T: 76 L: Á10762 S: 7 S: ÁDG10964 H: ÁK1092 H: D T: G85 T: KD1093 L: KDG8 L: - - - S:K3 H:7654 T: Á42 L: 9543 Eiríkur sat í Austur og hóf sagnir á 2 spöðum. Pass og 3 hjörtu hjá Þóri í Vestur. Pass og 4 tíglar hjá Eiríki (allt eðlilegt). Nú kom dobl frá Suðri. (Sá var nokk- uð viss um að Þórir og Eiríkur væm ekki það samtalaðir, að nokkur hætta væri á því að 4 tígl- ar yrðu passaðir út eða „redoblað" til sóknar). Eftir smá yfirlegu sá Þórir í Vestur þann kostinn vænst- an að passa. Pass frá Norður og ögurstundin rann upp. Hvað gerði Eiríkur? Með öryggið að leiðar- ljósi valdi Eiríkur að vinda í 4 spaða. Pass ftá Suður og Þórir andvarpaði mæðulega, sagði pass og um leið gaf þá yfirlýsingu: Ég kann ekki framhaldið. Eins og sjá má, em 6 tíglar nokkuð auðveldir til sóknar. En hvað gefa 4 tíglar, snúbblaðir fram og til baka, á hættunni, mik- ið? Undirritaður hefur ekki töluna við höndina, en veit þó að hún lík- ist eitthvað símanúmerinu hjá slökkviliðinu í Keflavík... 18 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. nóvember 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.