Þjóðviljinn - 05.12.1990, Page 11
LESANDI VIKUNNAR
Að vera merkileg með sig
Hvert eða hver eru starfs-
heiti þín i dag?
Kötturinn étur allt. Ég er
þýðandi fagurbókmennta aðal-
lega og þá úr þýsku yfir á ís-
lensku og stundum í hina áttina
ef fólk er í vandræðum, en ég
geri það ógjama.
Ég er leikkona, en sýningum
var að Ijúka á Medeu þar sem ég
fór með hlutverk hennar.
Ég er dagskrárgerðarmaður
hjá Ríkisútvarpinu. Þar er ég
með í miðdegisritstjóm Rásar 1,
með fastan þátt sem heitir Meðal
annarra orða. Ég reyni að grafast
fyrir um hlutina eða taka ein-
hvem ákveðinn flöt fyrir eins og
t.d. stjömur á jörðu niðri. Ég
velti málefhinu fyrir mér sem
samfélagslegu fýrirbæri, en
þankagangurinn er að skoða fyr-
irbæri frá öðmm hliðum en við
emm vön, minnst frá praktísku
hliðinni. Svo á ég innlegg í hina
ýmsu þætti Rásar 1, sem fjalla þá
aðallega um leiklist og myndlist.
Ég er móðir; hvort það er
starfsheiti veit ég ekki, en tími
minn fer í það líka. Ég á þijá syni
sem em niu, fimm og ellefú ára.
Hver voru starfsheiti þín
fyrir tíu árum?
Leikkona, móðir, þýðandi og
dagskrárgerðarmaður, ... og gott
ef ég var ekki leikhússtjóri líka.
Hvað gerirðu ef þú eignast
frístund?
Það kemur fyrir og þá les ég
eða leik við bömin mín.
Segðu mér frá því sem þú
ert að iesa núna?
Ég er að lesa Við hafið eflir
Fríðu Á. Sigurðardóttur, Den
arliga bedragaren eftir Tove
Jansson og nýjasta hefti Tímarits
Máls og menningar.
Hefurðu komist til að iesa
eitthvað úr jólabókaflóðinu?
Já, Meðan nóttin líður eftir
sömu Friðu. Mér fannst sú bók
góð. Endurminningar Dana-
drottningar, sem er ekki eins
skemmtileg, og svo bók eftir
Doris Lessing sem heitir Martha
Quest og er mjög áhugaverð.
Hver er uppáhaldsbarna-
bókin þín?
Frá minni eigin bamæsku er
það Anna í Grænuhlíð en af þeim
bókum sem ég hef lesið fyrir
strákana em það Bróðir minn
Ljónshjarta og Elsku Míó minn
eftir Astrid Lindgren.
Hvers minnistu helst úr
Biblíunni?
I augnablikinu em mér
Ljóðaljóðin efst í huga af því að
ég er að vinna við þau fyrir jóla-
dagskrá Ríkisútvarpsins.
Hvað hefurðu séð i leikhúsi
I haust?
Hættur, farinn I Borgarleik-
húsinu. Mér fannst gaman og ég
skemmti mér vel. Það vekur
furðu að sýningum á leikriti sem
gengur þó svona vel skuli ekki
fram haldið. Meira að segja
bókaútgáfúmar reyna að halda
úti bókmenntaverkum sem em
kannski ekki fyrst og fremst
söluvara og manni finnst að leik-
húsin ættu að vera i stakk búin til
að gera slíkt hitt sama.
En í kvikmyndahúsunum?
Þótt skömm sé firá að segja þá
hef ég ekki farið síðan ég sá Pa-
radisarbíóið í vor. En ég vildi
óska þess að ég færi oftar, mér
finnst svo gaman á bíó.
Fylgistu með einhverjum
ákveðnum dagskrárliðum í út-
varpi eða sjónvarpi?
Ekki í sjónvarpinu, en ég
hlusta á útvarp eins oft og ég get,
og þá eiginlega einvörðungu á
Rás 1, nema morgunútvarpið, þá
tek ég Rás 2 ffamyfir.
Hefurðu alltaf kosið sama
stjórnmálaflokkinn?
Nei.
Ertu ánægð með þann
flokk sem þú kaust síðast?
Nei.
Eru til hugrakkir stjórn-
málamenn og konur?
Ég held það hljóti að vera.
En þú gætir kannski ekki
nafngreint neinn?
Það em til hugrakkir menn
og konur sem beijast fyrir hug-
sjón sinni og sannfæringu en í
þessu stjómmálakraðaki eins og
við þekkjum það á Vesturlöndum
er mjög óhægt um vik að sýna
hugrekki. Það kafnar í fjölmiðla-
þvarginu og skrifræðinu, nefnd-
um og samþykktum. Það væri
frekar að spyija hvort i dag séu
til heiðarlegir og einlægir stjóm-
málamenn.
Er landið okkar varið land
eða hernumið?
Það er erfitt að halda því
fram að landið sé hemumið en
hvort það er varið vitum við í
raun ekki fyrr en á okkur er ráð-
ist. En við erum ekki fijálsari en
önnur lönd.
Hvaða eiginleika þinn viltu
helst vera laus við?
Fljótfæmi og óðagot og óró-
leika.
Hvaða eiginleika þinn
flnnst þér skrítnast að aðrir
kunni ekki að meta?
Skipulagshæfileika mína.
Áttu þér uppáhaldsmat?
Nei, mér finnst flestur matur
góður, en minnst er ég gefm fyrir
hinn þjóðlegasta mat; slátur og
feitmeti.
Hverjir eru helstu kostir
landa þinna?
Þeir em merkilegir með sig
(og ég er auðvitað landi minn) og
þegar ég álít það kost, þá er það
af því að þá hefúr viðkomandi
efni á því og svo em landar min-
ir skáldlegir og annar kostur
þeirra er hið ríka veiðimannseðli
okkar.
En brestir landans, hverjir
eru þeir?
Fyrirhyggjuleysið og áhrifa-
gimin.
Hvert langar þig helst til að
ferðast?
Til Affíku, nánar tiltekið á
vesturströndina.
Hvaða ferðamáti á best við
Þig?
Ég vil geta komist hratt á
milli staða þegar ég er þeim bux-
unum, en á ákvörðunarstað vil ég
geta fundið fyrir því að ég hafi
ferðast. Þó ekki hvort tveggja í
einu, ég er ekki svo ffek.
Hverju viltu helst breyta í
íslensku þjóðfélagi?
Asanum og flýtinum sem ég
held að kosti okkur sjálf og ekki
síst umhverfi okkar allt, allt of
mikið.
Að lokum?
Ekkert, nema hvað ég vildi
að ég hefði meiri tíma til að sinna
öllum þeim verkefnum sem ég
hef áhuga á. Guðrún
I DAG
ÞJOÐVILJINN
FYRIR 50 ÁRUM
Hvemig væri að útvarpsráðiö
gæfi Jóni Eyþórssyni „Manna-
siði“ (jólagjöf? Einhverjar ráð-
stafanir verður að gera til þess
að reyna að veita ögn af sóma-
tilfinningu inn I mann þennan,
svo hann misnoti ekki eins herfi-
lega og ósmekklega aðstöðu
slna við útvarpiö og hann gerði
sl. mánudagskvöld. Fiskverðið
hækkar á Islandi og Englandi.
Togararnir selja fyrir yfir 10 þús-
und pund.
5. desember
miðvikudagur. 339. dagur árs-
ins. Sólarupprás I Reykjavík kl.
10.55-sólariag kl. 15.41.
Viðburðir
Þjóðhátlðardagur Thailands.
DAGBÓK
APÓTCK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúöa vlkuna 30. nóvember til 6.
desember er I Vesturæjar Apóteki og
Arbæjar Apóteki
Fyrmefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á frldögum).
Siðarnefnda apótekið er opiö á
kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á
laugardögumkl. 9-22 samhliða hinu
fyrmefnda.
LOGGAN
Reykjavlk.....................® 1 11 66
Kópavogur.....................« 4 12 00
Seltjamames...................» 1 84 55
Hafnarfjörður.................® 5 11 66
Garðabær......................» 5 11 66
Akureyri......................« 2 32 22
SlökkvBð og sjúkrabðar
Reykjavfk.................® 1 11 00
Kópavogur.................« 1 11 00
Seltjamames...............» 1 11 00
Hafnarfjörður.............® 5 11 00
Garðabær...................« 5 11 00
Akureyri...................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjarn-
arnes og Kópavog er I Heilsuvemdar-
stöð Reykjavikur alía virka daga frá kl.
17 til 8, á (augardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
slmaráðleggingar og tlmapantanir I
« 21230. Upplýsingar um lækna- og
lytjaþjónustu eru gefnar I slmsvara
18888. Borgarspitalinn: Vakt virka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eöa ná ekki til hans.
Landspitalinn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspit-
alans er opin allan sólarhringinn,
rr 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, o 53722. Næturvakt lækna,
* 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garöafföt,
n 656066, upplýsingar um vaktlækni
* 51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstööinni, »22311, hjá
Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsimi).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar I
« 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
»11966. ^
SJUKRAHUS
Heimsóknartlmar: Landspitalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spítalinn: Virka daga kl. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir
samkomulagi. Fæðingardeild Land-
spitalans: Alla daga kl. 15 til 16, feöra-
tlmi kl. 19:30 til 20:30. Fæölngar-
heimili Reykjavíkur v/Eirlksgötu: Al-
mennur tlmi kl. 15-16 alla daga, feðra-
og systkinatími kl. 20-21 alla daga.
OÍdrunariækningadeild Landspital-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdelld
Borgarspitala: Virka daga kl. 16 til 19,
um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstöðln viö Barónsstlg: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim-
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. SL Jósefs-spítali Hafnar-
firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
SJúkrahúslð Húsavik: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf
fyrir unglinga, Tjamargötu 35,
» 91-622266, opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I upplýsinga-
og ráðgjafarslma félags lesbla og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öðrum
tímum. » 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf f sálfræði-
legum efnum,« 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, er veitt f sfma 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Alandi 13: Opið virka daga
frá kl. 8 til 17, » 91-688620.
„Oplð hús" fyrir krabbameinssjúk-
linga og aöstandendur þeirra I Skóg-
arhlið 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmls-
vandann sem vilja styðja smitaða og
sjúka og aðstandendur þeirra i« 91-
22400 og þar er svaraö alla virka daga.
Upplýsingar um eyöni: « 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunar-
fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19,
annars slmsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-
21205, húsaskiól og aðstoð við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið
fyrir nauögun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum,
Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, « 91-21500, sfmsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500,
símsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stfgamót, miðstöö fyrir konur og böm
sem orðið hafa fyrir kynferöislegu
ofbeldi. Ráögjöf, fræðsla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91-
626878 allan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
» 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt f
» 686230.
Rafvelta Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
» 652936.
GENGIÐ
3. desember 1990 Sala
Bandarlkjadollar...........54,53000
Steriingspund..............107,50900
Kanadadollar................46,88500
Dönsk króna..................9,55580
Norsk króna..................9,38470
Sænsk króna..................9,79170
Finnskt mark.................15,31530
Franskur franki..............10,86090
Belgiskurfranki.............. 1,77420
Svissneskur franki..........43,14250
Hoilenskt gyllini............32,47090
Vesturþýskt mark.............36,61820
Itölsk líra..................0,04881
Austurrlskur sch..............5,20570
Portúgalskur escudo.......... 0,41740
Spánskur peseti...............0,57810
Japanskt jen.................0,42436
KROSSGÁTA
Lárótt: 1 krukka 4
kústur 6 kvendýr 7
hesta 9 ólæti 12 fóma
14 okkur 15 ílát 16
haldist 19 endaöi 20
slægjuland 21 örlæti
Lóörótt: 2 fitla 3 prik 4
bjartur 5 andlit 7 húfa 8
úrræöi 10 eindreginn
11 smáir 13 önug 17
klampa 18 týnir
Lausn á síöustu
krossgátu:
Lárétt: 1 dögg 4 sorg 6
afl 7 kisu 9 ösku 12
trekk 14 græ 15 rós 16
karfi 19 láku 20 æföi 21
argri
Lóörétt: 2 öri 3 gaur 4
slök 5 rák 7 köggla 8
stækka 10 skrifi 11 um-
svif 13 eir 17 aur 18
Miðvikudagur 5. desember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11