Þjóðviljinn - 15.12.1990, Blaðsíða 1
Laugardagur 15. desember 1990 — 238. tölublað 55. árgangur
Spegill, spegill herm þú mér; hvað ætlar mamma að gefa mér? hugsar þessi litli jólasveinn kannski. Það er aldrei að vita nema að þetta sé sjálfur Stúfur, þv( að við höfum áreiðanlega
heimildarmenn fyrir því að hann hafi komið til byggða í gær. Mynd: Jim Smart.
Upplvsin gasamfélagið
Sakaskrá í molum
Upplýsingar bœjarfógeta- og sýslumannsembætta til Sakaskrár berast seint og illa. Brögð eru að því að
upplýsingarnar séu beinlínis rangar. Ohjákvœmilegt annað en að á skránni séu einstaklingar sem ekk-
ert hafa til saka unnið
Telja má víst að einhverjir
einstaklingar hafi lent inni á
sakaskrá án þess að hafa nokk-
uð tii saka unnið, enda hefur
ritun sakaskrár lengi verið í
hinum mesta ólestri. Misbrest-
ur er á því að Sakaskrá berist
allar þær upplýsingar sem
henni þó ber með réttu frá bæj-
arfógeta- og sýslumannsemb-
ættum. Fyrir utan það að Saka-
skránni berist upplýsingarnar
bæði seint og illa eru þær í ein-
hverjum tilfella villandi og
beinlínis rangar.
Sakaskrá á að halda til haga
misgjörðum þegnanna sem á þá
hafa sannast að undangenginni
opinberri málsmeðferð, s.s. dóm-
um, áminningum og ákærufrestun
og skulu dómarar senda Sakaskrá
tilkynningar þar að lútandi án
„óþarfs dráttar" eins og segir í
fyrirmælum dómsmálaráðherra
Bólusóttarveirum
útrýmt
Nýjasta dæmið um ekki alls
fyrir löngu tilkomna vináttu
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
er að heilbrigðisyfirvöld stórvelda
þessara hafa komið sér saman um
að aflífa síðustu bólusóttarveir-
umar, sem til eru í heiminum, en
þær em í þeirra vörslu. Bólusótt,
sem áður fyrri var ein af skæðustu
plágum sem á mannkynið heijuðu,
var útrýmt 1977. Ekki hafa menn
verið með öllu óttalausir um að
bólusóttarveirur yrðu notaðar í
sýklahemaði. Reuter/-dþ.
frá 1971. En þar hefúr nokkur
misbrestur orðið á.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem Þjóðviljinn hefur aflað
sér um skráningu Sakaskrár, em
taldar vemlegar líkur á því að ein-
hver brögð séu að því að einstak-
lingar, sem ekki hafa komist í kast
við lögin, hafi alls ekki hreint
sakavottorð.
-Það er ekki hægt að útiloka
þann möguleika að einhveijir hafi
lent saman í skránni, sagði Gísli
Þórðarson sakaskárritari þegar
Þjóðviljinn bar þetta undir hann.
Að sögn Gísla vom nöfn
þeirra einstaklinga, sem færðir
vom inn á sakaskrá fyrir daga
kennitölunnar, auðkennd með
fæðingardegi og heimilisfangi.
-Það er því alls ekki hægt að úti-
loka að einhveijum hafi verið
slegið saman, sagði Gísli.
Að sögn Asmundar Sigur-
jónssonar hjá Hagstofú íslands er
næsta útilokað að slíkt gerist ekki
í einhveijum tilfella þegar ein-
staklingar hafa ekki verið auð-
kenndir með kennitölu eða öðmm
slíkum auðkennum.
Hagstofunni er gert að halda
til haga tölulegum upplýsingum
um dómsmál og eiga henni að
berast allar upplýsingar um opin-
ber mál úr sakaskrá. Síðan 1979
hefur þessi skýrslugerð legið að
mestu niðri þar sem upplýsingar
frá sumum fógetaembættunum
hafa verið í algjöm skötulíki,
rangar og villandi.
-Það er óvinnandi vegur að
vinna slíka skýrslugerð útfrá upp-
lýsingum sem eiga sér jafhvel
enga stoð í vemleikanum, sagði
Ásmundur, en hann tók fram að
þetta ætti alls ekki við um öll bæj-
arfógetaembættin.
Áform hafa verið uppi um að
tölvufæra sakaskrána, en það er
ekki hlaupið að því. Talið er að i
skrána hafi verið færð frá upphafi
nöfn 70 til 80 þúsund einstak-
linga.
-rk
9 dagar
I dag kl. 11 kemur Þvömsleikir I
heimsókn á Þjóðminjasafnið. Á
morgun verður Pottasleikir þar á
ferðinni á sama tima og á mánu-
dag Askasleikir. Ingi, 5 ára, teikn-
aði jólasveininn.