Þjóðviljinn - 15.12.1990, Blaðsíða 4
ÞJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
ÞINGLYNDI
Þjóðfélag
vinsamlegt
börnum
Það hlutskipti sem börn þurfa víða að búa við er
næstum óskiljanlegt fyrir íslendinga. Gatan er heimili
þeirra, öskuhaugarnir forðabúr, glæpir og vændi atvinn-
an sem þau stunda.
Islendingar eru nógu vel efnaðir og þannig staösettir
í heiminum að raunveruleg skilyrði eru til þess að gera
þjóöfélagið að einstæðri uppeldisstöð fyrir kynslóðir
framtíðarinnar. Við vitum að þorri barna býr við sæmileg
ytri skilyrði, hafa í sig og á, njóta þolanlegs atlætis og at-
hygli. Skólar á íslandi eru bærilega búnir að tækjum,
skólastarf fer yfirleitt fram í sæmilegum húsum og kenn-
arar leggja sig fram um að koma börnum til nokkurs
þroska.
Þrátt fyrir þetta vantar mikið á að ísland sé sú parad-
ís fyrir börn sem hún gæti verið. Á mörgum sviðum þarf
nýjan skilning stjórnmálamanna og helstu samtaka í
þjóðfélaginu. Lífskjör uppalendanna verða að komast á
það stig að allir geti veitt börnum sínum efnahagslegt ör-
yggi. Til er hópur barna sem við vitum að einskis nýtur af
því sem börnum er nauðsynlegt og annar hópur býr við
erfiðar aðstæður að ýmsu leyti. Efnahagsleg velgengni
er að sönnu engin trygging fyrir því að börn njóti góðs til-
finningalegs atlætis, nái að þroskast og njóta æsku sinn-
ar á eðlilegan hátt. En fjárhagsáhyggjur og langur vinnu-
tími foreldra er vísasti vegurinn til að hindra þau í að
sinna börnum sínum sem skyldi.
í nútíma þjóðfélagi, sem getur státað af veraldlegum
auði, lýðræðislegum hefðum og þeim skilningi að allir
menn séu fæddir jafnir, eiga börn ekki að vera á ábyrgð
foreldranna einna, heldur í sameiginlegri ábyrgð þeirra
og samfélagsins. Þetta felur í sér að ríki, sveitarfélög,
samningsaðilar á vinnumarkaði og Ijöldasamtök eiga aö
láta sig heill barnanna varða. Börn mega ekki verða bit-
bein í stjórnkerfinu með því að ráðherrar eða ráðuneyti
deili um það undir hvern einstakir málaflokkar er snerta
börn eiga að heyra. Sveitarfélögin, sem hafa skipulags-
mál á sinni könnu, eiga að skipuleggja byggðirnar þann-
ig að börn geti komist um hættulaust og að þau hafi ör-
ugg athafnasvæði til frjálsra leikja. Nýlega skýrði kenn-
ari nokkur frá því að hann merkti breytingu á börnum frá
því sem áður var; þau kynnu ekki að leika sér og hefðu
miklu minna úthald en eðlilegt gæti talist. Skipuleg
íþróttaiðkun ásamt óheyrilega langri setu fyrir framan
sjónvarp virðast hér ráða mestu um. íþróttaþjálfun, svo
góð sem hún kann að vera, getur ekki komið í staðinn
fyrir skapandi leiki af þeirri einföldu ástæðu að keppnis-
þjálfun hentar ekki öllum.
Enda þótt sjónvarp opni kynslóðunum nýjan heim og
geti verið fræðandi og kjörið til að auka notandanum
skilning á fjölmörgum sviðum, getur það ekki komið í
staðinn fyrir mannleg samskipti, samskipti foreldra og
barna, og það getur ekki komið í staðinn fyrir góðan
skóla.
Skilningur þjóðarinnar á því að verja umhverfið spjöll-
um er sem betur fer vaxandi og fjölmörg heimili leggja
sig nú eftir því að kaupa svokallaðar umhverfisvænar
vörur. Um leið og við hugum að því að verja umhverfið
áföllum verðum við líka að hyggja að öðrum þáttum
þess umhverfis sem við lifum í og höfum í hendi okkar
að skapa sjálf. Við þurfum að skapa nýtt þjóðfélagslegt
umhverfi sem er vinsamlegt börnum. Hérfara hagsmun-
ir barna og fullorðinna saman, því þjóðfélag sem er gott
fyrir börn er líka hollt fyrir fullorðna.
hágé.
Myndir: Jim Smart
Svo hún er
kominn nicð
hugann við
jólabaksturinn
Sagði ég
virkilega
uppskrift?
Það eru 500 gr. af
sjálfsöryggi. Nokkrir
dropar af léttlyndi.
Iðjusemi eftir þörfum.
Urærist vel. Síðan er það
spurning með hitastigið.
ÞJÓÐVIUINN
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson
Ólafur H. Torfason.
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Bergdis Ellertsdóttir, Dagur
Þorieifsson, Elías Mar (pr.), G. Pétur Matthíasson,
Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim
Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Ölafur
Gfslason, Saevar Guðbjörsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristin Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson.
Augiýsingar: Sigrlður Sigurðardóttir, Svanheiður
Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hrefna Magnúsdóttir:
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir,
Þorgerður Sigurðardóttir, Þórunn Aradóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrifstofa, afgreiðsla, ritstjóm, auglýsingar:
Slðumúla 37, Rvlk.
Siml: 681333.
Sfmfax: 681935.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verð I lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. desember 1990