Þjóðviljinn - 15.12.1990, Blaðsíða 3
FRETTIR
Tryggingar
KAZUOISHIGURO
Vilja gleypa
þjóðarsáttina
Sjóvá-Almennar: Vilja 48,5% hækkun iðgjalda á húseigenda-
og fasteignatryggingu. BSRB: Verðhækkun á einum stað þýðir
kjararýrnum hjá öðrum
Sjóvá-Almennar hafa lagt til
við Tryggingaeftirlitið að ið-
gjald af húseigenda- og fast-
eignatryggingu verði hækkað
um 48,5% um næstu áramót að
óbreyttum skilmálum. Líklegt
er að fleiri tryggingafélög fari
fram á svipaðar hækkanir.
Að auki býður félagið við-
skiptavinum sínum tvo aðra val-
kosti með mismunandi iðgjaldi.
Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB, segir að tryggingafé-
lagið kunni að búa yfír sínum
skýringum sem eflaust eigi við
einhver rök að styðjast, sem hann
ber í sjálfú sér ekki brigður á. En
út frá sjónarhóli launamannsins
mun þessi tæplega 50% hækkun á
iðgjaldi fyrir 5 miljóna króna eign
þýða iðgjaldshækkun uppá 2.500
krónur. Umsamdar launahækkan-
ir á næsta ári hjá þeim sem vinnur
á meðaldagvinnutaxta eru um 3
þúsund krónur ög því mun þess
hækkun á iðgjaldi húseigenda- og
fasteignatrygginga gleypa þjóðar-
sáttina.
Formaður BSRB segir að það
sé þetta samhengi sem þeir hafi
verið að benda á, að verðhækkun
á einum stað þýði kjararýmum á
öðmm. Ögmundur segir að sam-
Félagsmálaráðuneytið
Námskeið fyrir
atvinnulausa
Fjórar miljónir króna
veittar í verkefnið sem
haldið er í samvinnu
við MFA
Félagsmálaráðuneytið hefur
í samráði við ráðgjafarnefnd
vinnumálaskrifstofu ráðuneytis-
ins ákveðið að veita fjórar milj-
ónir króna tii námskeiðahalds
fyrir atvinnulausa í samvinnu
við Menningar- og fræðslusam-
band alþýðu.
Óskar Hallgrímsson forstöðu-
maður vinnumálaskrifstofunnar
segir að tilraun hafi verið gerð með
námskeiðahald sem þetta í vor í
Reykjavík og hafi það gefist vel
eftir atvikum. Óskar segir að stefnt
sé að því að halda þessi námskeið
fyrir atvinnulausa í þeim bæjar- og
sveitarfélögum þar sem atvinnu-
leysi er varanlegt. „Tilgangurinn
með námskeiðahaldinu er m. a. sá
að slá á það vonleysi sem fylgir því
að vera atvinnulaus í langan tíma, í
þeirri von að námskeiðin geti örv-
að viðkomandi til að bera sig ffek-
ar eftir atvinnu," segir Óskar Hall-
grímsson.
Hér er um að ræða stöðluð
námskeið með föstum kjama, en
þó gæti verkhlutinn verið breyti-
legur eftir þörfum og aðstæðum á
hveijum stað. Stjóm Menningar-
og fræðslusambands alþýðu sam-
þykkti einróma að verða við ósk
félagsmálaráðuneytisins að standa
fýrir námskeiðunum, sem haldin
verða fýrri hluta næsta árs.
-grh
kvæmt þessu virðist tryggingafé-
lögin ekki ætla sér að verða nein-
ir eftirbátar fjármagnskerfisins í
því að gleypa þjóðarsáttina.
Ólafur Jón Ingólfsson, deild-
arstjóri almenningstengsla hjá
Sjóvá-Almennum, segir að
ástæðan fýrir þessum hækkunar-
áformum félagsins á iðgjöldum
húseigenda- og fasteignatrygg-
inga sé til komin vegna þess að
tjón af völdum vatnslagna í hús-
um hafi aukist til muna.
-grh
Viðurkenning fyrir gott starfsumhverfi. I gær afhenti Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráöherra sex fyrirtækjum ( prentiðnaði viðurkenningu
fyrir gott starfsumhverfi. Þau eru Dagsprent hf. á Akureyri, Prenthúsið
sf., Prentmyndastofan hf., Prentsmiðjan Oddi hf. og Steindórsprent hf. i
Reykjavík og Svansprent hf. i Kópavogi. Mynd: Jim Smart.
Fjárlög
Tekjur til jafns við útgjöld
Alþingismenn komi jafnt með tillögur um tekj-
ur ríkissjóðs sem útgjöld
Asgeir Hannes Eiríksson,
Bfl., hefur lagt fram á þingi
frumvarp til laga um breytingu
á þingsköpum Alþingis sem fel-
ur í sér að ekki megi taka laga-
frumvörp til meðferðar - sé
gert ráð fyrir útgjöldum í frum-
varpinu - nema einnig sé
ákvæði um samsvarandi tekjur
fyrir ríkissjóð.
En sem kunnugt er þá hækkar
ijárlagafrumvarpið venjulega í
meðforum Alþingis og þá út-
gjaldaliðurinn en ekki tekjuliður-
inn. Einnig hefur formaður fjár-
veitingamefndar gagnrýnt Al-
þingi fýrir að samþykkja frum-
vörp er fela í sér sjálfvirkar hækk-
anir á fjárlögum. Við atkvæða-
greiðslu 2. umræðu fjárlaga gerðu
nokkrir þingmenn grein fýrir at-
kvæði sínu við einstaka liði og
töldu oftast að fjárhæðin væri allt-
of lág og má í því sambandi nefna
byggingu Verkmenntaskólans á
Akureyri. Líklegt er þó, að það
mál verði athugað milli umræðna
og liðurinn hækkaður. -gpm
i
Eitt eftirtektarverðasta bókmenntaverk
síðari tíma. Metsölubók víða um heim.
KAZUO ISHIGURO
Dreggjar
d a g s i n s
SIGIRDI.'H
\. MÁGNUSSON ISLENSKAÐl
Maxine Hong
Kinstone:
-Dásamleg bók í
alla staði -sagan,
tungumálið og
efnistökin.Ég er
enn að hlæja að
henni og ég les
aftur og aftur
suma kaflana.
Robert Stone:
-Hnökralaus skrif
um sérkennilega
andlega innilokun.
Þessi saga er í
senn fyndin og
hrollvekjandi.
Richard Ford:
-Ishiguro skrifar
gersamlega ómót-
stæðilega. Dreggjar
dagsins er ástríðufull,
tær, fyndin, sorgleg,
alvarleg -sagan hefur
alla eiginleika
heimsbókmennta.
Doris Lessing:
-Ishiguro er frumlegur
og það er bókin líka.
Hún er bráðfyndin en
samt ein sorglegasta
bók sem ég hef lesið.
Þessi bók er í miklu
uppáhaldi hjá mér.
John Le Carré:
-Þessi bók er de-
mantur, fullkomlega
slipaður með ótelj-
andi flötum.
Ann Beattie:
-Fullkomin skáidsaga.
Ég gat ekki lagt hana
frá mér.
Alison Lurie:
-Snilldarlega vel
skrifuð saga. Ólgandi
af krafti undir
silkikenndu yfirborði.
Salman Rushdie:
-Snilldarlega vel skrifuð
skáldsaga. Saga sem
er í senn unaðslega
falleg og hrottalega
grimm.
The Sunday
Times:
-Dreggjar dagsins
er stór sigur fyrir
hinn unga Ishiguro.
Trúverðug mynd
hans af lífi mann-
anna er sett fram á
frumlegan, fyndin,
furðulegan,
grípandi, en umfram
allt, hrífandi máta.
Sigurður A. Magnússon íslenskaði.
m
BJARTUR
Laugardagur 20. október 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3