Þjóðviljinn - 15.12.1990, Page 9
Filma
með fingrafari
Jfffm hátíðarnar, nánar tiltekið
U á annan í jólum verður
frumsýnd nýjasta kvikmynd
Lárusar Ýmis Óskarssonar,
RYÐ.
Ólafur Haukur Símonarson
skrifaði handritið að Ryði, en áð-
ur hafði hann skrifað leikrit, Bíla-
verkstæði Badda, um sömu per-
sónur og sömu átök milli þeirra,
sem nú birtast á hvíta tjaldinu.
Það sætir alltaf tíðindum þeg-
ar ný íslensk mynd er frumsýnd
og því þótti tilhlýðilegt að senda
blaðamann á íúnd Lárusar Ymis
og spyrja hann ofúrlítið út í Ryð
og tilurð hennar.
„Þegar ég var búinn að lesa
þetta leikrit hjá Ólafi Hauki sá ég
að þama var efniviður sem mér
líkaði,“ segir Lárus Ýmir. „En
það var aldrei inni í dæminu að
kvikmynda leikritið sem slíkt,
heldur að gera sjálfstæða kvik-
mynd eftir sögu sem íyrst hafði
verið sett fram í leikritsformi. Ég
held að endirinn hafi orðið sá að
Ólafur hafi verið búinn að um-
skrifa handritið níu sinnum áður
en endanlegt kvikmyndahandrit
var komið.
Upphaflega var ég að leita að
efniviði sem væri tiltölulega lítill
að ytra umfangi. Ég vildi reyna að
gera mynd sem hægt væri að fjár-
magna á íslandi án þess þó að hún
þyrfti að vera sprell og grín og var
því að leita að bitastæðum efni-
viði sem ekki krefðist þrjátíu mis-
munandi tökustaða og fjörutíu
Ieikara.
Leikarar: Bessi
Bjarnason, Sigurður Sig-
urjönsson, Egill Ólafsson,
Christine Carr, Stefán
Jönsson, Þórhatiur Sig-
urðsson o.JL
Handrit: Ólafur Ilaukur
Símonarson
Leikmynd og búningar:
Karl Júliusson.
Túniist: Vim ,
Mertens/EgiH Oiafsson
Kvikmyndataka: Göran
Nilson
Framleiðandi: Sigurjón Sig-
hvatsson
Leikstjóri: Lárus Ymir
Óskarsson
Hugmyndin var sú að þurfa
hvorki að kasta hendinni til neins
né að spara í tækni og mannafla,
það er geta haft valinn mann I
hveiju rúmi og ná þannig topp-
gæðum á öllum vígstöðvum.
Það reyndist þó ekki mögu-
legt að ná því að fjármagna
myndina hérlendis.
Við fengum styrk úr Kvik-
myndasjóði til undirbúnings og
síðan framleiðslustyrk eftir að
endanlega var ákveðið að gera
þessa mynd.
En þótt hún sé mjög ódýr ef
miðað er við myndir sem gerðar
eru annars staðar i heiminum, þá
endaði með því að við þurftum að
fá þýska samstarfsaðila til að
leggja 20 milljónir í hana.
Ljóðabrot heldur við hefðinni
Dœgurlög við Ijóð nútímaskálda. Ingvi Þór Kormáksson:
Ograndi að takast á við Ijóð í frjálsu formi
að er í sjálfu sér ekkert nýtt
* að sett séu lög við Ijóð, en
það hefur verið frekar sjaldan að
slíkt sé gert við nútímaljóð. Al-
varleg tónskáld hafa samið tón-
list við nútimaljóð, en dcegur-
lagasmiðir hafa ekki lagt i það.
Ég tel hinsvegar rétt að halda við
hefðinni, því hér áðurfýrr tiðk-
aðist það mjög mikið að samin
vœru dœgurlög við samtímaljóð,
einsog margir okkar sigildu ætt-
jarðarsöngvar eru til vitnis um, “
sagði Ingvi Þór Kormáksson
þegar Þjóðviljinn grennslaðist
fyrir um plötuna Ljóðabrot, sem
nýlega kom út
Ingvi Þór semur öll lögin á
plötunni en textamir, eða ljóðin,
eru eftir ýmsa höfunda, þar á með-
al nokkur þekkt nútímaskáld eins-
og Steinunni Sigurðardóttur,
Magneu Matthíasdóttur og Guð-
rúnu Guðlaugsdóttur.
„Yngri dægurlagahöfúndar
hafa sett lög við ljóð höfunda
einsog t.d. Steins Steinarrs, en
ekki við ljóð sinna samtíðar-
manna. Það er einna helst þá við
ljóð höfunda einsog Þórarins Eld-
jáms og Ragnars Inga Aðalsteins-
sonar, enda liggja þeir best við þar
sem kveðskapur þeirra er hefð-
bundinn, en rokk og dægurlög eru
mjög hefðbundin í formi. Mér
finnst hinsvegar ögrandi að takast
á við ljóð í frjálsu formi, einsog ég
geri á þessari plötu. Þótt formið sé
frjálst þá er þó alltaf einhver
hrynjandi i ljóðunum, galdurinn
er að fmna þessa hrynjandi.
Sum ljóð virka þannig á mann
við fyrstu sýn, að næstum ómögu-
legt sé að gera hefðbundið lag við
þau þar sem allt smelli saman. Ég
hef mjög gaman af þessari glímu,
kannski leita ég í smiðju nútíma-
skáldanna þessvegna."
Að Ljóðabroti standa auk Ing-
va Þórs, Stefán S. Stefánsson, sem
sá um allar útsetningar og lék á
saxófóna og þverflautu, og söngv-
aramir Sif Ragnhildardóttir, Guð-
rún Gunnarsdóttir og Bjami Ara-
Þetta er einsog hver önnur dæg-
urtónlist sem aliir eiga að geta
haft gaman af, segir Ingvi Þór
Kormáksson. Mynd: Jim Smart.
son.
„Þessi hópur hefur starfað
saman frá því að ákveðið var að
gera þessa plötu. Hvort framhald
verður á þessu samstarfi og ný
plata lítur dagsins ljós fer eftir því
hvemig þessi gengur,“ sagði Ingvi
Þór.
Ingvi Þór hefúr áður sent frá
sér tvær plötur, og einsog á Ljóða-
broti vom á þeim plötum lög við
ljóð þekktra skálda. Á seinni plöt-
unni var þó helmingur laganna við
texta sem samdir vom við lögin.
Á Ljóðabroti em einnig þrír textar
samdir eftirá.
Auk þeirra ljóða- og textahöf-
unda sem áður hafa verið taldir
eiga Sveinbjöm Þorkelsson,
Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Pétur
Eggerz, Ingvi Þór, Ami Grétar
Finnsson og Benny Andersen ljóð
og texta á plötunni. Ljóð Benny
Andersen er þýtt af Ingva Þór.
Benny Andersen hefúr sett lög
við mörg ljóða sinna og em þar
Svantes visor sennilega þekktast-
ar.
„Ég var aðeins feiminn við að
semja lag við ljóð eftir Benny, en
ég ýtti því frá mér og skrifaði hon-
um bréf þar sem ég spurði hann
hvort hann hefði eitthvað á móti
því. Hann svaraði bréfinu og sagði
mér að halda mínu striki. Hann
upplýsti mig líka um það að það
hafði aldrei hvarflað að sér að
semja lag við þetta Ijóð. Eftir að
ég hafði samið lagið þýddi ég
ljóðið í samvinnu við Dagrúnu
Ársælsdóttur.“
Undirleik önnuðust úrvals
hljóðfæraleikarar. Auk Stefáns
vom það Þórir Baldursson á píanó
og hljómborð, Bjöm Thoroddsen
á gítar, Bjami Sveinbjömsson á
bassa, Halldór G. Hauksson á
trommur, Maarten van der Valk á
slagverk, Magnús Einarsson á
mandólín og Eyþór Gunnarsson á
hljómborð. Bakraddir sá þau Edda
Borg og Jóhann Helgason um.
A plötunni em upplýsingar
um skáldin á íslensku og ensku og
enskur úrdráttur úr ljóðunum, en
Ingvi Þór segist hafa haft í huga
að koma plötunni á framfæri er-
lendis, án þess að það væri mark-
miðið í sjálfu sér.
Ingvi Þór vill að það komi
skýrt fram að þetta sé ekki vísna-
plata, heldur sé plötunni ætlað að
ná til breiðari hóps en ljóðaunn-
enda einna. „Þetta er einsog hver
önnur dægurtónlist sem allir eiga
að geta haft gaman af.“
Að lokum var Ingvi Þór
spurður hvaða lag af plötunni
honum þætti vænst um.
„Ég er nokkuð ánægður með
plötuna í heild og get ekki sagt að
mér þyki vænna um eitt lag ftarn-
ar öðm. Það er þá einna helst lag-
ið við ljóð Bennys Andersen. Þar
gekk allt upp.“
-Sáf
Sigurjón með annað
augað opið
■rStrax í upphafi ákvað ég að
reyna að fá verulega hæfan mann
í framkvæmda- og peningastjóm,
enda er ég vanur því frá Svlþjóð
að hafa mjög sterka deild sem sér
um þau mál, auk þess sem ég
sjálfur er ekki náttúraður fyrir
viðskipti.
Ég hafði kynnst Siguijóni
Sighvatssyni úti
í Los Angejes og
þeir Olafur
Haukur vom líka
kunningjar
þannig að við
Olafúr ákváðum
að hafa sam-
band við Sigur-
jón. Þá kom í
ljós að hann
hafði verið með
annað augað op-
ið í átt til Islands
í nokkum tíma
og langað til að
taka þátt í kvik-
myndagerð á Is-
landi. Hann tók
málaleitan okkar
mjög vel svo við
ákváðum að slá
okkur saman um
þessa mynd, og
reynsla Sigur-
jóns sem alþjóð-
legs kvikmynda-
framleiðanda
hefur nýst okkur
mjög vel og má
segja að hann
hafi verið ljós-
móðir að öllum
erlendum samningum sem við
höfum gert, eins og til dæmis við
Þjóðveijana.“
Að sjá persónurnar en
gleyma leikuiunum
Aðspurður segir Lárus að ef
eigi að skilgreina Ryð á einhvem
hátt þá megi kannski segja að hún
sé drama eða spennumynd.
„Hún læðist varlega af stað,
en svo magnast ógnin og spennan
og svo endar auðvitað allt með
ósköpum."
Tveir frægustu grínleikarar
landsins, þeir Bessi Bjamason og
Sigurður Siguijónsson fara með
stór hlutverk í myndinni. Skyldi
Láms ekkert vera smeykur við að
áhorfendur komi að sjá myndina
með því hugarfari að hún sé grin-
mynd fyrir bragðið?
8.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
Christine Can og Stefán Jónsson I hlutverkum systkinanna ( Ryöi.
Húsbréf
Fyrsti útdráttur
húsbréfa
Samkvæmt reglugerð nr. 521/1989
kemur ákveðinn fjöldi húsbréfa í hverjum
flokki til innlausnar á þriggja mánaða
fresti. Hvaða bréf þetta eru hverju sinni
skal ákvarðast af útdrætti.
Fyrsti útdráttur í 1. flokki húsbréfa 1989
hefur nú farið fram, vegna þeirra bréfa
sem koma til innlausnar 15. febrúar
1991.
Frá og með 15. febrúar 1991 verða því
eftirfarandi húsbréf í 1. flokki 1989
greidd út:
Lárus Ýmir: . . .
Kristinn)
„Auðvitað liggur í þessu viss
hætta, en það var með alla leikar-
ana eins og annað fólk sem ráðið
var til að vinna að myndinni að ég
gerði mitt besta til að finna besta
kostinn sem völ var á i hvert
skipsrúm. Og mér finnst að það
hafi tekist.
Ég klippti myndina úti í
Þýskalandi með fólki sem ekkert
vissi um leikarana og var ekki
með neinar væntingar, eða fyrir-
fram mótaðar skoðanir. Þetta fólk
var iðulega með upphrópanir um
hvað leikaramir væm trúverðug-
ir, maður gleymdi að þetta væm
leikarar og sá bara þessar persón-
ur sögðu þau. Þetta gæti hugsan-
lega verið eitthvað erfiðara fyrir
íslendinga sem þekkja þessi and-
lit svo vel.“
Ákveðin einkenni
eða blær
Aðspurður um hvort Ryð sé
dæmigerð mynd fyrir kvikmyndir
sem hann vill gera, eða hvemig
myndir hann dreymi um að gera,
verður Láms dálítið hugsandi á
svip pg alvarlegur, en segir svo:
„í rauninni langar mig til að
gera alls konar myndir; það væri
gaman að gera kómedíu, og ég
gæti líka alveg hugsað mér • að
gera hryllingsmynd. Það sem sker
úr
um hvort ég vil gera kvik-
mynd eftir ákveðnu efni er hrein-
lega hvort það fellur mér' i geð, -
hvort ég kveiki á hugmyndinni.
Hvað það er sem gerir það að
verkum að ég verð skotinn i ein-
hveiju efni fer ekki eftir neinum
ytri staðli.
Þegar ég er
byrjaður að
vinna að
ákveðnu efni þá
vinn ég allt mjög
náið með hand-
ritshöfundi,
þannig að
ósjálffátt sveig-
ist sá efhiviður
sem liggur til
gmndvallar nær
mér og mínum
tilfinningum
gagnvart honum.
Svo þegar byrjað
er að kvikmynda
hef ég mín
ákveðnu ein-
kenni, eins kon-
ar rithönd eða
fingrafar sem ég
set á það sem ég
geri; hvemig ég
bý um efnivið-
inn í kvik-
myndaforminu.
Þetta er það
sama og gerist í
öðrum listgrein-
um. Flestir
þekkja að þeir
geta fyrirhafnar-
laust sagt til um
eftir hvem eitt-
hvert málverk er, ljóð eða tón-
verk. Yfirleitt held ég að listafólk
reyni ekki að búa sér til stíl, hann
verður bara til við vinnuna.
Meðan á tökunum á Ryði stóð
skoðuðum við dagstökumar jafn-
óðum og samstarfsfólk mitt talaði
um að það væri deginum ljósara
hver hefði leikstýrt hér. Ég veit
ekki hvort rétt er að tala um stíl,
en ég held að það sé einhver með-
vitaður blær á því sem ég geri, þó
svo að ég geti ekki skijgreint í
hveiju hann er fólginn. Ég reyni
ekki að vera með einhver ákveðin
stílbrögð, - ég geri bara eins og
mér finnst koma best út, og nýti
mitt persónulega skyn fyrir tíma
og rúmi og fólki.
ing.
og svo endar auðvitað allt með ósköpum. (Mynd:
Húsbréf 1989/1 - A
500.000 kr.bréf 1
89110203 89110930 89111270 89111736 89112351 89112915 89113151
89110270 89110935 89111291 89111754 89112461 89112924 89113239
89110458 89110949 89111312 89111770 89112504 89112932 89113386
89110530 89110970 89111339 89111812 89112551 89112936 89113429
89110531 89111068 89111376 89111949 89112561 89112961 89113435
89110576 89111074 89111444 89112217 89112711 89113009 89113578
89110580 89111148 89111450 89112243 89112774 89113011
89110722 89111209 89111471 89112260 89112787 89113012
89110833 89111229 89111584 89112327 89112820 89113097
89110850 89111231 89111605 89112335 89112826 89113116
Húsbréf 1989/1 - B
50.000 kr.bréf
89140110 89140759 89141298 89142029 89142568 89143284 89143794
89140231 89140767 89141319 89142283 89142736 89143306 89143824
89140235 89140818 89141344 89142301 89142742 89143354 89143895
89140285 89141008 89141360 89142328 89142764 89143363 89143939
89140429 89141029 89141422 89142365 89142854 89143399 89143989
89140486 89141077 89141469 89142410 89142914 89143421 89143996
89140570 89141082 89141564 89142426 89142915 89143434
89140641 89141110 89141804 89142487 89143044 89143496
89140648 89141182 89141810 89142489 89143151 89143588
89140670 89141203 89141976 89142515 89143171 89143631
89140705 89141278 89142011 89142550 89143178 89143743
Húsbréf 1989/1 -C
5.000 kr.bréf
89170002 89170513 89171086 89171481 89171981 89173005 89173775
89170046 89170519 89171162 89171483 89172009 89173074 89173806
89170068 89170550 89171204 89171530 89172028 89173126 89173928
89170084 89170579 89171244 89171563 89172214 89173356 89173930
89170139 89170580 89171295 89171619 89172232 89173392 89174074
89170198 89170633 89171322 89171689 89172279 89173394 89174096
89170215 89170645 89171361 89171777 89172465 89173438 89174121
89170248 89170671 89171404 89171824 89172665 89173452 89174129
89170272 89170697 89171440 89171839 89172675 89173569 89174140
89170323 89170795 89171451 89171885 89172757 89173578 89174189
89170403 89170903 89171464 89171956 89172902 89173738
Tilkynning þessi verður send öllum bönkum, sparisjóðum, verðbréfasjóðum og
fasteignasölum, auk þess sem hún mun liggja frammi hjá Húsnæðisskrifstofunni á
Akureyri og Húsnæðisstofnun ríkisins.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
O HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24-108 REYKJAVÍK • SÍMI91-696900
Laugardagur 15. desember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9