Þjóðviljinn - 15.12.1990, Blaðsíða 15
I DAG
KVIKMYNDIR
Á mörkum fáránleika...
STJÖRNUBÍÓ
Á mörkum lífs og dauða (Flat-
liners)
Leikstjóri: Joel Schumacher
Aðalleikarar: Kiefer Suther-
land, Julia Roberts, Kevin Ba-
con, William Baldwin & Oli-
ver Platt
Var þetta bíómynd eða var
þetta tveggja tíma langt rokk-
myndband með engri hljóm-
sveit??? Myndin hefur allaveg-
ana verið tekin í sama stúdíói og
annaðhvert ameriskt rokkmynd-
band er tekið. Skuggalegt hverfi,
fullt af reyk, yfirgefin kirkja...
osfrv. osfiv. Joel Schumacher
hefiir áður gert furðanlega
myndbandslegar myndir, og
nægir að nefna vampírumyndina
Lost Boys þar sem Kiefer Sut-
herland fór líka með aðalhlut-
verkið. En þar sem Lost Boys
gerði stöðugt góðlátlegt grín að
sjálfri sér, þá tekur Á mörkum
lífs og dauða sig svakalega al-
varlega.
í stuttu máli fjallar Á mörk-
um lífs og dauða
um fimm gáfaða
læknastúdenta
sem hafa mun
meiri áhuga á
dauðanum en
lífinu! Suther-
land er aðalmað-
urinn. Hann fær
þá „stórfeng-
legu“ hugmynd
að láta félaga
sína drepa sig og
leyfa sér að vera
dauðum í tvær
mínútur, síðan
eiga þau að nota
þekkingu sína til
að lífga hann
aftur við. Þetta
gera þau og
herma svo öll
eftir honum. Þau fara hvert af
öðru yfir mörk lífs og dauða og
komast náttúrlega að því að
dauðinn er ekki ljósið við enda
gangsins, heldur annað og miklu
svartara.
Málið er nefnilega að það er
einhver sem skráir niður syndir
manns (Guð lifir), þær lifa og
biða eftir að maður drepist til að
hefna sín (fólk sem maður hefúr
stritt osffv.).
En ef maður er læknastúdent
og getur dáið svolitla stund er
hægt að redda öllu saman með
því að leita uppi þann sem mað-
ur hefúr syndgað gegn og biðjast
fyrirgefningar. Þá er leiðin greið
til himnaríkis þegar þar að kem-
ur. Athyglisvert, ekki satt?
Það er meiriparturinn af
þessum ungu vinsælu sem fer
með aðalhlutverkin I Á mörk-
um... Og ekkert af þeim er slæm-
ur leikari. Sutherland er t.d. ekki
bara líkur pabba sínum í útliti,
heldur hefur hann erft eitthvað
af hæfileikum hans líka. Bacon
hefúr oft gert skemmtilega hluti,
seinast í Tremors í Laugarásbíói.
Roberts er nýja stjaman, Holly-
wood heldur meira að segja að
hún geti borið mynd alein, sem
þeir segja um fáar konur. Bald-
win (bróðir Alecs) og Platt eru
nýir og svo sem ágætir. Vanda-
málið er bara að þau leika ósköp
lítið í þessari mynd. í mesta lagi
hlaupa þau um ofsalega sveitt,
eða rétta á milli sín allskonar
tæki ofsalega alvarleg.
Myndin er oft spennandi, ég
neita því ekki, en ég held að
leikstjórinn hafi ekki verið alveg
viss um hvað hún átti að verða
þegar hún yrði stór. Hryllings-
mynd? - varla, því að það er
þeirra eigin fortíð sem ofsækir
þau, kölluð fram með læknis-
fræðilegum kúnstum. Drama? -
ómögulega, handritið býður
ekki upp á það.
Ég held að hún hefði orðið
miklu betri ef hún tæki sig ekki
svona svakalega alvarlega. Ég
meina, þetta er nú einu sinni
bara dauðinn, ha.
Sif
HÁSKÓLABÍÓ
Glæpir og afbrot (Crimes and
misdemeanors)****
Woody Allen sannar hér einu
sinni enn að hann er einn af at-
hyglisverðustu og bestu leikstjór-
um vestanhafs og þótt vlðar væri
leitað. Þetta er tvlskipt mynd,
annarsvegar um lækni sem lætur
drepa viðhaldið sitt og þjáist af
samviskubiti. Og hinsvegar um
mann sem býr til leiöinlegar
heimildarmyndir og er ástfanginn
af konu sem annar maður fær. Al-
len fléttar siðan sögumar tvær
saman á meistaralegan hátt. Sif
Draugar (Ghost)**'
Patrick Swayze leikur draug,
Demi Moore leikur lifandi kær-
ustu hans og Whoopi Goldberg
leikur miðil sem kemur skilaboð-
um á milli þeirra. Inn( þessa
óvenjulegu rómantlk blandast
svo veðmálabrask og peninga-
þvottur svo að við erum komin
með þá klassísku blöndu: róman-
tískan þriller! En leikurinn er
ágætur, söguþráðurinn skemmti-
legur og tæknibrellumar góðar.
Eini gallinn er að Swayze dansar
ekkert nema smá vangadans. Sif
Ruglukollar (Crazy people)*
Ruglukollar er svo sannarlega
réttnefni á þessari mynd, þvf að
allir sem að henni stóðu hafa ver-
ið hálfruglaöir á meðan. Dudley
Moore leikur heiðariegan auglýs-
ingamann sem er þverstæða I
sjálfu sér og ekki vitlaus hug-
mynd, en öll úrvinnsla er út I hött
og Daryl Hannah er vægast sagt
ekki góð. Myndin fær stjörnuna út
á auglýsingatextana fyrir Volvo,
Jaguar og Sony. Sif
Pappírs Pési ***
Ari Kristinsson kemur hér með al-
veg ágæta barnamynd. Pappfrs
Pési er skemmtileg fígúra (Is-
lenskur E.T.?) og krakkarnir al-
veg einstaklega krakkalegir. Lftil
vinkona m(n sagði að myndin
væri alveg sérstaklega skemmti-
leg af þvl að hún kenndi svo
skemmtileg prakkarastrik!! Drifið
ykkur með börnin um helgina. Sif
Cinema Paradiso
(Paradlsarbíóið)****
Það er I rauninni fáránlegt að
vera að gefa svona mynd stjörn-
ur, þvl hún er langt yfir alla
stjömugjöf hafin. Svona mynd er
aðeins gerð einu sinni, og þess-
vegna má enginn sem hefur hið
minnsta gaman af kvikmyndum
missa af henni. Sif
BÍÓBORGIN
Jólafríið (Christmas Vacation) *
Griswald fjölskyldan er saman-
komin enn á ný og I þetta skiptið
til að halda gamaldags fjölskyldu-
jól. Það fer náttúrlega allt I hund
og kött (bókstaflega). Chevy
Chase er þv( miður eiginlega al-
veg hættur að geta leikið og
handritið er bara plnulltið fyndið
fyrir hlé og ekkert eftir hlé. Látið
hana bara framhjá ykkurfara! Sif
Óvinir - ástarsaga
(Enemies a love story)****
Frábær, frábær, frábær. Handrit,
leikstjórn, leikur og allt! Það er
ekki oft sem svona mynd rekur á
fjörur íslenskra blógesta og þess-
vegna er um að gera að láta
hana ekki fram hjá sér fara og
helst að sjá hana I stóra salnum I
bló, hún er þannig. Sif
Menn fara alls ekki
(Men dont leave)***
Jessica Lange sannar einu sinni
enn að hún er með betri leikkon-
um vestanhafs og þótt víðar væri
leitað. Hér leikur hún konu sem
missir manninn sinn og flytur
með tveimur sonum slnum I
stærri borg. Myndin er mjög átak-
anleg, en alveg laust við aö vera
væmin. Og takið eftir Joan Cus-
ack, þessi stúlka hlýtur að fara að
fá aðalhlutverk hvað úr hverju.
Sif
Góðir gæjar (Goodfellas)**'
Scorsese og Robert De Niro
leiða saman hesta slna enn á ný
og útkoman er blóðug. Góðir
gæjar er unnin upp úr bókinni Wi-
seguy sem er sannsöguleg lýsing
af llfinu innan bandarísku mafí-
unnar. Og eins og við mátti búast
er hún ekki falleg. Þetta er mynd
fyrir þá sem hafa gaman af morð-
um I nærmynd og skemmta sér
vel yfir að heyra ekkert nema
blótsyrði I rúma tvo tlma. Leikur-
inn er óaðfinnanlegur. Sif
REGNBOGINN
Sigur andans***
Það skal tekið fram eins og skot
að það er enginn sigur andans
sjáanlegur I þessari mynd. Hún
er kolsvört og átakanleg. Leikur-
inn er fantagóður, sérstaklega er
Willem Dafoe áhrifamikill I hlut-
verki grlsks gyðings I útrýmingar-
búðum nasista I seinni heims-
styrjöldinni. Sif
STJÖRNUBÍÓ
Nýneminn (Freshman)**
Brando er hér með skopstælingu
á frægasta hlutverki slnu, Guð-
föðurnum. Og þessi skopstæling
er uppistaða myndarinnar.
Brando er gæðaleikari og Bro-
derick er sætur strákur, en það
heldur ekki uppi dampinum I tvo
tlma. Þvl miður. Sif
LAUGARÁSBÍÓ
Henry & June ***
Kaufman fjallar hér um ástarsam-
band rithöfundanna tveggja Ana-
is Nin og Henry Miller og ást
þeirra beggja á konu Millers,
June.Handritið er ekki eins gott
og maður hafði leyft sér að vona,
en myndatakan er æði og leikur-
inn góður, sérstaklega hjá hinni
portúgölsku Mariu Medeiros sem
leikur Nin. Það verður gaman að
sjá hvort Kaufman tekst að skjóta
henni jafn langt upp á stjömuhim-
ininn og hinni sænsku Lenu Olin
sem lék I Óbærilegum léttleika...
ÞJÓÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM 15. desember
Brezkt blað birtir grein um
áform Þjóðverja um hertöku
Islands. Brezka setuliðið brýt-
ur samninga á verkamönnum
í Kaldaðarnesi. Öryggisútbún-
aður á togaranum „ÖTa Garða“
er algerlega óviðunandi. Hann
mun og athugunarverður hjá
fleiri togurum. Bretar sækja
fram í Egvptalandi og Grikkir I
Albaníu. Ósigrar (tala undan-
famar vikur hafa haft mikil
áhrif á almenningsálitiö.
laugardagur. 349. dagur árs-
ins. 8. vika vetrar hefst. Sólar-
upprás I Reykjavlk kl. 11.15-
sólariag kl. 15.30.
Viðburðir
Verkalýðsfélagið Víkingur f
Vík I Mýrdal stofnað 1932.
Verkföll I Póllandi gegn Go-
mulkastjóminni 1970.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúða vikuna 14. til 20. desember er
I Laugavegs Apóteki og Holts Apóteki.
Fyrmefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á fr(dögum). Síöarnefnda
apótekið er opið á kvoldin kl. 18 til 22
virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22
samhliöa hinu fyrmefnda.
LÖGGAN
Reykjavik Kópavogur Seltjamames Hafnarfjörður « 1 11 66 «4 12 00 « 1 84 55 « 5 11 66
tr 5 11 66
Akurevri « 2 32 22
Slökkviið og sjúkrabílar Reykjavlk « 1 11 00 Kónavoaur tr 1 11 00
Seitjamames « 1 11 00
Hafnarfjörður...................« 5 11 00
Garðabær........................« 5 11 00
Akureyri........................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjarn-
arnes og Kópavog er ( Heilsuvemdar-
stöð Reykjavikur alla virka daga frá kl.
17 til 8, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitianabeiðnir,
simaráðleggingar og tímapantanir (
« 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu eru gefnar í símsvara
18888. Borgarspitalinn: Vakt virka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eða ná ekki til hans.
Landspitalinn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarsplt-
alans er opin allan sólarhringinn,
tr 696600.
Hafnarfjörður. Dagvakt, Heilsugæsl-
an, n 53722. Næturvakt lækna,
tr 51100.
Garöabær: Hellsugæslan Garðafiöt,
« 656066, upplýsingar um vaktlækni
tr 51100.
Akureyrí: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstöðinni, « 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, tr 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsimi).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar I
tt 14000.
Vestmannaeyjar: Neyöarvakt lækna,
tt 11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartlmar: Landspitalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til18 og eftir
samkomulagi. Fæöingardeild Land-
spítalans: Alla daga kl. 15 til 16, feöra-
timi kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar-
heimili Reykjavikur v/Eirlksgötu: Al-
mennur tfmi kl. 15-16 alla daga, feðra-
oa systkinatimi kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlækningadeild Landspltal-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspltala: Virka daga kl. 16 til 19,
um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstöðin viö Barónsstig: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspitall: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim-
sókmr annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. SL Jósefsspftali Hafnar-
firði: Alfa daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsiö Húsavik: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf
fyrir unglinga, Tjarnargötu 35,
« 91-622266, opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I upplýsinga-
og ráðgjafarsima félags lesbía og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Simsvari á öörum
timum.« 91-28539.
Sálfræöistööin: Ráðgjöf (sálfræði-
legum efnum, « 91-687075.
Lögfræöiaðstoð Orators, félags
laganema, er veitt I síma 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagiö, Álandi 13: Opiö virka daga
frákl. 8 tii 17, «r 91-688620.
„Opiö hús" fyrir krabbameinssjúk-
linga og aöstandendur þeirra i Skóg-
arhlið 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styöja smitaöa og
sjúka og aðstandendur þeirra í t» 91-
22400 og þar er svaraö alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni: « 91-622280,
beint samband við fækni/hjúkrunar-
fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19,
annars simsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-
21205, húsaskjól og aðstoð við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðiö
fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum,
Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, « 91-21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500,
slmsvari.
Vinnuhópur um sifjaspetlsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm
sem oröiö hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Ráögjöf, fræösla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, * 91-626868 og 91-
626878 allan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsvelta: Bilanavakt I
« 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
» 652936.
GENGIÐ
14. desember 1990 Sala
Bandarlkjadollar............54,66000
Sterlingspund.............106,36000
Kanadadollar...............47,08000
Dönsk króna..................9,61050
Norsk króna..................9,42170
Sænsk króna..................9,80800
Finnskt mark................15,32600
Franskur franki.............10,87980
Belglskurfranki............. 1,78450
Svissneskur franki.........43,18050
Hollenskt gyllini...........32,78060
Vesturþýskt mark............36,98620
Itölsk Ifra..................0,04903
Austurrfskur sch.............5,25600
Portúgalskur escudo......... 0,41830
Spánskur peseti..............0,58020
Japanskt jen.................0,44141
Irskt pund..................98,42900
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 köld 4 nöldur
6 súld 7 vlsa 9 upp-
spretta 12 ber 14 mæli-
tæki 15 spil 16 kufl 19
blæs 20 handsamaði
21 ráps
Lóðrótt: 2 skyn 3 hár-
lubbi 4 skrafi 5 kjaft 7
fitu 8 verur 10 atlaga
11 látnir 13 óhreinindi
17 gruna 18 sár
Lausn á siðustu
krossgátu
Lárétt: 1 hólf 4 gerð 6
eta7 kast9deig 12
kaldi 14 ami 15 rót 16
leiti 19 dáti 20 angl 21
iörun
Lóðrétt: 2 óða 3 feta 4
gadd 5 rói 7 kvaldi 8
skilti 10 eirinn 11 gætn-
ir 13 lúi 17 eið 18 tau
Laugardagur 15. desember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15