Þjóðviljinn - 20.12.1990, Qupperneq 1
Fimmtudagur 20. desember 1990 — 241. tölublað 55. árgangur
Siglufjörður
Heimamenn kaupa Þormóð
Eigendur Drafnar hf. og Egilssíldar hf á Siglufirði hafa keypt 57% af hlut ríkisins i Þormóði ramma hf Vaka: Sporin
hræða. Tveirþingmenn kjördœmisins mótfallnir sölu ríkissjóðs
j" gær undirritaði fjármála-
ráðherra fyrir hönd ríkis-
sjóðs samning um sölu um 57%
hlutafjár í útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækinu Þormóði
ramma hf. á Siglufirði. Ríkið
heldur eftir um 40% hlutafjár í
fyrirtækinu og mun þar með
eignast um 20% hlutafjár I
nýju fyrirtæki sem kveðið er á
um í samningnum. Kaupendur
hlutafjár ríkisins eru eigendur
Drafnar hf. og Egilssíldar hf. á
Siglufirði.
Sjónarmið fjánnálaráðuneyt-
isins með þessari sölu er að
styrkja atvinnulíf á Siglufirði,
auka hagræðingu og samvinnu í
sjávarútvegi, drága úr óþörfum
ríkisrekstri í atvinnulífinu og
tryggja að rétt verð fáist fyrir
eignir ríkisins og að fjárfestingar
þess skili eðlilegum arði.
Skiptar skoðanir eru meðal
heimamanna á Siglufirði til þess-
arar sölu og heíúr Verkalýðsfé-
lagið Vaka meðal annars mót-
mælt henni. Hafþór Rósmunds-
son, formaður Vöku, sagði að
ástæðan fyrir mótmælum félags-
ins væri fyrst og fremst sú að
heimamenn hefðu slæma reynslu
af sölu ríkisfyrirtækja til einkaað-
ila og þeir hræddust sporin. í því
sambandi vísaði Hafþór til sölu
rikissjóðs á Sigló hf. á sínum tíma
sem endaði með gjaldþroti verk-
smiðjunnar, auk þess sem síldar-
vinnslulína þess var seld til Hafn-
ar í Homafirði.
Þá voru ennfremur skiptar
skoðanir meðal þingmanna í
Norðurlandskjördæmi vestra um
sölu ríkisins. Bæði Páll Pétursson
og Pálmi Jónsson voru henni
mótfallnir en aðrir ekki.
Forsvarsmaður kaupenda,
Róbert Guðfmnsson, fram-
kvæmdastjóri Þormóðs ramma,
sagði að starfsmannahald fyrir-
tækisins yrði óbreytt og að það
yrði rekið áfram af sama þrótti og
áður. Starfsmannafjöldinn er hátt
á þriðja hundrað manns með sjó-
mönnum á skipum þess.
Fjármálaráðherra sagði að
það væri algjörlega skothelt í
samningnum að heimamenn
þyrftu ekki að óttast að kvóti
skipanna yrði seldur í burtu, enda
Lái drengnum hver sem vill þótt hann skæli eftir að hafa horft á eftir nokkrum strætisvögnum keyra framhjá biðskýlinu án þess að stoppa í kuldan-
um. Mynd: Jim Smart. Myndin er sviðsett.
SVR
Fáheyrð framkoma
Tveir sjö ára drengir urðu
fyrir heldur óskemmtilegri
reynslu í samskiptum sínum við
Strætisvagna Reykjavíkur í
vikunni. Annar þeirra varð fyr-
ir því að vagndyrum var lokað
á hann eftir að búið var að
hleypa inn í vagninn nokkrum
fullorðnum við Sæviðarsund,
og hinn var ekki virtur viðlits af
nokkrum Hagar-Sund vögnum
þar sem hann stóð einn í bið-
skýli við Laugarnesveg í hríðar-
kófi.
Þórhallur Halldórsson, eftir-
litsmaður SVR, sagði að sér fynd-
ist það alveg fáránlegt af vagn-
stjóra að loka hurðinni á drenginn
Evstrasaltsríkin
Alþingi ítrekar stuðning sinn
Utanríkisnefnd Aiþingis sendi
í gær frá sér þingsályktunar-
tillögu þar sem Alþingi ítrekar
stuðning sinn við sjálfstæðisbar-
áttu Litháens og minnir á að ís-
lensk stjórnvöid hafi viðurkennt
sjálfstæði Eistlands, Lettlands
og Litháens óslitið frá 1922.
I tillögunni sem var rædd og
samþykkt í sameinuðu þingi í gær-
kvöldi er áréttuð ályktun Alþingis
um að sjálfsákvörðunarrétturþjóða
með lýðræðislega kjörið þing sé
grundvöllur frjálsra samskipta
þjóða í milli og stuðli að heims-
friði. Ennfremur telur Alþingi að
meðan Eystrasaltsríkin hafi ekki
fengið fulla viðurkenningu á sjálf-
stæði sínu vanti enn mikið á að
settar hafi verið niður deilur í Evr-
ópu. Loks er lýst yfir stuðningi við
hugmyndir íslenskra stjómvalda
um Reykjavik sem fundarstað til
viðræðna milli stjómar Sovétríkj-
anna og Eystrasaltsríkjanna.
Tillaga þessi kemur seint fram
en þingmenn telja hana gott vega-
nesti fyrir utanríkisráðherra Jón
Baldvin Hannibalsson sem verður
á utanríkisráðherrafundi Norður-
landanna í dag. Með tillögunni er
hvorttveggja verið að styðja
Eystrasaltsríkin í sjálfstæðisbaráttu
sinni og þrýsta á önnur Norðurlönd
um að gera slíkt hið sama.
-gpm
ætti rikið áffarn hlut í fyrirtækinu.
Kaupverð hins selda hluta rík-
issjóðs er rúmar 87 miljónir króna
og er söluverð hlutabréfanna mið-
að við að heildarverð þeirra í Þor-
móði ramma sé um 150 miljónir
króna. Greiddar verða 15 miljónir
króna við útborgun innan eins árs,
en verðtryggð skuldabréf að and-
virði rúmra 72 miljóna króna með
4,3% vöxtum em gefm út til tólf
ára. Skuldabréfm em tryggð með
handveði rikissjóðs í hinum
ógreiddu hlutabréfum og auk þess
persónuábyrgðum og sjálfsskuld-
arábyrgð Jökla hf., dótturfyrir-
tækis SH.
Þá verða fyrirtækin Dröfh hf.
og Egilssíld hf. sameinuð Þor-
móði ramma hf. Boðið verður út
nýtt hlutafé sem mun auka eigið
fé hins sameinaða félags um 50
miljónir króna og verður því eigið
heildarfé þess um 300 miljónir
króna. Siglflrðingar munu eiga
forkaupsrétt að hinu nýja hlutafé.
Ennfremur hafa eigendur fyrir-
tækjanna þriggja sammælst um
að neyta ekki forkaupsréttar síns
við útboð á hinu nýja hlutafé og
tryggja þannig að Siglfirðingar
sem sýnt hafa áhuga eigi þess
kost að gerast hluthafar.
Einnig skuldbindur ríkissjóð-
ur sig til að selja ekki sinn hlut
næstu þijú árin. Kaupendur
skuldbinda sig til að viðhalda öfl-
ugum rekstri í hinu sameinaða
fyrirtæki og að sá aflakvóti er
fylgir skipum félagsins verði
nýttur í þágu útgerðar og vinnslu í
bænum í sama mæli og verið hef-
ur.
Hluthafafúndur í Þormóði
ramma hefúr verið boðaður þann
þriðja í jólum, en núverandi
stjómarformaður fyrirtækisins er
Óttar Proppé.
-grh
við Sæviðarsund og hann gæti
ekki ímyndað sér að svona lagað
gæti gerst.
Varðandi það sem gerðist á
Laugamesveginum sagði Þórhall-
ur að vel kynni að vera að ein-
hveijir Hagar-Sund vagnar hefðu
átt þar leið framhjá sem ekið hefði
verið af verkstæðismönnum, en
eins og kunnugt er þá er viðgerða-
verkstæði SVR við Kirkjusand. í
því tilviki hafi viðkomandi vagn-
ar ekki verið í áætlun. Hann sagði
að seinna tilvikið væri í raun jafn
ótrúlegt og hið fyrra frá sínum
bæjardymm séð.
Þórhallur Halldórsson sagði
að í stærri kvörtunarmálum, eins
og þessi dæmi óneitanlega væm,
hefðu foreldrar alla jafna sam-
band við sig, en svo hefði ekki
verið.
-grh
I dag kl. 11 kemur Bjúgnakrækir í
heimsókn á Þjóðminjasafnið.
Magnús Sigurösson, 6 ára, teiknaði
þennan Sveinka.