Þjóðviljinn - 20.12.1990, Síða 2
FRETTIR
Kiarnorkuúrgangur
Hjörleifur krefur Svía svara
Hjörleifur Guttormsson með jyrirspurn til sœnsku ríkisstjórnarinnar: Mun stjórnin leyfa flutning
á kjarnorkuúrgangi til Dounreay?
Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður og þingmaður
í Norðurlandaráði hefur sent
sænsku ríkisstjórninni fyrir-
spurn um flutning kjarnorku-
úrgangs til Dounreay í Skot-
landi. Hann telur að ekki verði
hægt að sætta sig við það ef Sví-
ar senda úrgang til Dounreay.
Hjörleifúr spyr sænsku stjóm-
ina hvort hún muni veita fyrirtæk-
inu Studsvik eða öðrum sænskum
fyrirtækjum leyfi til að senda
Loðna
Óbreytt
ástand
kjamorkuúrgang til endurvinnslu-
stöðvarinnar í Dounreay til endur-
vinnslu eða geymslu. Hann spyr
sem þingmaður í Norðurlanda-
ráði, enda hefúr hann heimild til
þess sem slíkur, en ekki sem al-
þingismaður.
Þjóðviljinn sagði frá því í síð-
ustu viku að uppi væm áform um
að senda kjamorkuúrgang frá Sví-
þjóð til Dounreay. Fréttin var
höfð eftir samtökunum NENIG
(Northem European Nuclear In-
formation Group) á Hjaltlands-
eyjum og hefur verið staðfest af
sænskum yfirvöldum. Sænsk yfir-
völd hafa þó ekki fjallað formlega
um málið enn sem komið er.
Hjörleifúr tók málið upp á Al-
þingi í síðustu viku og hefúr nú
ákveðið að leita eftir svömm
sænsku ríkisstjómarinnar um
málið.
Um er að ræða úrgang ffá til-
raunakjamaofnum í Studsvik.
Fram til ársins 1988 var úrgangur
ffá þessum stöðvum sendur til Sa-
vanna River i Bandaríkjunum, en
því fyrirtæki hefúr verið lokað
vegna mengunarhættu að því er
segir í frétt frá Norðurlandaráði
vegna fyrirspumar Hjörleifs.
Bandarísk yfirvöld hafa bannað
innflutning á kjamorkuúrgangi til
landsins. Þetta hefúr valdið
Svíum vandræðum.
í fféttinni frá NENIG kemur
fram að bresk yfirvöld hafi
ákveðið að hætta stuðningi við
stöðina í Dounreay árið 1997. Það
er því mikilvægt fyrir stöðina að
gera samninga við kjamorkuver
um endurvinnslu og geymslu úr-
gangs. Samkvæmt ffétt NENIG
hafa þegar verið gerðir samningar
við Þjóðverja um þetta, en samn-
ingaviðræður standa yfir við fleiri
aðila.
I bréfi sínu til sænsku rikis-
stjómarinnar segist Hjörleifúr
telja það uggvænlegt að ef til
kæmi yrði úrgangur ffá Svíþjóð
fluttur loftleiðis eða á sjó yfir
gjöful fiskimið. Ef óhapp yrði
gæti geislavirkur úrgangur borist
á fiskimiðin við ísland og Færeyj-
ar. Hjörleifur minnir sænsku ríkis-
stjómina jafnframt á mótmæli
norrænu umhverfisráðherranna
gegn byggingu stöðvarinnar i Do-
unrcay og segist í því ljósi telja
það ótækt ef Svíar senda úrgang
þangað. -gg
Svo virðist sem ástand loðnu-
stofnsins sé hvorki betra né
verra en vitað var, þegar sjávar-
útvegsráðuneytið fór þess á leit
við loðnuflotann á dögunum að
hætta veiðum og taka sér langt
jólafrí.
Þetta em helstu niðurstöður í
nýloknum loðnuleiðangri rann-
sóknaskipsins Ama Friðrikssonar,
en skipið kom til hafnar eftir að
hafa leitað að Ioðnu fyrir austan,
norðan og vestan land. -grh
Tölvudiskar
tapaðir
Um síðustu helgi tapaði mynd-
listarkonan Róska lítilli dökkfjólu-
blárri rússskinnstösku i löngu
bandi i miðbæ Reykjavíkur.
í töskunni vom 9 harðir tölvu-
disklingar fyrir Macintosh-tölvu
með afar mikilvægum upplýsing-
um fyrir listakonuna, sem em
gagnslausar öðmm. Sumir disk-
linganna em merktir „Róska“. Auk
þess var i töskunni ávísanahefti
með 2-3 óútfylltum ávísunum.
Skilvís finnandi gerði listakon-
unni mikinn greiða ef hann hefði
samband við Rósku í síma 16335.
Hin heppilega
þrenning
Hljómsveitimar Bless, Ham
og Infusoria verða með tónleika á
Hótel Borg laugardagskvöldið 29.
desember. I fréttatilkynningu seg-
ir að erfltt sé að fínna jafn heppi-
lega þrenningu og þessar þrjár
hljómsveitir til að hrista af sér yf-
irþyrmandi slepju jólahaldsins.
Tónleikamir heQast Ú. 22.
Stríðshættan við
Persafóla
Aðstandendur vikublaðsins
Militant verða með opinn fund
um stríðshættuna við Persafóla í
bóksölu Pathfinder að Klappar-
stíg 26, 2. hæð, laugardaginn 22.
desember kl. 15.30. Fjallað verð-
ur um vígbúnaðinn við Flóann og
striðsundirbúninginn þar, hlut Ör-
yggisráðs Sþ og mélefni Kóreu.
Þar var háð stríð 1950 til 1953
undir fána Sameinuðu þjóðanna.
Fmmmælendur verða Gylfi Páll
Hersir og Jóhann Bjömsson, en
hann sótti Heimsþing æskunnar í
Kóreu 1989. Fundinum lýkur áð-
Tvífari Ólafs Ragnars býður ráðherranum skattaafslátt: Sl. laugardag lék lausum hala fyrirframan Verðbréfa-
markað Fjárfestingarfélags (slands í Kringlunni maður sem líktist fjármálaráðherra og vakti athygli á laga-
ákvæðum um skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa. Ólafur Ragnar Grímsson kom þá aðvffandi og bar kennsl
á Spaugstofuleikarann Pálma Gestsson. Ráðherra er maðurinn til hægri á myndinni. Mynd: Arnaldur.
Jasshljómsveit Konráðs Bé.
Jóla- og áramótahátíð Smekkleysu
Smekkleysa heldur jóla- og áramótahátíð á Hótel Borg fostudags-
kvöldið 28. desember. Jasshljómsveit Konráðs Bé leikur og verður
söngvarinn Bogomil Font í framlínunni. Auk hans gælir við hljóðnem-
ann Johnny Triumph. Einnig kemur fram leynigestur. Meðal annarra
atriða sýnir Hláturfélag Suðurlands nýjan leikþátt eftir Óskar Jónasson
sem nefnist Frímínútur. Þá er „Drag-show“ sem nefnist Dragt, Matar-
dans. Listafélagið Myndyndi verður með skyggnimyndasýningu og út-
skýringar, Mör-leikhúsið flytur tragedíuna Sveitamorð, aðstandendur
Gisp! verða með upplestur og sýningu úr nýútkomnu blaði sínu, boðið
verður upp á mandólín-spil, HÖH kemur fram en kynnir kvöldsins
verður Laddi eða Þórhallur Sigurðsson. Húsið opnað kl. 22. Forsala
aðgöngumiða er í Skaparanum Ingólfsstræti 8, Veitingahúsinu 22
Laugavegi 22, N 1 Bar á Klapparstíg og Hótel Borg í Pósthússtræti.
ur en blysför samtaka friðarhreyf-
inga hefst kl. 18. Að blysför lok-
inni er opið hús í bóksölunni.
Ljóðatónleikar í Nor-
ræna hósinu
Ljóðatónleikar Huldu Guð-
rúnar Geirsdóttur í Norræna hús-
inu verða fimmtudaginn 27. des-
ember kl. 20.30 en ekki í kvöld
einsog misritaðist í Þjóðviljanum
í gær. Er beðist afsökunar á mis-
tökunum.
Listaverk
Jóns Helgasonar
biskups
Árbæjarsaín og íslandsmynd-
ir hafa gefið út listaverkaöskju
með myndum Jóns Helgasonar
biskups, en Reykjavíkurborg
eignaðist myndir Jóns, sem eru á
annað hundrað talsins, árið 1945.
Þetta heilsteypta myndasafn er
upphafið að minjasafni Reykja-
víkur og eru myndimar nú meðal
mestu dýrgripa Árbæjarsafns og
ómetanlegar heimildir um sögu
borgarinnar. Askjan, sem nú er
Bœkur
Frumraun
Ómars
Ómar Ragnarsson fréttamaður
hefúr haslað sér völl sem rithöf-
undur með fýrstu skáldsögu sinni,
í einu höggi, sem er nýkomin út.
í bókarkynningu segir að Ómar
fari óheföbundnar leiðir, flétti sam-
an raunveruleika og skáldskap.
„Aðalsöguhetja bókarinnar er
Reykvíkingur af ‘68 kynslóðinni.
Á skólaárum var hann miðpunktur
í samfélagi og hugsjónabaráttu
unga fólksins, en árin hafa liðið án
þess hann hafi staðið undir þeim
væntingum sem hann sjálfur og
aðrir gerðu til hans. Hann ffemur
óhappaverk sem leiðir til uppgjörs.
Gamall neisti kviknar innra með
honum og hann ætlar sér ekki að
hverfa af sjónarsviðinu sem nafn-
laus og illa þokkaður einstaklingur.
Hann kemur auga á tækifæri til að
skrá nafn sitt með eftirminnilegum
hætti, ekki aðeins í Islandssöguna
heldur í mamikynssöguna,“ segir i
kynningunni. -Sáf
Trúarhátíð
Hermann fær
verðlaun
Kvikmynd Margrétar Rúnar,
„Hættu nú þessu voli, Hermann
minn“, var nýlega verðlaunuð á al-
þjóðlegri trúarhátíð í Friedberg í
Þýskalandi. í umsögn um myndina
var sagt að hún væri sérstaklega
vel fallin fyrir leitandi, þjáða ung-
linga, sem námsgagn í kynlífs-
fræðslu og kristnum ffæðum fyrir
gagnfræðaskólastigið.
Margrét Rún segist hafa sent
myndina í forvalið til að stríða for-
svarsmönnum hátíðarinnar og að
hún hafi alls ekki átt von á að
myndin yrði sýnd á hátíðinni. Það
komi því vel á vondan og að hún
verði bara að sætta sig við að vera
fyrirmyndarbam í hvívetna. Her-
mann verður sýnd sem jólamynd í
kvikmyndahúsi í Berlín. -Sáf
gefin út í 500 tölusettum eintök-
um, er fyrsta askjan af þremur.
Guðjón Friðriksson ritar skýring-
artexta við hverja mynd og stuttan
inngang um ævi og starfsferil
Jóns.
Með hverri öskju er bók þar
sem fjallað er um hveija mynd
fyrir sig og ritar Davíð Oddsson
borgarstjóri formála að verkinu.
Myndimar em litprentaðar í A4
stærð.
Hátíðardagskrá
á Landspítalanum
í dag em liðin 60 ár ffá því
fyrsti sjúklingurinn var lagður inn
á Landspítalann. Þessa merka af-
mælis hefur verið minnst með
ýmsu móti að undanfömu og í dag
verður stutt hátíðardagskrá fýrir
starfsfólk Rikisspítala í anddyri
K-byggingar. Davíð Gunnarsson
býður gesti velkomna, Séra Bragi
Skúlason flytur stutta hugvekju,
Matthías Johannessen og Pétur
Jónasson verða með upplestur og
tónlist og Kvennakór íslensku óp-
erunnar syngur jólalög. í anddyr-
inu stendur nú yfir listaverkasýn-
ing.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. desember 1990