Þjóðviljinn - 20.12.1990, Side 3
FRETTIR
Alþingi
Fjárlögin ófrágengin
Enn á eftir að hnýta lausa enda varðandi fjárlög og óljóst er með nýframlögð
tekjuöflunarfrumvörp
Mikið gekk á í Alþingi í gær
og voru þingmenn í við-
ræðum í flestum skúmaskotum.
En seint í gær var enn óljóst
hvernig gengið yrði frá fjárlög-
um við 3. umræðu og hver yrðu
örlög frumvarps til laga um
tryggingargjald.
Forsætisráðherra Steingrímur
Hermannsson kallaði fyrir sig
hvem ráðherrann á fætur öðmm í
gærdag en ekkert gekk. Þegar
blaðið fór í prentun í gær hafði
enn ekki náðst samkomulag innan
ríkisstjómarinnar um húsnæðis-
málin. Félagsmálaráðherra Jó-
hanna Sigurðardóttir vill fá 250
miljónir kr. fyrir 500 nýjar félags-
legar íbúðir á næsta ári sem byij-
að yrði á með 600 miljón kr. láns-
aðstoð lífeyrissjóðanna. Það er
íjármálaráðherra Ólafur Ragnar
Grímsson sem stendur gegn
þessu. Sagði Jóhanna í gær að sér
þætti einkennilegt að settar væra
300 miljónir í hönnunarkostnað
Þjóðleildiúss þegar ekki væri
hægt að setja 250 miljónir í fé-
lagslega kerfið.
Einnig er ágreiningur um lok-
un húsnæðiskerfisins frá 1986 en
það myndi kosta ríkissjóð 460
miljónir á næsta ári. Allt þetta yki
enn á hallann sem þá stefndi í 6
miljarða kr. og það þrátt fyrir að í
breytingum fjárhags- og við-
skiptanefndar effi deildar á láns-
íjárlögum fyrir 1991 var lántaka
ríkisins aukin um 2,2 miljarða.
Þar inní er 1 miljarðs kr. tekjutap
ríkisins vegna lægri rauntekna
ríkisins. Ólafur Ragnar sagði ekki
annað í gær en að hallinn yrði
ekki þetta mikill og forsætisr-
áherra taldi að hallinn yrði 4 mil-
jarðar. En hallinn eftir 2. umræðu
fjárlaga var 4,6 miljarðar.
Enn er einnig uppi ágreining-
ur um frumvarpið um tryggingar-
gjald einsog Þjóðviljinn skýrði
ffá í gær. Páll Pétursson, formað-
ur fjárhags- og viðskiptanefndar
neðri deildar, en í þeirri nefhd er
framvarpið nú statt, sagði í gær
að málið væri enn í nefnd og hann
vissi ekki hvenær fundur yrði
næst haldinn. Á fundi deildarinn-
ar seint í gærkvöldi var málið
ekki á dagskrá.
Fyrirhugað er að taka fjár-
lagaframvarpið til 3. umræðu í
dag og greiða atkvæði á fostudag.
Bolungarvík
Árngurslaus
leit
Leitin að mönnunum tveim-
ur sem saknað er af vélbátnum
Hauki ÍS frá Bolungarvík bar
engan árangur í gær þrátt fyrir
mikla leit.
Þeir sem saknað er heita Vagn
Hrólfsson og Gunnar Svavarsson.
Það var í fyrrakvöld sem skip-
veijar á Kristjáni ÍS urðu varir við
Hauk ÍS þar sem hann hringsólaði
mannlaus nokkrar sjómílur norður
af Stigahlíð. Báturinn hafði farið í
línuróður um morguninn og var á
landleið þegar mennina tók út.
Töluverður sjógangur var þegar
óhappið varð og af ummerkjum að
dæma um borð í bátnum, virðist
hann hafa fengið á sig fleiri en eitt
brot með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Leit verður haldið áfram í dag
en ísing hamlaði leit smærri báta í
gær í utanverðu Isafjarðardjúpi.
-grh
í gær var enn óvíst hvort fúndir
yrðu á laugardag en til að afgreiða
5 umræður tekjuöflunarfram-
varpanna þyrfti því að hafa hraðar
hendur. Framvörp um að veita
megi fólki í greiðsluerfiðleikum
húsbréf og um veitingu ríkisborg-
araréttar verða að öllum líkindum
að lögum nú fyrir jól. Einnig er
líklegt að lánsfjárlög 1990 og
1991 verði afgreidd fyrir jól, sem
og framvörp um undantekningar
á virðisaukaskatti, tímabundna
lækkun tolla af bensíni, niðurfell-
ingu stimpilgjalda af skuldabréf-
um vegna félagslegra íbúða og
framvarp sem leiðréttir tekju- og
eignaskatt. -gpm
Komum að stökkva yfir sauöarlegg. I gær sýndi hópur krakka úr Mýrarhúsaskóla ýmsa gamla leiki á Eið-
istorgi. Tllefni leikjasýningarinnar er útkoma bókarinnar „Bemskan, llf, leikir og störf fslenskra bama.“ I bókinni
er m.a. sagt frá löngu gleymdum leikjum íslenskra barna einsog að reisa horgemling, hark, yfir, fallin spýtan,
getruleikur o.fl. Höfundur bókarinnar er Slmon Jón Jóhannsson. Örn og Öriygur gefa út.
Hvalevri
Til háðungar og skammar
Hlíf: Fiskvinnslufólki gengur erflðlega að fá aðra atvinnu
Síðasti vinnsludagur í Hval-
eyri hf. í Hafnarfirði var
fyrir skömmu, og að undan-
förnu hefur verið unnið við að
rífa niður fiskvinnslutæki þess.
Um 60-70 manns unnu hjá fyr-
irtækinu og detta þeir síðustu af
launaskrá í lok janúar, en erfið-
lega hefur gengið fyrir marga
þeirra að fá aðra atvinnu.
Sigurður T. Sigurðsson for-
maður Verkamannafélagsins Hlíf-
ar segir að salan á togaranum Víði
HF til Samheija hf. á Akureyri
með rúmlega tvö þúsund tonna
kvóta, og stöðvun fiskvinnslu í
Hvaleyri, sé bæjaryfirvöldum til
háðungar og skammar.
Sérstaklega í ljósi þess sem
fullyrt var við sölu Bæjarútgerðar
Hafnaríjarðar til Hvaleyrar-
manna, 12. júní 1985, að ekki
væri verið að selja eitt eða neitt úr
bænum. Til að koma í veg fyrir
það segir eftirfarandi í 6. greinn
kaupsamningsins: „Kaupandi lýs-
ir því yfir að hann mun nota hina
seldu eign til starfrækslu útgerðar
og fiskvinnslu í Hafnarfirði og er
honum kunnugt um að slíkt er
forsenda fyrir sölu þessari af
hálfu seljenda." Formaður Hlífar
segir að fimm árum síðar sé allt
horfið og sú spuming sé ansi
áleitin hvort 6. greinin hafi verið
verið sett inn í kaupsamninginn af
heilum hug eða einungis til að
blekkja bæjarbúa.
-grh
Borgarráð
Tillaga um stæði og stöðumæla
Tillögu Kristínar Á. Ólafs-
dóttir borgarfulltrúa Nýs
vettvangs um niðurfellingu
stöðumælagjalda og leyfí til
aksturs bifreiða um Austur-
stræti síðustu dagana fyrir jól
var hafnað í borgarráði.
Tillögu Kristínar var ætlað að
auðvelda fólki ferðir og erindi í
miðbæ Reykjavíkur síðustu dag-
ana fyrir jól, eða frá 17. -22. des-
ember. í greinargerð með tillög-
unni segir m.a. að með gjaldtöku
fyrir bifreiðastæði er fólki gert
erfitt fyrir að sinna erindum nema
í stuttan tíma eða með nokkram
tilkostnaði. Er þannig viðskiptum
beint frá miðbænum og í þá versl-
unarkjama þar sem viðskiptavin-
um er boðið ókeypis bílastæði.
í tillögu Kristínar var enn-
fremur gert ráð fyrir að bílastæði
og bílhýsi borgarinnar yrðu aug-
lýst sértaklega, en nýting þeirra
hefur verið heldur dræm.
BE
Evrópustefnunefnd
Gagnrýnir
sjónvarpið
Evrópustefnunefnd Alþingis
gagnrýnir Ríkissjónvarpið fyrir
að þættir þess um EB séu einlitir.
Ingimar Ingimarsson: Órökstudd
gagnrýni er ómarktæk
Á blaðamannafundi um nýút-
komna safhbók sjö hefta um ísland
og Evrópu sem Evrópustefnunefhd
Alþingis gefur út, gagnrýndu nefnd-
armenn Rikissjónvarpið fyrir þátta-
röð þess ísland i Evrópu og töldu
þættina ýta undir það sjónarmið að
Island ætti að sækja um aðild að
Evrópubandalaginu.
Nefndin hefur starfað í tæp tvö
ár og fjallað um ákvarðanatöku inn-
an EB um innri markað og líklega
þróun í Evrópu og áhrif á íslenskt
efnahagslíf. Á þessum tveimur ár-
um hafá verið gefin út sjö hefti sem
nú koma út í einni bók, áhuga-
mönnnum og öðrum til glöggvunar
á viðfangseftiinu. í síðasta heftinu
kemur fram að nefndarmenn, sem
koma úr öllum flokkum, era sam-
mála um að aðild að EB sé ekki á
dagskrá. Einnig að ekki komi til
greina að leyfa aðgang að íslensk-
um fiskimiðum í skiptum fyrir að-
gang að markaði í EB-löndunum.
Síðan gerir hver þingmaður grein
fyrir áliti sínu. I fyrri heftunum er
farið yfir ýmsa skipan og þróun
mála og tekið á samvinnu EFTA og
EB.
Af níu nefndarmönnum vora
fjórir á fundinum og gagnrýndu þeir
allir Sjónvarpið fyrir þáttaröð þess
og sagði Páll Pétursson, Frfl., að
Ríkissjónvarpið hefði gert átta áróð-
ursþætti fyrir inngöngu okkar i EB.
Hjörleifur Guttormsson, Abl., sagði
að sumir sem hefðu komið á fund
nefndarinnar hefðu verið furðu
lostnir yfir efhistökunum í þáttun-
um og ætti það sérstaklega við um
sjávarútvegsmál. Kristín Einars-
dóttir, Kvl., taldi nafngift þáttanna
villandi og að þeir væra einlitir þar
sem ekki væri leitað álits innnlendra
aðila. Formaður nefndarinnar, Eyj-
ólfur Konráð Jónsson, Sjfl., tók
undir þessa gagnrýni.
Ingimar Ingimarsson sem gerði
þættina vísar þessari gagnrýni á
bug. Hann sagði í samtali við Þjóð-
viljann að gagnrýni sem ekki væri
rökstudd væri marklaus og því gæti
hann í raun ekki svarað henni. Hann
sagði að í þáttunum væri lögð
áhersla á að fram færi umræða um
hvort við ættum að ganga í EB eða
ekki. Hann taldi að menn væra ef til
vill ekki vanir því að talað væri við
aðila eriendis og teldu því hallað á.
Ingimar benti á að sjöundi þátturinn
væri helgaður íslenskum hagsmuna-
aðilum og að síðan yrði þáttaröðinni
fylgt eftir með umræðuþætti í sjón-
varpssal. Bók Evrópustefnunefhdar,
Island og Evrópa, fæst í helstu
bókaverslunum og kostar 2150
krónur. -gpm
Nytiaflskar
u
Betri skilyrði til uppeldis
Hafró: Kann að rœtast nokkuð úr um þorskárganginn frá 1990 þrátt fyrir litla
seiðagengd í sumar
ppeldisskilyrði flestra
helstu nytjafíska hafa batnað
mikið frá því sem verið hefur
nokkur undanfarin ár og því
kann að rætast nokkuð úr um
þorskárganginn frá 1990 þrátt
fyrir litla seiðagengd í surnar.
Þetta eru helstu niðurstöður úr
nýafstöðnum loðnu- og sjórann-
sóknaleiðangri Bjama Sæmunds-
sonar á miðunum umhverfis land-
ið.
Samkvæmt þeim er ástandið í
hlýja sjónum á norðurmiðum í
haust því hugsanlega hagstætt
fyrir þorsk en óhagstætt í þeim
kalda fyrir loðnu. Sú var reyndin
1981-1983 og er aflur nú 1989-
1990 þegar loðnustofninn mælist
með minnsta móti.
Horfur í þessum efhum era ef
til vill betri fyrir næstu tvö ár en
svo getur aftur horfið til verri veg-
ar í sjónum samkvæmt mælingum
á ástandi sjávar í hafinu suður og
norður af landinu.
Hlýsjórinn fyrir Suður- og
Vesturlandi var í meðallagi heitur
og saltur og gætti hans einnig
miðdýpis á landgrunninu austur
með öllu Norðurlandi að Langa-
nesi. Þetta er breyting til batnaðar
frá fyrri hluta ársins þegar enginn
hlýsjór fannst á norðurmiðum, en
i ágúst varð hans vart í nokkram
mæli eftir þriggja ára hlé, 1987-
1990.
Ástand sjávar á norðurmiðum
í haust er hliðstætt því sem það
var á árinu 1983. Þá var enginn
hlýsjór á norðurmiðum fyrri hluta
árs, en hann skilaði sér svo á mið-
in seinni hluta ársins 1983 og hélt
velli til 1987, samhliða góðum
þorskárgöngum 1983 og 1984.
Þar sem pólsjávar gætti ekki í
Austur-íslandsstraumi í haust er
því ekki að vænta hafíss úr þeirri
átt. í kalda sjónum djúpt norður af
landinu sýna rannsóknir enn,eins
og í fyrra, ríkjandi svalsjó án til-
tölulega hlýs millilags. -grh
Fimmtudagur 20. desember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3