Þjóðviljinn - 20.12.1990, Side 4
ÞJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
KLIPPT OG SKORIÐ
Forval
í Reykjavík
Svo sem fram hefur komið í Ijölmiðlum að undan-
förnu hafa staðið yfir tilraunir til að sameina Alþýðu-
bandalagsfélögin í Reykjavík um forval eða prófkjör
vegna komandi alþingiskosninga. Þessar tilraunir hafa
enn ekki tekist og hefur verið deilt um það annars vegar
hvort halda ætti prófkjör opið öðrum en flokksmönnum
eða forval félagsmanna Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík. Þetta eru ýtrustu viðhorfin og kjarni málsins, ágrein-
ingur um framkvæmdaatriði skiptir minna máli.
Á almennum fundi Alþýðubandalagsins í Reykjavík
s.l. mánudag var samþykkt að forval skuli fara fram 19.
janúar næstkomandi. Jafnframt samþykkti fundurinn
þær reglur sem gilda eiga við framkvæmd forvalsins og
einnig um það hvernig með skuli fara að forvalinu loknu.
í samþykkt ABR er það nýmæli að rétturinn til að
greiða atkvæði í forvalinu er ekki bundinn við félags-
menn ABR, og endanleg afgreiðsla listans á að fara
fram á sameiginlegum fundi Alþýðubandalagsmanna,
sem þýðir að allirflokksmenn, hvort sem þeir eru í ABR,
Æskulýðsfylkingu AB eða Birtingu hafa sama rétt til að
kjósa í forvalinu og taka þátt í lokaafgreiðslu á fram-
boðslistanum.
Jafnframt er þessum aðilum tryggður réttur til að taka
þátt í störfum kjörnefndar, bæði við undirbúning og fram-
kvæmd forvalsins sem og við röðun á listann að forvali
loknu.
Það er auðvitað sjálfsagt og ætti ekki að þurfa mikill-
ar umræðu við að öllum flokksfélögum sé tryggður rétt-
ur til að taka svo mikilvæga ákvörðun. Á hinn bóginn
hafa deilur um skipulagsmál Alþýðubandalagsins í höf-
uðborginni ekki verið leiddar til lykta, sem veldur því að
taka þarf á þessu sérstaklega. Félög Alþýðubandalags-
manna í Reykjavík eru þrjú. Réttur til aðildar að þeim er
nokkuð flókinn, hægt er að vera í Æskulýðsfylkingunni
eða Birtingu án þess að vera flokksbundinn í Alþýðu-
bandalaginu, og hver maður getur verið í öllum þremur
félögunum ef því er að skipta. Félögin hafa ekki getað
komið sér saman um að finna samstarfi sínu skipulagð-
an farveg. Þetta er auðvitað miður en þarf alls ekki að
koma í veg fyrir að flokksmenn geti komið sér saman um
framboðslista, sem byggir stefnu sína á þeim ákvörðun-
um sem flokkurinn í heild tekur um áhersluatriði í kosn-
ingunum.
Forystumenn Birtingar hafa sagt að þeir telji sam-
þykkt ABR ófullnægjandi, þátttöku Birtingar í forvalinu
hafi verið hafnað. Þessa afstöðu ber að harma.
Þegar tveir eða fleiri semja, kemst aldrei á samning-
ur ef allir samningsaðilar halda svo fast við sitt að þeir
geti ekki hugsað sér að gefa eftir í neinu. í þessu máli
eru ýtrustu viðhorfin þekkt, og getið hér að framan. Á
umræddum fundi var felld tillaga um að binda þátttöku-
rétt í forvalinu við félagsmenn ABR, en þriðjungur fund-
armanna greiddi henni atkvæði. Sé allrar sanngirni gætt
verður ekki betur séð en samþykkt fundarins sé alvarleg
tilraun meirihlutans til að halda Alþýðubandalagsmönn-
um í Reykjavík saman í einni fylkingu, enda þótt þeir séu
í þremur félögum, og fjarri því sammála um alla hluti.
Guðrún Helgadóttir alþingismaður benti á það í sam-
tali við Þjóðviljann í gær að meira máli skipti hvort hér
væri vinstri eða hægri stjórn en að deila um „smáa letr-
ið“ eins og hún orðaði það svo hnyttilega. Þetta er hár-
rétt. Reynslan ætti að hafa kennt mönnum að innbyrðis
átök, sem einatt birtast kjósendum sem deilur um auka-
atriði, leiða ekki til annars en vantrúar kjósenda á stjórn-
málasamtökum.
Öllum er Ijóst að innan allra stjórnmálaflokkanna eru
deildar meiningar um menn og málefni. Kjósendur vita
að það er óhjákvæmilegur fylgifiskur stjórnmálastarfs,
en þeir ætlast til þess að liðsmenn og oddvitar flokkanna
leysi þau mál á heimavelli, uni niðurstöðum í ágreinings-
málum og takist á við raunveruleg pólitísk viðfangsefni,
sem skipta máli fyrir þjóðina. hágé.
Til Jerúsalem og heim
Það gerist ekki oft að Islend-
ingur skrifi bók um atburði og
ástand í öðrum heimshlutum á líð-
andi stund. En þetta hefur séra
Rögnvaldur Finnbogason nú gert í
bók sem hann nefnir „Jerúsalem -
borg hinna talandi steina“ og
Fjölvi gefur út. Þetta er frásögn af
heimsókn séra Rögnvaldar til
Landsins helga og fylgir með þýð-
ing á ísraelskri smásögu og yfirlit
um sögu Palestínumálsins eftir
Elías Davíðsson.
Fangavörður og fangi
Séra Rögnvaldur segir í for-
mála að hér sé ekki um fræðrit að
ræða, heldur „aðeins frásögn af
því sem séð var í sjónhendingu
fárra daga“. En hvort sem er: af
nógu er að taka. Þetta er ekki
ffæðirit, heldur ádeilurit á með-
ferð þeirra sem ferðinni ráða í
Israel á Palestínumönnum, sú af-
staða litar alla frásögnina sterk-
lega, sem vonlegt er. Þeirri hugs-
un bókarinnar verður reyndar ekki
í móti mælt, að hemámið og allur
sá vopnaði yfirgangur sem honum
fylgir er glæpur - bæði gegn þeim
mannréttindum sem Palestínu-
menn eiga tilkall til og gegn ísra-
elsku fólki einnig. Því rétt segir
ísraelsk þingkona og friðarsinni,
Shulamit Aloni, við séra Rögn-
vald: „Meðan við kúgum aðra og
höldum þeim í áþján emm við
ekki fijáls, því að fanginn og
fangavörður hans em hlekkjaðir
saman.“
Samúð og andúð
Þetta er reyndar hugsun sem
mætti vinna betur úr. Samúð og
andúð séra Rögnvaldar em svo
sterk að hann hefur sterka til-
hneigingu til einíoldunar. Til
dæmis vill bókarhöfúndur gagn-
rýnislaust koma til skila á íslandi
boðskap Sjeik Sjamals, trúarleið-
toga múslíma í Jerúsalem. En sá
náungi er nú ekki upplýstari en
svo, að hann segir um Israela sam-
tímans: „Mennimir sem beita fólk
þessu óréttlæti, standa fyrir þess-
um manndrápum, það em menn-
imir sem reyndu að drepa Jesúm
Krist.“ Hér er farið með þá trúar-
játningu margra alda sem gerir
m.a. kristna kirkju samseka í gyð-
ingafjandskap einmitt, sem hefúr
borið þann illa ávöxt í Þýskalandi,
Rússlandi og víðar, að gyðingar
leituðu skjóls undan ósköpum í
Palestínu.
Annað dæmi. Rögnvaldur dá-
ist mjög að Palestínumönnum í
raunum þeirra og baráttu og er
það vel. Hann telur að hræðilegt
hemaðarástand í landinu hafi
„laðað fram alla bestu kosti og
eigindir meðal Palestínumanna"
enda þekki þeir ekki vandamál
vestrænna borga eins og eitur-
lyfjaneyslu, sjálfsmorð og geð-
sýki, heldur fyrst og síðast sam-
heldni, sjálfsvirðingu og vináttu.
Það er rétt að stríð og hörmungar
leiða það besta ffam hjá sumum
einstaklingum - en það versta hjá
öðrum (og skiptir þá ekki öllu
máli hver málstaðurinn er). Það er
því miður nær sanni sem Shulam-
it Aloni segir: fangavörður og
fangi em hlekkjaðir saman og það
er fordjarfandi sambúð. Kristnir
menn í Landinu helga, sem Rögn-
valdur talar við, þeir átta sig betur
á þessu. Einn þeirra segir á þá leið
að „meðal gyðinga em ofstækis-
menn, meðal múslíma em ofstæk-
ismenn, meðal kristinna manna
em ofstækismenn. Þessir menn
mega ekki ákveða hvað em lög í
landinu.“ Fleiri kristnir menn tala
á þessum nótum. Reyndar er bók
séra Rögnvaldar þörf áminning
um kristna söfnuðí í landinu, sem
em eins og milli steins og sleggju
og vilja oft gleymast. Bókin rekur
dæmi þess að stjómvöld ísraelsk
geri þeim erfitt fyrir, og svo marg-
ir hafa flúið land vegna ástandsins
að kristin áhrif em þverrandi.
(N.B. þótt ekki komi þessu máli
við: í tímariti kaþólskra, Merki
krossins, vom nú síðast rakin
dæmi um það hve mjög kristnum
mönnum fækkar í Austurlöndum
nær. Og þó hvergi eins og í Tyrk-
landi þar sem stjómin (sessunaut-
ur okkar í Nató) bannar byggingu
nýrra kirkna og hefúr meinað
bæði rétttrúuðum og armensku
kirkjunni að reka prestaskóla.)
Hverjir mega
heitaþjóð?
Fremst í bókinni fer sögulegt
yfirlit um sögu síonismans. Um
þá túlkun mætti margt segja, en
hún stefnir einkum í þá átt að sókn
gyðinga til landsins helga sé að
vísu skiljanleg í ljósi gyðinga-
fjandskapar og gyðingamorða í
Évrópu, en samt fyrst og ffemst
fáránleg og öðmm þræði glæp-
samleg. Hér þyrfti úr mörgum
þráðum að greiða ef vel ætti að
vera. Eitt skal þó skoðað, en það
er sú túlkun sr. Rögnvaldar að
gyðingar séu ekki þjóð, heldur
trúfélag.
Þama er komið að annarri af
tveim kórvillum. Hin fyrri er sú
afstaða margra ísraelskra forystu-
manna (t.d. Goldu Meir) að Pal-
estínumenn séu ekki þjóð heldur
barasta Arabar sem geti eins verið
annarsstaðar. Hin síðari er sú að
gyðingar séu ekki þjóð, enda séu
þeir af mörgum uppruna og tali
mörg tungumál. Hvomgt er rétt.
Allar skilgreiningar á því hveijir
mega þjóð heita hopa.fyrir þeirri
einföldu staðreynd, að það fólk er
þjóð sem á það sterka sameigin-
lega reynslu, að það telur sig vera
þjóð. Gyðingar Þýskalands og
Sovétríkja Stalíns og Brézhnevs
(sem sr. Rögnvaldur þekkir meira
en af afspum) þeir hafa svo sann-
arlega ekki verið spurðir að því
hvort þeir væm í „trúfélagi", til-
vistarvandi þeirra sem gyðinga
hefur náð langt út fyrir synagóg-
una. Sömuleiðis má segja, að jafn-
vel þótt Palestínumenn heföu lítt
greint sig ffá öðmm Aröbum áður
fyrr, þá hefur tilkoma ísraelsríkis,
útlegðin, réttindabaráttan, gert þá
að þjóð sem hefúr miklu sterkari
sjálfsvitund en flestar aðrar. Þjóð-
artilvera ræðst ekki af „kynþætti"
og ekki alltaf heldur af sameigin-
legu tungumáli: þjóð ræðst af
hlutskipti i tilvemnni, ekki síst
sameiginlegum erfiðleikum. ÁB.
ÞJÓÐVIUINN
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Utgefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson
Ólafur H. Torfason.
Fréttastjóri: Sigurður Á. Friðþjófsson.
Aörir blaðamenn: Bergdís Ellertsdóttir, Dagur
Þorieifsson, Ellas Mar (pr.), G. Pétur Matthíasson,
Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pétursson, Híldur Finnsdóttir (pr.), Jim
Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Ölafur
Gíslason, Ragnar Karisson, Sævar Guðbjömsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrífstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristln Pétursdóttir.
Auglýsingastjórí: Steinar Harðarson.
Auglýsingar: Sigrlður Sigurðardóttir, Svanheiður
Ingimundardóttir, Unnur Agústsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hrefna Magnúsdóttir.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir,
Þorgerður Sigurðardóttir, Þórunn Aradótir.
Bilstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrifstofa, afgreiðsla, ritstjóm, auglýsingar:
Siðumúla 37, Rvfk.
Simi: 681333.
Símfax: 681935.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóöviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verð í lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr.
Áskriftarverö á mánuði: 1100 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. desember 1990