Þjóðviljinn - 20.12.1990, Side 6
ERLENDAR FRETTIR
Sovétríkiaþing
Gorbatsjov „aðvarar“
Eystrasaltslýðveldi
Hershöföingjar, íhaldssamir kommúnistar og rússneskir þjóðernissinnar hvetja til aðgerða
gegn „skilnaðarsinnum“
Míkhaíl Gorbatsjov, Sovét-
ríkjaforseti, sagði í gær í
ræðu á þjóðfulltrúaþingi að
ekki yrði hjá þvi komist að lýsa
yfir neyðarástandi og innleiða
beina stjórn forseta Sovétríkj-
anna á vissum landsvæðum, ef
ástand þar yrði slíkt að í því fæ-
list „ógnun við ríkið og velferð
fólks.“ Var svo að heyra á Gor-
batsjov að þeim spjótum væri
einkum beint að Eistlandi, Lett-
landi og Litháen.
Bein forsetastjóm myndi
þýða að stjómvöld hlutaðeigandi
lýðvelda eða stjómarumdæma
yrðu svipt völdum.
Gorbatsjov, sem stundum var
reiður að sjá meðan á ræðuflutn-
ingnum stóð, kvað stjóm sína
hafa „þungar áhyggjur“ af ástand-
inu í Eystrasaltslýðveldunum
þremur og sakaði stjómvöld
þeirra um óréttmæta framkomu
við þjóðemisminnihluta þar, en af
því fólki em Rússar langfjöl-
mennastir.
Stjómvöld og þing lýðveld-
anna hafa leitast við að takmarka
borgararéttindi fólks, sem flutt
hefur til landanna þriggja frá því
að Sovétríkin innlimuðu þau
1940.
Er þetta gert til vemdar þjóð-
emum landanna, sem innfæddir
telja að séu í hættu vegna gífúr-
legs innflutnings fólks undan-
fama áratugi. í Lettlandi er þann-
ig talið að innflytjendur séu nú
álíka margir og Lettar sjálfir.
Skömmu áður en Gorbatsjov
flutti ræðuna, hafði hann fengið í
hendur áskomn þess efnis, að
hann léti ekki lengur dragast að
gera það sem þyrfti til að koma á
kyrrð á átakasvæðum. Af öllu
væri þó mest áríðandi, stóð í
skjalinu, að grípa til aðgerða gegn
„skilnaðarsinnum.“ Askomnin er
undirrituð af hershöfðingjum,
íhaldssömum kommúnistum og
þjóðemissinnuðum rússneskum
rithöfúndum.
Skömmu áður höfðu forsetar
Eystrasaltslýðveldanna skorað á
sovésku stjómina að viðurkenna
sjálfstæðis- og fúllveldisyfirlýs-
ingar þeirra og ganga til samn-
ingaviðræðna við þau um sam-
starf í framtíðinni og brottkvaðn-
ingu sovéska hersins þaðan.
Nánast ekkert ofbeldi hefúr
hingað til verið samfara sjálfstæð-
isbaráttu Eystrasaltsþjóðanna, en
mikil spenna er í löndum þeirra
milli innfæddra annarsvegar og
rússneskra innflytjenda og sov-
éska hersins hinsvegar. Og síð-
ustu daga hafa nokkrar smá-
sprengjur spmngið í Riga, höfuð-
borg Lettlands. Þarlendir embætt-
Gorbatsjov - í klemmu milli „harð-
llnumanna" og „skilnaðarsinna.“
ismenn láta í ljós gmnsemdir um
að sovétsinnaðir kommúnistar
hafi valdið sprengingunum í sam-
ráði við sovéska herinn, í þeim til-
gangi að koma af stað ókyrrð,
sem gæti orðið sovéskum stjóm-
völdum átylla til að fyrirskipa
neyðarástand í landinu og beina
stjóm Sovétríkjaforseta.
í áðumefndri ræðu minntist
Gorbatsjov einnig á Moldovu,
Georgíu og Fjalla-Karabak, sem
Armenar og Aserar deila um, sem
svæði þar sem kynni að verða
gripið til umræddra ráðstafana.
Reuter/-dþ.
Saddam „hreinsar“
herinn
Lýðræðisflokkur íraska Kúrdist-
ans, sem er í andstöðu við íraks-
stjóm og útlægur, hélt því ffam í
gær að Saddam Hussein Iraksforseti
hefði nýlega látið drepa Thabiet
Sultan generallautinant, yfirmann 2.
stórdeildar landhersins, og nokkra
aðra háttsetta herforingja. Skömmu
áður hafði Saddam sett af formann
herráðsins og vamarmálaráðherr-
ann. Þykir þetta benda til þess að
hann sé ekki sannfærður um að her-
inn sé honum fúllkomlega hollur.
Hoss segir af sér
Selim Hoss, forsætisráðherra
Líbanons, sagði af sér í gær. Talið er
að Elias Hrawi, Líbanonsforseti,
muni nú mynda stjóm er í verði m.a.
forkólfar „einkaherja" þeirra, er
land þetta er frægt og alræmt fýTÍr, í
von um að þeir muni þá gerast trúir
forsetanum og „vemdurum" hans,
Sýrlendingum.
Síld f Briissel
Franskir fiskimenn, hræddir um
afkomuöryggi sitt vegna fyrirætlana
Evrópubandalags um að minnka
fiskikvóta, andæfðu þeim fyrirætl-
unum í gær með því að hella 20
smálestum af síld og sardinum á
götuna fyrir framan byggingu ráð-
herraráðs EB í Brússel.
Brandenbúrgarbiskup
Látið Stasiskjöl hvfla ffriði
Segir hugarástand galdrafárs í uppsiglingu vegna ásakana í garð stjórnmálamanna um þjónustu
við Stasi
Gottfried Forck, biskup ev-
angelísku (lúthersku) kirkj-
unnar í Berlín og Brandenbúrg,
iagði í gær til að hætt yrði öllum
rannsóknum á meintum sam-
böndum stjórnmálamanna við
Stasi, öryggisþjónustu austur-
þýska ríkisins fyrrverandi.
Sagði biskup að umræðan um
þau sambönd hefði valdið hjá
þjóðinni hugarástandi, sem
minnti á galdrafár fyrri tíða.
Sem kunnugt er sagði Lothar
de Maiziere, síðasti forsætisráð-
herra Austur-Þýskalands, nýlega
af sér stöðum í rikisstjóm og
flokki kristilegra demókrata
vegna ásakana um að hann hefði
njósnað fyrir Stasi og þá helst um
kirkjufélög mótmælenda. Einir
tveir austurþýskir stjómmála-
menn höfðu áður sagt af sér út af
ásökunum um það sama og í
fyrradag tilkynnti 90-bandalagið
svokallaða, samband austur-
þýskra mannréttindahópa sem
hefúr átta þingmenn á nýkjömu
sambandsþingi, að einum forustu-
manna þess, Klaus Richter að
nafni, hefði verið vikið úr starfi
hjá því vegna þess að komið hefði
í ljós að hann hefði um skeið ver-
ið á vegum Stasi.
Það hefur sýnt sig að Richter
var 1973 þjálfaður af Stasi til
njósna erlendis. Hann sleit öll
tengsli sín við öryggisþjónustuna
1975 og mun ekki hafa haft sam-
bönd við hana síðan. Talsmaður
90- bandalagsins segir það ekki
hafa sagt honum upp fyrir þjálfún
hans hjá Stasi, heldur vegna þess
að hann hafi haldið henni leyndri.
„Skjalasafni Stasi ætti að loka
og lofa því að hvíla í friði,“ sagði
Forck biskup í viðtali sem birtist í
blaðinu Berliner Morgenpost í
gær. Hann sagði ennffemur að í
þessum málum hefðu í raun verið
höfð endaskipti á þeirri megin-
Það var nú meöan það var - Erich Mielke, æðsti maður Stasi (t.v., nú
háaldraður I fangelsi), skálar við Walter Ulbricht, sem lengi var æðsti
maður Flokks og ríkis f Austur-Þýskalandi.
Nvia Siáland
Velferðarútgjöld lækkuð
reglu laga að sakbomingur teljist
saklaus þar til sök hans hafi verið
sönnuð.
En sumir em á öðru máli um
það. „Við getum ekki byijað upp
á nýtt með lygar sem grundvöll,"
segir BSrbel Bohley, kunn for-
ustukona baráttusamtaka þeirra
fyrir mannréttindum, sem höfðu
fíumkvæði um að reisa mótmæla-
öldu þá, er kollvarpaði veldi
kommúnista í Austur-Þýskalandi.
Hún vill að sambandsþingið láti
rannsaka feril allra starfsmanna
Stasi, einnig vesturþýskra. Svip-
aðs sinnis er Peter-Michael Diest-
el, síðasti innanrikisráðherra
Austur- Þýskalands. í blaðaviðtali
nýlega sagði hann að það væri
vesturþýskum stjómmála- og
embættismönnum mikil skömm
hve veikir þeir hafi verið fyrir
ffeistingum ffá Stasi.
Reuter/-dþ.
Stjórn þjóðarflokksins á
Nýja Sjálandi, sem fyrir
sköinmu kom til valda, til-
kynnti í gær að hún hefði
ákveðið að skera niður ríkisút-
gjöld til velferðarmála um tíu af
hundraði. Þýðir það m.a. að at-
vinnuleysisbætur, sjúkrabætur
og barnabætur verða lækkaðar.
Fjármálamenn og atvinnurek-
endur fagna þessum ráðstöfúnum
en nýsjálenska alþýðusambandið
segir þær sýna illan hug stjómar-
innar í garð verkamanna. Jim Bol-
ger, forsætisráðherra, segir ráð-
stafanimar nauðsynlegar til viðr-
éttingar efnahag landsins en for-
ustumenn alþýðusambandsins og
Verkamannaflokksins telja líklegt
að þær geri að verkum að efna-
hagsástandið versni. Nýja Sjáland
hefur um langt skeið haft eitt full-
komnasta velferðarkerfi heims.
Um þriðjungur ríkisútgjalda þar
Jim Bolger fagnar kosningasigri hægrisinnaðs flokks slns - andstæð-
ingar hans telja að stjórn hans hafi sett af stað herferö gegn velferðar-
kerfinu.
fer til velferðarmála.
Landið á um þessar mundir í
efnahagsörðugleikum sem fara
vaxandi, einna helst vegna þess
hve hátt olíuverð er orðið af völd-
um Persaflóadeilu, jafnframt því
sem verð á landbúnaðarvörum,
sem em helsti útflutningur Nýja
Sjálands, hefúr lækkað. Ekki síð-
ur illa líst verkalýðssamtökum og
Verkamannaflokki á að stjómin
hyggst afnema lög um að verka-
mönnum sé skylt að vera í verka-
lýðsfélagi.
Lýðræðisflokkur
lögleiddur
Lýðræðisflokkurinn albanski,
sem stofnaður var fyrir viku, hef-
ur fengið leyfi stjómvalda til að
starfa og er hann fyrsti stjómar-
andstöðuflokkurinn, sem lög-
leiddur hefur verið þarlendis frá
því að kommúnistar tóku þar völd
í lok heimsstyijaldarinnar síðari.
Stúdentar mótmæla
„hreinsunum“
Margir tugir stúdenta tóku í
gær á vald sitt Humboldtháskóla í
austurborg Berlínar í mótmæla-
skyni vegna „hreinsana“ sem þeir
saka stjómvöld um að hafa hafið
gegn vinstrisinnuðum mennta-
mönnum í landshlutum þeim sem
áður vom austurþýska ríkið. Yfir-
völd Berlínar fara fyrir sitt leyti
ekki leynt með að ásetningur
þeirra sé að útrýma „forhertum
hugmyndafræðilegum öflum" úr
skólakerfi austurfylkjanna. Stúd-
entar í Berlín og víðar segja þenn-
an leik nýrra ráðamanna til þess
gerðan að þagga niður í vinstri-
menntamönnum almennt.
Eiturlyfjahákarl
gefstupp
Fabio Ochoa, einn af þremur
helstu forkólfum Medellínhrings-
ins, eins voldugasta eiturlyfja-
hrings í heimi, gaf sig á vald kól-
ombískum yfirvöldum í fyrradag.
Hrósar Kólombíustjóm uppgjöf
Ochoa, sem farið hefúr huldu
höfði lengi, sem miklum sigri í
baráttunni við kókaínhringana
þarlendis og segist gera sér vonir
um að þetta sé upphafið að upp-
lausn þeirra.
6 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. desember 1990