Þjóðviljinn - 20.12.1990, Blaðsíða 11
Ámi Bergmann skrifar um bókmenntir
Mig langar í land
minna drauma
Bak við hafíð
Úrval úr ljóðum
Jónasar Guðlaugssonar.
Hrafn Jökulsson gaf út.
Flugur og M&M 1990.
Jónas Guðlaugsson var í
okkar huga maðurinn sem orti
Æskuást, sem er prýðissálmur til
ástarinnar: hvert sem ég fer fmn
ég þig „sem, titrandi óm í auðum
kór / og angan úr tómu keri“.
Kannski er Jónas skáld eins
kvæðis? Má vera og er reyndar
alveg nóg, svo óspilunarsöm er
náttúran og bókmenntimar að
gott má heita ef eitt kvæði lifir.
En Jónas Guðlaugsson, sem dó
árið 1916 aðeins 28 ára að aldri,
hann orti fleira. Og það er
ómaksins vert að rifja upp hvað
hann gerði: Jónas var einn þeirra
sem undirbjuggu það ljóðfrelsi
sem þeir nutu góðs af Stefán frá
Hvítadal og Davíð Stefánsson.
Jónas reyndist sannspár í
kveðjuorðum sínum til þjóðar-
innar:
Eg veit ég söng með veikum
róm
sem var of sjaldan skœr,
en seinna muntu heyra
hljóm,
sem hcerri tónum nœr...
Það er falleg hógværð i
þessu, sem ekki fylgdi Jónasi
alltaf, stundum er hann allt að
því bemskur í oflæti ungskálds-
ins sem lýsir frati á „heimskunn-
ar sauðaþing". Jónas orti stund-
um ádrepur og Heine er kannski
einhversstaðar baksviðs sem fyr-
irmynd, en satt best að segja
vantar skáldið þá lævísi sem þarf
til að írónían rómantíska njóti
sín.
En fyrst og síðast var Jónas
skáld sem reisti sit ljóðhús úr
timbri rómantíkur, hvort við
Jónas Guðlaugsson
heldur köllum hana gamla eða
nýja: úr blóminu bláa og rósinni
rauðu, úr siglingunni til drauma-
landsins og dauðabeygnum sem
grípur hina mjögsiglandi. Og allt
þetta er saman komið í ágætu
kvæði, „Mig langar“ (sem að
vísu getur dottið niður í vand-
ræðaskap eins og „hér er allt það
sem hrærist með bönd“). Þetta er
stefnuskrá og hvatning: ég vil
bálið sem hitar og brennur, ég vil
aflþunga elfu sem rennur, ég vil
ástblómið rauða sem angar, ég
vil horfa á blómið bjarta „sem í
bemskunnar draumi ég sá“ (rétt
eins og Heinrich von Ofterding-
en í sögu Novalisar), ég vil
höggva á mín arfgengu bönd:
Ó mig langar i land minna
drauma,
ó mig langar að árroðans
strönd...
Þessu kynnumst við í snotru
og vel út gefnu kveri, sem Hrafn
Jökulsson hefur saman sett og
skrifað að greinargóðan og hlý-
legan formála.
Efinn er þar líka
Árni Ibsen
Árni Ibsen
Vort skarða líf
Handafl 1990.
Allmörg ljóð í þessu kveri
eru ofur fáorð á japanska vísu.
Stundum verða þau einum of „al-
menn“ í mynd og hugsun
(„dauðinn skín gegnum lifið, sól-
argeisli gegnum vatnsdropa").
En oftar er það þó að þessi spar-
semi heppnast dável eins og í
þessu ljóði hér sem heitir Vafa-
laust:
og þegar loks
allt var
Ijóst var
efinn þar
lika.
1 þessu ljóðakveri kennir
fleiri grasa en íslensk-japanskra.
Þar er leikið með orð eins og í
kvæðinu Til+liT og er þá óvíst
hvort málfræðin og tilfinning-
amar nái landi saman. Þar em
sagðar hér- um-bil smásögur
(Einmana kona miðaldra, Jóla-
kort), sem virðast fúll átakalitlar
þótt þær séu sannar svo langt
sem þær ná. Þar er með ágætum
fylgt eftir einni líkingu sem lýsir
vel dapurlegu hlutskipti þeirra
sem skamma leið eiga ófama:
„Gamalt fólk er eins og afskorin
blóm.“ Og Ami lbsen færist
reyndar allur í aukana þegar
hann tekur að sér að vera dular-
fúllur og kannski mælskur í til-
vistarmálunum. Eins og til dæm-
is í löngu kvæði sem heitir „Þú
sem hefúr allt á þurru“ og má lík-
ast til túlka sem uppreisnarsam-
tal við Guð sem er svo skelfilega
þögull andspænis ófamaði
heimsins:
En þú hélst áfram að þegja
ogþegja
ogflóðið hœkkaði ogskerið
minnkaði...
Já, það er ýmislegt vel bita-
stætt i þessari ljóðabók sem Árni
Ibsen sendir frá sér fimmtán ár-
um eftir að hans fyrsta bók kom
út.
110 kvæði
Jóns úr Vör
Jón úr Vör hefúr nú dreift í
nokkrar bókabúðir ljóðasafninu
100 kvæði sem Helgafell gaf út
árið 1967 i samantekt Einars
Braga skálds. Þetta er sá hluti
upplagins sem skáldinu bar sam-
kvæmt samningi við útgefanda.
Bókin er löngu horfin af almenn-
um markaði svo gamlir og nýir
aðdáendur skáldsins taka áreið-
anlega þeim fáu eintökum sem
eftir em fagnandi hendi. Líklegt
er að hún seljist upp fyrir jól. Ný
kápa er utanum safnið og öll ein-
tökin árituð.
Fyrsta bók Jóns, Ég ber að
dymm, kom út árið 1937 og sú
síðasta Gott er að lifa 1984. Alls
em þetta 12 ftumútgáfúr, ævi-
verk sem orðið er mikils metið
hjá þjóðinni.
Ljóð Jóns úr Vör hafa farið
víða um lönd þó sjálfúr sé hann
hlédrægur. Kvæði hans hafa ver-
ið þýdd á margar þjóðtungur m.a.
ensku, rússnesku, sænsku,
norsku, finnsku, þýsku og
dönsku. Víða er um fleiri en eina
útgáíú að ræða.
í DAG
ÞJ0ÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
Allsherjaratkvæðagreiðslan 1
Dagsbrún. Verið á verði Dags-
brúnarmenn! Dagsbrúnarmenn!
Segið já við fyrstu spumingunni,
nei við þriðju spurningunni.
Prestkosningamar voru ólög-
mætar í öllum sóknum. Sigur-
björn Einarsson og Jón Auðuns
fengu flest atkvæði I Hallgrims-
sókn, Jón Thorarensen í Nes-
sókn. Það verður að byggja
skúr yfir verkamennina við flug-
völlinn. Aðbúnaðurinn, sem
Bretarnir bjóða upp á, er óþol-
andi. Guðmundur Ó. og Harald-
ur Guðmundsson banna Jóni
Rafnssyni og Sveini Sveinssyni
20. desember
fimmtudagur. 354. dagur ársins.
Sólarupprás ( Reykjavík kl.
11.21-sólarlag kl. 15.30.
Viðburðir
Eldgos (Eyjafjallajökli hefst
1821. Timaritið Samstaða, gefið
út af Vietnamnefndinni á (slandi
hefurgöngu sina 1972. 10
manns farast (snjóflóði ( Nes-
kaupstaö 1974. Eldgos ( Leir-
hnjúki 1975.
að gæta réttar sfns. Þeir sem
ætla aö gera rétt óttast aldrei
eftirlit. Hversvegna óttast þeir
Guömundur og Haraldur eftirlit?
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúða vikuna 14. til 20. desember er
í Laugavegs Apóteki og Holts Apóteki
Fyrmefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á frldögum).
Siöarnefnda apótekið er opið á
kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á
laugardögumkl. 9-22 samhliða hinu
fyrmefnda.
LÖGGAN
Reykjavik ® 1 11 66 tt 4 12 00
Seltjamames » 1 84 55 tr 5 11 66
Garðabær. Akurevri « 5 11 66 tr 2 32 22
Sökkvffið og sjúkiabðar Reykjavík t» 1 11 00 Kónavoaur « 1 11 00
Seltjamames Hafnarfjörður. tt 1 11 00 tr 5 11 00 tt 5 11 00
Akureyri « 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrír Reykjavik, Seltjam-
arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar-
stöð Reykjavikur alla virka daga frá kl.
17 til 8, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiönir,
slmaráöleggingar og tfmapantanir I
tr 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu eru gefnar í símsvara
18888. Borgarspitalinn: Vakt virka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eða ná ekki til hans.
Landspitalinn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarsplt-
alans er opin allan sólarhringinn,
« 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, tr 53722. Næturvakt lækna,
tr 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt,
tr 656066, upplýsingar um vaktlækni
n 51100.
Akureyri: Dagvaktfrá kl 8 til 17 á
Læknamiöstööinni, « 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, tr 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsimi).
Keflavík: Dagvakt, upplýsingar I
« 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
n 11966.
SJÚKRAHUS
Heimsóknartímar: Landspitalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir
samkomulagi. Fæðingardeild Land-
spltalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra-
timi kl. 19:30 til 20:30. Fæöingar-
heimili Reykjavíkur v/Eiriksgötu: Al-
mennur tími kl. 15-16 alla daga, feðra-
og systkinatími kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlækningadeild Landspítal-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19,
umnelgarkl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstööin viö Barónsstig: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Barnadeild: Heim-
DAGBÓK
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. St. Jósefs-spítali Hafnar-
firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavfk: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauöa kross húsið: Neyðarathvarf
fyrir unglinga, Tjarnargötu 35,
tr 91-622266, opiö allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er ( upplýsinga-
og ráðgjafarsima félags lesbla og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Sfmsvari á öðrum
timum. tr 91-28539.
Sálfræðistööin: Ráögjöf I sálfræöi-
legum efnum,tr 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, er veitt I slma 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opiö virka daga
frákl. 8 til 17, n 91-688620.
„Opiö hús” fyrír krabbameinssjúk-
linga og aðstandendur þeirra i Skóg-
arhlíð 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styðja smitaða og
sjúka og aðstandendur þeirra i tr 91-
22400 og þar er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni: tr 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunar-
fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19,
annars slmsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-
21205, húsaskjól og aðstoö við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið
fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaövarpanum,
Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, tr 91-21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum: tr 91-21500,
simsvari.
Vinnuhopur um sifjaspellsmál:
tr 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stígamót, miðstöð fyrir konur og böm
sem orðiö hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Ráðgjöf, fræösla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, *r 91-626868 og 91-
626878 ailan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
tr 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt f
ir 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
tr 652936.
GENGIÐ
19. desember 1990 Saia
Bandarfkjadollar............54,63000
Steriingspund...............106,20200
Kanadadollar.................47,37200
Dönsk króna...................9,59120
Norsk króna...................9,43600
Sænsk króna...................9,81640
Finnskt mark.................15,28530
Franskur franki..............10,87640
Belglskurfranki.............. 1,79360
Svissneskur franki...........43,27800
Hollenskt gyllini............32,88810
Vesturþýskt mark.............37,10680
Itölsklira....................0,04905
Austurrlskur sch..............5,27060
Portúgalskur escudo.......... 0,41790
Spánskur peseti...............0,57880
Japanskt jen..................0,40919
(rskt pund...................98,55400
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 héla 4 öngull
6 tré 7 kerra 9 kven-
mannsnafn 12 friðsöm
14 reglur 15 brún 16
bor 19 dvelur 20 hljóöa
21 deila
Lóörétt: 2 sefa 3 tungl
4 litli 5 glöð 7 hlýr 8
hlýðir 10 rimma 11 am-
ar 13 brigð 17 fugl 18
vesöl
Lausn á siöustu
krossgátu
Lárétt: 1 stál 4 gogg 6
úir 7 spök9ösla 12
raust 14 roð 15 ótt 16
urður 19 magi 20 nafn
21 aflar
Lóörétt: 2 táp 3 lúka 4
grös 5 gíl 7 skráma 8
örðuga 10 stórar 11 aft-
ann 13 urð 17 rif 18
una
Fimmtudagur 20. desember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11