Þjóðviljinn - 18.01.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 18.01.1991, Blaðsíða 5
Heklugos eru alltaf mikilfengleg að sjá, en að þessu sinni er engin hætta talin vera á ferðum. Talsvert hraun rennur úr þremur sprungum. Gosmökkurinn er talinn hafa náð 12 kílómetra hæð, en árið 1947 er álitið að þessi mökkur gufu og ösku hafi náð tvöfaldri þeirri hæð. Mynd: Kristinn. Hekla spýr eldi og eimyrju Niðurstaða vísindamanna eftir Hekluskoðun í gærkvöldi: Gosið nú minnir á það sem varð árið 1980 og er frekar minni háttar. Öskufall varð í Suður-Þingeyjarsýslu. Engin hætta er á ferðum enn sem komið er Þetta gos minnir mjög á gosið sem varð í fjallinu árið 1980. Þetta er fremur minni háttar gos og byggð stafar eng- in hætta af því enn sem komið er, sagði Axel Björnsson jarð- fræðingur við blaðamann Þjóð- viljans í gærkvöldi. Þjóðviljinn varð samferða Axel og þremur öðrum jarðvísindamönnum yf- ir gosstöðvarnar í Heklu með Fokker-vél Landhelgisgæsl- unnar í gærkvöldi. Gosið í Heklu var þá óneitanlega mikil- fengleg sjón, enda þótt vönum mönnum þyki ekki mikið til þess koma miðað við gosið sem varð í fjallinu árið 1947. Gló- andi hraunstraumar ruddu sér leið yfir gamalt hraun úr þessu víðfræga fjalli og eldur og eim- yrja spýttust upp úr sprungum. Þetta er fyrsta gosið á íslandi síðan Krafla gaus árið 1984. Bjarmi af gosinu sást um leið og komið var í loftið frá Reykja- vík í gærkvöldi og herma fregnir að það hafi sést víða að, jafnvel frá Breiðafirði. Öskufall varð í Suður- Þing- eyjarsýslu, nánar tiltekið í Mý- vatnssveit, Laxárdal og Bárðar- dal. Öskufall verður venjulega talsvert í fyrstu, en það dregur verulega úr því fáum klukku- stundum eftir að gos hefst. Þrjár sprungur Gosið hófst um klukkan fimm síðdegis í gær, eftir að vart hafði orðið við gosóróa nokkru áður. Þessi órói verður þegar hraun- kvikan ryður sér leið til yfirborðs- ins. Talið er að mökkur vatnsgufú og ösku hafi náð 12 kílómetra hæð, en til samanburðar má geta þess að í gosinu mikla árið 1947 er álitið að mökkurinn hafi náð tvöfaldri þeirri hæð. Eftir að jarðvísindamennimir, sem flugu yfir Heklu í gærkvöldi á vegum Almannavama rikisins, höfðu borið saman bækur sínar, urðu þeir sammála um að sprung- umar væm þrjár og rynni talsvert hraun ffá þeim. Annars var skyggni ffekar slæmt og erfitt að átta sig á aðstæðum. Þannig sást háfjallið aldrei í þessum leið- angri. Spmnga liggur frá Axlargíg í suðvestur eflir fjallinu. Frá henni rennur 1100 stiga heitt hraunið til norðvesturs. Næstu bæir við spmnguna em Selssund og Næf- urhóll, en þeim stafaði engin hætta af hrauninu. Tíö gos Auk þess rennur hraun í norð- ur og suður frá Axlargíg. Önnur spmnga liggur eftir Hekluhryggnum í norðaustur, eft- ir því sem næst verður komist. Hraun úr henni rennur í austur með stefnu á Mundafell. Þriðja spmngan var talin liggja í austur af fjallinu. Ef þetta gos hagar sér svipað og gosið sem varð 1980 má gera ráð fyrir að það verði stutt. Þetta er fimmta gosið í Heklu á þessari öld. Það mesta varð 1947, en sú gamla gaus aftur 1970, 1980, 1981 og nú. Hin mikla tiðni gos- anna síðastliðna tvo áratugi er tal- in benda til þess að þetta gos verði stutt og minni háttar. Það hefur verið trú manna að Hekla gjósi sjaldan, en Axel Bjömsson segist halda að sú trú geti stafað af stopulum heimild- um. Hann segir alls ekki vist að gos á borð við þau sem urðu 1980 og 1981 hefðu komist í annála áð- ur fyrr. - Það er mögulegt að ann- álar hafi einungis fjallað um stærri gos. Ég held það sé að koma i ljós að Hekla hagar sér öðravísi en áður var haldið og at- huganir vegna gerðar jarðffæði- korts af fjallinu styðja þá hug- mynd. Það hafa verið að finnast ummerki um smærri gos sem ekki var vitað um áður; gos sem ekki hafa komist í annála, segir Axel. Á meðan Fokkeriim var í loft- inu við Heklu streymdu bílar þangað austur og mergð bílljósa var að sjá í ekki svo ýkja mikilli fjarlægð ffá hraunelfinni sem streymdi í norðvestur. Það er enda fátt sem bendir til þess að þetta Heklugos verði annað en nokkurs konar skemmtigos, þótt engin leið sé að spá um framvindu þess- ara útbrota að sögn jarðvísinda- manna. Skýrslan sem Guðjón Föstudagur 18. janúar 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5 Pedersen fékk i gærkvöldi var að minnsta kosti á þá leið að engin hætta væri á ferðum. -gg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.