Þjóðviljinn - 18.01.1991, Page 9

Þjóðviljinn - 18.01.1991, Page 9
„Þótt hallað hafi undan í byggðamálum um skeiö má það ekki verða til að menn loki augunum fyrir þeim miklu möguleikum sem eru til öflugrar byggðaþróunar víða um land“ segir Hjörleifur Guttormsson meðal annars í helgarumræðu. Nú í ársbyrjun er ástæða til að staldra við og íhuga stöðu byggðamála í landinu. Byggðamálin eru hluti þjóðmálanna og verða að skoðast í samhengi við þau og ríkjandi stefnu í landsmálum á hveijum tíma. Mælikvarðinn sem við leggjum á stöðu byggðamála er m.a. þróun íbúafjölda í einstökum byggðum eða landshlutum, þróun atvinnuframboðs og staða atvinnu- vega, félagslegar og menningarlegar að- stæður og síðast en ekki síst verð á lífs- nauðsynjum og jöfnun á aðstöðu manna óháð búsetu. Lítum fyrst á nokkra almenna drætti. Jákvæöar aögeröir stjómvalda Ríkisstjóminni sem nú situr hefiir með aðgerðum sínum tekist að rétta við stöðu margra fyrirtækja í sjávarútvegi, sem kom- in voru í þrot er hún tók við haustið 1988. Einnig hefur efnahagsstefna stjómarinnar leitt til mikillar hjöðnunar verðbólgu sem almennt hefur haft jákvæð áhrif á rekstur fyrirtækja og bætt stöðu lántakenda, m.a. þeirra sem skulda vegna húsbygginga. Þá má benda á aðgerðir sem lengi hafa verið á dagskrá eins og breytta verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga. Þar var stigið allstórt skref fyrir tveimur ámm, sem talið er að á heildina litið hafi skilað umtals- verðri hagsbót fyrir sveitarfélögin. Einnig hefur ríkisstjómin beitt sér fyrir nokkmm sértækum aðgerðum í byggðamálum, m.a. jöfnun símgjalda og áætlun um gerð jarð- ganga á Vestfjörðum og Austfjörðum. Skógrækt ríkisins hefur flutt aðalstöðvar sínar í Egilsstaði og sérstakt skógræktar- átak bænda er að hefjast á Héraði. Oll þessi dæmi sýna að vemlegu má til leiðar koma, ef pólitískur vilji er fyrir hendi. Mat byggöastofnunar: „ískyggilegar horfur“ Allt er þetta góðra gjalda vert, svo langt sem það nær. Hinu er ekki að leyna að stuðningsmenn ríkisstjómarinnar hefðu vænst snarpari átaka af hennar hálfu til að leiðrétta stöðu landsbyggðarinnar. Aðgerð- ir til verðjöfhunar á orku til húshitunar hafa dregist úr hömlu og of lítið hefur borið á stuðningi við nýsköpun í atvinnulífi á landsbyggðinni. Bein fólksfækkun heldur áfram ár frá ári í flestum landshlutum og fjölgunin kemur nær öll á suðvesturhomið. I ársskýrslu Byggðastofnunar fyrir árið 1989, sem kom út sl. haust, er að finna eft- irfarandi mat: „Það er skoðun stofnunarinnar að horfur um þróun byggðar á næstu árum og áratugum séu mjög ískyggilegar og að nauðsyn sé að móta nýja byggða- stefnu og hefja skipulegar aðgerðir til að breyta hinni fyrirsjáanlegu þróun.“ Vert er að hafa í huga að Byggðastofn- un er þingkjörin stjóm sem í eiga sæti full- trúar úr flestum þingflokkum. Aðvörunar- orð eins og þau sem hér er vitnað til ber að taka alvarlega. Alltof lítið hefur i reynd verið aðhafst til að hamla gegn og stöðva þá óheillaþróun sem sett hefur mark sitt á landsbyggðina. Stórmál sem vinna gegn landsbyggöinni Því lengur sem það dregst að gripið sé til róttækra aðgerða, þeim mun erfiðara verður viðfangsefhið. í Ijósi þeirrar stöðu sem hér hefur verið rædd er það þeim mun alvarlegra, að ýmis stórmál, sem lögfest hafa verið eða em í deiglu hjá stjómvöldum vinna gegn lands- byggðinni og því markmiði að stemma stigu við fólksflóttanum þaðan. Þar ber þrennt einna hæst um þessar mundir: * Fyrirkomulag fiskveiðistjórnir með hömlulausri sölu á kvóta burt úr byggðarlögum, sem þannig er hægt að ræna lífsbjörginni. * Áformin um Evrópskt efnahags- svæði sem byggja á óheftum markaðslög- málum varðandi fjármagn og þjónustu. * Undirbúninginn að nýrri risaál- bræðslu á Keilisnesi skammt vestan Hafn- arfjarðar. Um öll þessi atriði er mikill pólitískur ágreiningur í landinu. Þeir sem styðja það markmið að viðhalda og efla byggð í öll- um landshlutum hljóta að hugsa sig um tvisvar áður en þeir styðja framgang þessara mála eða festa þau í sessi. Það er til lítils að hafa uppi viðleitni i byggðamál- um á öðrum sviðum, ef ákvarðanir sem mestu máli skipta eru af allt öðrum toga. Öfugsnúin húsnæöisstefna Sá málaflokkur sem hvað mestu veldur um viðhorf fólks til búsetu eru húsnæðis- mál og þróun fasteignaverðs. Þetta á við í meiri mæli hér á landi en víða erlendis vegna þeirrar séreignastefnu varðandi íbúðarhúsnæði, sem hér hefur orðið ríkj- andi. Vegna verðtryggingar og hárra vaxta lengst af á siðasta áratug hefur húsnæðiss- kostur fólks margfaldast og verð á fasteign- um jafhftamt þróast landsbyggðinni mjög í óhag. Byggingarkostnaður er hins vegar síst minni úti um land en á höfuðborgar- svæðinu. Þetta hefur valdið því að þeim hefur fækkað til muna sem ráðast í nýbyggingu íbúðarhúsnæðis utan höfuðborgarsvæðis- ins. Lítið sem ekkert hefur verið gert til að hvetja fólk til að eignast húsnæði úti á landi, t.d. með því að veita því forgang um afgreiðslu lána eða hagstæðari iáns- kjör vegna húsbygginga eða kaupa á húsnæði. Einnig hefur alltof lítið verið um byggingu leiguhúsnæðis eða félags- legs húsnæðis á stöðum úti á landi sem hafa almennar forsendur til vaxtar. Síðasta hugmynd ráðamanna í húsnæð- ismálum er að leggja niður almenna hús- næðiskerfið og taka í þess stað upp húsbréf sem einskonar allsherjarlausn. Við það ger- ist tvennt: Vextir á húsnæðislánum yrðu markaðstengdir að fullu og lánsupphæð fer eftir fasteignamati en ekki áætluðum bygg- ingarkostnaði. Augljóst er að með upp- töku þessa kerfis væri verið að bæta gráu ofan á svart fyrir húsbyggjendur víðast hvar úti um land. Sem betur fer ákvað ríkisstjómin rétt fyrir jólin að staldra við og athuga betur málavöxtu áður en slík kerfisbreyting yrði ákveðin, m.a. með tilliti til landsbyggðarinnar og efnalítils fólks sem er að byggja eða kaupa húsnæði i fyrsta sinn. Hvaða vit er i því að byggja upp kerfí, sem fullnægja á eflirspum eftir Qármagni til húsnæðismála á markaðsforsendum ein- um saman? Slíkt kerfi magnar upp byggða- flótta í landinu, skilur eftir sig ónotað hús- næði og eyddar byggðir víða um land en ' ' W Snuum vorn i ■ „þörfinni" yrði ekki fullnægt með nýbygg- ingum og auknum vanda á mörgum svið- um á höfuðborgarsvæðinu. Brýnt er að taka húsnæðismálin öðr- um tökum en hingað til að því er lands- byggðina varðar þannig að húsnæði- sekla valdi ekki stöðnun á stöðum þar sem fólk vill setjast að og atvinna og aðr- ar forsendur eru fyrir hendi. Lands- byggðin ætti að hafa algjöran forgang á fjármagni vegna félagslegra íbúða. Jafn- framt þarf að færa umsýslu og vald í þessum málaflokki út í Iandshlutana og leggja niður Húsnæðisstofnun ríkisins í núverandi mynd. Fækkun íbúa og sérstaklega kvenna Á liðnu ári hélt áfram fólksflótti af *Atvinnuþróun, sem taki mið af fjöl- breytni í störfum og atvinnu fyrir konur sérstaklega. * Sjávarútvegsstefna,sem taki tillit til heildarhagsmuna og tryggi m.a. þróun fisk- iðnaðar og veiðirétt (kvóta) tengdan byggðarlögum. * Landbúnaðarstefna, þar sem hefð- bundinn búskapur verði skipulagður eftir landkostum og markaði og bústærð verði lífvænleg. * Iðnráðgjöf og önnur ráðgjafa- og þró- unarstarfsemi fyrir atvinnulífið úti um land verði aukin og samræmd. * Orkuiðnaður (stóriðja) verði staðsett- ur utan Suðvesturlands. * Ferðamannaþjónusta taki mið af byggðastefhu og landvemd. * Útflutnings- og innflutningsverslun landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins, sem einkennt hefur allan síðasta áratug. Undanfarin sjö ár hefur orðið bein fækkun íbúa ár hvert Iitið á landsbyggðina í heild og öll fjölgunin komið fram á höfiiðborgar- svæðinu. Þessi öfugþróun hefur gengið misjafnlega nærri einstökum kjördæmum, t.d. hefur blóðtakan verið enn alvarlegri á Vestfjörðum en á Austurlandi og miklar sveiflur eru milli einstakra byggðarlaga. Það er hins vegar heildarniðurstaðan á þessu tímabili sem segir okkur hvert stefnir í aðalatriðum. Á Austurlandi var skráð 381 manns fleira 1. des. 1990 en var fyrir 10 árum (+3%) og frá 1985 hefur íbúatalan nánast staðið í stað. Á Vestfjörðum hefur orðið bein fækkun sem nemur um 700 manns eða sem svarar -6,6% síðustu 10 árin. Víðast hvar hefur fækkað til muna í sveitum á þesssu tímabili sem þykir kannski ekki til- tökumál, en þegar íbúatala stendur i stað í kaupstöðum eða íbúum fækkar eins og gerðist sums staðar hér eystra á síðasta ári er farið að syrta verulega í álinn. Ibúatalan ein segir heldur ekki alla sögu, því að við bætist afar óhagstæð aldurssamsetning víða í sveitum og kon- ur eru til muna færri en karlar í öllum kjördæmum utan Reykjavíkur. Á Aust- urlandi eru þannig 567 færri konur en karlar. Þetta segir okkur m.a. að engan veginn er einhlítt að horfa á fjölgun starfa almennt þegar atvinna er annars vegar, heldur verður að gera sérstakt átak til að skapa störf sem laða til sin konur. Þar er vissulega nærtækt að líta til margvíslegra þjónustustarfa, en einnig þarf að hafa í huga iðnað og önnur verk sem höfða til kvenna. Ferðaþjónusta er dæmi um atvinnu sem munað gæti um í þessu samhengi. Hér er ekki rúm til að fjalla í löngu máli um nauðsynlegar aðgerðir til að rétta af stöðuna í byggðamálum, enda hef ég oft fjallað um einstaka þætti þessara mála. Vcrt er að undirstrika, að ekkert eitt skiptir sköpum i þessum efnum, heldur þurfa til að koma samþættar og vel hugsaðar aðgerðir, sem renna stoðum undir gott mannlíf og trausta afkomu í öllum landshlutum. Ég læt hér fylgja sem dæmi upptaln- ingu á nokkrum atriðum sem gefa þarf gaum að við mótun öflugrar byggða- stefnu: * Samgöngubætur með áherslu á teng- ingu innan þjónustusvæða og gerð jarð- ganga þar sem þörf krefur. verði skipulögð svæðisbundið. * Nýtt stjómsýslustig, héruð eða fylki, sem taki við fjármagni og verkefnum frá ríkinu. * Svæðisbundin opinber þjónusta flytj- ist út i hémðin, bæði vald og verkefni. * Húsnæðismál taki mið af byggða- stefhu, sbr. ofanritað. * Jöfhun kostnaðar við orku og fjar- skipti. * Flutningskostnaður og fargjöld verði jöfnuð og samræmd. * Jafhrétti til skólagöngu með jöfnun kostnaðar. * Menningarstarfsemi njóti viðtæks stuðnings. * Fjármálalegar aðgerðir til jöfhunar á tekjum sveitarfélaga og afkomu einstak- linga. Slík byggðastefiia felur vissulega í sér stýringu á mörgum sviðum og hömlur gegn blindum markaðslögmálum. En hún er engu að síður þjóðhagslega skynsamleg og nauðsynleg, ef menn ætla að viðhalda hér byggð og þjóðlífi sem rísi undir nafni. Til að knýja hana ffam þarf í senn hugsun, vilja og stjómmálalegt afl. Alþýöubandalagiö veiti forustu Þótt hallað hafi undan í byggðamálum um skeið má það ekki verða til að menn loki augunum fyrir þeim miklu möguleik- um sem em til öflugrar byggðaþróunar víða um land. Ýmsar þær aðgerðir sem nú- verandi ríkisstjóm hefur beitt sér fyrir stefna í rétta átt og sýna að undanhald í þessum efnum er ekkert náttúmlögmál. Alþýðubandalagið þarf sérstaklega að beita sér fyrir nýrri sókn í byggða- málum og taka höndum saman við alla þá sem Ijá vilja þeim málstað lið. Hjörleifur Guttormsson Frá ritstj.: Grein þessi birtist sem áramótahugleiðing í vikublaðinu Austurlandi 9. janúar og er hér birt lítið eitt stytt með leyfi höfundar. Hjörleifur Guttormsson er þingmaður Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi Föstudagur 18. janúar 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.