Þjóðviljinn - 18.01.1991, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 18.01.1991, Qupperneq 10
Er kvenfrelsisbaráttan á kostnað barnanna? Þannig spyr Helga Sigurjónsdóttir í helgarviðtali um árangur og fómir kvenfrelsisbaráttunnar síðustu 20 árin Ifebrúarmánuði 1970 geisuðu harðar deilur á Alþingi og meðal almennings á íslandi, einkum kvenna, um það, hvort veita œtti Kvennaskólanum i Reykjavik réttindi til þess að brautskrá stúdenta. Hópur kvenna stóð fyrir undirskrifta- söfnun gegn þessum fyrirœtlunum ríkisstjómarinnar, ogsendi tilAl- þingis. Þetta var sama árið og Rauðsokkahreyfingin á Islandi var stofnuð, og það munu hafa verið að miklu leyti sömu konurn- ar sem stóðu að undirskriftasöfn- uninni til Alþingis og stofnun Rauðsokkahreyfingarinnar. Bentu þœr á að í fylgislgali með frumvarpi rikisstjórnarinnar um þessa heimild vœri sagt að auk hefðbundinna greina yrðu i hin- um fyrirhugaða kvennamennta- skóla „ lögð áhersla á námsgrein- ar sem sérstaklega vœru við hæfi kvenna “ og töldu að þetta myndi vera viðleitni til þess að auka á hefðbundna verkaskiptingu kynj- anna innan og utan heimilis. Töldu konumar þetta ganga þvert á gagnkvœmar skyldur, ábyrgð og réttindi karla og kvenna innan og utan heimilisins og settu það skilyrði aðfyrirhug- aður menntaskóli i Kvennaskól- anum yrði einnig opnaður piltum. Magnús Kjartansson gerðist talsmaður þessa sjónarmiðs á Al- þingi, vitnaði i röksemdir kvenn- anna og náði fram þessum kröf- um um aðgang pilta að Kvenna- skólanum með sinni alkunnu málafylgju eftir harðvitugar deil- ur. Því eru þessar deilur rifjaðar upp, að þær koma nú, 20 árum síðar, nokkuð undarlega fyrir sjónir, og trúlega mundu flestar þær rauðsokkur, sem fyrir 20 ár- um börðust gegn stofnun kvenna- menntaskóla á íslandi, gjaman vilja eiga slíka stofnun nú. Þótt ekki væri nema sem eins konar vígi fyrir þá menningu og hefðir sem tengjast konum sérstaklega. Þessi saga sýnir okkur hvemig tímamir eru breyttir og hvemig forsendur kvenfrelsishreyfingar- innar hér á landi hafa breyst á að- eins 20 ámm. Nýtt Helgarblað fór á fund Helgu Sigurjónsdóttur námsráð- gjafa, sem var ein af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar fyrir rúmum 20 ámm og hefur verið ein ötulasta baráttukonan fyrir kvenfrelsi hér á landi síðustu tvo áratugina, til að ræða við hana um þróun og árangur þessarar bar- áttu, hvemig og hvers vegna áherslur og baráttuaðferðir væm nú breyttar, og hver væm brýn- ustu verkefni kvenfrelsishreyf- ingarinnar í dag. Menntaskóli fyrir konur -Helga, varst þú ein þeirra kvenna sem risu upp gegn stofnun kvennamenntaskóla i Reykjavík 1970, og hvemig horfir það mál við þér i dag? -Nei, ég var nú frekar tvíbent í því máli, og taldi þetta ekki mik- ilvægt mál á þeim tíma. Núna get- um við hins vegar séð, að það var skaði að skólinn skyldi hætta að vera kvennaskóli, og að það væri mikill akkur í því að hafa starf- andi sérstakan kvennamennta- skóla í þessu gamla húsi, skóla sem hefði getað þróað sig og menntastefnu sina út frá forsend- um kvenna. Þetta verður ekki síst ljóst ef við lítum til þessa gamla húss, þar sem kvennamenningin er svo lifandi ffá sögulegu sjónar- miði. Núna er karlmaður hins vegar sestur í skólastjóraskrifstof- una í Kvennaskólanum... -En konur óttuðust það á þessum tíma að einmitt þœr kven- legu hefðir sem skólinn byggði á yrðu notaðar gegn þeim i jafn- réttisbaráttunni? -Jú, það er rétt. Þetta vom konur i baráttuhug og í nauðsyn- legri uppreisn. Það var á þessum tíma eðlilegt að þær óttuðust ein- mitt þetta. Vegna þess að ákveðin störf og viðhorf, sem konum voru tengd, vom notuð gegn konum sem liður í þeirri almennu kvennakúgun sem þá viðgekkst og viðgengst reyndar enn. Það var eðlilegt á þessum tíma að þær ótt- uðust þetta og það er alltaf auð- velt að vera vitur eftirá. Hliðstæð- ar viðhorfsbreytingar hafa einnig átt sér stað meðal baráttuhópa kvenna annars staðar. A6 prjóna f felum -En hver er skýringin? -Þegar konur em komnar langt niður félagslega, andlega og fjárhagslega, eins og var á þessum tíma, þá er eðlilegt að pendúllinn sveiflist svo langt þegar þær loks- ins taka við sér. Við getum líka séð þetta úr réttindabaráttu hör- undsdökkra, sem er í flestum efn- um hliðstæð réttindabaráttu kvenna. Hömndsdökkir menn litu í fyrstu upp til hvíta mannsins og reyndu að apa upp eftir honum í sem flestu. Þegar þeir komast áleiðis í baráttunni fara þeir að koma auga á það jákvæða og sterka í eigin ranni og þora að gangast við því. Og smám saman fara þeir að líta á það sem styrk, sem áður þótti veikleiki, sem þeir vildu ekki vita af. Þannig gekk þetta fyrir sig hér á landi á 8. áratugnum. Eftir að þannig hafði gengið í tíu ár með þeim hörðu starfsaðferðum sem því fylgdi, vom konur famar að þrá ýmislegt annað í þessari bar- áttu. Þær fundu að bannhelgin sem hvílt hafði á ýmsum hefð- bundnum kvennastörfum, til dæmis prjónaskap og almennum heimilisstörfum, var ekki réttlæt- anleg. Margar konur höfðu gaman af þessum störfum, en fóm leynt með það. Ég pijónaði til dæmis á laun í nokkur ár. Kvennamenning -Hvað olli straumhvörfunum og hvenœr gerðusl þau? -Það var um sumarið 1981, og mér fannst það koma eins og frelsandi leysing þcgar við kváð- um upp úr með þetta. Ég vann þá í sumarafleysingum eins og svo oft áður sem blaðamaður á Þjóð- viljanum, og laumaði þá inn í blaðið, við litlar vinsældir að ég held, umræðu um svokallaða kvennamenningu undir formerk- inu ,;mér er spum“. Ég byijaði þessa umræðu með því að spyija Helgu Kress hvort hún héldi að til væri eitthvað sem héti kvennamenning. Þetta hugtak er reyndar upphaflega bandarískt, en Berit Aas tók það upp í norskri umræðu þegar 1973. Berit, sem er virtur háskólakennari og stórt nafn í norskri kvennapólitík, kom hingað til lands á ráðstefnu 1981 ásamt með Torild Skard, og ég átti við þær viðtal. Mér þóttu þessar konur bæði djarfar og hressar og þær kveiktu á vissan hátt í mér. Nú, Helga Kress svaraði til- skrifum mínum vel, eins og henn- ar var von og vísa, og varpaði málinu áfram yfir til Kristjönu Gunnarsdóttur, ef ég man rétt. Þá var þetta farið að vekja vissa and- úð á blaðinu og þetta vakti ekki síður ugg meðal ýmissa kvenna á vinstri vængnum. En þama var hugtakinu kvennamenningu kom- ið á ffamfæri, og ég gerði það meðvitað og notaði þennan vett- vang til þess. Marx-lenínisminn og kvenfrelsiö -Hver urðu fyrstu viðbrögðin innan Rauðsokkahreyftngarinn- ar? -Þessi nýja hugsun varð strax umdeild, bæði meðal kvenna og karla. Við Helga Kress tókum upp þessa umræðu á fundi sem hald- inn var í Sokkholti um hugsanlegt kvennaframboð um svipað leyti og skrifin birtust í Þjóðviljanum. Það er auðvelt að vera vitur eftirá, en það var skaði að frumvarpið um kvenna- menntaskóla skyldi ekki ná fram að ganga... Á þessum tíma vora margar Vinstrisinnaðar konur i Rauð- sokkahreyfmgunni sem störfuðu þar á forsendum hreins marx-len- ínisma, eins og til dæmis Hildur Jónsdóttir. Þær tóku þessum hug- myndum illa þar sem þær gengu þvert á hugmyndir þeirra um stéttabaráttu sem forsendu kven- frelsis. Síðan gerðist það í september, að haldinn var fundur í Norræna húsinu um hugsanlegt kvenna- framboð til borgarstjómarkosn- inga. Ég átti þar í deilum við marx-lenínistana og reyndi að sýna fram á að þeir báðir, Marx og Lenín, hefðu í raun ekki verið minni kvennakúgarar en kapítal- istamir, um leið og ég reyndi að benda á að þessi leið sósíalismans til kvenfrelsis væri vonlaus. Það væri búið að reyna hana svo lengi að við yrðum að stíga upp úr því fari. Þú getur ímyndað þér upplitið á Hildi Jónsdóttur og hennar skoðanasystram við þessar að- stæður. Við skiptumst í raun og vera í tvö hom: sumar sem líka vora vinstrisinnaðar urðu upp- tendraðar af þessari nýju hugsun, og úr þessari umræðu kom svo grandvöllur Kvennaffamboðsins og Kvennalistans. Hinar, sem vora trúar sínum marxisma, vildu ekki vera með. Það var upphafið að endalokum Rauðsokkahreyfingarinnar að mínu mati. Farvegir baráttunnar -Það er ekki hœgt að neita því að Kvennalistinn hefur náð umtalsverðum árangri á hinum pólitíska vettvangi, en þó fer ekki hjá því að maður fái það nú á til- finninguna að þessi þingræðis- legi vettvangur kvenfrelsisbarátt- unnar sé orðinn þreyttur eða haft jafnvel runnið sitt skeið. Að minnsta kosti verðum við ekki vör við þann neista sem eitt sinn var áberandi í þessari baráttu. Hvemig lítur þú á málin? Er kvenfrelsisbaráttan orðin lokuð inni í hinuþingrœðislega kerft? —Jú, það er kannski nokkuð til í þessu, en það á sér líka sína skýringu í okkar þjóðfélagsgerð og fámenninu sem hér er. Fá- mennið gerir það einfaldlega að verkum, að einn aðili leiðir barátt- una á hveijum tíma og verður mest áberandi. Kvenréttindafélag íslands, sem var stofnað 1907, gegndi þessu hlutverki í kvenfrelsisbar- áttunni ffam til 1970, þegarRauð- sokkahreyfmgin var stofnuð. Þá kom það að vísu til greina að hreyfingin gengi í Kvenréttinda- félagið. Niðurstaða umræðunnar varð hins vegar önnur, og ástæðan var ekki síst sú, að okkur fannst félagsform Kvenréttindafélagsins vera staðnað. Það var semsagt frekar ramminn eða félagsformið sem fældi ffá, en ekki sjálf hug- myndafræðin. Mörgum forystu- konum í Kvenréttindafélaginu þótti þetta leiðinlegt, þar á meðal Önnu Sigurðardóttur, sem benti okkur á það á stofnfúndi Rauð- sokkahreyfmgarinnar 1970, að við væram ekki að segja neinn nýjan sannleika, þótt við beittum fyrir okkur öðra félagsformi. „Við vinnukonumar höfúm barist fyrir mörgum þessara mála,“ sagði hún og veitti okkur ofanígjöf sem full þörf var á. Við voram auðvitað ungar og fávísar miðað við vel upplýsta og lífsreynda hugsjóna- konu eins og Önnu. En þetta varð ekki að ágreiningsefúi okkar á milli, hún varð einn af okkar bestu stuðningsmönnum og hún hefúr stutt alla þá baráttu sem hún trúir á og treystir að sé konum til góðs. A6 halda og sleppa í einu —Eftir stofnun Rauðsokka- hreyfingarinnar 1970 verður hún semsagt mest áberandi allt þar til efnt var til kvennaframboðs í sveitarstjómum í Reykjavík og á Akureyri 1982 og endanlega með stofúun Kvennalistans, sem bauð fram í öllum kjördæmum 1983. Kvennalistinn tók í arf skipu- lagsform Rauðsokkahreyfingar- innar, valddreifingu og hreyfingu á fúlltrúum í trúnaðarstöðum o.s.frv. Rauðsokkahreyfingin var raunveraleg grasrótarhreyfing en Kvennalistinn haslar sér hins veg- ar völl í mjög stigskiptu valda- kerfi þar sem er þingið, og hann hefúr átt í basli með að sameina þessi tvö hlutverk sín, að vera grasrótarhreyfing og þingflokkur. I þessum efúum er erfitt að halda og sleppa í senn og það er vissu- lega spuming, hvort það gengur til lengdar. Sjálf held ég að mörgum kon- um þyki þetta heldur þröngur vettvangur núna og að þær sé far- ið að hungra í annars konar gras- rótarstarfsemi. En þá er á það að líta að starfið í þinginu er svo tímaffekt og tekur svo mikla orku, að ekki reynist unnt að halda ann- arri starfsemi gangandi samhliða. Svo er heldur ekki ffam hjá því að líta, að þegar apparat eins og þetta er komið í gang er um leið um persónulega hagsmuni að ræða, og alls staðar þar sem persónuleg- ir hagsmunir og peningar koma til sögunnar hefúr reynst stutt í ým- islegt sem gæti reynst á skjön við hugsjónagrandvöll hreyfmgarinn- ar. Barátta borgar sig -En því má heldur ekki gleyma, að með því að fara þing- ræðisleiðina hefúr náðst mikils- verður árangur, bæði fyrir konur og karla. Hvaðeina sem konur era að gera í skipulegri baráttu ber ár- angur. Baráttan borgar sig. Það er einfaldur sannleikur, sem ég segi hiklaust við ungar konur og líka þær eldri sem era orðnar þreyttar og slæptar - þegar þannig er kom- ið eiga þær bara að taka vítamínin sín, fara út að hlaupa og fá sér orku. -En þú saknar þá gömlu gras- rótarhreyfingarinnar? 10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. januar 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.