Þjóðviljinn - 18.01.1991, Page 13
JAX 3101 01A
Bakvið luktar dyr
-Fangar á hinum Norðurlöndunum hafa snöggt um meiri tækifæri til að
vera samvistum við fjölskyldur sinar heldur en íslenskir fangar, sögðu
fangarnir á Litla-Hrauni sem Nýju Helgarblaði var veitt góðfúslegt leyfi
fangelsisyfirvalda á staðnum til að ræða við.
Lífið bak við rimlana á
Litla- Hrauni.
Enginn sældarleikur
að sitja af sér
Það er ekki tekið út með sæld-
inni vera lokaður inni og lifa við
stöðug bönn og aga. Þetta verða
þó þeir 55 karlmenn, sem afplána
dóma á Litla-Hrauni, að sætta sig
við; ekki í nokkra daga, heldur
mánuði ef ekki ár. Sá fangi sem
lengstan tíma hefur setið inni er
búinn að dúsa i fangelsi í 11 ár. En
hvemig skyldi nú lífið ganga fyrir
sig í þeirri einangruðu og smáu
veröld sem fangelsið er?
Það er sjálfsagt hægara sagt
en gert fyrir utanaðkomandi að
setja sig í spor fangans og lýsa
þcim kenndum sem kunna að
hrærast í brjósti hans. En samt
skal reyna.
Hver dagur öörum
líkur
Hver dagur á Litla-Hrauni er
öðrum líkur. Stundvíslega klukk-
an átta eru menn ræstir. Gengið er
til morgunverðar laust fyrir hálfn-
íu. Að morgunverði loknum halda
þeir fanganna, sem því láni eiga
að fagna að hafa vinnu eða leggja
stund á nám á Hrauninu, til sinna
starfa. Hinir væflast um á göngum
eða reyna með ýmsu móti að láta
tímann líða sem hraðast.
Klukkan 11 er gert hlé á vinnu
og gefíð matarhlé til klukkan eitt
er vinna hefst að nýju og stendur
til klukkan hálfþrjú að öllu jöfnu.
Störfin sem fangamir fást við
eru hellusteypa, ffamleiðsla á
númeraplötum fýrir ökutæki og
önnur minniháttar viðvik. Þeir
sem eru í námi eru eitthvað lengur
að á daginn.
Eftir að vinnu er lokið fá
menn að viðra sig úti við á lóð
fangelsisins og stunda íþróttir,
þeir sem það vilja.
Um kiukkan hálfsex er kvöld-
matur en fangamir verða að mat-
ast í tveimur hollum sökum
þrengsla í matsal.
Eftir mat fá menn að ráða sín-
um tima að mestu sjálfir. Þeir
grípa í spil, spjalla eða horfa á
sjónvarp fram eftir kvöldi, eða þar
til menn em kallaðir til koju laust
fyrir miðnætti.
Sunnudagamir hafa aðeins
annað yfirbragð en þá er heim-
sóknartími lungann úr deginum.
Hugsað fyrir okkur í
einu og öllu
1 máli þeirra fanga sem Nýtt
Helgarblað ræddi við á dögunum
kom fram að einna verst þætti
þeim við fangelsisvistina að vera
sviptir sjálfsákvörðunarrétti í
flestu.
-Það liggur við að það sé ekki
ætlast til þess að við hugsum
sjálfstætt. Við emm ekki einu
sinni álitnir færir um að koma
okkur í mat á réttum tíma. Fyrir
hvem matartíma hringir bjalla til
að minna okkur á, sagði einn
fanginn.
-Ég hefði haldið að markmið-
ið með fangelsisvistinni væri að
gera okkur að betri mönnum. En
hvemig má það verða þegar að-
eins sumir okkar eiga kost á vinnu
og það aðeins fáa tíma á dag fyrir
sáralítið kaup.
Lægsta tímakaupið er um 80
krónur á tímann.
-Fyrir þetta litla sem við
vinnum okkur inn þurfum við að
borga flestar okkar nauðþurftir
sjálfir. Við fáum að vísu frítt hús-
næði og fæði, en allt þar fyrir utan
þurfum við að borga, meira að
segja allan lyfjakostnað.
Fangamir sem rætt var við
sögðust vera á þeirri skoðun að
framkvæmd fangelsismála mætti
vera miklu skilvirkari og betri.
Afplánun eftir dúk
og disk
-Mörg dæmi em um það að
menn séu kvaddir hingað inn til
að sitja af sér eftir að langur tími
er liðinn frá því að afbrot var
framið og dómur féll.
Einn þeirra sagðist til dæmis
nú loksins vera að sitja af sér fyr-
ir brot sem ffamið var 1985.
Margir okkar hafa snúið við blað-
inu og hafa hafið nýtt líf, jafnvel
stofnað fjölskyldu i millitíðinni
þegar kallið loicsins kemur. Oftast
nær leiðir þessi seinagangur
dómskeriisins og fangelsisyfir-
valda til þess að menn missa allt
sitt, ættingja, vini og vinnu. Og þá
tekur aðeins eitt við: biturðin og
gremjan út í allt og alla. Þetta er
öll betrunin! sagði einn fanganna.
Það var samdóma álit fang-
anna sem rætt var við að verst
færi fangelsisvistin með ættingja
þeirra, enda er að miklu leyti slit-
ið á öll eðlileg samskipti fanga
við sína nánustu.
Fangamir mega fá heimsóknir
á sunnudögum og verða þá gestir
að halda sig allan tímann í klefún-
um. -Það er verst að fá bömin í
heimsókn, sagði einn fanginn.
-Ég hef tekið fyrir það að fá böm-
in hingað - ég get hreinlega ekki
afborið það.
Hafi fangamir staðið sína
plikt og ekki brotið gegn settum
reglum, fá þeir 15 tíma leyfi á
þriggja mánaða fresti til að heim-
sækja sína nánustu. En sá böggull
fylgir skammrifi að menn þurfa
að hafa setið inni i heilt ár áður en
slíkt leyfi er veitt!
-Inni í þessum 15 tímum er sá
tími sem það tekur að komast til
og frá fangelsi. Þannig að í mörg-
um tilfellum er viðveran heima
ekki löng.
Fangamir segja að kollegar
þeirra á Norðurlöndum búi við
rýmri reglur hvað þetta varðar.
-Bæði er að fríin em fleiri og
lengri.
Þurfum
réttargæslumann
Fangamir vom sammála um
það að ótækt væri að Fangelsis-
málastofhun sæi bæði um að
dómum væri fullnægt og að réttur
fanga væri ekki brotinn. -Það nær
ekki nokkurri átt að sama stofn-
unin sitji beggja megin borðs, ef
svo má segja.
Fangar þurfa tilfinnanlega að
fá réttargæslumann sem talar
þeirra máli við yfirvöld, veitir
fangelsismálayfirvöldum aðhald
og sér til þess að réttindi séu ekki
brotin á okkur. -rk
SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL.,.
Söluskrifstofur Flugleiöa:
Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir i síma 6 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskriftofum
HELGAKFERÐ
FÖSTUDAGUR TIL ÞRIÐJTJDAGS
HÓTEL MTJSEUM
TVEIR í HERB. KR. 32.610 Á MANN
FLUGLEIÐIR
Þjónusta alla leið
i'L't't .t'r -L-cECuts.'vt iv\.w**í«s\.»rvt «