Þjóðviljinn - 18.01.1991, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 18.01.1991, Qupperneq 14
Fangelsismálin þarf að hugsa upp á nýtt Gústaf Lilliendahl, forstöðumaður á Litla-Hrauni: Okkur er sniðinn þröngur stakkur - Meðan fangelsið er yfirfullt og aðstaðan fyrir neðan allar hellur er ekki von á þv( að árangur af okkar starfi sé ýkja mikill, segir Gústaf Lillien- dahl, forstjóri á Litla-Hrauni. Mynd: Jim Smart. - Það er alltof mikið um það að hingað komi sömu mennimir til af- plánunar aftur og aftur. Ég reikna með að um sex af hveijum tíu sem sitja hér inni hafi verið hér áður. Mér þykir einsýnt af þessu að hefðbund- in fangelsun bætir ekki menn eins og hún ætti að gera. Það hljóta að vera til aðrar leiðir sem eru sársaukaminni fyrir alla aðila og um leið árangurs- ríkari, segir Gústaf Lilliendahl, forstjóri fangelsisins á Litla-Hrauni. - Fangelsið hefur verið full- nýtt undanfarin tvö ár. Að jafhaði sitja hér inni 55 manns. Þörfin er einfaldlega svo mikil að hér er hvert rúm skipað og við höfum orðið að setja menn i klefa sem að öliu jöfnu geta ekki talist manna- bústaðir. Þeir klefar sem þannig er ástatt um em til allrar hamingju miklu færri, en það er engu að síður rétt, að það er ekki forsvar- anlegt að geyma í þeim menn, segir Gústaf. Hann fer ekki í neinar graf- götur með það að aðbúnaður fanga sem og starfsaðstaða fanga- varða er ekki upp á marga fiska á Hrauninu. — Því miður em ekki nein teikn á lofti um að úr rætist á næstu ámm. Gústaf segir að til skamms tíma hafi ekki verið nein deilda- skipting á Litla-Hrauni. - Við er- um að gera smá tilraunir með deildaskiptingu í húsnæði sem upphaflega var byggt sem ein- angmnardeild. Fangamir þurfa að sækja um og að gangast undir ákveðna skil- mála til að komast á þessa deild. Þeir sem þar em njóta heldur meiri fríðinda og betri aðbúnaðar en aðrir fangar, segir Gústaf. Hvaða skilmálar em það sem fangamir þurfa að gangast inná? '■— Til dæmis að þeir hafi ekki undir höndum eða neyti áfengis og fikniefna eða annarra ólög- legra vímugjafa. Þeir stundi nám eða vinnu og standist þau mark- mið sem þeim em sett með fanga- vistinni og að þeir lúti í einu og öllu þeim lögum og reglugerðum sem um fangelsi kunna að gilda á hveijum tíma. Inn á þessa deild komast því aðeins þeir fangar sem sýna fullan vilja til að gera eitthvað í sínum málum. Lyfjaneyslan orðum aukin Þú nefnir lyf og áfengi. Em mikil brögð að því að fangar hafi slík efni undir höndum? - Því miður kemur slíkt fyrir Fangar eru traustsins verðir Bjöm Einarsson: Stjómvöld hafa látið reka of lengi á reiðanum í fangelsismálum „Stjómvöld hafa vanvirt þennan málafiokk allt of lengi. Það er því vart við öðm að búast en víða sé pottur brotinn í fangels- ismálum." Sá sem þetta mælir er Bjöm Einarsson, en hann er trú- lega sá maður sem gerst þekkir til fangelsismála hér á landi, jafnt innan sem utan múranna. Bjöm hefur haft afskipti af fangelsismálum lengi og unnið sér traust fangelsisyfirvalda jafnt sem fanga sem milligöngumaður milli þessara aðila. -Ég er búinn að vera að vafstra í þessu meira og minna í níu ár. Það var ekki liðinn mánuður frá því að ég slapp sjálfur út þar til ég var kominn aftur á Litla-Hraun, en í gjörólík- um erindagjörðum. Friðjón Þórð- arson, þáverandi dómsmálaráð- herra, hafði haft pata af mér og kallaði á mig og ákvað að styrkja mig um 5000 krónur á mánuði til að sinna þessum málum, segir Bjöm. -Núna fæ ég 125 þúsund krónur á mánuði til þessara starfa, sem eiga bæði að nægja fyrir út- lögðum kostnaði, s.s. síma, að- stöðu og ferðum í fangelsin og að sjálfsögðu launum. Enginn samur á eftir -Það er enginn bamaleikur að lenda i fangelsi, segir Bjöm og talar þar af eigin reynslu. -Fótun- um er hreinlega kippt undan mönnum. Að sjálfsögðu geta menn sjálfum sér um kennt að mörgu leyti - ekki ætla égað neita því - en á hitt ber einnig að líta að þessir menn eiga margir hverjir Qölskyldur og ættingja og það þarf ansi sterk bein til að ekki láti eitthvað undan þegar til að mynda fjölskyldufoður er varpað í tugt- húsið, segir Bjöm. -Verst er þó þegar langur tími líður frá því að dómur er kveðinn upp og þar til hann kemur til fullnustu. Menn em í mörgum til- fellum búnir að sjá að sér í milli- tíðinni, stofna fjölskyldu, em í námi eða fastri vinnu þegar allt í einu kemur að skuldadögum við samfélagið og menn em hreinlega slitnir upp með rótum og lokaðir inni. Ég held að enginn þurfi að velkjast í vafa um afieiðingamar sem þetta hefur í för með sér fyrir þann sem í lendir og hans nán- ustu, segir Bjöm. Bjöm segir það vera algengt meðal fanga að þeir mikli hlutina fyrir sér og reikni alltaf með því versta. Það nægir að konan eða kærastan komi ekki í heimsókn, þá er það lagt út á versta veg, kon- an sé ótrú eða vilji ekki hitta hann framar. Þá skiptir engu þótt kol- ófært sé eða eitthvað annað hafi komið uppá. I þeirri innilokun sem fangelsisvistin er, er hætt við að nagandi efasemdir sæki á menn og verði skynseminni yfir- sterkari. Það er því ekki tekið út með sældinni að sitja inni, þótt sumir haldi að fangar lifi ein- hveiju sælulífi eins og maður heyrir stundum haldið fram, segir Bjöm. Ábyrgðin tekin Irá mönnum -Ég er þeirrar skoðunar að dvöl manna í fangelsi eigi að vera þeim til betmnar en ekki einungis til tiftunar. Því miður virðist það vera svo að meira fari fyrir tiftun- inni en betmninni. I fangelsinu er öll ábyrgð tek- in frá mönnum. Það er hugsað fyrir menn um alla skapaða hluti. Menn em jafhvel minntir á það með hringingum hvenær þeir eigi að mæta í mat. Þetta er ekki til bóta og gerir menn rænulausa um sjálfa sig og umhverfið, segir Bjöm. Hann segir að svipuðu máli gegni um vinnuna sem fangar stundi á Litla-Hrauni. -Þeim er gefinn kostur á fjögurra tíma vinnu á dag sem er hugsuð sem liður í endurhæfingu fangans. Það er svo sem margt gott um það að segja, en þetta er ekki nóg. Eftir áralanga innisetu em menn ekki upp á marga fiska úti á vinnu- markaðnum þegar þeir hafa vanist jafn litlu vinnuframlagi. Það þarf að bjóða föngum upp á fulla vinnu og borga þeim full Iaun til þess að efia sjáifsvirðingu þeirra, segir Bjöm. Ekki hundi bjóðandi -Aðstaðan sem föngum er bú- in á Litla-Hrauni er ekki upp á marga fiska og telst vart hundi bjóðandi. Húsakostur er allur kominn lil ára sinna og þrengslin em mikil. Margir klefanna uppfýlla eng- an veginn þær kröfur sem gerðar em til mannabústaða, matsalurinn og eldhúsið em á undanþágum og fyllast af vatni þegar stórfióð ger- ir.. Margt horfir til bóta Það getur vel verið að ein- hveijum finnist þetta vera fullgott handa brotamönnum, þótt það hvarfiaði ekki að þeim sömu að bjóða heimilishundinum upp á slíka vist. -Þrátt fýrir að margt skorti á að fangelsismálum okkar sé nægj- anlega vel fyrir komið þá er ekki neinum einstökum um að kenna. Embættismenn em ekki alvondir eins og föngum hættir til að trúa. Staðreyndin er aftur á móti sú að þessi mál hafa verið látin drabbast of lengi. Stofnun Fangelsismálastofn- unar var til hins betra og það er verið að vinna að ýmsu sem horf- ir til bóta, segir Bjöm og minnir á að dómsmálaráðherra hafi boðað fmmvarp um að mönnum gefist kostur á að taka út refsingu með því að vinna launalaust í þágu samfélagsins. -Það væri bæði ár- angursríkara og manneskjulegra að fara þessa leið í mörgum til- fella heldur en að loka menn al- farið inni. Ég er sannfærður um að það mætti fækka föngum upp undir helming með þessu móti. Við skulum gera okkur grein fýrir því að tveir af hverjum tíu sem sitja inni em þar fýrir ökuleyfis- brot. Þessir menn ættu að geta unnið refsinguna af sér í samfé- lagsþjónustu. Þá er ótalinn sá spamaður sem þetta hefði í för með sér fýrir samfélagið. Ætli það láti ekki nærri að það kosti um eina og hálfa til tvær miljónir króna að halda manni föngnum í eitt ár, segir Bjöm. Þá er einnig fyrir þingi frum- varp dómsmálaráðherra um að ákvörðun um einangrun vegna agabrota skuli lögð undir úrskurð dómsmáiaráðuneytisins í stað þess að yfirmönnum fangelsa sé slík ákvörðun í sjálfsvald sett og að einangmn megi ekki verða til þess að lengja refsitíma sem ákveðinn hefur verið með dómi. -Komist þetta í gegnum þingið er það til mikilla bóta, segir Bjöm. -En það þarf lleira að koma til, segir hann og bendir á að æski- legt sé að rýmka og fjölga heim- sóknaleyfum fanga. -Það er mikils um vert að tengsl fanga við fjölskyldu sína rofni ekki meðan hann er að taka út refsingu. Ég er sannfærður um það að hátt hlutfall endurkomu- manna í fangelsi eigi rætur að rekja til þess að íjölskylduböndin hafa rofnað meðan þeir vom að afþlána. Dómari í eigin sök Bjöm segist lengi hafa verið þeirrar skoðunar að fangar þurfi að hafa sérstakan réttargæslu- mann sem starfi óháð dómsvald- inu og Fangelsismálastofnun sem fer með einskonar framkvæmda- vald í þessum málum. -Eins og nú er búið um hnút- ana má segja að Fangelsismála- stofnun sé dómari í eigin sök. Hún sér bæði um að dómum sé fullnægt og að annast réttindamál skjólstæðinga sinna, fanga. Það sér náttúrlega hver heilvita maður að þama getur og hlýtur að skap- ast togstreita milli þessara ólíku hlutverka. Þess vegna er mjög brýnt að fangar fái sinn eigin tals- mann sem tali máli þeirra gagn- vart opinberum aðilum. Með þessu er ég þó ekki að segja það að Fangelsismálastofnun hafi leikið skjöldum tveim, segir Bjöm. Menn eins og viö -Það vill stundum gleymast að fangar em menn eins og við hin sem göngum frjáls utan múr- anna. Það er mikils virði að föng- 14 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 18. janúar 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.