Þjóðviljinn - 18.01.1991, Blaðsíða 18
Tvær skákir frá
Að þessu sinni skal hugað að
tveimur skákum frá
jólaskákmátinu í Hastings. Fyrst
er sýnishom af taflmennsku
sovétmannsins Bareevs en hann
mun nú vera fimmti stigahæsti
skákmaður í heimi. í skák sinni
gegn Sax fómaði hann tveim
peðum en fékk í staðinn
yfirburðastöðu, slakaði hvergi á
og vann sannfærandi.
Hvítt: Bareev Svart: Sax
Nimzo-indversk vörn
1. d4 - Rf6
2. c4 - e6
3. Rc3 - Bb4
4. Bg5 - h6
Þetta afbrigði Nimzo-
indversku vamarinnar hefúr verið
heldur fátítt á skákmótum. Það er
afar hvasst og leiðir jafnan til
skemmtilegra sviftinga.
5. Bh4 - c5
6. d5 - d6
7. e3 - Bxc3+
8. bxc3 - e5
9. f3 - g5
10. Bg3 - e4
Svartur fer fullhratt í sakimar.
Eðlilegra er að leika einhverjum
mönnum út á borðið og koma
kónginum í skjól. Sú gullna regla
sannast hér einu sinni enn að
nauðsynlegt er að hafa alla
mennina með í spilinu.
11. h4 - g4
12. h5 - exD
13. gxf3 - De7
14. Bh4 - ...
Með þessum leik fómar
hvítur peðum og þótt
drottningakaup fylgi í kjölfarið
fær hann þunga sókn í staðinn.
14.... - Dxe3+
15. De2 - Dxe2+
16. Rxe2 - Rxh5
17. 0-0-0 - Rd7
Ef svartur hirðir þriðja peðið
með 17. ... gxD kemur 18. Hel
og ef fxe2 19. Hxe2+ Kf8 (19. ...
Kd7 20. He7+ er vonlaust) 20.
Be7+ Kg7 21. Hgl+ Kh7 22.
Bd3+ f5 23. Bf6 og svartur
verður mát. Aðrar leiðir eflir 17.
... gxD em ekki betri svo svartur
reynir að koma mönnunum á
drottningarvæng á ffamfæri.
18. fxg4 - Rg7
19. Rg3 - Kf8
Peðastaða svarts er í molum,
stök peð á kóngsvæng og d6-
peðið verður varla varið með
góðu móti. Allir menn hvíts em í
raun komnir á vettvang en þeir
svörtu ná illa saman. Verst er þó
að svarti kóngurinn kemst ekki í
ömggt skjól á drottningarvæng
heldur verður að skýla sér bak við
sundraðar víggirðingar á
kóngsvæng.
20. Re4 - Re5
21. Rxd6 - Bxg4
22. Hel - RD
23. Be7+ - Kg8
24. He3 - f5
Það er athyglisvert hve vel
riddari hvíts á d6 og biskup á e7
vinna saman. Þeir taka alla
þýðingarmestu reitina af svörtu
hrókunum í borðinu (c8, d8, e8
og f8) og loka sömuleiðis f-
línunni fyrir svarta kónginum.
Auk þess er eiginlega engin leið
til að hrekja þá úr stöðum sínum.
25. Be2 - Rg5
26. Bxg4 - fxg4
27. Hgl - Kh7
28. Hxg4 - Kg6
Svo virðist sem svarti sé að
takast að byggja upp vöm. Hvítur
getur að sönnu hirt peðin á
drottningarvæng með Rxb7xc5
og unnið þannig hægt og bítandi.
Hann sér samt fljótvirkari leið.
29. He-g3 - Rh5
Ekki gekk 29.... Ha-g8 vegna
29. Bxg5 hxg5 30. Hxg5+ Kf6
31. Hg6+ Ke7 32. Hxg7+ Hxg7
33. Rf5+ Kf7 34. Rxg7 og vinnur
mann því 34. ... Hg8 er svarað
með 35. Rh4.
30. Hxg5+
Og svartur gafst upp. Eflir 30.
... hxg5 31. Hxg5+ Kh6 32. RÍ7+
er öllu lokið.
Hvert það mót sem Daninn
Bent Larsen teflir í fær hans
vegna aukna þýðingu í huga
margra. Hann hefúr léttan og
lipran skákstíl, teflir til vinnings í
hverri skák og á því hylli
áhorfenda vísa. Þótt hann eigi nú
sín bestu skákár að baki og
stundum erfiða daga við
skákborðið er hann jafnan
líklegur til að beijast um efstu
sætin. I Hastings tefldi hann
nokkrar ágætar skákjr og skal nú
hugað að skák hans við Murray
Chandler. Þar náði Larsen
traustum tökum á miðborðinu og
með því að pressa á veikta
kóngsstöðu andstæðingsins náði
hann yfirburðastöðu.
Hvítt: Larsen
Svart: Chandler
Enski leikurinn
1. RD - c5
2. c4 - Rc6
3. g3 - g6
4. Bg2 - Bg7
5. 0-0 - e6
6. Rc3 - Rg-e7
7. d3 - 0-0
8. Bf4 - d6
9. Dd2 - a6
Nú nær hvítur að skipta upp á
svartreita biskupunum og þar
með veikist kóngsstaða svarts
nokkuð.
10. Bh6 - Hb8
11. Bxg7 - Kxg7
12. d4 - b6
Svartur fer sér fúll hægt. Hér
átti hann annað tveggja að leika
b7-b5, eins og hann hefur
Hastings
undirbúið með síðustu leikjum,
eða reyna að einfalda stöðuna
með uppskiptum á d4 (cxd4).
13. Hf-dl - Dc7
14. Ha-cl - Bb7
15. d5 - exd5
16. Rxd5 - ...
Hér er álitlegt að leika 16.
cxd5 til að hvekkja svarta
drottningarriddarann og undirbúa
framrás á miðborðinu. En Larsen
þarf að nota c3-reitinn fyrir
drottningu sina og drepur því
með riddara á d5.
16.... - Rxd5
17. cxd5 - Re7
18. Dc3+ - f6
19. Rg5 - Bc8
20. b4 - ...
Svartur er kominn í algera
vöm. Með þessum leik minnir
Larsen andstæðinginn á að þótt
sóknin beinist að kónginum þarf
líka að huga að peðunum hinum
megin á borðinu. Jafnffamt er
undirstrikað að hvíti liggur ekkert
á því svartur getur lítið aðhafst til
að bæta stöðu sína.
20.... - RD
Svartur verður að gera
eitthvað en þessi og næstu
riddaraleikir reynast tímaeyðsla.
Riddarinn lendir brátt
aftur á e7 eflir stutta
hringferð. Svartur
getur ekki hafl f-
peðið leppað til lengdar og því
var skást að leika Kg8 strax því
eflir (20. ... Kg8) 21. Re6 Bxe6
22. dxe6 á hann fleiri kosta völ en
í skákinni eins og hún tefldist.
21. e4 - Rh6
22. Re6+ - Bxe6
23. dxe6 - Hf-d8
Og nú leikur hann vitlausum
hrók. Þessi hrókur varð að halda
áfram að valda f-peðið svo leika
varð Hb-d8. Svörtu stöðunni
verður varla bjargað eftir þetta.
24. f4 - Rg8
25. g4 - Dc8
26. D - g5
27. Dg3 - Dc7
28. Hd2 - Re7
Kominn hringinn.
29. h4 - gxh4
Eftir 29. ... h6 30. hxg5 hxg5
31. Dh2 með hótuninni Dh5 og
þaðan til f7 eða g6 (ef riddarinn
færir sig). A h2 hefúr drottningin
auga á d6-peðinu þannig að
svartur getur ekki andæft á h-
linunni því ef 31. ... Hh8 kemur
32. Dxd6 Dxd6 33. Hxd6 og
síðan ryðst hrókurinn niður á 7.
reitaröðina með geigvænlegum
afleiðingum (33. ... cxb4 34. Hc7
Hh-e8 35. Hd-d7 Kf8 36. e5 og
vinnur).
30. Dxh4 - Rc6
31. g5 - fxg5
32. Dxg5+ - Kh8
33. f6 - Hg8
34. Df4 - Hg6
Það skiptir ekki lengur máli
hveiju svartur leikur, staðan er
töpuð.
35. f7 - Kg7
36. Hfl - Kf8
37. Hxd6 - Rd4
38. e7+ - Dxe7
39. Hxd4
Svartur gafst upp því eftir
39. ... cxd4 kemur 40. Hxb8
og hvítur á manni meira.
Jón
Torföson
Spennandi lokaumferðir
Mikil spenna rikir nú i undan-
keppni Reykjavíkurmótsins. Að
loknum 16 umferðum af 19, er
staða efstu sveita þessi:
Samvinnuferðir 318, Verðbréf
306, Landsbréf 301, Trygginga-
miðstöðin 297, S. Armann Magn-
ússon 288, Valur Sigurðsson 280,
Ómar Jónsson 258, Steingrímur
Pétursson 251, Gunnlaugur Krist-
jánsson 235, Roche 228, Sverrir
Kristinsson 227 og Hótel Esja
223.
12 efstu sveitimar öðlast rétt
til áframhaldandi þátttöku í ís-
landsmóti, en 4 efstu spila til úr-
slita um Reykjavíkurtitilinn.
Undanrásum lýkur á morgun
(laugardag) og þá munu efstu
sveitir mæta eftirtöldum; Sam-
vinnuferðir (S. Ármann, Sverrir
og Landsbréf), Verðbréf (Gunn-
laugur, Ómar og ErÓs); Lands-
bréf (Steingrímur, Tryggingamið-
stöðin, Samvinnuferðir), Trygg-
ingamiðstöðin (Sverrir, Lands-
bréf og Jón Viðar Jónm.), S. Ár-
mann (Samvinnuferðir, Gunn-
laugur og Ómar), Valur (Hreinn,
Yfirseta og Guðlaugur Sv.)
ar séu öruggar með sæti í undan-
rásum, en um hin sætin stendur
yfir barátta. Einnig geta veður
gerst válynd í keppni um 12. sæt-
ið, en sveitin sem er í 13. sæti er
Hreinn Hreinsson með 209, og
fast á hæla honum koma Sig-
mundur Stefánsson og Guðmund-
ur Grétarsson, báðir með 205 stig.
Það bar helst til tíðinda síð-
asta keppnisdag, að Verðbréfin
tóku Tryggingamiðstöðina heldur
betur í kennslustund og sigruðu
með 25 gegn 0. Til að ná þeim ár-
angri þarf að muna um 70 stigum,
í þeim 14 spilum sem spiluð eru
milli sveita. Ótrúleg úrslit, hjá
jafn sterkum sveitum, en sveit
þeirra síðamefndu er nv. Reykja-
víkurmeistarar.
Lokaslagurinn hefst kl. 13 á
morgun. Á dagskrá eru 3 leikir,
sem spilaðir verða hver af öðrum.
Úrslitin verða svo á Loftleiðum
um aðra helgi.
Fjölbrautaskólinn á Sauðár-
króki heldur að þessu sinni fram-
haldsskólamótið í bridge. Spilað
verður 9. febrúar nk., og hefst
spilamennska kl. 9 árdegis. Kepp-
endum stendur til boða
gisting og matur gegn hóf-
legri greiðslu. Allir fram-
haldsskólar eru hvattir til
Olafur
Lórusson
að taka þátt í mótinu. Spilað verð-
ur um siifurstig. Nánari upplýs-
ingar gefa: Ólafur (95- 35798),
Jón Sindri (95-35417) og Jónas
(95-35217).
Minnt er á skráninguna í ls-
landsmót kvenna og yngri spilara,
í sveitakeppni, sem háð verða um
mánaðamótin. Úrslit og undan-
rásir verða spilaðar um sömu
helgi. Skráð er á skrifstofú sam-
bandsins.
Spilað var í einum riðli hjá
Skagfirðingum sl. þriðjudag.
Efstu skor fengu Hannes R. Jóns-
son og Jón Ingi Bjömsson. Næsta
þriðjudag verður á dagskrá eins
kvölds tvímenningskeppni.
Skrif umsjónarmanns um
landsliðsmál í síðasta þætti vöktu
þó nokkurn titring hjá stjómarlið-
inu í BSI. Það stendur þó óhaggað
sem fram kom í greininni, að fyr-
irkomulag verður að líkindum
mjög svipað og lýst var. Bjöm
Theodórsson hefúr þó ekki gefið
endanlegt svar við málaleitan
stjómar, um að taka að sér hlut-
verk einvalds í Opnum flokki.
Vonandi er það þó aðeins forms-
atriði, sem gengið verður frá fljót-
lega. I framhaldinu verður að hafa
snarar hendur til að kynna áætlun
stjómar í Iandsliðsmálum og fyr-
irbyggja tímaþröng. Endanlegt lið
verður að hafa tíma til að undir-
búa sig á sem bestan máta fyrir
þau verkefni sem liggja fyrir.
Nú fer að styttast í hina árlegu
Bridgehátíð BSÍ og flugleiða,
sem spiluð verður á Loftleiðum
15.-18. febrúar. Að sögn mun
gestalisti yfir erlenda þátttakend-
ur vera nánast tilbúinn og verða
birtar fréttir af þeim sama lista um
leið og hann er endanlega ljós
(eins og segir í tilkynningu frá
skrifstofu BSÍ).
Þátttökufjöldi verður sem áð-
ur takmarkaður í tvimennings-
keppni á Bridgehátíð, en Flug-
leiðamótið í sveitakeppni verður
öllum opið. Spilað er um fjölda
gullstiga í báðum mótum. Nánar
síðar.
í bígerð er stofnun Bridgefé-
lags byrjenda. Verða því veitt af-
not af Sigtúni 9 annað hvert
þriðjudagskvöld, til að byija með.
Vegna mikils kostnaðar hjá
BSI í ár, vegna landsliðsmála,
verður efnt til happdrættis. Geftiir
verða út 5 þús. miðar og mun hver
miði kosta 500 kr. í boði verða 4-
6 góðir vinningar. Umsjón með
happdrættinu hefúr Valgerður
Kristjónsdóttir.
Guðlaugur R. Jóhannsson og
Öm Amþórsson vom í miklu
stuði í 15. umferð í Reykjavíkur-
mótinu, í leiknum gegn Trygg-
ingamiðstöðinni.
Lítum á nokkur spil hjá þeim
félögum:
S: ÁK5 S: 1083
H. ÁG53 H: K4
T: Á96 T: 108
L: K85 L: ÁG10762
6 lauf vom ekkert vandamál
hjá þeim félögum. Laufadaman
var þriðja fyrir ffaman ás/gosa.
Hún fannst.
S: ÁDG8 S: K1094
H: 4 H: ÁDG7
T: K53 T: Á874
L: 8754 L: 9
6 spaðar vom heldur ekkert
vandamál á þessi spil. Hjarta upp
á ás og síðan hjartadrottning. Jú,
kóngurinn lá einmitt fyrir aflan,
þannig að tígullinn fór þar niður.
Síðan lá sá litur 3-3 þannig að 12
slagir vom auðsóttir.
S: Á S: D10975
H: D4 H: G53
T: ÁG108764 T: KD3
L: K9 L: 53
Og ekki slepptu þeir þessum 3
gröndum á hættunni. Þegar laufa-
ás lá „réttur“, fyrir ffaman kóng,
vom 10 slagir ekkert vandamál.
Leikinn unnu þeir félagar
hreint, eða 25 gegn 0. Til þess
þarf að skora yfir 70 impa eða
meir. Og hver ræður við svona
„stuð“?
18 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 18 janúar 1991