Þjóðviljinn - 18.01.1991, Page 21

Þjóðviljinn - 18.01.1991, Page 21
Nemendaleikhúsið Leiksoppar Halldóra Björnsdóttir I titilhlutverkinu sem Rakel og Þórey Sigþórsdóttir sem Púddý I Leiksoppum. Mynd: Kristinn. Halldór E. Laxness leikstýrir nýju, grátbroslegu, bandarísku verki eftir Craig Lucas Ævintýri með nútíma for- merkjum? Adeila á bandarískt þjóðfélag? Verk um konuna sem eyland? Þetta eru nokkrar tilraun- ir til að lýsa leikritinu Leiksopp- um (Reckless) eftir Bandaríkja- manninn Craig Lucas. Aðstand- endur eru að minnsta kosti sam- mála um að verkið sé bráð- skemmtilegt. Nemendaleikhúsið, 4. bekkur Leiklistarskóla Islands, frumsýnir Leiksoppa í kvöld í Lindarbæ. Þegar er uppselt á allar íýrstu sýningamar. Leikstjórinn, Halldór E. Lax- ness, er snúinn til heimalandsins eftir áratugs útivist í fjörrum löndum beggja vegna Atlantsála við nám og vinnu í leikhúsum. Leiksoppar er fyrsta leikstjómar- verkefni hans hér á landi eftir út- skrift frá einum virtasta leik- stjómarskóla Bandaríkjanna, Cal- art. Hallgrímur Helgason, mynd- listarmaður, rithöfundur og út- varpsmaður þýddi verkið, leik- mynd og búninga hannaði Hlín Gunnarsdóttir, Egill Ingibergsson annaðist lýsingu og umsjón með tæknivinnu, en tónlist og leik- hljóð em í höndum Eyþórs Am- alds. Höfundur Leiksoppa, Craig Lucas, er rúmlega þrítugur Bandaríkjamaður, menntaður sem leikari, en hefúr snúið sér ein- göngu að skriftum. Árið 1989 var hann m.a. tilnefndur til Tony- verðlaunaima fýrir Broadway- smellinn „Prelude to a Kiss“. Leiksoppar vom fmmsýndir í New York 1988. Leikritið fjallar á grátbrosleg- an hátt um píslargöngu Rakelar Fitsimmons gegnum lífið, frá leigumorðingjum og jólasveinum til sálfræðinga og sjónvarps- manna. í Nemendaleikhúsi 1990-91 em Ari Matthíasson, Gunnar Helgason, Halldóra Bjömsdóttir, Ingibjörg Gréta Gísladóttir, Magnús Jónsson, Þorsteinn Bach- mann, Þorsteinn Guðmundsson og Þórey Sigþórsdóttir. ÓHT íslenski dansflokkurinn Draumur á Jónsmessu- nótt Stórviðburður í listalífinu: Fyrsta heilskvölds klassíska ballettsýning íslenska dansflokksins í sex ár. Viðamikil sýning með dönsurum og leikurum Um 40 manns koma fram í ballettin- um Draumi á Jónsmessunótt sem Is- lenski dansflokkurinn frumsýnir á sunnudaginn í Borgarleikhúsinu. Auk dansara ísienska dansflokksins taka þátt í sýningunni lausráðnir dansarar, fjórir erlendir sólódansarar, sex leikarar Þjóðleikhússins og nemendur í Listdans- skóla þess. Ballettinn er byggður á samnefhdu leikriti Williams Shakespeares við tónlist eftir Felix Mendelssohn. Það ber m.a. til nýlundu í þessu ballettverki að talað mál er flutt. Sem kunnugt er lætur Willam Shake- speare Draum á Jónsmessunótt snúast um leikhóp, og að þessu sinni taka þjóðkunnir Spaugstofúleikarar þátt í þeim ærslum. Þýðing leiktextans er eftir Helga Hálfdan- arson. Danshöfúndurinn Gray Veredon frá Nýja-Sjálandi kom til íslands í desember með aðstoðarmanni til að setja upp sýning- una með Islenska dansflokknum. Gray samdi ballettinn upphaflega fýrir Ballet de Lyon í Frakklandi og var hann frumsýndur þar 1984. Síðan hefur Gray sviðsett Draum á Jónsmessunótt víða um heim, m.a. við Ballet de France í París og við Finnska þjóðarballettinn, en búningamir sem not- aðir eru í þessari sýningu voru fengnir að láni frá honum. Þessi sýning á Draumi á Jónsmessunótt er fýrsta klassíska heilskvölds ballettsýn- ingin sem íslenski dansflokkurinn flytur síðan 1984, en þá var Öskubuska á fjölum Þjóðleikhússins. Danshöfúndurinn Gray Veredon hefur starfað sem dansari við óperuna í Covent Garden í Lundúnum og ballettana í Stuttg- art og Köln í Þýskalandi. Síðan gerðist hann einn stofnenda hins fræga Tanz For- um í Köln, dansaði með þeim í fjölda ára og samdi mörg ballettverk sem náðu hylli í Evrópu, Asíu og Ameríku. Eftir að hafa starfað sem lausráðinn danshöfúndur í Evr- ópu, Ameríku og Ástralíu við nokkra helstu ballettflokka heims, varð Gray list- rænn stjómandi Ballet de Lyon og samdi fjölda verka sem enn em þar á verkeffta- skrá. Þá gerðist hann lausráðinn danshöf- undur á ný. Líklegt er talið að Shakespeare hafi samið leikritið Draum á Jónsmessunótt 1595, en Mendelssohn samdi tónlist sína við verkið fýrir sýningu í Berlín 1827. Fyrsta sýning leikritsins sjálfs síðan á dög- um Shakespeares var hins vegar ekki fýrr en 1840 í Lundúnum og fýlgdi tónlist Mendelssohns þar eins og af og til í upp- færslum þess allt fram á þessa öld og einn- ig í Hollywood- kvikmyndinni frá 1935. ÓHT Það er Helena Jóhannsdóttir, dansari (s- lenska dansflokksins, sem hugar hér að liggjandi manninum. Mynd: S. Þór. Föstudagur 18. janúar 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 21

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.