Þjóðviljinn - 18.01.1991, Qupperneq 25

Þjóðviljinn - 18.01.1991, Qupperneq 25
Haraldur Ingi. Haraldur Ingi í Slúnkaríki MYNDLIST Gallerí 8, Austurstræti 8. Verk e/um 60 listamenn, bækur ofl. Opið virka daga og lau kl. 10- 18 og su 14-18. Gallerí Sævars Karls, Banka- stræti 9: Svala Sigurleifsdóttir sýnir olíulitaðar Ijosmyndir. Opið virka daga 9-18 og 10- 14 á laugardögum. Hafnarborg, listastofnun Hafn- arfjarðar: Myndlist I áratug, sýning á verkum nemenda í myndmenntavali við Flens- borgarskóla. Til 27. jan. Sverr- issalur: Verðlaunatilíögur vegna samkeppni um bygg- ingu tónlistarskóla og safnað- arneimilis við Hafnarfjarðar- kirkju. Listagallerí: Sýning í kaffistofu á verkum 12 hafnfirskra lista- manna. Opið alla daga nema þri kl. 14-19. Kjarvalsstaðir lau kl,16: Aust- ursalur, Amgunnur Yr sýnir málverk og skúlptúra. Vestur- og forsalur: Hallgrímur Helga- son sýnir málverk. Opið daglega 11-18. Listasafn Einars Jónssonar opið lau og su 13.30-16, hóggmyndagarðurinn alla daga 11-16. Listasafn (slands: Opið 12-18 daglega nema mánudaga. Aðgangur ókeypis. Menntamálaráðuneyti við Sölvhólsgötu kl 9-17 alla virka daga, Berglind Sigurðardóttir með málverk. Hrafnhildur Sig- urðardóttir og Ingiríður Óðins- dóttir með textílverk. Til 27. feb. Minjasafn Akureyrar, Land- nám í Eyjafirði, sýning á fom- minjum. Öpið su kl.14-16. Minjasafn Rafmagnsveitunn- ar, húsi safnsins v/ Rafstöðv- arveg, su 14-16. Norræna húsið, Franska bylt- ingin í myndum kallast sýning á teikningum eftir Frakkann Jean-Louis Prieurs sem verð- ur opnuð á morgun í anddyri. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B, „Æskulist“, samsýning á skúlptúrum gerðum í njartans einlægni. Opið 14-18 daglega, til 20.jan. Ath. síðasta sýning- arhelgi. Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74, sérsýning á 25 myndum máluðum i Reykjavík og nágrenni. Opið 13:30-16, þri, fim, lau og sun. Til febrúarloka. Sjóminiasafn (slands, Vestur- gótu 8 Hf. Opið lau og su kl. 14-18. Þjóðminjasafnið, Bogasalur, opið um helgar, og þri og fi kl. 11-16. TÓNLIST Sinfóníuhljómsveit íslands á Selfossi í Kvöld kl. 20:30. Leikin Vínartónlist í Iþrótta- húsinu. Stj. Peter Guth. Tónleikar endurteknir í Há- skólabíói á lau kl. 17. Kammermúsikklúbburinn, tón- leikar á su. í Bústaöakirkju kl. 20:30. Verk e/Debussy, Jolivet og Mozart. Gerðuberg má kl 20:30: Ljóðatónleikar, Guðbjörn Guð- björnsson tenór og Jónas Ingimundarson, pianó. EPTA-píanótónleikar í (s- lensku óperunni á má kl. 20:30. Halldór Haraldsson leikur verk e/Beethoven, Schumann, Kjartan Ólafsson o.fl. LEIKHÚS/ÖPERA Borgarleikhúsið Á köldum klaka e Ólaf Hauk Símonar- son og Gunnar Þórðarson, í kvöld kl. 20. Fló á skinni lau kl 20. Ég er meistarinn í kvöld kl 20. Sigrún Ástrós lau kl 20. Draumur á Jónsmessunótt, (s- lenski dansflokkurinn, frum- sýning á su kl. 20. (slenska óperan, lau kl 20: Rígólettó e Verdi. Leikfélag Akureyrar, fö lau og su kl 20:30: Ættarmótið e Böðvar Guðmundsson. Nemendaleikhúsið, Lindarbæ, Leiksoppar e/Craig Lucas frumsýnt í kvöld kl. 20. Leikstj. Halldor E. Laxness. Leikfélag Menntaskólans við HamrahTíð frumsýnir Rocky Horror Show e/Richard O’Bri- an á su kl. 20:30 í gamla Iðnó. Leikfélag Kópavogs: Skítt með’a e. Valgeir Skagfjörð, Félagsheimilinu. HITT OG ÞETTA Borgarleikhúsið lau: Anddyri, sýnmgin „( upphafi var óskin", saga LR í myndum og gripum. Félag eldri borgara: Göngu- hrólfar hittast á morgun lau kl 10 í Risinu, Laugavegi 105. Danskennsla verður a laugar- dögum í Risinu, kl 14 f byrj- endur, kl 15:30 fyrir lengra komna Goðheimar, Sigtúni 3, opið hús su kl 14: Frjáls spil og tafl. Kl. 20: Dansað. Hana nú í Kópavogi, vikuleg laugardagsganga frá Digra- nesvegi T2 kI 10-11. Hist kl 9:30 tiTkaffidrykkju og rabbs. M(R, Vatnsstíg 10, kvik- myndasýning su kl 16: Bréf látins manns, leikstj. Konst- antin Lopúshanskí. Aðaangur ókeypis og öllum heimiíl. Ferðafélag (slands, Hring- ganga um útivistarsvæði Reykjavíkur hefst á su. Brott- för kl. 13 við Mörkina 6. Norræna húsið: Jan Myrdal segir frá frönsku byltingunni í tengslum við sýningu í and- dyn á lau kl. 15 við opnun Laugardaginn 19. janúar opnar Haraldur Ingi sýningu á vatnslitasmyndum og grafík í Slúnkaríki á ísafirði. Um verk- in farast honum svo orð: „Vatnslitamyndimar eru lík- ast til lokaþáttur í verki sem hófst i Hollandi 1985. Þá um vet- urinn vann ég fjölda línuteikn- inga án þess að ætla þeim neitt hlutverk, tveimur árum síðar fundu þær sér farveg i fjölritun- arútgáfii Rauða hússins á Akur- eyri. Þar voru hundrað þeirra fjölritaðar og límdar saman í kver. Inní myndabunkann var stungið tveimur ljóðaköflum. Bókin hét ekki neitt en hafði einskonar forskrift þ.e. að mynd- ir yrðu orð sem yrðu að sögum og ljóð yrðu sögur sem yrðu að myndum. Hringur milli tveggja forma og skynjana. Línuteikn- ingamar hver á eftir annarri í bókarformi minntu mig á lita- bækur fyrir böm og ég tók að lita þær en þá datt bókin í sundur hennar og á su kl. 17 ræðir hann um verk sín og feril. Kvenfélag Kópavogs, Þorra- kvöld í Felagsheimilinu 24.01 sem verk og nauðsynlegt var að skera myndimar burt frá textan- um. Myndimar em málaðar á seinnihluta 1989 og 1990. Graflkin er tilbrigði við „ósjálffáða“ skrift sem verður til á meðan á símtölum stendur, þegar setið er á löngum og leið- inlegum fundum eða hlustað á ræður og erindi. Hversdagskrass- inu er síðan raðað upp á flötinn eins og í einfaldri klippimynd.“ Haraldur Ingi Haraldsson er fæddur 12/11 1955, útskrifaðist úr Nýlistadeild Myndlista- og handíðaskólans 1981 og stund- aði ffamhaldsnám í Hollandi 1982-1985. Sýningin í Slúnka- riki er sjöunda einkasýning Har- aldar. Helstu sýningar em þessar: Rauða húsið Akureyri 1981 og 1982, Nýlistasafnið Reykja- vík 1987 og 1990, Gallery Glugginn Akureyri 1989. kl. 20. Matur oa fjölbreytt dag- skrá, takið með ykkur gesti. Þátttaka tilkynnist í s: 40332, 41726 og 40388. FJÖLSKYLDAN Eíísabet Berta Bjamadóttir Heimsstríðin hefjast heima Friðurinn einnig. Það er fjöl- skyldan sem er vagga menningar- innar. Gott er til þess að hugsa fyrir íslenskar fjölskyldur nú, þessa daga stríðsógna, þegar margir finna til vanmáttar gagnvart þeim sem blása í stríðslúðra. Hvert heimili getur lagt svo ótal margt af mörkum í þágu friðar. Dýrmætast í þá vem er að skapa góða sjálfsmynd fjölskyld- unnar sjálfrar, þá vill hún enga tor- tímingu. Þótt hvert lítið íslenskt heimili, sem mörg telja niður í eina manneskju, virðist mjóróma, miðað við þann þunga sem hljómar ffá þeim sem geta breytt friði í strið, þá skal á endanum upphafið skoða, því þannig læmm við líka. í sínu upp- hafi vom einstaklingamir, sem nú sitja í öllum þeim ríkisstjómum sem hlutast til um ástandið í heiminum, fæddir ósjálfbjarga í þennan heim, en vom svo tamdir til líkama og sál- ar, allt eftir menningunni sem ríkti í þeirra fjölskyldu. í faðmi fjölskyld- unnar mótast siðgæðisstyrkurinn til að standa gegn múgsefjun af ýmsu tagi, eins og þeirri sem reynir að réttlæta blóðsúthellingar. Um dag- inn heyrðist þeirri spumingu fleygt, hvort heimsástandið væri þannig nú, að múgurinn væri ósefjaður og legð- ist almennt gegn hvers konar ffekari striðslausnum, en stjómendumir hefðu slegist siðblindu og múgnum tækist ekki að mýkja hjörtu þeirra. Þannig hefði siðblinda villt þeim sýn, að þeir mætu lítils múg þann sem í upphafi hefði lyft þeim á stall- ana og hyllt þá sem leiðtoga sér til fulltingis, því innst inni í dularhjúpi sálarbotnsins fyndist leiðtogunum þeir ekkert góðir. Hvemig á leiðtogi, sem finnst hann vondur án þess að vita það sjálfúr, að geta tekið við fyrirbænum umhyggju og kærleika ffá fólkinu sem kom honum fyrir í ábyrgðarstöðu, ef honum finnst hann ekki eiga það skilið? Spuming er hvort á stríðstímum sé nokkuð sem heiti hlutleysi, en það orð er stundum notað um aðgerðaleysi. Orðiö við móðurhné Á einum stað i bók nokkurri, sem oft er vitnað í hér í okkar heims- hluta þegar fólk vill viðhafa menn- ingu á svokölluðu háu andlegu plani, segir: - I upphafi var orðið og orðið var hjá Guði. Þetta gamla spakmæli er svo túlkað í þágu margs góðs málstaðar eins og vemdunar læsis og tungu. Nærtækt er að fægja spakmælið núna og túlka það í þágu friðar. Mætti ekki nota það annars vegar til að mýkja hjörtu ráða- manna, sem allir voru einu sinni litl- ir krakkar í sinni upprunafjölskyldu og háðu sín íyrstu strið við móður- hnéð. Ef til vill vom þama einhver önnur systkini sem þurfti stundum að beijast við um fangið hennar mömmu og þá gaus upp reiði og vonbrigði og minnimáttarkennd við að tapa. Þá vom það orðin hennar mömmu eða pabba sen sefúðu og sættu. Þrátt fyrir að orðin hjálpuðu, virðast margir sitja uppi með það á fúllorðinsárum að þeir séu vondir og svoleiðis mikið til huldar hugsanir geta varpast út í umhverfið og rétt- lætt að öðmm manneskjum sé tor- tímt undir yfirskini eins og því, að það varðveiti einhvem frið sem komi svo kannski þegar nógu marg- ir séu drepnir til að hann komist á. Þá er betra að stilla sig af eins og hvem annan kompás sem nauðsyn- legur er í óþekktu landslagi og minnast þess að „í upphafi verður það orðið“ og notkun þess til samn- ingagerðar sem getur komið á friði, alveg eins og þegar góðu mömm- umar sætta bömin sín á að bíða eftir að komast uppí fangið. Á sálarbotni Það er aldrei of seint að hefja friðamppeldið á sínu heimili, ekki endilega með rökræðum um stríð og frið eins og margir halda, eða leitast við að halda sem mestum ágreiningi og rifrildum niðri, heldur með því að leitast við að skapa góða og heillega sjálfsmynd á sálarbotni bamsins, þá sér það sér fært að rétta öðmm hönd þegar það sprangar út í lífið, en vill hvorki eyðileggja sig né aðra, jafn- vel þótt þeir búi í löndum sem em langt, langt í burtu og séu dekkri á brún og brá en við. Góð sjálfsmynd gefur mótstöðu gegn múgseljun um stríð. Við biðjum þess að allar þær ríkisstjómir nær og fjær sem hlut eiga að máli endi ekki sina sögu eins og Nýju fötin keisarans. Þar segir: „Hann er ekki í neinu,“ kallaði að lokum allt fólkið. Og keisaranum rann kalt vatn milli skinns og hör- unds, því honum fannst, að menn hefðu rétt að mæla, en hann hugsaði með sér: „Nú verð ég að þrauka það af, þangað til hátíðargangan (stríðið, innsk. undirr.) er á enda.“ Og keisar- inn færðist í aukana og gekk sperrt- ari en áður, og kammerherramir löbbuðu á eftir og bám kjóldragið, sem ekkert var. Ég kveð ykkur Kæm lesendur, þetta em síðustu hugrenningamar frá mér á þessum vettvangi. Það var lærdómsríkt og gaman að starfa með ykkur. Kærar kveðjur til þeirra fjölmörgu sem á einn eða annan hátt hafa haft sam- band við mig til að þakka pistlana og dregið af þeim lærdóm á leiðinni að meiri þroska. Sá sem óskar þess og reynir, getur verið þess viss að hann heldur alltaf áfram eftir þeim stíg, og einmitt þegar við tökum eitt skref aftur á bak og höldum að nú nái örvæntingin eða uppgjöfm yfir- höndinni, er hægt að breyta þessu skrefi í tilhlaupið uppá næstu þroskatröppu, og ef þér finnst þú stanga höfðinu í eigin vegg stöðnun- ar of lengi er gott að hugsa til þess, að við emm sköpuð sem félagsver- ur, getum ekki án annarra verið og það er því engin skömm að leita hjálpar hjá leikum eða lærðum eftir eðli máls, til að ýta við sálarangri og koma þroskanum af stað aftur. Frið- ur er ekki sama og hreyfmgarleysi, en stríð er þroskaskortur. Friður veri með ykkur. 12.01. 1991. Elísabet Berta Bjarnadóttir félagsráðgjafi Föstudagur 18. janúar 1991 — NÝTT HELGARBLAÐ SÍÐA 25

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.