Þjóðviljinn - 16.02.1991, Blaðsíða 3
FRETTIR
Stiórnmálasamband við Litháen
Boltinn hjá Sovétmönnum
Jón Baldvin Hannibalsson: Sovétstjórnin á ekki einungis í ágreiningi við Islendinga,
heldur einnig 50 önnur ríki
Asama fundinum og Júlí
Kritsinskíj (aðstoðarutan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna)
afhenti mótmælaorðsendingu
númer tvö óskaði sendiherra
okkar í Moskvu formlega eftir
þvi', að utanrikisráðherra Is-
lands gæfist kostur á því að eiga
fund með sovéska utanríkisráð-
herranum, eða öðrum þeim sem
hann tilnefndi, til þess að gera
Sovétmönnum grein fyrir skoð-
unum og rökstuðningi Islend-
inga í þessu máli,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra aðspurður um
hvernig ísland hyggðist bregð-
ast við óskum Sovétmanna um
skýringar frá íslenskum stjórn-
völdum um afskipti þeirra af
Litháen.
Á fimmtudag kölluðu Sovét-
menn sendiherra sinn á Islandi
heim til skrafs og ráðgerða þar til
tilhlýðilegar skýringar bærust á
því sem þeir kalla afskipti af inna-
ríkismálum sínum vegna ályktun-
ar Alþingis frá því á mánudag um
stuðning við ákvörðun ríkis-
stjómarinnar um að taka upp
stjómmálasamband við Litháen,
en Alþingi ályktaði að slíkt ætti
að gerast svo fljótt sem verða má.
Fyrri mótmæli Sovétmanna bár-
ust eftir ákvörðun ríkisstjómar-
innar frá 23. janúar s.l.
„Við lýstum okkur reiðubúna
til fúndar, hvort heldur i Moskvu
eða Reykjavík eða öðmm stað,“
sagði Jón Baldvin Hannibalsson
og bætti við að ekki hefðu borist
viðbrögð við þessari beiðni Is-
lendinga.
Um viðbrögð Sovétmanna
sagði Jón Baldvin að það væri
ekki annað en það sem menn
hefðu mátt gera sér grein fyrir að
gat gerst. „Þess var að vænta að
Sovétmenn brygðust við. Að
mínu heíði mátt búast við því fyrr,
því það hefúr ekkert gerst núna,
sem gefur tilefni til þessa, annað
en það sem við höfúm verið að
gera í tæpt ár,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson.
„Við höfúm lýst ágreiningi
við Sovétstjómina; við höfúm
sagt þetta er ekki sovéskt innan-
ríkismál; við höfúm sagt að viður-
kenning okkar á Litháen væri í
fúllu gildi; við höfúm sagt að við
viðurkenndum ekki lögmæti inn-
rásar og innlimunar. Þetta eigum
við sammerkt með flestum lýð-
ræðisríkjum Vesturlanda. Þannig
að Sovétstjómin á um þennan
ágreining ekki við Islendinga
eina, heldur líklega um 50 ríki í
veröldinni," sagði utanríkisráð-
herra.
Meðan enn hefur ekki borist
svar ffá Sovétstjóminni um fúnd
utanríkisráðherra landanna svar-
aði Jón Baldvin því játandi að
boltinn væri hjá Sovétmönnum.
Þá er von á forsætisráðherra
og utanríkisráðherra Eistlands í
óformlega heimsókn hingað til
lands á miðvikudag.
-gpm
Hjartaknúsari á Flugleiðamótinu. Flugleiðamótið f bridge hófst f gær með því að Steingrfmur Hermannsson forsætisráðherra sagði pass f fyrstu
sögn, en hann fékk þann heiður að fá að sitja andspænis egypsku kvikmyndastjömunni Omar Sharif. Omar Sharif er einn af þátttakendum mótsins,
en Steingrfmur fékk að hlaupa í skarðið fyrir mótspilara hans um stundarsakir, en mótspilari hjartaknúsarans er stigahæsti spilari Evrópu, Frakkinn
Paul Chemla, margfaldur Evrópumeistari í bridge. Mótinu lýkur á mánudag. Mynd: Kristinn.
Atvinnuástand
2,5% atvinnuleysi
Aukning atvinnuleysis mest utan höfuðborgarsvæðisins. Jafnt á með konum og körlum
Um 2,5% atvinnuleysi reynd-
ist í janúar, samkvæmt yfir-
liti vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins um atvinnu-
ástandið. Alls voru þrjú þúsund
og tvö hundruð manns að með-
altali á atvinnuleysisskrá og var
Búnaðarbankinn hefur sent
inn formlega beiðni fyrir
byggingu banka í miðbæ Hafn-
arljarðar, sagði Gunnar Rafn
Sigurbjörnsson bæjarritari í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Þá hefur Landsbankinn lýst
áhuga sínum á því að byggja á lóð
bankans á Thorsplani, en formleg
beiðni hefur ekki borist bæjaryfir-
skiptingin svo til jöfn milli
kynja.
I janúar voru skráðir 70 þús-
und atvinnuleysisdagar í landinu
öllu og hafði þeim Qölgað um 23
þúsund daga frá desember, eða
um tæp 48%. Aukningin var mest
völdum. - Við tökum þessu fagn-
andi út af fyrir sig, en verið er að
ræða um byggingar á viðkvæm-
um blettum í bænum og því verð-
ur að vanda allan undurbúning og
komast að samkomulagi um nýt-
ingu lóða og annað þess háttar. En
við bregðumst auðvitað við slík-
um beiðnum með því að byija
strax að skoða málið vandlega.
utan höfuðborgarsvæðisins, en
72% af skráðu atvinnuleysi var
utan þess. Á því svæði er um 60%
mannafla á vinnumarkaði.
Verst var atvinnuástandið á
Austurlandi og Norðurlandi
vestra, rúmlega 6% atvinnuleysi á
Það er hins vegar á byijunarstigi
enn sem komið er, sagði bæjarrit-
arinn.
I Hafnarfirði eru nú tvö útibú
íslandsbanka og eitt frá Sam-
vinnubankanum, auk Sparisjóðs
Hafnarfjarðar. Færast mun því
fjör í bankaviðskipti Gaflara í
framtíðinni.
BE
báðum stöðum. Vestfirðimir
koma hinsvegar best út, en þar var
atvinnuleysið 0,3%. Höfuðborg-
arsvæðið kemur næst best út, en
þar var atvinnuleysið 1.2%.
Einungis tvisvar áður hefúr
atvinnuleysi mælst hærra í janúar,
í fyrra, en þá voru skráðir 85 þús-
und atvinnuleysisdagar, og árið
1984, en þá vom sjómenn í verk-
falli.
Atvinnuástandið í janúar var
þó betra en spáð hafði verið og
munar þar allt að 0,8 prósentust-
igum.
Þrátt fyrir þetta atvinnuleysi á
flestum stöðum utan höfúðborg-
arsvæðisins og Vestfjarða gætir
manneklu við ýmis störf. 1 lok
janúar vom rúmlega þúsund út-
lendingar við störf hér á landi og
em þá eingöngu taldir þeir, sem
þurfa atvinnuleyfi.
-Sáf
Hafnarfiörður
Nýir bankar í bæinn
Laugardagur 16. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Akranes
Haförn
kaupir
togara
Eflir atvinnulifið
Útgerðar- og fiskvinnslufyr-
irtækið Haförn hf. á Akranesi
hefur fest kaup á togaranum
Þresti HU 48 af Rækjuveri hf. á
Bíldudal, en hreppsnefndin féll
frá forkaupsrétti sínum.
Guðmundur Pálmason forstjóri
Hafamar hf. segir að togarinn
muni án efa efla atvinnulíf i kaup-
staðnum og auka á hráefnisfram-
boðið til fískvinnslu fyrirtækisins.
En Haföm hf. gerir einnig út togar-
ann Höföavík AK sem hefúr aflað
ágætlega það sem af er ársins.
Togarinn Þröstur HU hefur
verið gerður út frá Blönduósi, en
hann er 234 tonn að stærð og er
smíðaður i Póllandi. Kvóti skipsins
er um 1300 þorskígildistonn og
verða tíu manns í áhöfn þess. Tog-
arinn verður afhentur hinum nýju
eigendum í næstu viku og fer þá
fljótlega á veiðar.
Það samkomulag varð á milli
kaupenda og seljenda að gefa ekki
upp kaupverð togarans. -grh
Kvennalistinn
Ingibjörg Sðlrún
efst
Kvennalistinn hefur gengið
frá lista sínum til Alþingiskosn-
inga í Reykjavík og er Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir blaðakona í
fyrsta sæti. 1 2. sæti er Kristín
Einarsdóttir þingkona og Kristín
Astgeirsdóttir sagnfræðingur í 3.
I því ljórða er Guðrún J. Hall-
dórsdóttir þingkona, þá Guðrún
Guðbjömsdóttir sálfræðingur, í
sjötta sæti er Þórhildur Þorleifsdótt-
ir þingkona en Sigrún Helgadóttir,
líf- og umhverfisfræðingur, er í sjö-
unda sæti. Heiðurssætið, það 36.
skipar Guðrún Agnarsdóttir, læknir
og fyrrum þingkona. -gpm
Bílar
Nýjung frá Fíat
Italska verslunarfélagið kynnir
nú um helgina nýjustu afurðina frá
Fiat, Fiat Tempra, en billinn kom til
Iandsins um helgina. Jaínframt
verða kynntar nýjar árgerðir af öðr-
um gerðum af Fiat. Sýningin er op-
in í dag frá kl. 10-17 og á morgun
frákl. 12-17.