Þjóðviljinn - 16.02.1991, Qupperneq 6
ERLENDAR FRETTIR
Persaflóastríð
Hörð loftsókn - aðgerðalítil vöm
Óvíst hversu mikið hefur saxast á limi íraka. En friðartilboð Saddams bendir til þess að tekið sé að draga afher hans
|| egar þetta er ritað eru í
fyrsta sinn frá byrjun
Persaflóastríðs fyrir mánuði
teljandi líkur á að það verði
senn til lykta leitt. Af banda-
manna hálfu hefur stríð þetta
hingað til fyrst og fremst verið
óhemju hörð loftsókn sem
aldrei hefur verið lát á. Annað
megineinkenni stríðsins hefur
verið vörn Iraka, svo aðgerða-
lítil að mörgum þykir furðu
gegna.
Vitað var að yflrburðir banda-
manna voru fyrst og fremst í lofti
og að flugher þeirra er sá best
búni og hátæknilegasti sem
nokkru sinni hefur farið í stríð.
Það var því ekki við öðru að búast
en að þeir myndu beita honum
sem best þeir gætu. Á óvart kom
hinsvegar hve slöpp og athafnalít-
il vöm Iraka varð, þar eð talið var
að loftvamir þeirra væm allöflug-
ar og sömuleiðis flugher, enda
þótt að visu væri út ffá því gengið
að íraska flugherinn skorti mikið í
flugvélafjölda, tækni og þjálfun á
við andstæðinginn.
Lítiðtjón
bandamanna
Tjón bandamanna hefúr í
samræmi við þetta verið lítið,
miðað við fréttir frá þeim sjálfúm.
Þeir hafa samkvæmt þeim misst
36 flugvélar, rúmlega eina á dag
að meðaltali frá stríðsbyrjun, þar
af nokkrar af slysforum. Ljóst er
að yfírmenn flugheijanna bjugg-
ust við talsvert meira flugvéla-
tjóni. Alls segjast bandamenn
hafa látið 68 menn fallna, svo vit-
að sé með vissu, og 61 hafi verið
teknir til fanga eða séu týndir.
Sjóhemaður hefur ekki verið
mikill liður stríðs þessa, frekar en
við var búist, vegna enn meiri yf-
irburða bandamanna þar. Banda-
menn segjast hafa skotið i kaf eða
Iaskað 73 írösk herskip, sem flest
munu hafa verið fremur smáar
fleytur. Má ætla að þá sé ekki
mikið eftir af sjóher Saddams.
að þær yfirlýsingar séu ekki ein-
göngu orðin tóm, þó ekki væri
nema vegna þess að líklegt hefúr
verið talið að Irakar myndu nota
dráp á óbreyttum borgumm hjá
sér í áróðursskyni. Það hafa þeir
raunar þegar gert og með tals-
verðum árangri, eftir að um 300
(að sögn Iraka) óbreyttir borgarar
fómst er sprengja hæfði loft-
vamabyrgi í Bagdað. Þar að auki
hafa Bandaríkjamenn og Bretar
reynslu af þvi úr fyrri stríðum er
þeir háðu á öldinni að loftárásir á
óbreytta borgara dugðu skammt
til að lama baráttuþrek andstæð-
inga, þótt gífurlegu manntjóni
yllu.
Hæsta tala sem írakar hafa
gefið upp um óbreytta borgara,
sem farist hafi i loftárásum á land
þeirra í stríðinu, er um 7000. Mið-
að við tjón á óbreyttum borgumm
í loftárásum fyrri stríða og það
hve látlaus og umfangsmikill loft-
hemaður bandamanna hefur verið
er þetta ekki mjög há tala. (Um
5000 mannsfómst í einni af eitur-
gasárásum Irakshers á óbreytta
kúrdneska borgara, á Halabja.)
ífelum
í íbúöarhverfum?
Hvað sem líður tölum íraka
má ætla að tjón þeirra á óbreyttum
borgurum sé orðið talsvert. Hætt
er við að þegar ráðist er t.d. á sam-
göngukerfi og birgðastöðvar
verði fleiri fyrir sprengjunum en
menn í herþjónustu. Þar að auki
benda sumar fréttir, ffá Kúrdum í
írak m.a., til þess að írakar séu
famir að fela hereiningar, vopn og
ýmislegt fleira sem hemum heyrir
til í íbúðarhverfum.
Um baráttukjark írakshers,
hversu mikill hann sé og hvort
hann fari minnkandi, hefúr ýmis-
legt verið sagt og ber því ekki að
öliu leyti saman. En ætla má að
Saddam, fyrst hann nú í fyrsta
sinn frá stríðsbyijun gefur kost á
því að sleppa Kúvæt, sé farinn að
sjá sitt óvænna. dþ.
Á hinn bóginn er margt enn
nokkuð á huldu um það, hversu
mikinn sigur hefur tekist að vinna
á Irak þegar á heildina er litið,
þrátt fyrir harða aðsókn úr lofti og
að því er virðist slappa vöm.
Bandamenn segjast hafa eyðilagt
fyrir írökum yfir 130 flugvélar
a.m.k., auk þess sem á annað
hundrað séu flúnar til Irans. Sé
hér rétt með farið, má vera að Ir-
akar eigi enn eftir yfir 400 striðs-
flugvéiar í neðanjarðarbyrgjum,
sem sennilegt er að þeir hugsi sér
að spara til aðstoðar landhemum,
þegar bandamenn hefji sókn á
landi.
Fimmtungur eða
þriðjungur frá?
Að sögn bandamanna hafa
þeir höggvið stór skörð í raðir
íraska landhersins, talsmenn
þeirra hafa látið hafa eftir sér að
bardagageta hans sé þegar
skroppin saman um fimmtung eða
þriðjung og einhveijir hafa í því
sambandi nefnt enn hærri tölur. I
gær tilkynnti bandarískur stór-
fylkisforingi í landgönguliðinu að
nálega þriðjungur brynvagna (þ.á
m. skriðdreka) og stórskotatækja
íraska hersins í Kúvæt og Suður-
írak hefði verið eyðilagður.
Stríðsfréttir eru ekki vanar að
vera með áreiðanlegri tíðindum,
en jafnvel þótt þessar væm sann-
ar, þá þýða þær að írakar hafa enn
nógu mikið eftir af skriðdrekum
og stórskotatækjum til að geta
orðið landher andstæðinganna
erfiðir viðfangs, bresti þá ekki
kjark. Og þar við bætist spuming-
in um eiturgas og önnur skæð
vopn, sem Irakar luma á eða talið
er að þeir lumi á.
Enn óljósara er, miðað við
fréttir, hversu mikið tekist hefúr
að draga úr baráttugetu íraska
hersins með loftárásunum á önnur
skotmörk en hersveitir og her-
stöðvar, þ.e.a.s. fjarskipta- og
samgöngukerfi, stjómunarstöðv-
ar, vopnabúr, olíuhreinsunar-
stöðvar, olíubirgðir o.s.frv. Sumar
fregnir benda til þess að það tjón
sé mikið, en talsvert vantar á að sú
mynd sé skýr.
Tjón á óbreyttum
borgurum
Bandamenn segjast forðast
eftir bestu getu að valda tjóni á
óbreyttum borgumm og má ætla
Bandaríska flugvélamóðurskipið Saratoga á leið til Persaflóa - þarf eftir alltsaman ekki atlögu landhers til að
sigra írak?
Stiórnarskrárnefnd Sovétríkia
Hæpin tilskipun
Erfitt að réttlæta samkvæmt stjórnarskrá og
sé beitt við löggæslu
Elsta manneskja
heims öll
Carrie White, elsta manneskja
í heimi samkvæmt heimsmetabók
Guinness, lést á fimmtudags-
morgun á hjúkrunarheimili í Pal-
atka í Flórída, 116 ára að aldri.
Hún fæddist þar í fylki 18. nóv.
1874. Þá var Bandaríkjaforseti
Ulysses Grant, sigursæll hers-
höfðingi í bandaríska borgara-
stríðinu. Carrie var mikill aðdá-
andi Reagans fyrmrn forseta og
eitt af því síðasta sem hún sagði
var að hún ætlaði að taka frá fyrir
hann pláss „þama uppi“.
Agreiningur um
tilboð Saddams
Ágreiningur er sagður kominn
upp innan Óryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna um hvemig bregð-
ast skuli við skilyrðabundnu til-
boði Saddams lraksforseta um að
sleppa Kúvæt. Fimm þriðja-
heimsríki með aðild að ráðinu
telja að taka eigi áminnstar tillög-
ur íraks til athugunar. Em það
Jemen, Kúba, Indland, Zimbabwe
og Zaire. Bandaríkin, Bretland og
Frakkland, öll með fastaaðild að
ráðinu, vilja að það hafni tillögum
Iraks afdráttarlaust.
Stjórnarskrárnefnd Sovét-
ríkjanna kvað upp þann úr-
skurð í gær að ekki væri allt
með felldu um tilskipun Gor-
batsjovs forseta þess efnis, að
herinn taki þátt í löggæslu
ásamt lögreglu. Ekki væru
heldur óaðfinnanlegar reglu-
gerðir þær, sem gripið hefði
verið til í þeim tilgangi að
hrinda tilskipuninni í fram-
kvæmd.
Nefnd sú sem hér um ræðir
hefur það hlutverk að fylgjast
með því að stjómarskráin sé virt. I
úrskurði hennar í málinu segir
m.a. að lögum samkvæmt verði
ekki réttlætt svo óyggjandi sé að
sovéska hemum sé beitt innan
landamæra þeirra án þess að lýst
hafi verið yfir neyðarástandi.
Gorbatsjov birti tilskipun
þessa seint í janúar og kom hún til
framkvæmda 1. febr. Gerði Gor-
batsjov þetta að áeggjan Dmítríjs
Jazov, vamarmálaráðherra, og
Borísar Pugo innanrikisráðherra.
Jazov - stjórnarskrárnefnd býður
þeim Gorbatsjov byrginn.
Er herinn nú við löggæslu við hlið
lögreglu í um 450 borgum og
stærri bæjum. Róttækir og fijáls-
lyndir stjómmálamenn og leið-
lögum að hernum
togar rússneska sambandslýð-
veldisins og Eystrasaltsríkja mót-
mæltu ráðstöfún þessari eindregið
og kváðust telja að þetta væri
skref í þá átt að innleiða harð-
stjóm með herinn að baki. Sov-
éska stjómin segir þetta hinsvegar
gert til að draga úr glæpum, sem
farið hefur íjölgandi þarlendis
undanfarið.
Stjóm Rússlands undir for-
ustu Borísar forseta Jeltsins kærði
umrædda tilskipun fyrir stjómar-
skrámefndinni, en formaður
hennar er Sergej Aleksejev,
þekktur lögfræðingur og jafnað-
armaður að eigin sögn. Deilur
Jeltsíns og sovéska kommúnista-
flokksins, þar sem íhaldsmenn
ráða nú mestu, virðast fara harðn-
andi og er helst að sjá að íhalds-
menn leggi nú allt kapp á að koma
Jeltsín frá völdum. En vera má að
honum verði eitthvert lið að því
að stjómarskrámefndin skuli hafa
boðið Gorbatsjov byrginn.
Reuter/-dþ.
FANGELSISMÁLASTOFNUN
RÍKISINS
auglýsir eftir starfskrafti til að annast félagslega þjónustu
við fanga og sjá um eftirlit með þeim, sem dæmdir eru
skilorðsbundiö, fá skilorðsbundna reynslulausn, náðun
eða frestun afplánunar. Æskilegt er að viðkomandi hafi
félagsráðgjafamenntun eða sambærilega menntun. Nán-
ari upplýsingar eru veittar í síma 623343.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf,
sendist Fangelsismálastofnun ríkisins, Borgartúni 7, 150
Reykjavík, eigi síðar en 1. mars nk.
Fangelsismálastofnun ríkisins,
12. febrúar 1991
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. febrúar 1991