Þjóðviljinn - 16.02.1991, Side 10

Þjóðviljinn - 16.02.1991, Side 10
Munaðarleysingjar í kröggum anlegi leiðtogi franskra kommún- ista, lýsti því yfir að það hefði verið flokkur hans sem fann upp perestrojku... Svo virðist em afstaða af þessu tagi hafi einnig hentað þörfum ýmissa „munaðarleys- ingja“. Alla vega varð ég fljótt var við að ýmsir þeirra gripu feg- ins hendi tækifærið til að yppa öxlum yfir Eystrasaltsríkjunum, og var þá viðkvæðið að þessi lönd væru í raun og veru eðlilegur hluti Sovétrikjanna, stóri hluti íbúanna væri hvort sem er af rússenesku bergi brotinn og liti á sig sem slíkan og þetta væru heldur ekki nein „alvöru“ riki, því þau hefðu ekki verið sjálfstæð nema í fáein ár í allri sögu sinni, - á tímum þegar Sovétmenn áttu í vök að verjast fyrir óvinum sínum... Það væri því eins líklegt að sjálfstæð- isbrölt íbúa Eystrasaltslandanna, eða þeirra sem væru þar í farar- broddi, stafaði af einhveijum annarlegum ástæðum og væru kannske einhverjir að róa undir. Með þessu var eins og „munaðar- Ieysingjamir“ gerðu sér vonir um að bjarga á einhvem hátt fyrri af- stöðu sinni og viðhorfum upp úr öskutunnum sögunnar, þar sem svo margt virðist nú endanlega horfið, og réttlætt hvort tveggja með því að draga fram eitthvert í neðanjarðarlestarstöð í út- jaðri Latínuhverfisins í París blasti við áletmn sem einhver hafði krotað stómm stöfum á vegg, en greinilega í nokkmm flýti. „Hvað ætlar þú að gera fyrir sjálfstæði Eystrasaltslanda?" stóð þar letrað, og var ekki laust við að mér þætti hún nokkmm tíðindum sæta, þegar ég átti leið um þennan stað: þetta var nefhilega fyrsta - og eina - veggjakrotið sem ég hef séð, þar sem eitthvað er vikið að atburðum í þessum hluta Evrópu. En þótt spumingin mætti augum ófárra hundmða og jafnvel þús- unda manna á degi hveijum, munu þeir færri sem gátu haft í frammi einhveija tilburði til að svara henni: hún var nefnilega skrifuð á esperantó. „Sennilega einhver gamall og góðlyndur hugsjónamaðurinn á Þórbergslín- unni,“ hugsaði ég, „sem hefúr orðið innlyksa í Eystrasaltslönd- unum, þar sem hann hefur síðan mátt horfa upp á skipbrot komm- únismans. En nú er hann kominn á kreik og heldur að þrátt fyrir allt sé heimurinn óbreyttur og hug- sjónimar gömlu um sjálfstæði þjóða og alheimsbræðralag utan um alþjóðatungumál séu enn í gildi“ Daufleg víöbrögð 1 þessu kaldranalega upphafi síðasta áratugs aldarinnar virtist það því miður harla ólíklegt að meira en örfáar hræður myndu skilja tungumál mannvinarins dr. Zamenhofs, þar sem það var letr- að á vegg í neðanjarðarlestarstöð, eða hafa yfirleitt nokkra hug- mynd um hugsjónir hans. Alla vega mun færri en þeir tvö hundr- uð menn sem höfðu lagt það á sig skömmu áður að mæta á fundi fyrir utan sovéska sendiráðið í París til að mótmæla yfirgangi rússneska hersins í Litháen, - daginn eftir að tvö hundruð þús- und manna höfðu mótmælt því að Frakkar skyldu taka þátt í að skakka leikinn við Persaflóa og sýna Saddam Hússein Kúrdabana í tvo heimana. Ef Gorbatsjov skyldi hafa ákveðið að grípa tækifærið, með- an augu heimsins beinast að harð- stjóranum í Millifljótalandi, til að láta til skarar skríða í Eystrasalts- löndunum og sveigja íbúa þeirra aftur undir Moskvuvaldið, bendir flest til þess að hann geti óhrædd- ur hrundið þeirri áætlun í fram- kvæmd: það hefur þegar sýnt sig að íbúar Eystrasaltslanda geta ekki treyst nema að mjög tak- mörkuðu leyti á stuðning Vestur- evrópubúa, og í Frakklandi kem- ur tómlætið æ betur í ljós. Þótt ýmsir fréttaskýrendur, ekki síst í stórblaðinu „Le Monde“, hafi enga tæpitungu um það, að með atburðunun í Lettlandi og Litháen hafi hin margrómaða perestrojka verið að geispa golunni endan- lega, fá orð þeirra lítinn hljóm- grunn meðal almennings, - eins og þau væru skrifúð á einhverju framandi tungumáli. Þetta stafar ekki eingöngu af því að Frakkar eru nú með augun í allt öðrum heimshluta, heldur kemur sitthvað fleira til sögunnar. Frá fomu fari hafa Fransmenn verið harla áhugalitlir um bram- bolt fjarlægra smáþjóða (eða þjóða sem þeir telja smáar), hvort sem það er sjálfstæðisbarátta eða annað. I klassísku háðsleikriti stendur: „Leikritið gerist í Pól- landi, þ.e.a.s. hvergi“, og hafi af- staðan gagnvart föðurlandi Wa- lesa breyst eitthvað á síðari árum er viðhorfið jafhsterkt og áður þegar nágrannalönd þess em eitt- hvað á dagskrá. En við þetta bæt- ist hin sérstaka sálarkreppa þeirra fjölmörgu Fransmanna, sem kannske væri hægt að kalla „munaðarleysingjana": það eru þeir sem tóku trú marxismanns, þegar hann var nánast því opinber trúarbrögð menntamanna og margra annarra þar í landi, rétt eins og Káinn tók á sínum tíma kýrrassatrú, og eiga í mjög mikl- um erfiðleikum með að sætta sig við að þeir hafi í fjölmörgum stríðum haft alrangt fyrir sér og verið á villugötum sem leiddu út í auðnir og vegleysu. Hér er reynd- ar ekki verið að tala um þá sem stóðu í fararbroddi í marxisma, stalínisma, maóisma, casstrisma, térmondisma, kimilsúngisma og öllu þvi, heldur alla hina sem fylgdu þeim í góðri trú og granda- leysi. Þetta var nokkuð breið fylk- ing, sem tók fullt mark á þeim vé- fréttarorðum Sartres á sínum tíma, að marxismi væri sá sjón- deildarhringur hugsunarinnar á okkar tímum sem ekki væri hægt að komast út fyrir, og af því ein- mitt að mennimir voru í góðri trú reyndu þeir í lengstu lög að grípa öll tiltæk hálmstrá og létu sér þannig úr greipum ganga tæki- færin til að snúa við skyrtunni á sannfærandi hátt. Þótt það fari ekki mjög hátt, eru þessir menn nú gjaman í sárum kröggum og margir eiga vart aðra ósk heitari en að eitthvað gerist, eða eitthvað komi í ljós, sem sýni að þeir hafi ekki verið alveg villuráfandi í sinni bamatrú, eða réttlæti fyrri skoðanir þeirra að einhveiju leyti a posteriori. Því verr þeim mun betra Þannig hitti ég nýlega með- reiðarsvein franska kommúnista- flokksins (þeir em nú fáir eftir), sem gerði sér einhveija óljósa von um að allt færi í kaldakol í Póllandi undir stjóm Walesa, - svo mjög að einhver grandvar maður (en alls ekki að fyrra bragði hann sjálfur) gæti sagt með sann: „eftir allt var Jarús- elskí ekki svona alvondur..." Þeir munu þó færri sem hafa svona ótvíræða afstöðu, enda ekki auð- velt að verja fyrra stjómarfar, þegar um Pólland er að ræða. En um Eystrasaltsríkin gegnir öðm máli, og gaf „L'Humanité“, mál- gagn franska kommúnistaflokks- ins, tóninn fyrir skömmu, þegar það lýsti yfir ótvíræðum stuðn- ingi við Gorbatsjov í baráttu hans við hin myrku íhaldsöfl í Sovét- ríkjunum undir forystu Boris Jelt- síns. Það var einmitt eftir að sov- éski herinn hafði ráðist til atlögu í Vilnius og Riga, en Jeltsín hafði tekið afstöðu gegn þessum að- gerðum og sagt, að ef íbúar Eystrasaltslandanna vildu fá sjálf- stæði væri engin ástæða til annars en þeim yrði að ósk sinni. Þama fengu kommúnistamir sem sé gullið tækifæri. Með því að ganga til stuðnings við Gorbat- sjov, þegar hann (eða undirtyllur minntur ræki lega á það. Hvenær sem maður kemur á opinberan stað standa nefnilega einhverjir verðir við dymar með borða um handlegginn, biðja alla sem þang- að eiga erindi að opna handtöskur sínar og hvað annað hafúrtask sem er, og Ieita síðan vandlega. Persaflói og friöarhreyfingar Þetta er gert í pósthúsum, stórverslunum, sundstöðum og háskólabyggingum, svo einhveij- ir staðir séu nefndir, og er leitað jafnt hjá gömlum konum og mið- aldra bisnismönnum sem ung- lingum. I þetta skipti skulu hryðjuverkamennimir, sem allir eru að bíða eftir, ekki komast upp með neitt múður. Almenningur tekur þessu öllu með ró og spekt, þótt sá orðrómur gangi fjöllunum hærra, að þegar hafi verið ffamin ýmis sprengjutilræði, en fréttir af þeim verið þaggaðar niður til að gera menn ekki áhyggjufúlla. Ef menn lesa þessar línur í samhengi, gætu þeir haldið að þama hafi „munaðarleysingjam- ir“ hlotið að sjá sér leik á borði; því hvað ætti að vera auðveldara en gefa öllum sínum fyrri hug- myndum nýja merkingu og tengja þær jafhframt gamalgróinni hefð með því að fylkja sér í forystu- sveit voldugrar friðarhreyfingar? í þessu hafa franskir kommúnist- ar verið miklir meistarar áratug- um saman. En þótt undarlegt megi virðast fór friðarhreyfingin gegn hemaði Frakka við Persa- flóa, sem byijaði með svo fjöl- mennum mótmælagöngum, mjög fljótt að hjaðna upp úr því. Stuðl- aði ýmislegt að þessu. Greinilegt er, að svokallaðar ffiðarhreyfing- ar hafa sjaldan barist fyrir ffiði í sjálfu sér, heldur hefúr yfirleitt falist í baráttu þeirra ósk um að „andstæðingurinn“ sigri: þetta var augljóst í Alsírstríðinu og Ví- etnamstríðinu, enda má segja að þá hafi ffiðarsinnar hafl nokkuð til síns máls. En hvemig sem þeir teygðu nú málið og toguðu, var erfitt að komast fram hjá þeirri staðreynd að Saddam Hussein var ekki beinlínis í húsum hæfúr. Friðarsinnum varð því svarafátt, þegar menn bentu á að Persaflóa- striðið væri alls ekki ný útgáfa af styijöldunum í Alsír eða Víetnam og sú afstaða sem þá kann að hafa verið rétt og verjanleg stoðaði lít- ið nú. Upp úr þessu kom sundrung i liðið. Rithöfúndurinn Gilles Per- rault hvatti ffanska hermenn að vísu til að gerast liðhlaupar og fremja skemmdarverk á sínum eigin hertólum, en hafði það eitt upp úr krafsinu að gera ffiðar- sinna ráðvillta. Klofningur kom upp í samtökunum „SOS-kyn- þáttahatur“, sem hafa látið mikið til sín taka í Frakklandi undanfar- in ár og lögðust gegn stríðinu strax í byijun: ýmsir áhrifamenn sögðu skilið við samtökin og sök- uðu forsprakka þeirra um „Munchenaranda". Þannig virðast fá hálmstrá eft- ir fyrir „munaðarleysingjana": upphaflegu hugsjónimar era löngu týndar, villiráfið er eitt eftir í minningunni, og nú standa þeir ráðvilltir i gerbreyttum heimi. e.m.j. Einar Már Jónsson hans, sem hann gat meira eða minna hamið) hagaði sér sam- kvæmt kokkabókum fyrirrennar- anna í stórrússneskum anda, gátu þeir nefnilega slegið tvær flugur í einu höggi: þóst vera að styðja umbótaviðleitni Gorbatsjovs, eins og hún væri enn við lýði, en halda jafnframt fast við þá harðlínu sem löngum hefur verið séreinkenni ffanskra kommúnistaríkja og fylkja sér um Sovétmenn í þeirra hefðbundnu heimsveldisstefnu. Þetta var næstum því eins snjallt og þegar Marchais, hinn óhagg- samhengi sem þó væri í takt tið tímann... En þetta hefur í rauninni ekki farið mjög hátt, því þessa stund- ina hafa Frakkar um annað að hugsa, og það svo um munar. Ef maður skyldi gleyma því, líður aldrei á löngu áður en hann er 10.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. febrúar 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.