Þjóðviljinn - 15.03.1991, Blaðsíða 7
Kröfuganga I Leipzig í mars 1991 -1 fyrri göngum þarvarKohl hylltur, núerhann minnturá kosningaloforð, semekki hefur verið stað- Leipzigbúar [ kröfugöngu [ des. 1989 láta í Ijós
ið við- álit sitt á Erich Honecker - nú er ekki laust við að
sumir þeirra sakni hans.
„Við erum annars flokks borgarar"
Fyrirtæki hrynja unnvörpum í Austur-Þýskalandi og búist er við að yfir helmingur starfsmanna ríkis og sveitarfélaga
muni missa atvinnuna. Margir eru famir að horfa með söknuði um öxl til Honecker-tímans
Haustið 1989 gekk fólk í
tug- og hundruðþúsunda
tali um götur Leipzig
kvöld eftir kvöld, sérstak-
lega á mánudagskvöld-
um. Fólkið krafðist tján-
ingar- og ferðafrelsis,
frjálsra kcsninga, samein-
ingar þýsku ríkjanna, sem
þá voru enn tvö, og hylltu
Helmut Kohl, sem líka þá
var sambandskanslari, en
bara Vestur- Þýskalands.
Síðan þá er Leipzig gjaman
kölluð „hetjuborgin.“ Ibúar
þessarar gömlu borgar á svæði,
þar sem áður var saxneska kon-
ungsríkið/kjörfurstadæmið,
voru sterkasta aflið í þeirri frið-
samlegu byltingu, sem knúði
austurþýska kommúnistaflokk-
inn til að láta af'alræðisvaldi.
Þar með var brautin mdd að
sameiningu Þýskalands.
Og enn
ganga þeir
Það var í annað sinn sem íbú-
ar þessa svæðis brutu blað í
Þýskalandssögu. Það er sem
kunnugt er einnig fæðingarland
lútherstrúar.
Einnig þessa dagana fara
Leipzigbúar i kröfugöngur, oft
tugþúsundum saman. Þær vekja
ekki eins mikla athygli frétta-
miðla og hinar fyrri. Nú er mót-
mælt atvinnuleysi, versnandi
lífskjörum margra og hruni fyrir-
tækja, sem og seinlæti stjóm-
valda sameinaðs Þýskalands við
að gera ráðstafanir til úrbóta. Ef
Helmut Kohl, sem hét þvi að
Austur-Þýskaland skyldi „standa
í blóma“ eftir sameininguna, léti
sjá sig þar nú yrði hann að öllum
líkindum púaður niður.
„Það kemur fyrir að maður
saknar Erichs (Honeckers)“, seg-
ir kona um fertugt. Hún er í
langri biðröð við vinnumiðlunar-
skrifstofu.
Hingað til hefur sameiningin
aðallega fært með sér efnahags-
lega hnignun fyrir fylki þau sem
áður vom austurþýska ríkið.
Heilar fýrirtækjakeðjur em lagð-
ar niður. I Leipzig verður véla;
og efnaiðnaður harðast úti. í
Mecklenburg-Vestur-Pommem,
því nyrsta af fylkjunum sem
Austur- Þýskalandi var skipt í,
blasir hmn við skipasmíðastöðv-
um, landbúnaði og ferðamanna-
þjónustu. Málmiðnaður austur-
fylkjanna sem heild berst í bökk-
um vegna þess hve viðskiptin
við Austur-Evrópu og Sovétríkin
hafa skroppið saman.
Sakna
afkomuöryggis
I kosningabaráttunni s.l. ár
Iofaði Kohl að enginn skyldi
tapa á sameiningunni, og með
því loforði sópaði flokkur hans,
kristilegir demókratar, að sér at-
kvæðum Austur-Þjóðverja og
vann kosningamar. í eyrum
Leipzigbúa, sem em um hálf
miljón talsins, og Austur-Þjóð-
verja yfirleitt hljómar það loforð
nú sem háð. Sérstaklega í eyrum
þeirra sem em atvinnulausir eða
í einhverri málamyndavinnu
stund úr degi. Þeir em nú næst-
um tvær miljónir. Næstum þriðji
hver vinnufær maður í austur-
fýlkjunum hefur á einn eða ann-
an hátt fengið að kenna á at-
vinnuleysinu.
Stjómmálamenn og hagfræð-
ingar segja að þetta séu tíma-
bundin vandræði, sem standi yfir
meðan markaðskerfi vestursins
sé að taka við af gamla mið-
stýrða kerfinu. Almannatrygg-
ingamar, sem í Þýskalandi em
með besta móti eftir því sem ger-
ist, em líka mörgum til hjálpar.
En almenningur er orðinn tor-
trygginn á fyrirheit stjómmála-
mannanna að vestan. Fólkið hef-
ur mótast í samfélagi, þar sem
réttur til að hafa vinnu var gmnd-
vallaratriði og atvinnuleysi
þekktist varla.
Enda er talsvert orðið um það
að menn minnist „gamla tím-
ans“, sem mörgum finnst nú þeg-
ar orðinn furðu fjarlæg fortíð,
með nokkmm söknuði. Sérstak-
lega saknar fólk afkomuöryggis
þeirrar tíðar bg gerir um leið lítið
úr þvi, sem flestum var mestur
þymir í augum áður, skoðana-
kúgun og vöntun á lýðræði og
öryggisþjónustunni Stasi, sem
allsstaðar var nálæg.
Olnbogabörn
nýja kerfisins
Ríkisrekni geirinn var sem
kunnugt er sá langfyrirferðar-
mesti í efnahagslífi gamla ríkis-
ins og nú er það hann sem verður
verst úti. I ríki Honeckers áttu öll
böm greiðan aðgang að forskól-
um og dagheimilum, sem raunar
var óhjákvæmilegt, þar eð lang-
flestar mæður unnu utan heimil-
is. En nú er viðbúið að þeim
stofnunum verði lokað unnvörp-
um. Stórfelldur samdráttur stofn-
ana á vegum ríkis og sveitarfé-
laga í heild sinni er raunar þegar
hafinn. Mikill mcirihluti þess
starfsfólks hins opinbera, sem
þegar hefur misst vinnuna, fær
að líkindum ekki samskonar
störf aflur. Einna vonlausastir af
ölluin um það em dómarar, há-
skólakennarar, lögreglumenn og
atvinnuhermenn. Þeir vom
hrygglengja gamla kerfisins,
eins og einn fréttaskýrandinn
orðaði það, og em því öllum öðr-
um fremur útilokaðir í því nýja.
Næstum tvær miljónir manna
vinna enn hjá því opinbera í
austurþýsku fýlkjunum og talið
er að þeim störfúm eigi eftir að
fækka um meira en helming.
I Leipzig var atvinnuleysið í
jan. tæplega átta af hundraði, en
var um 6,5 af hundraði í des. En
um helmingi fleiri þar vinna að-
eins hluta dags. Sú atvinna er
fjármögnuð af stjómvöldum og
þau hætta þvi nú á miðju ári. Þá
verða þeir, sem verið hafa í þeim
störfum, atvinnulausir með öllu.
Fjórföld
hækkun á
sporvagnamiöum
Við þetta er að bæta að 1. júlí
verða atvinnuleysisbætur lækk-
aðar vemlega. Gamla kerfið hélt
verðlaginu niðri, en nú hækkar
það á nauðsynjavömm og þjón-
ustu. Verð á bensíni hefur þre-
faldast og sporvagnamiðar kosta
nú fjórfalt meira en var meðan
Sósíalíski einingarflokkurinn
(hinn kommúniski ríkisflokkur
Austur- Þýskalands) ríkti. Laun
hafa að vísu hækkað einnig, en
sú kjarabót kemur ekki þeim at-
vinnulausu til góða.
Kröfu- og mótmælagöngum-
ar í Leipzig nú nema yfirleitt
staðar fýrir framan ópemhúsið á
torgi, sem á tíð Honeckers og fé-
laga hét Karl-Marx-Platz en hef-
ur nú aftur fengið sitt fyrra nafh,
Augustusplatz, sem mun vera
dregið af nafni einhvers kjör-
fursta gamla Saxlands. Þar var
líka endastöð gangnanna 1989.
„Við erum annars flokks
borgarar,“ segir eitt kvöldið einn
ræðumanna þar, Ebcrhard Wagn-
er, skipasmiður frá Rostock. „Og
þeir þama fyrir vestan fara að
eins og nýlendudrottnar.“ A und-
irtektum ljöldans á torginu leyn-
ir sér ekki að hann er sammála.
Einskis
annars kostur
Embættismenn segjast óttast
að vonleysi íjölda fólks um að
eitthvað muni úr rætast á næst-
unni kunni að hafa alvarlegar af-
leiðingar fýrir framtíð margra.
En þeir búast ekki við óeirðum.
Ibúar núverandi austurfýlkja
Þýskalands hafa raunar reynsl-
una af því að sætta sig við orðinn
hlut, nauðugir viljugir. Þeir sættu
sig að vissu marki við að vera
borgarar þess ríkis, sem Stalín og
nokkrir þýskir kommúnistar,
sem lifað höfðu af „hreinsanir"
hans og fangabúðir Hitlers,
stofhuðu upp úr heimsstyijöld-
inni síðari. Almenningur þar
sætti sig við það hreinlega vegna
þess, að annars var ekki kostur
fyrir flesta. Og sennilega hugsa
Austur-Þjóðverjar eitthvað svip-
að nú. Nýtt kerfi er að taka við af
því gamla og á engu betra kostur
fyrir flesta en að sætta sig við
það sem því fylgir, líka það
slæma. Margir, en ekki allir, gera
það í þeirri von að úr muni rætast
með tíð og tíma.
Aðalheimild: SvD
aAM&0//J
OPIÐ UM
HELGINA
"Pigs in space "
á miðnætti.
Miðaverð kr. 500,- /
Laugaregur116
ALLIR VELKOMNIR
Föstudagur 15. mars 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 7