Þjóðviljinn - 15.03.1991, Síða 8

Þjóðviljinn - 15.03.1991, Síða 8
NÝTT þlÚÐVILIINN Útsefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f. Afgrelðsla: *r 68 13 33 Framkvæmdastjórl: Hallur Páll Jónsson Auglýslngadelld: * 68 13 10 - 68 13 31 Ritstjórar: Ámi Bergmánn, Helgi Guömundsson, Slmfax: 68 19 35 Ólafur H. Torfason Verð: 150 krónur 1 lausasölu Umsjónarmaður Helgarfoiaðs: Ragnar Karlsson Fréttastjórl: Slguröur Á. Frlðþjófsson Auglýsingastjóri: Steinar Haröarson Setning og umbrot: Prentsmlöja Þjóðvlljai Prentun: Oddi hf. Aðsetur: Síðumúla 37,108 Reykjavfk ishf. Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Stirðnað verðmyndunarkerfi á kóki? I dag er alþjóðadagur neytendaréttar. Nú væri hollt í tilefni dagsins fyrir fulltrúa neytenda og bænda á nýliðnum landsfundi Sjálfstæðis- flokkanna að líta í nýtt blaö Neytendasamtak- anna, til að bera saman við frumstæða og blekkjandi ályktun landsfundarins um neytenda- mál, þar sem landbúnaðurinn var enn einu sinni gerður að blóraböggli. 1. tbl. Neytendablaðsins 1991 upplýsir að kók hafi í skyndikönnun reynst 24-37% dýrara í búðum í Reykjavík en í Kaupmannahöfn, jurta- smjörlíki 88% dýrara og íslenskt maltöl 115% dýrara en danskt. Allt eru þetta innlendar fram- leiðsluvörur í frjálsri samkeppni. Danskt kaffi var 75% dýrara hér en úti og dönsk rúlluterta 82% dýrari. Mjólk reyndist í sömu könnun Neytendasam- takanna 1,2% dýrari á íslandi, jógúrt 24% dýr- ara, lambakjöt 27% dýrara í Reykjavík en Kaup- mannahöfn - en undanrenna 14,3% ódýrari frá íslenskum bændum en dönskum. Niðurstaðan er þessi: Vörur eru að jafnaði dýrari hér en erlendis, en andstætt því sem gjarnan er haldið fram, er munurinn stundum minni á búvörunum en þeim vörum sem búa við „eðlilega verðmyndun og frjálsa samkeppni“. Sjálfstæðisflokkarnir nefndu hins vegar í ályktun sinni enga aðra tegund vöru sem þyrfti að lækka í verði en búvörur: „Búvörur eru meðal mikil- vægustu neysluvara heimilanna ... nauðsynlegt (er) að gæta hagsmuna neytenda, losa um stirðnað verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og tryggja eðlilega samkeppni í framleiðslu og sölu á búvöru“. Hnykkt er á þessari staðhæfingu um að lækkun á landbúnaðarvörum sé nær eina við- fangsefnið, með því að fullyrða að ásamt leið- réttingum í skattamálum felist „mikilvirkustu að- gerðirnar til að lækka rekstrarkostnað heimil- anna ... í lækkun búvöruverðs..." Hvers vegna vilja Sjálfstæöisflokkarnir ekki virða staðreyndir? Vísitala framfærslukostnaðar sýndi í des. 1990 að vísitölufjölskyldan eyddi tæpum 7% af tekjum sínum til að kaupa búvörur sem háðar eru verðlagsgrundvelli, en kostnað- urinn við heimilisbílinn nam til samanburðar 11,5% af tekjunum. Húsnæðiskostnaður var 11,6% af heildinni. Alls fara aðeins um 10% af útgjöldum heimil- anna til að kaupa innlendar landbúnaðarafurðir. Þetta þýðir, að þótt öll framleiðsla bænda lækk- aði strax um 20% á morgun, mundi það aðeins nema 2% lækkun á heildarútgjöldum heimil- anna. Hvernig samrýmist þetta fleipri Sjálfstæð- isflokkanna um að „mikilvirkustu aðgerðirnar" neytendum til hagsbóta felist í verðlækkunum á vöru bændanna í landinu? Það er undarlegt fá- læti ef bændasamtökin og afurðastöðvarnar láta Sjálfstæðisflokkana komast upp með þessar rangfærslur. Alþýðubandalagið samþykkti einnig kosn- ingaályktun um síðustu helgi. Þar kemur skýrt fram, að sú kaupmáttaraukning og kjarajöfnun sem máli skipta felast í byltingum á fleiri vígstöð- um en í landbúnaði. Alþýðubandlagið vill hag- ræðingu í öllum greinum sölu og þjónustu, kjara- jöfnun með hátekjusköttum, skattlagningu fjár- magsntekna, hækkun skattleysismarka og húsaleigubótum. Neytendasamtökin hafa starfað hér frá 1953, starfsemi þeirra orðin býsna fjölbreytt og tekið til margs konar þátta með góðum árangri. Brýn þörf er samt á því, neytendum til hagsbóta, að Neytendasamtökin eflist og verði í framtíðinni jafn sjálfsagður aðili hér og víða annars staðar til umsagnar, ráðgjafar og þátttöku við stefnu- mörkun, stjómun og ákvarðanatöku á ýmsum sviðum þar sem hagur neytenda er eitt mark- miðanna. [ kosningastefnuskrá Alþýðubandalagsins segir orðrétt: „Neytendamál verða æ mikilvæg- ari. í því sambandi ber að leggja áherslu á styrk- ingu Neytendasamtakanna". Það segir sitt um hug Sjálfstæðisflokkanna, að hvergi er minnst á Neytendasamtökin í landsfundarályktun um neytendamál. Alþýðubandalagið tengir neytendamálin beint og á rökréttan hátt aðalkröfu flokksins um aukinn jöfnuð í samfélaginum, aðra skiptingu þjóðarteknanna, til að auka kaupmátt launa- fólks. Neytendasamtök og neytendaréttur eru almennt á lægra stigi í Evrópubandalaginu held- ur en t.d. á Norðurlöndunum. Viðskiptajöfrarnir sem ráða ferðinni í EB líta á margar kröfur neyt- endasamtaka sem hvem annan óþarfa og kostnaðarsama heimtufrekju eða sérvisku. Þetta ættu þeir einnig að hugleiða sem ímynda sér að hagsmunum þegnanna sé best borgið með sem nánustum tengslum við „nútímann" í 0-ALIT 8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 15. mars 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.