Þjóðviljinn - 15.03.1991, Síða 16
HELGARMENNINGIN
er hér
Jakob
Það var alltaf ætlunin að
segja meira frá Santiago de
Compostela, borg heilags Jakobs
á Spáni, en Sylvía Plath truflaði
mig í vikunni sem leið. Heim-
sóknin sem ég sagði frá í vikunni
þar á undan (hver sagði að Þjóð-
viljinn birti ekki framhaldssög-
ur?) var bara sú fyrsta, farin með
Mariu, leiðsögumanninum sem
var með okkur alla ferðina i rút-
unni. Eftir hana fórum við heim
á Hótel postulanna og lögðumst í
bæklinga til að reyna að átta
okkur á sögu Jakobs postula
eldra.
Sagan segir að hann hafi
gerst trúboði eftir dauða Krists
og komist til Spánar þar sem
hann hafi farið um og predikað.
Þaðan er sagt að hann hafi farið
til Rómar og verið tekinn af lífi
(iíklega hálshöggvinn) af Róm-
veijum. En um það bil átta
hundruð árum síðar varð ein-
setumaður í Galisíu var við ein-
kennilegt ljós og ljúfa tónlist í
skóginum við kofann sinn. Hann
gerði Teodomiró biskupi við-
vart, og biskupinn kom og fann
hvorki meira né minna en lík-
amsleifar Jakobs og tveggja
lærisveina hans sem höfðu borist
á undursamlegan hátt alla þessa
leið.
Ekki fannst sagnfræðingn-
um sem með mér var þessi saga
sennileg. En mér þótti sem margt
ósennilegra hefði gerst í fom-
eskju og um þetta var þráttað þar
til sagnfræðingurinn sagði: Ann-
ars getum við gert út um þetta á
morgun, við Jakob.
Daginn efiir fórum við aftur
inn í Santiago og hittum sérstak-
an galisískan leiðsögumann og
sérfræðing í sögu borgarinnar.
Það var sannarlega sjón að sjá
þann mann. Hann var á að giska
tæplega sextugur, lágvaxinn,
þrekinn og jafnbola. Þó að heitt
væri í veðri var hann í þykkum,
svörtum jakkafotum sem af lagði
sterkan þef af sagga, svita og
tóbaki. Maðurinn var með þykkt,
svart og fitugljáandi hár niður á
herðar og andlit úr dökkbrúnu
leðri sem lá í þykkum boga-
dregnum fellingum eins og gard-
ínur sem teknar eru upp báðum
megin. I munnfellingunni var
ævinlega tendruð frönsk goulo-
ise sígaretta nema þegar stuttir
fingumir tóku hana burt til að
maðurinn gæti talað.
En merkilegust vom augun,
lítil, svört og ákafiega þétt sam-
an. Og reyndu þó að komast enn-
þá nær. Galisíski Ieiðsögumað-
urinn var ákafiega rangeygður.
Litlu svörtu augun mnnu í eitt
þar sem nefið byrjar og það var
aldrei nein leið að sjá á hvað
hann var að horfa. Þegar hann
talaði til manns varð maður sjó-
veikur af áreynslunni við að
reyna að horfa i augun á honum.
Eða kannski af stækjunni af fot-
unum hans. Eða brækjunni frá
sígarettunum. Eg veit það ekki.
Þetta var dásamlegur leið-
sögumaður. Hann talaði ensku
og þýsku af fullkomnu öryggi,
og allt vissi hann sem hægt var
að vita - um hús og húsagerðar-
list, sagnfræði og þjóðsögur, siði
og venjur síns fagra héraðs.
Spönsku talaði hann vitaskuld,
en galisíska var hans tunga,
merkt tungumál og náskylt
portúgölsku.
Hann gekk með okkur inn í
gamla bæinn og benti á merkis-
staði á báða bóga. Þegar við
komum á kirkjutorgið sagði
hann okkur ffá byggingunum í
kringum það og þá sérstaklega
frá pílagrímaspítalanum til
vinstri við kirkjuna. Hann var
settur á fót af kaþólskum þjóð-
höfðingjum til að hlynna að
sjúkum pílagrímum og gegndi
veigamiklu heilbrigðishlutverki
um aldir, en Franco (sem enginn
leiðsögumaður nefndi með
nafni, þeir kölluðu hann á ensku
„the former head of state“, fyrr-
verandi þjóðhöfðingja) innlim-
aði hann í keðju af svokölluðum
„landshótelum", lúxúsgististöð-
um fyrir toppembættismenn sína
og erlenda auðjöfra sem vildu
fjárfesta á Spáni. Húsið er listi-
lega byggt úr galisísku graníti,
fagurlega úthöggnu, og er fræg-
asta hótel í landinu.
Svo leit leiðsögumaðurinn á
úrið og sagði að nú væri tíminn
kominn til að fara inn í kirkjuna;
við værum lánsöm, einmitt í dag
yrði hefðbundin athöfn í kirkj-
unni sem fátítt væri að ferða-
menn fengju að sjá.
Þegar Santiago de Compost-
ela var einhver vinsælasti helgi-
staður í heimi komu þangað
milljónir pílagríma á ári. Margir
þessara manna voru sárafátækir
og sjálfsagt hefur það stafað af
því ekki síður en trúrækni að
fjöldi þeirra gisti í kirkjunni
meðan þeir stóðu við. Af þessu
varð mikil fýla inni í kirkjunni,
sagði leiðsögumaðurinn og
hryllti sig svo að askan úr sígar-
ettunni sáldraðist jafnt yfir báða
jakkaboðunga, og nokkrum
sinnum á ári er kirkjan hreinsuð.
Ekki er þó ráðist gegn orsökum
fýlunnar með því að skúra gólf
og spúla veggi, heldur er kirkjan
fýllt af nýrri lykt. En það er gert
á eftirminnilegan hátt.
I húsagarðinum inni í
kirkjubyggingunni eru hituð kol
á eldi. Glóandi eru þau svo tekin
og sett neðst í geysimikið reyk-
elsisker, á hæð við átta ára bam
og sextíu kíló á þyngd. Ofan á
þau er reykelsið sett og kerinu
lokað, svo rogast tveir menn
með það inn í kirkjuna. Þar er
það hengt á sinn stað, í mikið
reipi sem hangir niður úr hvelf-
ingunni. Fimm munkar raða sér
nú á bönd og byrja að toga kerið
upp í hvelfinguna. Um leið og
það er laust frá gólfi fer það af
stað, sveifiast smám saman
stærri og stærri sveifiur og frá
þvj gusast undursamlegur ilmur.
„Botafumeiro" er það kallað,
þetta fræga gullna sveifiuker í
dómkirkjunni í Santiago.
Við íslendingamir horfðum
hugfangnir á þessa makalausu
sjón: munkana fimm sem toguðu
og toguðu, kerið mikla sem hófst
hærra og hærra á loft og skutlað-
ist með æ meiri hraða eftir kirkj-
unni þverri. Full ferð er 120 kíló-
metrar á klukkustund. Utan við
sig af sögulegri hrifningu steig
sagnfræðingurinn innar og nær
til að fylgjast betur með, en sá þá
kerið koma að sér á ógnarhraða
og stefna beint á enni sér - og
hefði ekki spurst til hans framar
ef það hefði farið sína leið. En
hvað gerðist? Náði íslenski
sagnfræðingurinn að beygja sig
á síðustu stundu eða kippti Jakob
kerinu upp fyrir kollinn á honum
áður en það æddi áfram upp í
hvelfinguna? Það veit enginn því
hvorugur hefur sagt frá. Þeir
gerðu út um þetta sín á milli.
16 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 15. mars 1991
Kysstu
mig
Kata
Leikfélag Akureyrar
frumsýnir söngleik-
inn í kvöld
r r- ysstu mig Kata, eftir
Samuel og Bella Spe-
L^L~wack, er eldfjörugur og
gamansamur söngleikur með
fjölda sígildra dægurfaga eftir
Cofe Porter og gerist í leikhúsi
á frumsýningarkvöldi, þar
sem ieikflokkur er að sýna
„Snegla tamin“ eftir William
Shakespeare. Leik-, söng og
dansatriðin eru ýmist úr
frumsýningunni á „Sneglu“
eða af atburðum baksviðs og í
búningherbergjum frumsýn-
ingarkvöldið á heitu júní-
kvöldi 1948, og tilfinningarnar
Ioga, ástamál reynast einkar
flókin.
Sýning LA er mjög viðamik-
il og hefur ekkert verið til sparað
til að búa leiknum sem vegleg-
asta umgjörð. Leikstjóri er Þór-
unn Sigurðardóttir, þýðandi
Böðvar Guðmundsson, leik-
mynd og búningar eftir Unu
Collins, Jakob Frímann Magn-
ússon sá um tónlistarstjóm og
útsetningar, Nanette Nelms sá
um dansa og sviðshreyfingar,
Ingvar Bjömsson um lýsingu og
Ragnhildur Gísladóttir og Helgi Bjömsson í hlutverkum slnum. Mynd:
Páll.
Óskar Einarsson er hljómsveit- hildur Gísladóttir, Vilborg Hall-
arstjóri. Meðal leikara og söngv- dórsdóttir og Valgeir Skagfjörð.
ara eru Helgi Bjömsson, Ragn- ÓHT
draugagang
Hugleikur með
Ahugaleikfélagið Hugleikur frumsýnir
spánnýtt íslenskt leikhúsverk í spánnýju
leikhúsnæði að Brautarholti 8 á laugar-
dagskvöldið kl. 20:30 og nefnist verkið „Saga
um Svein sáluga Sveinsson í Spjör og samsveit-
unga hans“, eftir Unni Guttormsdóttur og
Önnu Kristínu Kristjánsdóttur.
Leikritið gerist á þeim tíma þegar enn var reimt
í sveitum og galdrar ekki með öllu aflagðir, auk
þess var holdið veikt þá sem nú. Vaktir eru upp
nokkrir draugar í leikritinu og sagt svo reimt í því,
að furðu gegni ef nokkmm leikhúsgesti kemur dúr
á auga nóttina eftir að hafa séð það.
Hugleikur hefur nú flutt sig í sal Kvikmynda-
verksmiðjunnar hf að Brautarholti 8. Þegar er upp-
selt á frumsýningu, en sýningar verða 10-12, næst
19., 21, 23. og 27. mars. Tekið er við miðapöntun-
um í síma 16118 en miðasölusími sýningardaga
eftirkl. 19 er 623047. ÓHT
Sveitarómantík
og draugagangur
hjá Hugleik.
Bíóblaðið
komiö
Út er komið 2. tbl. Bíó-
blaðsins, sem Nýjar lausnir
hf. gefa út í samvinnu við
kvikmyndahúsin, en erindið
er að kynna væntanlegar bíó-
myndir.
Ólafur Jón Jónsson ritstýrir
Bíóblaðinu, sem að hans sögn
er prentað á „náttúruvænan"
pappír í 17 þúsundum eintaka.
Af þeim er 5 þúsundum dreift í
framhaldsskólum en afgangn-
um með aðgöngumiðum í bíó-
unum. 15-20 myndir eru kynnt-
ar í blaðinu að þessu sinni, um-
sagnir virðast byggðar á auglýs-
ingaefni kvikmyndaframleið-
enda og veita svipaða fræðslu
og léttmetisdálkar dagblaða.
ÓHT
Myndlista-
og
handíðaskóli
íslands
auglýsir inntöku nýrra nemenda fyrir skólaárið
1991-92.
Umsóknarfrestur í fornám er til 19. apríl og á sér-
svið 15. maí n.k.
Upplýsingará skrifstofu skólans, Skipholti 1, kl.
10-12 og 13-15, sími 19821.