Þjóðviljinn - 15.03.1991, Page 17
HAM
þriggja
ára og
aldrei
betri
Það var hálfgerð HAM-vika
í síðustu viku. Á miðvikudegi
héldu piltarnir tónleika á
Tveimur vinum, og síðan á laug-
ardagskvöldi buðu þeir til af-
mæiisveislu á menningarstaðn-
um Staupasteini í Kópavogi. Það
eru þrjú ár frá því Ijóshærði ris-
inn, Sigurjón Kjartansson hitti
gleðimanninn Óttarr Proppé, og
lögð voru drög að hljómsveitinni
HAM. Nokkuð hefur verið um
mannabreytingar en þó hefur
bassaleikarinn S. Björn Biöndal
reynst þeim Sigurjóni og Óttarri
tryggur liðsmaður allt frá fyrstu
tíð. Núverandi skipan HAM, sú
traustasta til þessa, telur auk
þeirra þremenninga gítarleikar-
ann glúrna Fiosa og Arnar, ung-
an trommusnilUng.
Það var margt um manninn á
Tveimur vinum og hugur í mönn-
um, senda var í boði stórgóð grað-
hestarokk- dagskrá. Drulla, nýleg
sveit pönkara, hóf leikinn af ör-
yggi. Greinilegt er að sveitinni fer
fram með hverjum tónleikum sem
þeir spila. Drullu-drengimir túlka
vandamál utangarðsunglingsins á
trúverðugan hátt, og lýsa frati á
stjómmálamenn og presta. Á eftir
Drullu fengu áhorfendur tvö stór-
góð sýnishom af sönnu íslensku
dauðaþungarokki, þegar tvær
helstu sveitimar í þeim kanti,
Mortuary og lnfúsoria, léku eigin
lög. Einnig léku báðar sveitinrar
lög eftir Brasilísku sveitina Sep-
ultura, og Mortuary bætti um betur
HAM: Ekkert gefið eftir. Mynd: B.S.
og lék Slayer lagið „South of hea-
ven“ af öryggi. Þessar sveitir skipa
mjög ungir strákar, (hvar em stelp-
umar?), og vakti fúrðu hve tónlist-
in rann snuðrulaust áfram, hvergi
mistök og krafturinn ógnvekjandi.
Söngvarar hljómsveitanna sveifl-
uðu siðu faxinu ógurlega og
rumdu af hjartans list. Undruðust
margir eldri áhorfendur hinn djöf-
ullega bassa sem kom úr þessum
ungu börkum. Að öðrum ólöstuð-
um átti söngvari og bassaleikari
Infúsoriu, Gísli, stórleik, bæði
með fingrafimi og meistaralegum
rymjanda. Hvenær fáum við þess-
ar hljómsveitir á plast? Komandi
kynslóðir eiga heimtingu á því.
HAM tók við á eftir Infúsoriu
og var í frábæru formi. Þeir renndu
yfir lögin af miklum krafti og ör-
yggi. Gömul útgefin lög voru spil-
uð í bland|við nýrri óútgefin lög.
Eins og jafnan á Siguijón laga-
smiður margt gott í pokahominu
og pulsu fúlla af rúsínum. „Party
town“ er yndislegt lag og líklegt til
vinsælda. Það fjallar að sögn um
Hafnir á Suðumesjum. „Rapemac-
hine“ og „Comy Song“ em ávallt
fersk þótt þau hafi verið lengi óút-
gefin á efhisskránni.
Þremur dögum síðar héldu
HAM-menn uppá afmæli sitt og
var fjölmenni á Staupasteini.
Drullu-drengimir fengu annað
tækifæri og slógu í gegn með þéttu
pönkprógrammi. Myndyndi, fé-
lagsskapur um ferðalög, sýndi
nokkrar áhugaverðar skyggnur og
síðan steig stuðhljómsveitin Jepp-
ar á stokk. Jeppar em HAM í stuð-
dulargervi og héldu uppi stuðinu
dágóða stund með lögunum
„rennibraut“ og „íslensk renni-
braut". HAM átti að vera síðasta
afmælisatriðið en þegar hér var
komið við sögu höfðu nokkrir
magnarar brunnið yfir svo afmæl-
isbamið fékk ekki að blása á kert-
in heldur rauk á dyr. Hálf mis-
heppnuð afmælisveisla hjá strák-
greyunum og tónleikamir á
Tveimur vinum verða að duga i
bili í minningunni.
Vonandi hljóðrita þeir HAM-
menn lög sin bráðlega og gefa út,
því núna er hásumar í lagagerð og
spilamennsku hljómsveitarinnar.
En hjá sumum hljómsveitum
haustar að vísu aldrei... -GUNNI
INFUSORIA: Rymjandi faxar. Mynd B.S.
Uppkast aövinsældum
COWBOY JUNKIES-Whites
off earth now!!
RCA/Skífan 1990
Cowboy Junkies koma frá Tor-
onto, Kanada og slógu í gegn 1988
með plötunni „The Triniti Sessi-
on“. Tónlist dópkúrekanna er seið-
andi blús-kántrý-popp og á ljúf
rödd söngkonunnar Margo Timm-
ins, sem oft nálgast hvísli, líklega
mestan þátt í vinsældum hlóm-
sveitarinnar. Þriðja platan „The
Caution horses" tryggði hljóm-
sveitinni ennþá fastari sess í hugum
hlustenda og þá fannst útgáfúfyrir-
tækinu tími kominn á að endurút-
gefa fyrstu plötu sveitarinnar,
„Whites off earth now!!“, sem kom
upprunalega út hjá eigin smáfyrir-
tæki dópkúrekanna, Latent Record-
ings, 1986.
Líkt og með „The Trinity
Session" er „Whites...“ tekin upp
með einum hljóðnema sem stillt
var upp í miðju æfingarherbergi
hljómsveitarinnar. Það tók sex tíma
og eina grillveislu að taka þessa níu
laga plötu upp. Tónlistin varð öll til
þannig að hljómsveitin „djamm-
aði“ saman og Margo söng yfir
gamlan blús eða rokktexta sem
þótti passa við stemmningu
„djammsins". Þannig eru m.a. á
plötuni þijú lög „eftir“ John Lee
Hooker, tvö „eftir“ Robert Jolmson
og eitt „eftir“ Bruce Springsteen.
Upprunalegir flytjendur eru skrif-
aðir fyrir lögunum þótt þeir eigi í
rauninni bara textann. Eitt lag er þó
skrifað á Cowboy Junkies, lagið
„Take me“.
Tónlistin er frekar syfjulegt ný-
bylgju-blús-djamm en nær sér þó
oft á strik í gæða sveiflu. Rödd
Margo er í mótun og sjálf segist
hún ekki hafa fundið röddina íyrr
en hljómsveitin tók til við að spila
opinberlega, en þegar „Whites...“
var tekin upp hafði hlómsveitin
bara djammað í einrúmi í um hálft
ár.
Tónlistin á þessari plötu er
beinagrindin á þeim hljóm sem
hljómsveitin fullmyndaði með
Margo dópkúreki
„The Caution horse“. Því ætti þessi
plata að vera kjörgripur í safn allra
sem eiga og „fíla“ þá plötu og „The
Triniti Session“. Aðrir óreyndari
áhugamenn ættu að byija á að grípa
niður seinna á þróunarbraut hljóm-
sveitarinnar. - GUNNI
Frábærir Finnar
Þá hefur finnska gæðahljóm-
sveitin 22-Pistepirkko haldið
heim á ný eftir fjögur frábær
kvöld í Reykjavík. Hljómsveitin
lék á Tveimur vinum fimmtu-
dags-, laugardags- og sunnudags-
kvöld, og í norðurkjallara M.H. á
föstudagskvöldi. Ekki er hægt að
segja annað en Finnarnir hafi
staðið undir öllum þeim vænting-
um sem bundnar voru við þá.
Hljómsveitin var mjög sam-
heldin og spilagleðin geislaði af
þeim. Hinn Ringo-legi Espe
trommari barði húðimar af stakri
áfergju með hristum og hvað eina
og söng sum lögin feimnislega.
Þeir slána-bræður PK og Aske
voru í stuði. Hinn hávaxni PK söng
flest lögin og átti glæsileg tilþrif á
gítarinn. Liðamótaleysinginn Aske
hlykkjaðist bæði með bassa og fyrir
framan orgelið og var stórkostlegur
í báðum hlutverkunum. Efnisskráin
samanstóð af lögum af nýjustu plöt-
unni, „Bare bone nest“, og glænýj-
um lögum sem Finnamir em að
hljóðrita um þessar mundir. Þeir
náðu upp góðu næmi í rólegu lög-
unum og mikilli snerpu í kraftmeiri
lögum.
Auk frumsamdra laga hljóm-
uðu ýmsir „standardar“, lög eftir
Link Wray, Bo Diddley, Velvet
Underground og The Sonics, að
ógleymdum stórgóðum útgáfum á
lummunum „Wild thing“ og „On
the bayou".
I stuttu spjalli við Aske sagði
hann að íslandsdvölin hefði verið
ágæt, að hér væri hvorki sem maður
væri á himnum né í helvíti. „Við
fómm í Bláa lónið og á
Sykurmolatónleika og át-
um fisk, en fúlsuðum við
sviðunum því við erum
grænmetisætur.“ Finn-
amir virðast ekki hafa
kynnt sér mikið af íslenskri tónlist,
en Aske sagði þó að Sykurmolamir
hefðu verið góðir á köflum og að
Langi Seli og Skuggamir, sem spil-
uðu með þeim á laugardagskvöldið,
hafi verið mjög góðir þangað til
þeir urðu of fúllir. Aske sagði að
þeim fyndust íslenskir áhorfendur
mjög góðir en þó hefði mátt vera
betri mæting. Og það er einmitt
mergurinn málsins. Mætingin á
þessa einstöku rokkviðburði var
fyrir neðan allar hellur. Þeir sem
ekki sáu Finnana frábæm geta bara
nagað handarbökin um ókomna
mánuði því mér segir svo hugur um
að önnur eins rokkveisla láti standa
á sér. Húrra fyrir 22-Pisterpirkko og
þeim sem fluttu þá inn og vei þeim
sem heima sátu. -GUNNI
HELGARVAGG
Gunnar L.
Hjálmarsson
VAGGTÍÐINDI
■ Franski meistarinn Serge
Gainsbourg er horfinn til feðra
sinna. Hann dó úr hjartaáfalli á
heimili sínu í París 62 ára að
aldri. Hér á landi er Gainsbourg
einna þekktastur fyrir „franska
stunulagið" svokallaða, „Je
t'aime“ sem hann söng með
Jane Birkin 1969. Gainsbourg
þótti klúr í háttum og gerði
hvað eftir annað uppistand í
viðtölum, enda annálaður
drykkju- og reykingamaður.
Þeir sem vilja votta Serge
gamla virðingu sína gætu t.d.
séð dóttur hans Charlotte í
myndinni „La petite voleuse"
sem nú er sýnd í Reykjavík...
■ Soul-kóngurinn James
Brown er laus úr steininum.
Hann var settur inn 1989 fyrir
að ráðast á lögregluþjón.
Brown er með margt á prjónun-
um og er byrjaður að vinna að
nýrri plötu sem á að heita „New
Universal Funk“. í steininum
þróaði Brown nýtt „sánd“ sem
hann kallar „Universal sound“. (
maí gefur svo Polygram út
safnkassa með 72 lögum soul-
kóngsins, sem á að heita „Star
time“...
■ Snickers-súkkulaðifyrir-
tækið hefur gert 4 miljón doll-
ara samning fyrir að nota
gamla Stones-lagið „Satisfacti-
on“ f auglýsingu. Keith og Mick
fá í sinn hlut 2,8 miljón dollara.
Fínn biti það...
■ Levi's gallabuxnafyrir-
tækið hefur rifið upp Clash-æði
í Bretlandi. Gamla Clach-lagið
„Should I stay of should I go“
sem hljómar í Levi's auglýs-
ingu er i efsta sæti smáskífu-
listans og næst á að endurút-
gefa lagið „Rock the Casbah“.
Mick Jones er ekkert yfir sig
hrifinn, (byltingin étur börnin
sín og allt það), og er nú að
leggja síðustu hönd á sjöttu Big
Audio Dynamite plötna, „The
Globe“, sem á að koma út í
maí...
■ Sykurmolamir spila í
Zenith tónleikahöllinni í París i
kvöld. Richard fyrirtækið, sem
m.a. framleiðir pastis-drykkinn
Pastis 51, heldur þessa tón-
leikahátíð. ( kvöld spila The
Pogues og Schreaming Tar-
gets ásamt Molunum, en á
morgun leika Prefab Sprout,
Dave Stewart úr Eurythmics,
og fleiri...
■ Vert er að minna á tón-
leika Kvartetts Tómasar R. Ein-
arssonar í Púlsinum í kvöld.
Básúnuleikarinn Frank Lacy
spilar með kvartettnum svo og
trommugoðsögnin Pétur Öst-
lund. Á morgun og á sunnu-
daginn syngur söngsveitin NA-
12 frá Húsavik létt sveiflulög í
Púlsinum. Sveitinni er stjómað
af Ragnari L. Þorgrímssyni tón-
listarkennara á Húsavík. Þrír
norskir tónlistarmenn leika með
NA-12, bassaleikarinn Sven
Haugen, píanó/syntaleikarinn
Freddy Hoel Nilsen og trompet-
leikarinn Philip A. Kruse...
■ Lifandi Tónlist á sér
samastað á Tveimur vinum
eins og undanfarið. ( kvöld og
annað kvöld sér Loðin Rotta
um stuðið. Rottan er skipuð
nokkrum Rikshaw-mönnum og
bassaleikaranum knáa úr
Mezzoforte Jóhanni Ásmunds-
syni. Tveir vinir eru með átak í
að kynna yngri sveitir; Formica,
poppsveit úr Breiðholti
skemmtir á sunnudags- og
mánudagskvöld, en White-
house leikur á þriðjudags- og
miðvikudagskvöld. Engar upp-
lýsingar fengust um þá hljóm-
sveit, en þetta er allavega ekki
samnefnd hávaðasveit frá Eng-
landi...
Föstudagur 15. mars 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 17