Þjóðviljinn - 15.03.1991, Qupperneq 21

Þjóðviljinn - 15.03.1991, Qupperneq 21
T ** Hús framtíöan Endumýtt byggingarefni - Ymislegt forvitnilegt á döfínni hjá Ameríkönum Ýmsar nýjungar í bygging- ariðnaðinum ifta nú dagsins Ijós í guðs eigin landi. Kanar hafa nú fundið ilmandi peningalykt á framleiðslusviði endurnýttra byggingarefna. Sagt er frá at- hyglisverðum framleiðsluvör- um úr endurnýttum hráefnum í aprílhefti tímaritsins Popular Science. Hér á eftir fara helstu hugmyndirnar, ætlaðar íslensk- um endurnýtingarsinnum til í- hugunar: Þilplötur - úr úrgangstimbri og flís eru pressaðar plötur eins og þekkist við gerð spónaplatna. Ur niðursöguðum trjárenningum ffamleiðir fyrirtækið MacMillan Bloedel ltd. hins vegar plötur sem þeir nefna Parallam. Hafa þær mun meiri styrk en venjulegar spónaplötur vegna „límtrés" eig- inleika sinna. Teppi - úr plastpokum vinnur fyrirtækið Image Carpets fjölliðutreíjar, sem spunnin eru úr teppi til notkunar í baðherbergj- um og bílum. Gólfflísar - úr gæðagleri, t.d. bílrúðum, má framleiða gólf- og veggflísar, sem eru afskaplega slitþolnar, segja þeir hjá Ludowici Stoneware Company í New Lex- ington, Ohio. Eldþolnar plötur - American Cemwood Products blanda saman sagi og öðrum tijátreíjum og steypa úr magnaðar plötur er neífiast Cemwood Shakes. Einangrunarflísar - Ur úr- gangspappír og sementsoppu eru framleiddar ComfortBase flísar til einangrunar og sem undirlag fyrir teppi. Það er fyrirtækið Homasote í New Jersey sem greinir frá góð- um árangri. Gluggakistur og borðplötur - Syndecrete plötur eru búnar til úr blöndu plasttrefja, timburspóna og steypu af fyrirtækinu Syndesis í Kalifomíu. Til að sýna fram á notagildi alls þessa hefur rannsóknastofnun bandarískra byggingameistara (NAHB) lagt út i sérstakt verk- efhi, sem kallað er ReCraft-Hou- se. Byggingarefnin eru að lang- mestu leyti endurunnin, eins og áður er lýst. „Byggð er ein miljón húsa á ári í Bandaríkjunum og auðlindir okkar þola ekki slíka sóun byggingarefha í framtíðinni sem viðgengist hefur fram að þessu, “segir E. Lee Fisher, verk- fræðingur hjá NAHB -samtökun- um. Orð í tíma töluð. O, þetta var svo indælt stríð... Eða: Hvemig á að koma greiðslujöfnuði í lag, selja afskrif- aðar sprengjubirgðir fyrir metfé, drepa 50.000 Araba án þess að fá bágt fyrir og auka vinsældir fyrir unnar hetjudáðir. Niðurstöðutölur Persaflóa- bókhaldsins liggja fyrir. Þær má lesa í síðustu tölublöðum breska vikuritsins The Economist. 2. mars er sagt frá því að líklega verði hagnaður af stríðinu. Kostn- aðaráætlun stríðsreksturs Breta hafði verið áætlaður 6,3 miljarðar punda og íjármögnun miðuð við það. Nú er hins vegar líklegt að þessi kostnaður verði innan við 2 miljarða punda. Það telst nokkuð hagstætt, því Falklandseyjastríðið kostaði t.d. 2,1 miljarð punda á núvirði. Þetta þykja lágar tölur fyrir jafn miklar vinsældir og Major forsætisráðhera státar nú Hussein og einhverjar brcskar viðskiptakröfur munu hafa tapast í írak. En það koma aðrir í staðinn og það er létt hljóðið í Bretum. Aðeins er talið að þeir hafi misst um 20 manns í þessu sex vikna stríði. En snúum okkur nú að vopna- bræðmm þeirra, Bandaríkja- mönnum. Þeir em nú stærri í snið- um en heimsveldið gamla. Her- kostnaður þeirra er talinn vera um 60 miljarðar dala, ef allt er reikn- að tii fulls. Þess var nú reyndar getið í bandariskum blöðum í febrúar, að kappsemin við sprengjuregnið miðaðist aðallega við það að losa bandarísku hermaskínuna við gamlar birgðir, sem þá var hægt að bókfæra á fúllu verði. Saudi- Arabar, Japan- ir og fleiri undirgengust fjár- mögnun þessarar uppskemhátíðar bandarísku haukanna og lögðu fram 50 miljarða dala í þágu „friðaraðgerða herja Sameinuðu þjóðanna“. „Helvíti hagstætt fyrir banda- riska greiðslujöfnuðinn,“ voru niðurstöður Jan Duesing, hag- ffæðings hjá Credit Suisse í Bost- on. I fyrsta skipti í tíu ár er nú út- . lit fyrir jákvæðan greiðslujöfnuð á fyrstu sex mánuðum ársins 1991. Ekki mun lágt olíuverð á næstu ámm heldur spilla fyrir. Bandarikjamenn horfa nú til nýrrar atvinnugreinar í framtíð- inni: öryggisgæslu á ófriðarsvæð- um heimsins. Utflutningsvegur þessi er þannig starfræktur: Fyrst seija allir vesalingum þriðja heimsins vopn. Síðan fer fjölmiðlamaskínan í gang og býr til hættulegan óvin. Þá er haldinn fundur hjá Sameinuðu þjóðunum til að þvo samvisku allra þeirra, sem ætla að taka þátt í stríðsleikn- um. Allir syngja: „Vér, hinar Sameinuðu þjóðir emm staðráðnar í: - að bjarga komandi kynslóð- um undan hörmungum ófriðar, - að staðfesta að nýju trú á grundvallarréttindum manna, virðingu þeirra og gildi, - að sýna umburðarlyndi og lifa saman í friði, sem góðum ná- grönnum sæmir, - að sameina mátt vom til að varðveita heimsfrið og öryggi, - að tryggja að vopnavaldi skuli eigi beita, nema í þágu sam- eiginlegra hagsmuna. Og fara svo í stríð. Hetjudáðir eru hannaðar í beinni útsendingu á nóttu sem degi. Þegar framhaldsþátturinn hættir að vera söluvara og áhorf- endur em famir að slökkva á sjón- varpstækjunum, er ráðist til at- lögu. Engu skiptir þótt 50.000 flýjandi lrakar séu skotnir í bakið á leiðinni heim til sín, þeir em réttdræpir. Aðalatriðið er að finna einhverja Araba í eyðimörkinni til að drepa, svo áhorfendur sannfær- ist um að þeir hafi raunverulega verið þar. Hershöfðinginn Svarthaus kemst örugglega í sögubækumar fyrir frábæra útsjónarsemi við að gabba óvinina og gamla Viet- Nam sektarkenndin er bara alveg farin! Hvílíkt stríð! Þetta var in- dælt stríð. af. En víkjum aftur að Qármögn- uninni. Þjóðverjar og Kúwætar hafa þegar reitt fram 1,4 miljarða punda og loforð annarra Evrópu- bandalagsþjóða um stuðning verða ömgglega efnd. Framlögin fara þá vel yfir 2 miljarða punda. Þar með getur Norman Lamont, fjármálaráðherra Breta, státað af hagstæðu stríðsuppgjöri, svo ekki sé nú talað um allan þann hagnað, sem rann í ríkiskassann sem af- rakstur hærra bensín- og olíu- verðs. Lauslega áætlað mun það vera 1 miljarður punda. Ráðherrann sér að vísu á bak góðum viðskiptavini í Saddam Flokkurinn sem getur - fólkið sem þorir? Slagorð geta verið ágæt ef þau endurspegla raunvemleikann. Ef í þeim er holur hljómur geta and- sfæðingamir snúið þeim upp á skrattann og þau endað í skötulíki í andliti fólksins sem segist þora. Forystumenn Alþýðubandalags- ins hafa sýnt það í verki í ýmsum málum að þeir þora. En uppá- skrifl sumra þeirra á álpappír Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra í síðustu viku er ekki í samræmi við slagorðin hér að ofan. Þeir vissu betur. ÖrvæntingarfuII til- raun iðnaðarráðherra til að halda lífi í þessu andvana afkvæmi sínu er aðeins til þess gerð að hann megi halda haus í kjördæminu, þegar til kosningabaráttunnar kemur. En keisarinn er ekki í / neinu. _ ™ Af hverju endurtók Ólafur ' Ragnar ekki það sem hann hafði áður réttilega sagt í fjölmiðlum : „Hinir erlendu viðsemjendur hafa j einfaldlega misst áhugann...af! fyrirhuguðum orkusamningi ó- ' breyttum virðist verða stórtap“. Þetta er hvort tveggja hárrétt. Hjörleifur Guttormsson hefur ^ dugað í þessu máli. Frammistaða hans gæti bjargað andliti flokks- ins gagnvart því fólki sem fylgir honum vegna umhverfismálanna. Það er mikið öfugmæli hjá forseta sameinaðs Alþingis, að Hjörleifur beiti þingheim ofbeldi með því að vilja ræða málið ítarlega. Ofbeld- ið er iðnaðarráðherrans að vilja keyra í gegn merkingarlausa þingsályktunartillögu, þegar fjöldi stórmerkilegra mála liggur fyrir þinginu og einsýnt að mörg þeirra verða að víkja. Við skulum hafa kjark til að kalla hlutina sínum réttu nöfnum. Kratamir em með allt niður um sig í álmálinu sem og fieiri málum sem þeir höfðu ætlað að skreyta sig með fyrir komandi kosningar. Alþýðubandalagið fær ekki á sig græna ímynd í hugum kjósenda með því að hlúa að fölnuðum kratarósum á komandi dögum og vikum. Frambjóðendur flokksins verða að sýna fólki í verki að þeir þori! t e EinarValur Ingimundarson Föstudagur 15. mars 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.