Þjóðviljinn - 13.04.1991, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 13.04.1991, Blaðsíða 1
Framhaldsskólanemar dimitera. - Jim Smart Ijósmyndari rakst á þennan litskrúðuga hóp niðri í miðbæ Reykjavikur á dögunum. Þarna voru nemendur eins framhaldsskólans að dimitera með tilneyrandi gleöi áður en próflesturinn hofst. Málefna- fátækt íhaldsins hittir það sjálft ryrir Steingrímur J. Sigfússon samgðnguráðherra segir að ákvörðun um lagningu ljós- ieiðara um landið og þátttöku NATO í þeim kostnaði hafi verið tekin í utanríkisráð- herratíð Geirs Hallgrímsson- ar. Málflutningur Björns Bjarnasonar og annarra íhaldsmanna um málið, hitti því aðeins þá sjálfa fyrir og undirstrikar jafnframt hvað málefnafátæktin er mikil. Bjöm Bjamason, sem talinn hefur verið utanríkisráðherra- efhi íhaldsins og Davíð Odds- son formaður þess hafa haldið því ffam í kosningabaráttunni að í þessu máli eigi þeir sam- leið, NATO og samgönguráð- herra. Hann þakkar sér lagn- ingu ljósleiðaranna, en NATO borgar brúsann. Steingrímur J. sagði að þessi samningur, sem gerður var í ráðherratíð fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins við NATO, um uppbyggingu ratsjárstöðvanna og kostnaðar- hlutdeild þess við lagningu ljós- leiðara, hefði verið gerður í andstöðu við sig og aðra og því alfarið á ábyrgð þeirra afla semy Bjöm og Davíð leiða i dag. Samgönguráðherra sagði að sömu aðilar þyrftu ekki að fara í neinar grafgötur um afstöðu hans til bandaríska hemáms- liðsins og þá hemaðaruppbygg- ingu sem þeir og NATO hefðu staðið fyrir hérlendis. Hann hefði meðal annars lagt sitt af mörkum til að stöðva fyrirhug- aðar ffamkvæmdir um bygg- ingu varaflugvölls íyrir NATO hérlendis og væri sem fyrr, gallharður andstæðingur þess- ara afla. —grh Þj óðaratkvæðagreiðslu um EES-samninginn É g dreg í efa að viðunandi samningar við EB um evrópskt efnahagssvæði muni nást og er orðinn þeirrar skoðunar að réttast væri að leggja slíkan samning undir þjóðaratkvæða- greiðslu ef hann verður gerður. - Þetta sagði Olafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, á fjölsóttum fundi BSRB með fulltrúum stjórnmálaflokkanna um Evrópumálin í félagsmiðstöð samtakanna í fyrrakvöld. 'Olafur Ragnar sagðist ekki mætavel kunnugt um það að ég mun kannast við þá fullyrðingu fulltrúa Framsóknarflokksins og Alþýðu- flokksins, að samningum okkar við EB um evrópskt efnahagssvæði sé að langmestu leyti lokið. Þetta er ekki rétt, sagði Ólafur: „Það hefur til dæmis verið um það ágreiningur innan ríkisstjómarinnar, hvort út- lendingar ættu að hafa sama rétt og íslendingar til að kaupa land og jarð- ir hér á landi. Alþýðuflokkurinn hef- ur verið fylgjandi því að útlendingar ættu að hafa sama rétt og Islendingar til að gerast bændur og kaupa jarðir hér á landi. Alþýðubandalagið hefur algjörlega hafnað þessu innan rikis- stjómarinnar, og Jóni Baldvin er aldrei samþykkja samning sem felur í sér að útlendingar geti keypt Laxá i Aðaldal eða Hvamm í Dölum.“ Jón Baldvin Hannibalsson hafði sagt í umræðunum, að það fælist næg trygging gegn þessari hættu í þeim reglum sem hér giltu um for- kaupsrétt Islendinga og skyldu land- eigenda til að ástunda búskap. For- stjóri Pepsi-Cola eða aðrir erlendir auðmenn myndu aldrei ágimast ís- lenskt land með slíkum kvöðum. Ólafur Ragnar benti á að auðvelt væri fyrir slíka menn að borga undir- mönnum , sínum fyrir að gerast bændur á íslandi. Ólafur Ragnar lét jafnframt i ljós undmn yfir að Framsóknarflokkur- inn hefði ekki gert neinn fyrirvara í þessum efhum. Þá sagði Ólafur að ríkisstjómin hefði aldrei mótað þá stefnu, að al- gjört frelsi skyldi innleitt í flutningi fjármagns til og frá landinu, enda myndi slíkt skapa mikla hættu á því að arðurinn af íslenskum sjávarút- vegi yrði fluttur úr landi og Island gert að láglaunasvæði. Þetta mikil- væga mál hefði alls ekki verið end- anlega _ afgreitt innan rikisstjómar- innar. I tilefni af deilu Steingríms Hermannssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar um það, hvort kom- andi alþingiskosningar væm þjóðar- atkvæðagreiðsla um aðild að Efna- hagsbandalaginu, sagði Ólafur Ragnar að það væri staðreynd, að tveir flokkar, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur, útilokuðu ekki aðild að EB í stefnuskrám sínum. Því gætu þessir tveir flokkar sagt að af- loknum kosningum, að þeir hefðu hlotið umboð sinna kjósenda til þess að opna fyrir undirbúning að inn- göngu i EB. Aðrir flokkar hefðu hins vegar algjörlega útilokað slíka aðild. Jóhann Einvarðsson, frambjóð- andi Framsóknarflokksins á Reykja- nesi og formaður utanríkisnefndar Alþingis, sagði að samningum um EES væri að langmestu leyti lokið, þótt ekki væri búið að semja um sjávarútvegsmálin. Sagði hann að al- gjör samstaða hefði ríkt innan ríkis- stjómarinnar um EES- samninga- gerðina og að hugsanleg breyting á Rómarsáttmálanum, stjómarskrá EB, gæti i framtíðinni breytt forsendum fyrir hugsanlegri aðild íslands að bandalaginu. Jón Baldvin Hannibalsson neit- aði því að aðild að EB væri á dag- skrá, en Bjöm Bjamason úr Sjálf- stæðisflokki og Kristín Einarsdóttir úr Kvennalista sögðu að samningur- inn um EES væri skref í áttina að að- ild að EB. -ólg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.