Þjóðviljinn - 13.04.1991, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 13.04.1991, Blaðsíða 15
Oflug byggðastefna, umhverfisvemd og óháð Island Ávarp frá frambjóðendum GAistans á Austurlandi: Alþýðubandalagið á Aust- urlandi telur að núver- andi stjórnarsamstarf hafi þrátt fyrir ýmsa ágalla skilað miklum ár- angri með endurreisn at- vinnulífs, lækkun verð- bólgu og ávinningum í félags-, mennta- og menningarmálum. Með aðild að ríkisstjóm haustið 1988 tókst Alþýðubandalaginu að valda straumhvörfum eftir hörmuleg- an viðskilnað ríkisstjómar updir for- stu Sjálfstæðisflokksins. Á lands- yggðinni var forðað atvinnulegu hruni og um líf eða dauða margra byggðarlaga var að tefla. Við teljum að byggja þurfi á þess- um árangri á næsta kjörtímabili og tryggja aukinn jöfnuð lífskjara, öfluga atvinnuþró- un og bættan kaup- mátt launafólks. Það verður ekki gert með því að lyfta Sjálfstæð- isflokknum til valda eða efla Al- þýðuflokkinn, sem nefur reynst örðug- ur í núverandi stjórnarsamstarfi. Báðir þessir flokk- ar hafa opnað fyrir inngöngu íslands í Evrópubandalagið og sjá erlenda stór- iðju sem helsta Kost 1 atvinnumálum. Samstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks um 12 ára skeið 1960- J 971 undir nafninu „viðreisn" hneppti Island í nauðungarsamninga í land- helgismálum og stefna hennar hafði hörmulegar afleiðingar fyrir lands- byggðina. Flest bendir til að svipað myndi endurtaka sig, ef þessir flokkar fengju til samans meirihluta á Alþingi í kosningunum 20. apríl. Hvert atkvæði greitt Sjálfstæðis- flokki og Alþýðuflokki eykur líkumar á samstjóm pessara flokka, endumýj- aðri „viðreisnarstjórn". Á Áusturlandi stendur baráttan um það, hvort þessir flokkar auka styrk sinn, eða hvort Al- þýðubandalagið vinnur hér þingsæti og fær tvo menn kosna á þing úr kjör- dæminu. Niðurstaðan getur ráðið úr- slitum um það, hvort vinstri stjóm eða hægri stjóm sest að völdum eftir kosn- ingar. Öflug atvinnuþróun með aukinni fjölbreytni er forsenda raunhæfrar byggðastefu. Þar skiptir þróun hefð- bundinna atvinnugreina og tilkoma nýrra greina máli. Mótun heildstæðrar sjávarútvegs- stefnu er eitt stærsta verkefnið á kom- andi kjörtímabili. Þar verður að aa á því í reynd að fiskimiðin við 1 séu sameign allrar þjóðarinnar. Sjá verður til þess að arðurinn af nýt- ingu þeirra renni til þeirra sem starfa við sjávarútveginn og íbúa byggð- anna. Koma verður í veg fyrir að afla- kvóti verði seldur milli byggðarlaga takmarkalaust og setja verður strangar takmarkanir á útflutning á óunnum fiski. Móta þarf alhliða fiskvinnslu- stefnu sem hefur að helsta markmiði að ná sem mestum þjóðhagslegum verðmætum úr þeim afla sem leyft er að veiða. Bæta verður svo um muni kjör fiskvinnslufólks, m.a. með því að það njóti hliðstæðra skattaívilnana og peir sem vinna við veiðar og fiskvinnslu á hafi úti. Afnema ber þá óhæfu sem felst í réttleysi fiskvinnslufólks hvað varðar heimildir fyrirtækja til að taka það af launaskrá vegna hráefnisskorts. Með nýjum búvörusamningi hefur verið gert upp við fortíðina í landbún- aði, einkum í sauðfjárrækt. Samdrátt- urinn í markaði fyrir kindakjöt er ekki síst afleiðing af mistökum fyrri rikis- stjóma, þegar smásöluálagning var gefin fijáls og niðurgreiðslur að heita má felldar niður. Vanda þarf fram- kvæmd þessa nýja samnings og vinna skipulega að atvinnuþróun og landnýt- ingu í sveitum til að treysta byggðina og kjör bænda. Sérstök þörf er á þessu í þeim byggðarlögum á Austurlandi, sem harðast hafa orðið úti vegna riðu- veiki og niðurskurðar, svo og vegna áfalla í loðdýrarækt. Tekist hefur að festa í sessi skóg- ræktarátak bænda á Héraði. Stuðla þarf að slíkri nýbreytni víðar og huga sérstaklega að því að skapa ný störf fyrir konur í sveitum. Alþýðubandalagið hefur haft for- göngu um stefnumótun í ferðaþjón- ustu með áherslu á þátttöku allra landshluta. Á Austurlandi á ferða- þjónuta góða vaxtamöguleika, sem Alþýðubandalagið mun styðja við og leggja áherslu á að öll byggðarlög í fjórðungnum verði þátttakendur í þró- un ferðamála. „Bæta verður svo um muni kjör físk- vinnslufólks, m.a. með því að það njóti hiiðstæðra skattaívilnana og peir sem vinna við veiðar og fískvinnslu á hafí úti. Afnema ber þa óhæfu sem felst í réttleysi fískvinnslufólks hvað varðar heimildir fyrirtækja til að taka það af launaskrá vegna hráefnisskorts“ Samstilltur hópur: Fimm efstu frambjóöendur Alþýðubandalagsins á Austur- landi. Frá vinstri: Þuríður Backman 3. sæti, Sigurður Ingvarsson 5. sæti, Hjör- leifur Guttormsson 1. sæti, Álfhildur Ólafsdóttir 4. sæti og Einar Már Sigurðar- son 2. sæti. Ljósm. Pétur Eiösson. Nýting á orku fallvatna er einn af möguleikum til bættra lífskjara hér- lendis, m.a. hér á Austurlandi. Forsnda þess er að hagnaður sé af orkusölu, staðsetning og rekstur fyrir- tækja í orkuiðnaði samrýmist æskilgri þróun byggðar og ítrustu kröfum um mengunarvamir sé fullnægt. Fyrirhug- aðar framkvæmdir við álbræðslu á Keilisnesi fullnægja engan veginn þessum skilyrðum. Reynslan af orku- ffekum iðnaði hérlendis sýnir að ekki á að láta útlendinga hafa forystu um uppbyggingu á þessu sviði. Alþýðu- bandalagið á Austurlandi mun beita sér fyrir uppbyggingu fyrirtækja í orkuiðnaði, sem falla að austfirslajm aðstæðum, m.a. vetnisframleiðslu. Umbætur á sviði samgangna eru áfram eitt brýnasta verkefmð fyrir landsbyggðina. Alþýðubandalagið hefur beitt sér ötullega á þessu sviði í núverandi ríkisstjórn, m.a. með stefnumörkun um jarðgangagerð. Tryggja verður áframhaldandi upp- byggingu flugvalla í fjórðungnum, ljúka lagningu bundins slitlags á alla helstu vegi og viðhalda öflugum sam- öngum á sjó. Leggja ber áherslu á ættar samgöngur milli Norður- og Austurlands til að tengja þessa fjórð- unga betur saman. Alþýðubandalagið hefur verið ftumkvæðisaðili í umhverfisvemd og beitti sér fyrir stofnun umhverfisráðu- neytis. Nattúru- og umhverftsvernd þarf að vera undirstöðuþáttur í öllu skipulagi varðandi landnotkun og mannvirkjagerð og stór svæði þarf að friðlýsa og varðveita sem mest ósnort- in. Átak verður að gera til að leysa með viðunandi hætti sorphirðu og sorpeyðingu og stuðla að minni úr- angi og endurvinnslu hans. Styðja arf við starf frjálsra félagasamtaka að umhverfismálum og koma á náttúru- stofum með rannsóknaaðstöðu í hveiju kjördæmi. Alþýðubandalagið á Austurlandi hafnar algjörlega hugmyndum um að- ild að Evrópubandalaginu og varar eindregið við grundvelli samningavið: ræðna um Evrópskt efnahagssvæði. I stað þess að tengja landið stórum efnahagsheildum ber að leggja áherslu á þá möguleika sem ísland getur átt sem óháð ríki í samfélagi þjóðanna. Alþýðuband- lagið á Austur- landi ítrekar and- stöðu við dvöl er- lends hers í latjd- inu og aðild Is- lands að NATO. Herða þarf barátt- pna íynr hlutlausu Islandi og að Is- land skipi sér utan hernaðarbanda- laga, I kosningun- um 20. apríl reynir á, hvort ofangreind stefhumið og önn- ur baráttumál Alþýðubartdalagsins fá byr. Með kjöri tveggja þingmanna af G- lista á Áusturlandi væri lagt lóð á þá vogarskál og veitt besta tryggingin fyrir vinstristjóm og lífskjarajöfnun að kosningum loknum. Frambjóðendur G-listans á Austurlandi „Alþýðubandalagið á Austurlandi hafnar al&jörlega hugmyndum um að- ild að Evrópubandalaginu og varar ein- dregið við grundvelli samningavið7 ræðna um Evrópskt efnahagssvæði. í stað þess að tengja landið stórum efna- hagsneildum ber pð leggja áherslu á þá möguleika sem Island getur átt sem óháð ríki í samfélagi þjóðanna“ Austurlands' kjördæmi í Austurlandskjördæmi eru að þes^u sinni 4,99% kjósenda á Islandi á kjörskrá eða 9.122 og hefur fjölgað um 101 síðan 1987. 868 ung- menni eru að öðlast kosn- ingarétt í alþingiskosningum í fyrsta sinn. Á Austurlandi er kosið um 5 þingsæti. Úrslit í al- þingiskosningunum 1987 urðu sem hér segir: Alþýðu- flokkur hlaut 556 atkvæði eða 6,9% greiddra atkvæða og engan mann kjörinn. Fram- sóknarflokkur fékk 3.091 at- kvæði (38,5%) og 2 menn. Sjálfstæðisflokkur fékk 1.296 atkvæði (16,1%) og 2 menn. Alþýðubandalag fekk 1.845 atkvæði (23%) og 1 mann. Borgaraflokkur fékk 262 at- kvæði (3,3%), Flokkur mannsins hlaut 69 atkvæði (0,9%), Kvennalisti fékk 508 atkvæði (6,3%) og Þjóðar- flokkur 407 (5,1%). Enginn þessara síðast nefndu fjögurra flokjca kom að manni. I kosningunum 20. apríl verða 8 listar i boði á Austur- landi. Þeir eru A-listi Al- þýðuflokks, B- listi Fram- sóknarflokks, D-listi Sjálf- stæðisflokksins, F-listi Ftjáls- lyndra, G-listi Alþýðubanda- lagsins, H-listi Heimastjóm- arsamtakanna, V-listi Sam- taka um kvennalista og Þ-listi Þjóðarflokks/Flokks manns- ins. Framboðslisti Alþýðubanda' lagsins í Austur' landskjördæmi til alþingis' kosninga 1991: 1. Hjörleifur Guttormsson alþingismaður, Neskaupstað 2. Einar Már Sigurðsson kennari, Neskaupstað 3. Þuriður Backman hjúkrunarfræðingur, Egils- stöðum, 4. Álfhildur Ólafsdóttir, bóndi Akri, Vöpnafirði 5. Sigurður Ingvarsson, forseti Alþýðusambands Austurlands, Eskifirði 6. Björn Grétar Sveins- son, formaður Verkalýðsfé- lagsins Jökuls, Höfn 7. Oddný Vestmann hús- móðir, Egilsstöðum 8. Örn Ingólfsson húsa- smíðameistari, Breiðdalsvík 9. Guðrún Ragna Aðal- steinsdóttir húsmóðir, Höfn 10. Aðalbjöm Bjömsson kennari, Vopnafirði COIVlBhC/WlP COMBI CAMP er traustur og góður félagi í ferðalagið. Léttur í drætti og auðveldur í notkun. Það tekur aðeins 15 sek. að tjalda. COMBl CAMP er hlýr og þægilegur með fast gólf í svefn og iverurými. COMBI CAMP er á sterkbyggðum galvaniseruðum undirvagni, sérhönnuðum fyrir íslenskar aðstæður, á fjöðrum, dempurum og 10" hjólbörðum. COIVIBI C/XIVIP COMBI CAMP er einn mest seldi tjaldvagninn á íslandi undanfariri ár og á hann fæst úrval aukahluta. COMBI CAMP er til sýnis í sýningarsal okkar og tií afgreidslu strax. TITANhf ------------/ TÍTANhf LÁGMÚLA 7 SÍMI 84077 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.