Þjóðviljinn - 13.04.1991, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.04.1991, Blaðsíða 3
AÐ GEFNTT TIT.F.FNT / Astæóulaus kappræöa um sameiginleg áhugamál Nú er vika til kosninga og væntanlega verður talsvert um að vera næstu daga, þegar frambjóðendur keppast við að sanna fyrir þeim kjósendum, sem ekki hafa þegar tekið af- stöðu, hvað þeim sé fyrir bestu að kjósa. Á laugardaginn var nefndi ég að yfirbragð stjórnmáianna væri mildara en áður var. Viku síðar, þegar kosningabaráttan hefur verið í algleymingi, er engin ástæða til að endurskoða þetta mat. Baráttan fer kurteislega fram, og þótt ekki sé ástæða til að biðja um atgang að hætti fyrri tíma, mættu sumir stjórnmálamennirnir vera ögn skemmtilegri og ekki sakaði að fá skýrari svör. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðhena hefur verið að gera mikið mál úr því að Davíð Odds- son, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, vildi ekki ræða við hann á kappræðufundi. „Davíð þorir ekki,“ segir Alþýðublaðið í fyrra- dag og leiðari sama dags heitir „Davíð hleypur frá Golíat“ Jón bauð Davíð formlega til kapp- ræðufundar og skírskotaði meðal annars til Reykjavíkurbréfs Morg- unblaðsins um síðustu helgi, „en þar voru þeir frambjóðendur gagn- rýndir, sem skjóta sér undan að reifa stærstu mál kosninganna, af ótta við kjósendur,“ svo vitnað sé orðrétt til forsíðufréttar Alþýðu- blaðsins í fyrradag. Allt er þetta mál hið vandræða- legasta fyrir Alþýðuflokkinn og ber vott um ákafa leit að leið til að ná eyrum kjósenda. Enda stóð ekki á svarinu ffá Davíð, sem sagðist ekki sjá ástæðu til að leysa úr vandræðum Alþýðuflokksins og gat þess í leiðinni að þeir Sjálf- stæðismenn tækju texta Reykjavík- urbréfsins ekki til sin. Fyrir fáein- um dögum gerði Alþýðuflokkurinn aðra misheppnaða tilraun til að búa til andstæður úr Alþýðuflokknum og Sjálfstæðisflokknum með því að bjóða Sjálfstæðismönnum á Reykjanesi til kappræðna, sem hinir síðamefndu höfnuðu að bragði. Jón Baldvin hefur vissulega rétt fyrir sér í því að Davíð Odds- son gefur ekki skýr svör við mikil- vægum spumingum. Engu að síður er þessi tilraun Jóns til að baða sig í athygli nýkjörins formanns Sjálf- stæðisflokksins kostulega einfeldn- ingsleg. Það liggur beinlínis í aug- um uppi að Davíð Oddsson hlaut að neita Jóni um aðgang að því sviðsljósi sem hann vill eðlilega vera einn í ffam að kosningum. Það er auðvelt að sjá fyrir sér þeg- ar „hönnuðir" kosningabaráttunnar hjá Alþýðuflokknum fundu upp brelluna miklu: við bjóðum Davið til kappræðna, hann neitar og við höldum því ffam að hann þori ekki. Um hvað ættu menn- irnir að rífast? Það er svo annað mál að þeir félagar, Jón Baldvin og Davíð Oddsson, hafa um afskaplega lítið að rífast. „Kappræðufundur" þeirra hlyti að snúast upp í það eitt að rabba um hvorum þeirra væri betur treystandi til að koma í kring öll- um þeim mörgu áhugamálum sem þeir eiga sameiginleg. I besta falli mætti hleypa fjöri í slíkan fund með því að stofna til metings um hvor væri ákafari í að koma fijáls- hyggjudraumunum í framkvæmd. I þeim efnum hefur Alþýðuflokkur- inn í mörgum atriðum vinninginn. Þetta á ekki síst við um landbúnað- armálin. Alþýðuflokkurinn hefur eins og kunnugt er verið afskap- lega duglegur að reikna út land- búnaðarvandann. Samkvæmt kenn- ingum flokksins er ffamtíðin björt og örugg með því einu að ríkið hætti með öllu að skipta sér af landbúnaðinum eða leggja fram fé til atvinnugreinarinnar. Að mati flokksins halda Framsóknarmenn í öllum flokkum uppi kolvitlausri landbúnaðarpólitik. Svo langt gengur flokkurinn nú að hann neit- ar í raun að taka ábyrgð á þeim bú- vörusamningi sem landbúnaðar- ráðherra hefur gert á ábyrgð ríkis- stjómarinnar allrar. Að vísu berast þessa dagana fféttir af því að þremur fTambjóðendum Alþýðu- flokksins, þeim Jóni Sæmundi Sig- urjónssyni á Norðurlandi vestra, Gunnlaugj Stefánssyni á Austur- landi og Ama Gunnarssyni á Suð- urlandi þyki búvörusamningurinn vondur vegna þess hve illa hann fari með bændur, en formaður flokksins vill enga ábyrgð taka á samningnum vegna þess að hann kosti ríkið allt of mikið! Þegar efni samningsins kemur til kasta þingsins seinna á þessu ári er engin trygging fyrir því að Al- þýðuflokkurinn greiði fyrir þeirri lagasetningu sem nauðsynleg er til að hann komist i kring. Má þó vera að í flokknum leynist þær „fram- sóknartilhneigingar" að hann vinni sér til stjómarsetu að samþykkja samninginn. Afstaða Sjálfstæðisflokksins til búvömsamningsins er auðvitað eins og annað, hulin nokkurri þoku, og segir einn forystumaður- inn já en annar nei. Hins vegar ger- ir enginn ráð fyrir öðm en að flokkurinn muni samþykkja samn- inginn þegar til kastanna kemur. Þegar alls er gætt hefðu formenn- imir hugsanlega getað fundið sér tilefni til ágreinings i þeim blæmun sem er á skoðunum flokkanna til málefna landbúnaðarins. Innganga í Evrópu- bandalagið á dagskrá Ahugi beggja flokkanna á inn- göngu í Evrópubandalagið er aug- ljós og gildir einu þótt þeir reyni báðir að halda því fram að inn- ganga í bandalagið sé ekki á dag- skrá nú. Munurinn á flokkunum er þó sá að innan Sjálfstæðisflokksins em sæmilega myndug öfl algerlega andvíg inngöngu i bandalagið, en fátt bendir til að skoðanir séu mjög skiptar um málið innan Alþýðu- flokksins. Hvomgur flokkurinn segir beinum orðum að hann vilji að Island gangi í bandalagið. Al- þýðuflokkurinn útilokar hana ekki en Sjálfstæðisflokkurinn segir í landsfundarsamþykkt: „Á hinum örlagaríku tímum sem nú em í heimsmálum skiptir miklu að tak- ist að skapa víðtæka samstöðu með þjóðinni um úrlausn brýnna verk- efha á öllum sviðum og ekki síst þeim er lúta að stöðu Islendinga í samfélagi þjóðanna. Þar ber nú hæst stóraukna samvinnu ríkja Vestur-Evrópu innan Evrópu- bandalagsins. fslendingar hljóta að tengjast þeirri þróun og gera það nú þegar í samningaviðræðum um Evrópskt efnahagssvæði.“ Ekki vantar að báðir flokkamir segjast vilja tryggja yfirráð þjóðar- innar yfir auðlindunum. I þeirri afstöðu að gæla við að- ild að EB annars vegar og segjast um leið vilja tryggja yfirráð íslend- inga yfir auðlindunum felst óyfir- stíganleg mótsögn. Eins og rakið var i leiðara Þjóðviljans í fyrradag stendur aðild að Evrópubandalag- inu á þeim kjömm ekki til boða. Og svo stíft er bandalagið á mein- ingunni að ekki hefur enn tekist að ná neinu samkomulagi um Evr- ópskt efhahagssvæði vegna þess að bandalagið heimtar aðgang að auð- lind íslendinga í skiptum fyrir toll- frjálsan aðgang að markaði. Áhrifamiklir Sjálfstæðismenn í iðnaðinum hafa boðað að ísland ætti að leggja fram formlega um- sókn um aðild að bandalaginu til að láta reyna á hvemig með hana verður farið, hversu langt sé hægt að komast. Þetta þarf að hafa í huga þegar Sjálfstæðismenn tala nú almennum orðum um að aðild íslands að EB sé ekki á dagskrá. Þá má ekki gleyma því að Þor- steinn Pálsson, fyrrverandi for- maður flokksins, setti fram þá skoðun á sl. hausti að taka ætti að- ildina á dagskrá. Um þetta var fjallað í leiðara Þjóðviljans þann 12. október sl. en þar sagði m.a.: „Formaður Sjálfstæðisflokks- ins hefur sagt að nú sé tímabært að taka aðild Islands að Efnahags- bandalaginu á dagskrá íslenskrar *' þjóðmálaumræðu. Tillögu hans fylgja þau rök að þróun mála hjá samstarfsaðilunum í Efta sé öll í þá átt að ríkin muni fyrr eða síðar verða aðilar að Evrópubandalag- inu. Samningar um evrópskt efna- hagssvæði séu ekki annað en bráðabirgðalausn, millistig á leið- inni til fullrar aðildar...Sem vonlegt er hefur mörgum brugðið nokkuð í brún við þessa yfirlýsingu Þorsteins Pálssonar og Morgunblaðið hefur talið sig knúið til að taka upp sérstakar útskýr- ingar á því hvað formaður- inn átti við...Fróðlegt er að skoða tillögu Þorsteins í Ijósi þeirra ummæla sem Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri SÍF, viðhafði í ræðu á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva 5. októ- ber sl. en hann sagði: „Gengi ís- land í EB, yrði það að samþykkja sjávarútvegsstefnu bandalagsins eins og hún er í dag því hin al- menna regla er að inngöngulandið samþykkir það sem fyrr hefur ver- ið ákveðið innan EB. Ákaflega ólíklegt er að við samninga Islands við EB tækist að fá fram einhveijar grundvallarbreytingar á sameigin- legri sjávarútvegsstefnu bandalags- ins. Efnislega þýddi þetta að sjáv- arútvegsdeild EB, sem er yfirþjóð- leg stofnun, myndi hafa loka- ákvörðunina um stjómun í sjávar- útvegi íslendinga. Þannig yrðu ákvarðanir í sjávarútvegsmálum teknar í Brussel, m.a. um heildar- kvóta og samninga við önnur ríki. Fiskveiðilögsaga Islendinga yrði 12 mílur en utan þeirra marka yrðu hafsvæði EB.“ Viðreisnarflokkamir em eins og alkunna er samstiga í miklu fleiri málum en hér hafa verið gerð að umtalsefni. Því er mál að setja punkt á eftir þessari spumingu: Um hvað hefðu þeir félagamir, Davið og Golíat, átt að kappræða? hágé. „Kappræðufundur“ þeirra hlyti að snúast upp í það eitt að rabba um hvorum þeirra væri betur treyst- andi til að koma í kring öllum þeim mörgu áhugamálum sem þeir eiga sameiginleg Síða 3 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.