Þjóðviljinn - 13.04.1991, Side 2

Þjóðviljinn - 13.04.1991, Side 2
Þjóðhagsleg hagkvæmni álvers og skóla EEnn berast fréttir af tilraunum til að koma sam- an samningi um álver á Keilisnesi. Eins og fyrri daginn er iðnaðarráðherra heldur ánægður með gang mála og má mikið vera ef ekki eru merkileg tímamót í sjónmáli eina ferðina enn. Álmálið er jú eins og kunnugt er betur hlaðið af tíma- mótaundirskriftum og margvíslegum tryggingum fyrir hagkvæmni en nokkurt annað mál sem ráðherra í ríkis- stjórninni hefur verið að fást við undanfarna mánuði. Ef ráða ætti gang málsins af orðum hans þá er aðeins eitt í veginum fyrir því að álverssamningar hafi náðst: úr- tölumenn á Alþingi íslendinga og að sjálfsögðu fyrst og fremst úr Alþýðubandalaginu. Eftir því sem næst verður komist um efni þeirra samtala sem nýlega áttu sér stað milli íslenskra fulltrúa og hinna erlendu fyrirtækja, standa málin nú þannig að all- ar hugmyndir um að helja undirbúningsframkvæmdir á þessu ári eru runnar út í sandinn og mun því ekkert reyna á þær lánsfjárheimildir sem veittar voru á síðustu dögum þingsins. Ekki er ástæðunnar að leita í íslensk- um úrtölumönnum heldur þeirri einföldu og skiljanlegu staðreynd að viðsemjendurnir eru ekki tilbúnir til samn- inga. Eins og áður hefur komið fram í Þjóðviljanum ætla hin erlendu fyrirtæki ekki að taka nema takmarkaða ábyrgð á þeirri álbræðslu sem hér á að rísa. Þetta felur í sér að þau stofna sérstakt félag um fyrirtækið sem síðan á að afla nauðsynlegs lánsfjár. Ábyrgð móðurfyrirtækjanna verður aðeins fólgin í því hlutafé sem þau leggja fram, en það verður ekki nema brot af heildarkostnaðinum. Þetta hefur í för með sér hækkun á byggingarkostnaði verksmiðjunnar, vegna þess að erlendir bankar telja aukna áhættu fólgna í að lána til verksins án ábyrgðar móðurfyrirtækjanna og krefjast hærri vaxta af þeim sök- um. Iðnaðarráðherra segir orkuverðið háð fjárhagsskil- málum í heild. Með öðrum orðum: hærri vextir, sem krafist er vegna þess að fyrirtækin taka takmarkaöa ábyrgð á álverinu, þýða að þau krefjast lægra orku- verðs af íslendingum og þarf ekki að fara frekari orðum um þá þjóðhagslegu þýðingu sem það hefur hér á landi. Álmálið hefur ekki orðið aö kosningamáli með þeim hætti sem ætla hefði mátt. Eftir ákafann sem greip menn á haustdögum á sl. ári virðist flestum Ijóst að ekki sé tilefni til stórdeilna, enn vanti nauðsynlegt kjöt á ál- beinið. Margt bendir til að almenningur hafi ekki lengur áhuga á málinu, trúin á að bygging álversins geti skilað þjóðhagslegum arði hefur beðið skipbrot. Allar tilkynn- ingarnar um að nú sé málið komið svo og svo langt hafa reynst út í hött, sennilega með þeim afleiðingum að kjósendur eru búnir að afskrifa þann möguleika að af byggingu þess verði. Hér skal engu spáð um framvindu álmálsins, það verð- ur verkefni næstu ríkisstjórnar að leiða það til lykta. Samningsaðstaða viðsemjenda okkar hefur orðið miklu sterkari en nokkur efni stóðu til, með því að iðnaðarráð- herra hefur farið offari í áhuga sínum á að ná samning- um. Að svo miklu leyti sem upplýsingar um þjóðhags- lega hagkvæmni álversins liggja fyrir, bendir margt til að hún verði miklu minni en menn hafa viljað vera láta. Og nú, þegar dregur að kosningum, er rétt að hafa í huga að þjóðhagslega hagkvæmni má auka til mikilla muna með margvíslegum hætti. Þannig upplýsti Svavar Gestsson menntamálaráðherra m.a. á fundi með há- skólastúdentum fyrir fáum dögum að þjóðhagsleg hag- kvæmni af lengingu leikskóla og grunnskóla yrði 1-2,5 miljarðar á ári og jafnaðist á við eitt til tvö álver. hágé. Þjóðviljinn Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandl: Útgáfufélagið Bjarki h.f„ Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: Sigurður Á. Friðþjófsson. Ritstjóm, skrifstofa, afgreiðsla, auglýsingar: Siðumúla 37, Rvík. Auglýsingar: 681310, 681331. Umbröt og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð í lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr. LIPFT & SKORIB Kyndug umræða hefur átt sér stað undanfama daga um útgáfu- starfsemi á vegum ráðuneyta, eink- um þeirra ráðuneyta sem ráðherrar Alþýðubandalagsins fara með hús- bóndavaldið í. Formanni Alþýðu- flokksins, Jóni Baldvin Hannibals- syni, hitnaði nokkuð í hamsi út af þessu og lét að því liggja að hér væri komið verðugt verkefni fyrir Ríkisendurskoðun að rýna í. Rök gagnrýnenda hafa öll beinst að því að ráðherramir væra með þessu að láta ríkissjóð kosta kosningabar- áttu flokksins. Viðkvæmni af þessu tagi er af- ar einkennileg, ekki síst vegna þess að utanríkisráðherra er með þessu að amast við því að lands- menn séu upplýstir um þau verk sem ríkisstjóm, sem hann á sjálfur sæti í, hefur unnið að. Sumir ráðherrar hafa verið öðr- um duglegri á þessu sviði það sem af er kjörtímabilinu. Því fer nefni- lega fjarri að þessi útgáfustarfsemi sé að hefjast núna. Ekki virðast samflokksmenn Jóns Baldvins allir vera á sama máli og hann um að ráðuneytin eigi ekki að gefa út upplýsingarit um þessar mundir. Þannig barst á borð klippara ágætt fréttabréf frá félagsmálaráðuneytinu. Það kom reyndar ekki í hans hendur fyrr en 12. apríl, en á forsíðu stendur að það sé 1. tölublað, 3. árgangur og hafi komið út í mars 1991. Þetta er hið læsilegasta fréttabréf og fjallar um ýmis viðfangsefni sem unnið hefixr verið að í félagsmálaráðu- neytinu og í opnu er viðtal við Jó- hönnu Sigurðardóttur félagsmála- ráðherra undir fyrirsögninni „Verk- in tala“. Um leið og Jóhanna og starfsfólk hennar í ráðuneytinu fá þakkir klippara fyrir ágætt rit og upplýsandi er látin í ljós von um að útgáfan fari ekki um of fyrir bijóstið á félaga Jóni Baldvin. hágé. / / i R ~A r\ \ — 1. tbl. 3. érg. 1991 MARS 1991 jgr mm jr NY L0G UM FELABS- mw I liUU Wlvl » EnmMíVIw ÞJÓNUSTU SVEITARFÉLAGA *■*•» fyrtr löngu runnlð sltt “Hð merktir rflgtjm,...., vlð (raiafcrslulðgti _ si»aa, Verk þtðflustu *em ®tl«ð er að koma tll ■m'its víð óllkar þarítr íböaiina, iðgln eru viateðm að elnl tll, ttdtt rn.a tll inwm^, 1 rAöajalar, heltna- AFMÆU ALÞYSUSAMBANDSISIANDS T' "—-C 'n tala iLANDS * I lit*rm «175 Ara AIUyOuMmMml. 1Z. n»r» ttðawiifiinn Imti t*I»a»m*l»rtMv»rw »«miakunum 1 mlll|on krnn* »1 riturau tagu AIDy4u»«ma»na»i n». Arangur iegrar vinnu Jóltanna Slgurðardðttlr, íélagstnálaráöherra sxpr I opnuvlötail. að umbœturoar á höstuaðtateHtnu i undmtömmt mlsserum sftu (arnar að skila írrngrt. Valkostum haíí Ijólgað í húsnrölsmí lum. lerO i tbúðum sé stððugra með tllkomu h.ii*brtfakerfísín* og ótborgun I Ibúðum hail lækkað verulega, Jðhanna Ijallar um máleíní (atlaöra, un ný vlðhorf I (élags- þjónustu sveitaríilaga ogönmir verkelnl á því iíjörtfmahlll sem hön heíur háldlð um stjómvðltnn I (élagstnAUrAðunéytlnu oghvað sé Iramundan. amfig ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991 Síða 2 /

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.