Þjóðviljinn - 13.04.1991, Síða 6
tr
Hefur þú fylgst
með kjördæma-
kynningum í sjón-
varpinu?
(Spurt f Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja)
Sara Harðardóttir
kennari:
Já, eitthvað hef ég fylgst
með því.
Nikulás Ævarsson
nemandi og frambjóðandi:
Með öðru auganu jú, en ég
bíð spenntur eftir Reykja-
neskjördæmi. Við vitum öll
að T-listinn býður þar fram
og það verður gaman að
sjá þá menn taka hina til
bæna.
Magnús Hallgrímsson
kennari:
Já, að vissu marki. Það er
mikill munur á milli sjón-
varpstöövanna. Ríkissjón-
varpið er með mun vand-
aðri kynningu.
Sigurbjörg Helgadóttir
nemandi:
Nei, ekki neitt.
Auður Hallbergsdóttir
nemandi:
Eitthvað smávegis, en ekki
nógu mikið til að dæma um
gæðin.
Refir eru tækifærissinnar
S fæðuvali eru refir tækifæris-
Isinnaðir - þeir eru ekki ólík-
ir manninum með sinn fjöi-
breytta matseðill. Þó helgast
matseðill rebba frekar af
árstíðinni en verðstríði stór-
markaða. Við sjávarsíðuna
eru sjófuglar af ýmsum tegund-
um mikilvægur hluti fæðunnar
hjá rebba en einnig ýmsir hrygg-
leysingjar úr fjörunni. Inn ti!
landsins er rjúpan mikilvægust
að vetrarlagi en ýmsir farfuglar,
sérstaklega gæsir og mófuglar,
lenda í kjafti rebba á sumrin. En
refir nærast líka á hræjum sauð-
fjár og hreindýra.
Þetta kemur fram í bæklingi
sem geymir úrdrætti úr erindum á
ráðstefnu Líffræðifélags íslands
um villt íslensk spendýr.Ráðstefnan
hófst í gær og stendur í allan dag. í
gær var rætt um refi, minka og
flökkuspendýr. I dag hefst ráð-
stefnan klukkan níu árdegis og þá
verður rætt um hvali, kiukkan eitt
taka selimir við og hreindýrin
klukkan fjögur. Allir eru velkomn-
ir í Norræna húsið meðan húsrúm
leyfir en aðgangur að ráðstefnunni
er ókeypis.
Það var Páll Hersteinsson
veiðimálastjóri sem fjallaði um
rebbann og bætti hann við í bæk-
lingnum að þó sumir refir væru
svo kallaðir dýrbítar og drepi lömb
þá sé það orðið mjög sjaldgæft
miðað við það sem gerðist á fyrri
hluta aldarinnar. Ekki verður rebbi
mjög gamall því meðalaldur is-
lenska refsins er tvö ár - það er
þeirra sem ná fjögurra mánaða
aldri. Þó hafa fúndist dýr á eilefta
vetri.
Melrakkinn, eða heimskautare-
fur, hefúr nyrsta útbreiðslu allra
refa og finnst á eyjum og megin-
löndum allt í kringum norðurheim-
skautið. Páll skrifar að aðlögun
melrakkans að kulda og snjó sé
með ólíkindum en hún felst meðal
annars í þykkum feldi með háu
hlutfalli þelhára miðað við vind-
hár, litlum eyrum, stuttu trýni og
skotti og loðnum þófum.
Það eru til tvö meginlitaraf-
brigði heimskautarefa. Annað er
brúnlcitt á baki og grátt á kvið á
sumrin en hvítt á vetuma og kall-
ast hvíta litarafbrigðið, hitt er
dökkt allt árið og nefnist mórauða
afbrigðið.
Karl Skímisson frá tilrauna-
stöðinni að Keldum sagði að þetta
væri fyrsta ráðstefna Líffræðifé-
lagsins um villt spendýr á íslandi.
Rebbinn fer Kkt og rjúpan I feluliti á veturna en hvlti liturinn kemur ekki rjúpinni að gagni þv( hún er eimitt ein aðalfæða
refsins á veturna. Mynd: Jim Smart.
Þetta er tíunda ráðstefna félagsins
en áður hafa verið haldnar ráð-
stefnur um jafn óskylda hluti og til
dæmis sameindaerfðafræði og
fiskeldi. Karl sagði að í félaginu
væru 400 manns bæði áhugafólk
og náttúmfræðingar. Hann taldi að
umíjöllunarefnið villt spendýr
höfðaði til mjög margra. Ráðstefn-
an er þannig uppbyggð að rann-
sóknir á dýrategundunum sem
gerðar hafa verið hér á landi em
Fyrstu niðurstöður rannsókna á geislavirkni t hreindýrakjöti leiða í Ijós að enn
finnast áhrif frá 30 ára gömlum tilraunum með kjamorkuvopn I andrúmsloftinu.
Ekki finnast áhrif af slysinu í Chernobyl.
kynntar og tala fjórir til fimm um
hvert efni. Síðan em umræður.
Karl upplýsir í bæklingnum að
árin 1931 og 1932 hafi verið fluttir
hingað til lands minkar frá norsk-
um Ioðdýrabúum. Svo til strax
sluppu minkamir úr haldi og fóm
að lifa villtir og fjölgaði minknum
mjög ört næstu áratugina. Ekki
verða minkar eldri en refir því
meðalaldur læða er 19 mánuðir og
steggja 28 mánuðir. Þó hafa fúnd-
ist sex og sjö ára gömul dýr,
A ráðstefnunni í dag verður
meðal annars rætt um geislavirk
efni í hreindýmm. Hjá Sigurði M.
Magnússyni forstöðumanni
Geislavama ríkisins kemur ffam
að undanfarin 30 ár hafa farið fram
rannsóknir á geislavirkum efnum í
hreindýrakjöti á norðlægum slóð-
um. Vitað er að kjötið sé ofl mikið
geislavirkt sérstaklega ef fléttur
em ríkur þáttur í fæðu hreindýra
en fléttur safna í sig geislavirkum
efnum. Sérstök rannsókn hófst hér
á landi 1990 og á hún að standa til
1994. Fyrstu niðurstöður leiða í
ljós að ekki er um greinileg áhrif
frá kjamorkuslysinu í Chemobyl
1986 að ræða en jafnframt kom í
ljós að enn gætir geislavirks úrfell-
is frá ámnum eftir 1960 þegar
gerðar vom tilraunir með kjam-
orkuvopn i andrúmsloftinu.
-gpm
Þessi minkur er úr loödýrabúri en
frændur hans komu fyrst hingað til
lands fyrir 50 árum og sluppu fljót-
lega út I frelsiö og hafa siöan lagt
undir sig landið. Mynd: Jim Smart.
co
f
Svo Sjálfstæöisflokkur
inn stefnir aö mannúð
og frelsi?
Já hin mjúku gildi skulu
höfö I fyrirrúmi. Viö er-
um flokkur náungakær-
leika og kristilegs siö-
gæöis. Komiö til mln
Þeir geta hreiöraö um sig I smá-
flokkunum og hætt aö angra heil-
brigt fólk sem kýs Sjálfstæöisflokk-
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl 1991
Síða 6