Þjóðviljinn - 13.04.1991, Blaðsíða 14
Kjördæmið má ekki við því
að missa Ragnar Amalds
Anna Kristín Gunnars-
dóttir, bæjarfulltrúi á
Sauðárkróki, skipar 3.
sætið á framboöslista
Alþýðubandalagsins á
Norðurlandi vestra.
Hún var spurð um
megin áherslur Alþýðubandalags-
ins.
Aðalhagsmimamál landsmanna tel
ég vera að vemda þann árangur sem
náðst hefur á undanfömum tveimur ár-
um og koma afrakstri þjóðarsáttar til
skila til launafólks. I þvi efhi hefur Al-
þýðubandalagið lagt fram skýrar til-
lögur um lífskjarajöfnun með því að
flytja til fjármagn frá hinum betur
stæðu og til þeirra verr settu, án þess
að hækka heiídarskattheimtu.
Nú upplifir fólk á mínum aldri það
í fyrsta sinn að verðbólga er ekki til
vandræða. Loksins er grundvöllur fyrir
áætlanagerð og heilbrigðum rekstri.
Við sveitarstjómarmenn finnum það
vel og það gera einnig þeir sem skulda.
Höfuðstóll skulda er loksins farinn að
lækka þegar greitt er af þeim, en
hækkar ekki um margfalda afborgun-
ina eins og á verðbólguárunum.
Það er alveg öruggt að ef Sjálf-
stæðismenn komast til valda, þá eyði-
leggja þeir þennan árangur og taka til
við að nlaða undir Reykjavíkurklíkum-
ar, en láta landsbyggðina og allan al-
menning gjalda fyrir. Ekki eru liðin
nema tvö ár síðan þeir sönnuðu fyrir
landslýð að þeir eru ófærir um að
stjóma, jafnvel þótt þeir hafi Fpamsókn
og krata til að styðjast við. Astandið
var nú ekki björgulegt þegar þeir gáf-
ust upp árið 1988, en merkilegt er
hvað fóll^virðist fljótt að gleyma ef
marka má skoðanakannanir.
A Norðurlandi vestra þarf að gefa
atvinnumálunum sérstakan gaum eins
og víðar. Samdráttur í sveitum leiðir af
ser að fólk þarf að sækja atvinnu utan
heimilis í auknum mæli. Það krefst aft-
ur á móti bættra samgangna, bæði með
uppbyggingu vega og auknum snjó-
mokstn. Það hlýtur að vera þjóðhags-
lega hagkvæmt að gera fólki kleift að
búa áffam á sínum neimaslóðum, með
slíkum aðgerðum, í stað þess að hús-
næði og jarðir falli úr ábúð um öll hér-
uð á meðan allt safnast saman á örfá-
um stöðum.
Jöfnun raforkuverðs er annað stór-
mál, en nú mun orkan seld neytendum
á 17 mismunandi töxtum. Mér finnst
líka liggja í augum uppi að orkuffekan
iðnað eigi að byggja upp í grennd við
virkjanir ef kostur er. Mér er sagt að
orkan ffá Blönduvirkjun rými um 20%
við flutning suður. Nýting orkunnar í
Húnavatnssýslum myndi þvf spara
stórar upphæðir.
Rætt hefur verið um að setja upp
verksmiðju á Islandi til vinnslu vetnis
sem ffamtíðarorkugjafa til útflutnings.
Eg er fýlgjandi því að staðsetja slíkt í
grennd við Blönduós og Skagaströnd.
Nú er búið að koma Þverárfjalls-
vegi inn í flokk stofnbrauta en hann
tengir saman Þéttbýlið Blönduós,
Skagaströnd og Sauðárkrók. Með upp-
byggingu hans skapast grundvöllur
fyrir ffekari samvinnu þessara staða í
atvinnumálum og fleiru.
Föstudagurinn 5. apríl var hátíðis-
dagur hjá íbúum þessa kjördæmis; við
vorum að uppskera vegna vinnu Ragn-
ars Amalds og ekki í fyrsta sinn. Rað-
herramir Olafur Ragnar og Svavar
Gestsson skrifuðu undir samning milli
rikisins og héraðsnefndar Skagafjarðar
um uppbyggingu bóknámshuss Fjöl-
brautaskola Norðurlands vestra. Það
mál komst fyrst á skrið þegar Alþýðu-
bandalagið komst til áhrifa. Reyndar
hefur uppbyggingu þessa skóla ekki
verið sýndur áhugi í verki nema þegar
Ragnar Amalds hefur beitt sér og ætti
unga fólkið í kjördæminu að minnast
þess á kjördag. Að mínum dómi á ungt
fólk ekki annað hagsmunamál brýnna
en að geta menntað sig sem mest og
best.,
í kosningunum stendur valið fyrst
Anna Kristfn: Jöfnun orkuverðs er
stómriál.
og ffemst á milli ffambjóðanda Sjálf-
stæðisflokksins úr Verslunarráði og
Ragnars Amalds. Vilhjálmur á mögu-
leika á uppbótarþingsæti ef Sjálfstæð-
isflokkunnn fær svipað fylgi og kann-
anir sýna, en það á Ragnar ekki.
Við verðum að fylkja okkur um
Ragnar því ef það er eitthvað sem þetta
kjördæmi má ekki við þá er það að
missa Ragnar Amalds út afþingi. Fólk
verður að gera sér grein fynr því að til
þess að hann sitji áffam á þingi verður
að kjósa G-listann.
IPIt otai m
JLjxX JLxkJLj 5 ÁJ
LONDON
KR. 14.700
BROTTFARARDAGAR:
1.-8.MAÍ -25.SEPT
VERÐ:
1 VIKA KR. 14.700
2 VIKUR KR. 15.800
3 VIKUR KR. 16.900
Í MAÍ 15.22.29.
JÚNI5.12.19.26. VERÐ:
JÚL(3.10.17.24.31. ÍVIKAKR. 16.900
ÁmiQT'J 1/1 m 'IO
AGUST7.14.21.28.
I SEPT. 4.11.18.
2 VIKUR KR. 17.700
3 VIKUR KR. 18.800
KAUPMANNAHOFN
KR. 15.800
BROTTFARARDAGAR:
1.-8. MAÍ, 5. JÚNÍ, 18.
VERÐ:
1 VIKA KR. 14.700
2VIKUR KR. 15.800
3 VIKUR KR. 16.900
25.SEPT. i
É
MAÍ f5.22. 29~
JUNÍ 12.19.26. VERÐ:
JÚL(3.10.17. 24.31. 1 VIKA KR. 17.400
AGUST7.14.21.28. 2 VIKUR KR. 17.900
SEPT. 4.11. 3 VIKUR KR. 18.900
ÞEGAR ER UPPPANTAÐI MARGAR FERÐIR
OG LÍTIÐ PLÁSS EFTIR í FLESTUM HINNA.
Leiguflugið okkar til London og Kaupmannahafnar opnar þér ótal
ferðaleiðir. Við bjóðum upp á ótrúlegt samningsverð á fjölda hótela, á
sumarhúsum og bflaleigum. Framhaldsflugferðir til allra heimsálfa, og
ferðir með enskum og dönskum ferðaskrifstofum.
Dæmi um okkar verð:
London flug og bfll, 1 vika 4 í bfl frá kr. 19.800.-
Kaupmannahöfn flug og bfll, 1 vika 4 í bíl frá kr. 18.900.-
Flug og sumarhús á Sjálandi, 1 vika 5 íhúsi frá kr. 19.800.-
Flug og sumarhús í Englandi, 4 í húsi 1 vika frá kr. 19.800.-
Flug og kastalagisting á ensku Rivierunni m. morgunv. 1 vika kr. 35.700.
2 vikur á Ibiza frá London ffá kr.23.400.-
2 vikur í Portugal frá London frá kr. 20.900.-
Ath. öll verð eru staðgreiðsluverð miðað við gengi 1. feb. '91
FLUCFERÐIR
Is
I ^
SGLRRFLUG
Vesturgata 12, Símar 620066,22100 og 15331
Tekist á um
lífsskoðanir
og stefnur
Sigurður Hlöðvesson, tækni-
fræðingur Siglufirði, skipar annað
sætið á framboðslista Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandskjör-
dæmi vestra. Ýmis deilumál hafa
komið upp í kjördæminu varðandi
atvinnuastand og leiðir til úrbóta.
Sigurður var spurður út í þessi
deilumál.
Átökin um fjárveitingar til hafha
í kjördæminu hafa sjálfsagt ekki farið
fram hjá neinum. Nú síðast var tekið
úr sjóði sem ætlaður var til að styrkja
sveitarfélög sem fóm illa út úr loðnu-
brestinum og notað til að styrkja aðra
staði, sem vissulega kunna að eiga
við erfiðleika í atvinnumálum að etja
en hafa aldrei gert út á loðnu.
Þetta er sýnilegast en auðvitað er
tekist á um iífsskoðanir og stefnur,
hvort áffam verði tryggður stöðuleiki
f efnhagsmálum þjóðarinnar eða
hvort honum skuli fórnað á altari
leymskunnar og horfið aftur til
örmungarárannaþegar Sjálfstæðis-
fiokkur, Alþýðufiokkur og Fram-
sóknarflokkur voru við stjóm efna-
hagsmála og skildu atvinnulíf á
landsbyggðinni eftir á heljarþröm.
Hverjar em framtíðarhorfumar í
atvinpumálum á Siglufirði?
Á síðustu tveimur árum hafa
gerst ýmsir góðir hlutir í atvinnumál-
um á Siglufirði. Fyrst og fremst er
rckstrargrundvöllur unairstöðuat-
vinnuvegarins allur annar en hann
var. Stjómvöld renndu einnig styrkari
stoðum undir atvinnulífið með pví að
beita sér fyrir sölu Sigló til Ingi-
mundar h/f.
Gjörbreytingar hafa orðið á mál-
efnum Þormóðs ramma. Ríkissjóður
breytti skuldum í hlutafé og lagfærði
með því eiginfjárstöðuna svo að á
síðasta ári var hún jákvæð í fyrsta
skipti á áraraðir. Þar með skapaðist
gmndvöllur fyrir því að heimamenn
gætu eignast fyrirtækið.
Mjög veí hefur verið unnið í
málefnum Bæjarsjóðs Siglufjarðar.
Fjármálaráðherra hefur tekið á
Sigurður Hlöðvesson: Fyrst og
fremst er rekstrargrundvöllur undir-
stöðuatvinnuvegarins allur annar en
hann var.
skuldamálum hitaveitunnar og með
þeirri sölu á hitaveitu og rafveitu til
Rarik sem nú hefur verið gengið ffá
mun staða bæjarsjóðs verða allt önn-
ur.
En þrátt fyrir það sem þegar hef-
ur verið gert þarf,enn meira átak í at-
vinnumálum. Ástandið er mjög
slæmt hér á Siglufirði vegna loðnu-
brestsins og uppsagna hjá Síldarverk-
smiðjum rikisins. I því máli tel ég að
meinhluti stjómar SR hafi brygðist
fádæma óskynsamlega við. I stað
þess að nýta þær 100 miljónir sem
stjómvöld útveguðu til þess að bjarga
rekstrinum og forða uppsögnum,
leggur meirihluti stjómar upp laup-
ana, gefst hreinlega upp, þratt fyrir
aðgerðir stjómvalaa. Það hefði verið
miklu nær fyrir þessa menn að segja
einfaldlega af ser. Þetta lítur út eins
og markvissar aðgerðir til að eyði-
leggja fyrirtækið.
En það þarf víðar að gera átak en
á Siglufirði. Eg nefni sérstaklega
Hofsós, sem hefur orðið fyrir áfalli,
og Húnavatnssýslur. Þegar virkjunar-
framkvæmdum við Blöndu lýkur
þarf pitthvað að taka við.
Eg tel að hafnarframkvæmdir á
Blönduósi muni því miður ekki vera
sá afivaki fyrir atvinnulífið sem
menn telja. Fjármunina mætti nýta til
betri verica með samvinnu Blönduóss
og Skagastrandar í hafnamálum;
verka sem styrki atvinnulífið til
ffambúðar.
Norðurlandskjördæmi vestra
Norðurlandskjördæmi vestra
er næst fámennasta kjördæmi
landsins með 7160 á kjörskrá eða
3,91% af kjósendum á landinu
öllu. Á Norðurlandi vestra hefur
kjósendum fækkað um 133 frá
því í alþingiskosningum 1987.
699 ungir kjósendur hafa nú í
fyrsta sinn rétt til að kjósa til al-
þingis.
A Norðurlandi vestra er kosið
um 5 þingsæti. I Alþingiskosning-
um 1987 voru úrslit á Norðurlandi
vesria sem hér segir: Alþýðuflokk-
ur hlaut 656 atkvæði eða 10,2%
greiddra atkvæða og 1 mann kjör-
mn. Framsóknarfiokkur fékk 2.270
atkvæði eða 35,2% og 2 menn.
Sjálfstæðisflokkur fékk 1.367 at-
kvæði (21,2%) og 1 mann. Al-
þýðubandalag hlaut 1.016 atkvæði
(15,7%) og einn mann. Flokkur
mannsins fekk 48 atkvæði (0,7%),
Borgaraflokkur 471 (7,3%),
Kvennalisti 337 (5,2%) og Þjóðar-
flokkur hlaut 288 atkvæði eða
4,5%.
Fyrir kosningamar 20. apríl
1990 eru 8 listar í boði á Norðður-
landi vestra. Þeir eru A- listi Al-
þýðuflokks, B-listi Framsóknar-
flokks, D-listi Sjálfstæðisflokks, F-
listi Fijálslyndra, G-listi Alþýðu-
bandalags, H-listi Heimastjomar-
samtakanna, V-listi Samtaka um
kvennalista og Þ-listi Þjóðar-
flokks/Flokks mannsins.
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. apríl
14